27.7.2014 | 15:03
Mánudagur til mćđu fyrir Pútín?
Margir lýđrćđissinnar hafa veriđ áhyggjufullir yfir ţví hvernig pólitíkin í Rússlandi hefur ţróast undir stjórn Vladimirs Pútín. Sú umrćđa er ekki ný; hún hefur veriđ ađ malla í tengslum viđ ýmsa atburđi í Rússlandi á valdatíma hans sem forseta og forsćtisráđherra. Ţar má nefna hernađarađgerđir Rússlands gegn Georgíu áriđ 2008 og ađgerđir rússneskra yfirvalda gegn olíufélaginu Yukos.
Nú síđustu mánuđina hefur ţessi umrćđa svo blossađ upp sem aldrei fyrr. Hún magnađist mjög í tengslum viđ innlimun Rússlands á Krímskaga - og svo enn frekar eftir ađ farţegaţotan var skotin niđur yfir austanverđri Úkraínu fyrir rúmri viku síđan.
Ţessa dagana eru allra augu á Pútín og andlit hans prýđir forsíđur margra ţekktustu fréttatímarita Vesturlanda. Ţar má nefna Newsweek, Time, Spiegel og Economist. Snögg yfirferđ yfir nýjustu tölublöđin og vefútgáfurnar segir okkur ađ ekki sé búist viđ miklum stuđningi Evrópuríkja viđ harđar efnahagsţvinganir eđa ađrar ađgerđir gegn Rússlandi. Ástćđan er sögđ vera tregđa landa eins og Frakklands og Ţýskalands til slíkra ađgerđa.
Tónninn í ţessum skrifum er samt nokkuđ mismunanda. Sérstaklega er áberandi sá mikli reiđilestur sem sjá má hjá ritstjórn Economist. Economist segir vestrćna leiđtoga sýna Putín alltof mikla linkind. Grípa ţurfi til víđtćks viđskiptabanns gagnvart Rússum, fleygja Pútín út úr öllu ríkjasamstarfi sem mögulegt er og ţrengja ađ gjörspilltri klíku hans.
Í umrćddri grein í Economist er reyndar fullyrt ađ Pútín muni falla. Og ţá muni koma í ljós how much money Mr Putin and his friends have stolen from the Russian people". Tilefni er til ađ staldra viđ ţessi orđ og skođa hvađ Economist á ţarna viđ. Ţađ kemur ekki skýrt fram í blađinu. En ţarna er Economist vafalítiđ ađ vísa til hins dularfulla eignarhalds í nokkrum lykilfyrirtćkjum í rússneska olíubransanum. Margir eru fullvissir um ađ stćrsti leynieigandinn ţar sé einmitt sjálfur Vladimir Pútín.
Mestöll ţau auđćvi, sem ţarna er um ađ rćđa, snúast um ţađ ţegar risaolíufélagiđ Yukos var gert gjaldţrota fáeinum árum eftir ađ Pútín varđ forseti Rússlands. Hér verđur athyglinni beint ađ ţeim tilfćringum. Og einnig vikiđ ađ dómsmáli sem um árabil hefir veriđ í gangi fyrir Alţjóđagerđardómnum í Haag í Hollandi. Ţar krefja stćrstu hluthafar Yukos rússneska ríkiđ um hvorki meira né minna en rúmlega 100 milljarđa USD í bćtur vegna ađgerđanna gegn Yukos. Ţarna eru risavaxnir hagsmunir á ferđinni - og dómur í málinu gćti jafnvel falliđ á morgun; mánudag! Ţađ er ţví upplagt ađ rýna ađeins í ţessi mál hér í dag.
Er Pútín auđugasti mađur veraldar?
Ţađ eru fyrst og fremst tvö stórfyrirtćki sem Pútín hefur veriđ bendlađur viđ. Ţau eru olíufélagiđ Surgutneftgas og hrávörufyrirtćkiđ Gunvor. Ađ auki er haldiđ fram ađ hann eigi hlut í olíurisanum Rosneft.
Surgutneftegas er eitt af stćrstu olíufyrirtćkjunum í Rússlandi og skilađi t.a.m. meira en 5 milljörđum USD í hagnađ á liđnu ári (2013). Fyrirtćkiđ er af mörgum taliđ hafa leikiđ lykilhlutverk í flókinni viđskiptafléttu ţegar olíurisinn Yukos var keyrđur í gjaldţrot fyrir tćpum áratug á grundvelli meintra skattaskulda - og eignir ţessa risafyrirtćkis voru seldar óţekktum kaupendum í nokkuđ furđulegu uppbođi.
Eins og kunnugt er rann mest af olíulindum og eignum Yukos á endanum til rússneska ríkisolíufélagsins Rosneft, sem stýrt er af einum nánasta bandamann Pútín's; Igor Sechin. En Surgutneftegas er sem sagt taliđ hafa lekiđ stórt hlutverk í ţeirri fléttu. Surgutneftegas er í dag tugmilljarđa dollara virđi - en ţađ magnađasta er ađ jafnvel ţó svo ţetta stóra og mikilvćga fyrirtćki sé bćđi skráđ í kauphöllinni í Moskvu og ţeirri í London eru stćrstu eigendurnir ţess óţekktir.
Sumir trúa ţví stađfastlega ađ Pútin sé stór hluthafi í Surgutneftgas og eigi jafnvel rúmlega ţriđjung hlutabréfanna. Ađ auki hafa veriđ fćrđ rök fyrir ţví ađ Pútín eigi sjálfur allt ađ helmingshlut í hrávörurisanum Gunvor. Og ađ auki dágóđan hlut í rússneska olíurisanum Rosneft. Samtals hafa ţessir meintu eignahlutir Pútín's í félögunum ţremur veriđ metnir á allt ađ 70 milljarđa USD. Eigi sögusagnirnar viđ rök ađ styđjast er Pútín ţví einn af allra auđugustu mönnum heims, ef ekki sá auđugasti.
Rosneft er vel ađ merkja eitt af tveimur stćrstu olíufélögum heimsins á hlutabréfamarkađi (ásamt Exxon Mobil). Og Gunvor hefur veriđ međ einkarétt á útflutningi ađ stćrstum hluta ţeirrar olíu sem unnin er úr rússneskri jörđu. Rússland er annađ af tveimur stćrstu olíuframleiđsluríkjum heimsins (ásamt Saudi Arabíu), ţ.a. ţarna eru á ferđinni einhverjir mestu viđskiptahagsmunir í heiminum öllum. En ţađ skal tekiđ skýrt fram, ađ umrćtt meint eignarhald Pútín's í Surgutneftegas, Rosneft og Gunnvöru er ósannađ. Og ennţá er líka alveg á huldu hverjir stćrstu hluthafarnar eru í bćđi Gunnvöru og Surgutneftegas.
Meint skattsvik og gjaldţrot Yukos
Stóru línurnar í eignarhaldi í olíuiđnađi Rússlands má ađ miklu leiti rekja til ţess ţegar Michail Khodorkovsky, ţá ađaleigandi Yukos, var handtekinn fyrir meint stórfelld skattsvik og spillingu. Ţetta var síđla árs 2003 - rétt í ţann mund sem bandaríski olíurisinn Exxon Mobil hugđist kaupa verulegan hlut í Yukos og verđa ţannig umsvifamikiđ í rússneska olíuiđnađinum. Khodorkovsky var ađ auki byrjađur ađ skipta sér ć meira af rússneskum stjórnmálum og hafđi veriđ orđađur viđ forsetaframbođ (gegn Pútín).
Yukos var ţá stćrsta olíufélag Rússlands. Khodorkovsky og viđskiptafélagar hans höfđu komist yfir ráđandi eignarhlut í Yukos í geggjađri einkavćđingu áranna ţegar Boris Jeltsin var forseti Rússlands á 10. áratugnum. Í kjölfar handtökunnar á Khodorkovsky og fleiri stjórnendum Yukos áriđ 2003 (nokkrir ţeirra náđu ađ sleppa úr landi og hafa síđan veriđ eftirlýstir af hálfu rússneskra saksóknara) var Yukos úrskurđađ gjaldţrota. Ţađ var gert á grundvelli meintra risavaxinna skattsvika fyrirtćkisins.
Í kjölfariđ voru olíulindir félagsins (flestar í Síberíu) og ađrar eignir Yukos seldar á sérstöku uppbođi. Ţau viđskipti eru mjög ţoku hulin, en fullyrt hefur veriđ ađ Surgutneftegas hafi ţar leikiđ stórt hlutverk. Á endanum runnu svo flestar eignir Yukos inn í rússneska ríkisolíufélagiđ Rosneft, sem varđ ţar međ í einu vetfangi stćrsta olíufélag Rússlands. Og rússneska ríkiđ aftur međ tögl og haldir í hinum risavaxna rússneska olíuiđnađi - rétt eins og veriđ hafđi á Sovéttímanum - og alfariđ undir stjórn manna sem eru nánustu samstarfsmenn Pútín's. Surgutneftgas er aftur á móti einkarekiđ og er, ţrátt fyrir afar óljóst eignarhald, eitt af stćrstu og ábatasömustu olíufélögum Rússlands.
Málaferli í Haag - meira en 100 milljarđar USD í húfi
Ţó svo Khodorkovsky vćri ađalmađurinn í Yukos voru ţar margir ađrir stórir hluthafar, enda um ađ rćđa sannkallađ risafyrirtćki. Sjálfur mátti Khodorkovsky dúsa í rússneskum fangelsum í áratug, en Pútín náđađi hann skyndilega í ađdraganda Vetrarólympíuleikanna í Sochi, sem fóru fram í febrúar s.l. (2014). Ađrir hluthafar Yukos hafa aftur á móti um árabil reynt ađ sćkja rétt sinn gagnvart rússneskum stjórnvöldum.
Ţau málaferli byggjast m.a. á ţví ađ eignir Yukos hafi veriđ seldar óralangt undir raunvirđi og gjaldţrot félagsins hafi veriđ leikrit eitt og ađgerđir rússneskra stjórnvalda kolólögmćtar. Og nú vill svo til ađ n.k. mánudag, ţ.e. á morgun 28. júlí, er búist viđ ađ dómur falli í einum mikilvćgustu málaferlunum sem tengjast gjaldţroti Yukos. Ţar er um ađ rćđa fyrrnefnt mál fyrir Alţjóđagerđardómnum í Haag í Hollandi - og eins og áđur sagđi nemur skađabótakrafan rúmum 100 milljörđum USD.
Leonid Nevzlin leiđir hópinn
Dómsmáliđ í Haag kemur til vegna sérstaks ţjóđréttarsamnings (alţjóđasamnings) um orkumál, sem nefnist Energy Charter. Nú eru um fimm ár liđin síđan Alţjóđagerđardómurinn kvađ upp ţann úrskurđ ađ dómurinn ćtti lögsögu í málinu og ađ Rússland vćri bundiđ af henni.
Skađabótamáliđ er sótt af félagi sem nefnist GML, gegn rússneskum stjórnvöldum. GML er ađ stćrstum hluta í eigu eins af fyrrum framkvćmdastjórum Yukos, en sá er milljarđamćringurinn Lenid Nevzlin. Nevzlin náđi ađ forđa sér frá Rússlandi ţegar helstu stjórnendur Yukos voru handteknir áriđ 2003 og hefur síđan veriđ eftirlýstur af Rússum. Ţađ var reyndar réttađ yfir Nevzlin í Rússlandi áriđ 2006 (ađ honum fjarstöddum) og hann ţar dćmdur í pent ćvilangt fangelsi, m.a. fyrir morđ. Sjálfur segir Nevzlin ađ réttarhöldin hafi veriđ farsi og ađ undirlćgi Pútín's.
GML er í raun eignarhaldsfélag, sem yfirtók eignir eldra eignarhaldsfélags, Group Menatep, sem átt hafđi meirihlutann í Yukos. Stćrsti eigandinn í Group Menatep var ađ sjálfsögđu Khodorkovsky. En hann náđi ađ framselja ţann eignarhlut sinn (og ţar međ ráđandi hlut sinn í Yukos) til Nevzlin áđur en dómurinn féll yfir Khodorkovsky sjálfum. Tilgangurinn međ ţeiri ráđstöfun var ađ tryggja ađ rússnesk stjórnvöld kćmust ekki yfir eignina. En eins og kunnugt er breytti sú ráđstöfun engu, ţví Yukos var keyrt í ţrot á grundvelli risavaxinna krafna um meint skattsvik, sem numu tugum milljörđum USD. Ţar međ urđu hlutabréfin í Yukos verđlaus og skipti ađ sjálfsögđu engu í ţví sambandi hvort Khodorkovsky eđa Nevzlin var hinn endanlegi eigandi ţeirra.
Nevzlin er nú búsettur í Ísrael (hann er af gyđingaćttum), en er nú vafalítiđ međ hugann viđ dómsuppkvađninguna á morgun. Dómstólinn hefur reyndar ekki stađfest tímasetningu dómsins, en ađ sögn lögmanna GML er búist viđ ađ ţetta verđi á morgun. Ţarna fara fremst í flokki stjörnulögmađurinn Yas Banifatemi og kollegi hennar hjá Shearman & Sterling, Emmanuel Gaillard.
Samtals rúmlega tuttugu ára fangavist ađ baki
Verđi ađ fullu fallist á kröfur Leonid Nevzlin og félaga hans, ţá á Nevzlin sjálfur lögmćta u.ţ.b. 70 milljarđa USD kröfu á rússneska ríkiđ! Ađrir ađilar málsins eru Platon Lebedev, Mikhail Brudno, Vladimir Dubov og Vasily Shakhnovsky, sem hver um sig er međ um 7,5% hlut í kröfugerđinni (í samrćmi viđ eignarhlut ţeirra í GML; áđur Group Menatep). Ţeir voru allir nánir samstarfsmenn Khodorkovsky's og Lebedev er fyrrum forstjóri Group Menatep.
Hvernig Nevzlin, Lebedev og félögum myndi ganga ađ innheimta aurinn í Rússlandi, vinni ţeir máliđ á annađ borđ, er svo annađ mál. Ţess má geta ađ af fréttum og annarri umfjöllun um máliđ virđist nokkuđ ljóst ađ Khodorkovsky mun njóta góđs af ţví ef málareksturinn skilar einhverjum fjármunum, jafnvel ţó svo hann eigi ekki formlega ađild ađ málinu.
Ţeir Brudno og Dubov náđu, rétt eins og Nevzlin, ađ forđa sér áđur en ráđist var gegn Yukos 2003. Shakhnovsky var handtekinn og ákvađ ađ játa á sig sakir og slapp međ árs fangelsi (hann býr nú í Sviss). Lebedev mátti aftur á móti dúsa í áratug í rússnesku fangelsi, rétt eins og Khodorkovsky, en var náđađur í janúar s.l. (rétt fyrir Ólympíuleikana). Ţađ er ţví augljóst ađ sama hvernig máliđ fer ţá hafa ţeir Khodorkovsky og Lebedev mátt greiđa afskipti sín af Yukos dýru verđi, međ samtals rúmlega tuttugu ára fangavist ađ baki. Og ađ frátöldum Shakhnovsky munu hinir af umrćddum viđskiptafélögunum í GML vćntanlega áfram ţurfa ađ lifa sem landflótta og eftirlýstir menn.
Ţađ er vissara ađ spá engu um ţađ hvernig máliđ í Haag fer. Ţađ er líka óvíst hvort niđurstađa málsins muni hafa merkjanleg áhrif á pólitíska stöđu Pútín's. En vinni GML máliđ međ ţeim hćtti ađ umtalsverđ bótaskylda verđi lögđ á rússnesk stjórnvöld, mun stađa hans a.m.k. vart styrkjast. Viđ sjáum hvađ setur.
Flokkur: Viđskipti og fjármál | Breytt 30.7.2014 kl. 10:04 | Facebook
Athugasemdir
Velti ţví fyrir mér hverjir ţessir ahyggjufullu lýđrćđissinnar séu, í ljósi síaukins lýđrćđishalla hjá vestrćnum ríkjum.
Velti ţví líka fyrir mér hvernig Lenid Nevzlin fyrrverand starfsmađur Jarđfrćđiráđuneytis fyrrum sovétríkja náđi ađ gerast einn af olíugörkum Rússlands.
Ţađ er ljóst ađ spillingin grasserađi áđur en Pútín komst til valda og gerir enn.
Er ţetta ekki spurning um hverjir eru ţóknanlegir í augum ţessara " áhyggjufullu lýđrćđissinna "?
L.T.D. (IP-tala skráđ) 27.7.2014 kl. 17:52
Domurinn er kominn. Leonid Nevzlin og félagar unnu máliđ í Haag. Rússnesk stjórnvöld dćmd til ađ greiđa 50 milljarđa USD í skađabćtur vegna Yukos!
Sjá t.d. hér:
http://www.reuters.com/article/2014/07/28/us-russia-yukos-idUSKBN0FW0TP20140728
Ketill Sigurjónsson, 28.7.2014 kl. 11:40
Sjá má hlekk á sjálfan dóminn hér:
http://www.pca-cpa.org/shownews.asp?nws_id=440&pag_id=1261&ac=view
Ketill Sigurjónsson, 28.7.2014 kl. 12:06
Ekki ađ sjá ađ íslenskir fjölmiđlar séu mikiđ ađ fjalla um máliđ. En hér eru skondnir punktar á vef FT:
http://ftalphaville.ft.com/2014/07/28/1910622/yukos-putins-loose-lips/
Ketill Sigurjónsson, 28.7.2014 kl. 12:14
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.