Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

"Grænt" pólflug

Emirates var að byrja með nýja flugleið. Milli Dubai og San Francisco - yfir Norðurhjarann. Og markaðsdeildin hjá Emirates virðist hafa unnið heimavinnuna sína vel. Fréttir um hið stórkostlega græna pólflug Emirates ganga nú ljósum logum um netheima fjölmiðlanna.

Emirates_aircraft

Við fall Sovétríkjanna opnuðst ýmsir nýir möguleikar í yfirflugi. Fyrir vikið varð talsverð aukning í að flugfélög breyttu langflugleiðum sínum. Til að stytta flugleiðir var nú byrjað að fljúga yfir Norður-heimsskautasvæðin og hluta af Rússlandi. Og hefur aukist jafnt og þétt síðustu 15 árin eða svo.

Það er sem sagt ekki nýtilkomið að flogið sé yfir blessað Norðurskautið. En nýjasta flugleiðin þarna yfir er sem sagt milli Dubai og San Francisco. Og Emirates náðu athygli fjölmiðla um allan heim, með því að kynna flugið sem “worlds longest green flight”. Grænn og grípandi titill á fréttatilkynningu, sem fjölmiðar um allan heim ljósrita nú í gríð og erg og bera boðskapinn áfram.

Þetta eiturgræna flug náðist með því að velja sem allra stysta leið á glænýrri Boing 777-200LR vél. Sem nýtir eldsneyti vissulega betur en flestar aðrar farþegaþotur hafa hingað til gert.

Emirates_Logo

Íslensk flugmálayfirvöld eru sögð hafa verið meðal þeirra sem gerðu þetta "einstaka og umhverfisvæna" flug mögulegt. Vélin þurfti m.ö.o. að fara um íslenskt flugumferðarsvæði.  Sem er auðvitað hið besta mál - en segir manni líka að líklega fór flugvél Emirates lítt nær Norðurpólnum en gengur og gerist í Ameríkuflugi Icelandair. Og það er óneitanlega líka vafamál, hvort þetta flug Emirates hafi eitthvað með raunverulega umhverfisvernd að gera.

Þeir ljúflingarnir þarna í hinu undarlega, olíuþverrandi furstadæmi Dubai vilja meina að með því að fara styðstu leið yfir pólinn, hafi þeir sparað rúm 7 tonn af flugvélabensíni. Og fyrir vikið losað hátt í 20 tonnum minna af koldíoxíði. Snyrtilegt.

Og ekki er verra, að í þessum nýju glæsiþotum Emirates er farþegum á fyrsta farrými boðið upp á að fara í sturtu. Það myndi Orkubloggið svo sannarlega þiggja - í flugferð sem tekur meira en hálfan sólarhring. Þetta sturtuvesen kallar reyndar á svo mikla auka vatnsflutninga, að einhverjir leiðindapúkar hafa freistast til að benda á, að þar með sé mestur orkusparnaðurinn fokinn út í veður og vind. Græna flugið drukkni sem sagt í heitri sturtu.

Emirates_Al_Maktoum_2

Þá er óneitanlega athyglisvert að Sheikinn hann Ahmed bi Saeed Al-Maktoum, stjórnarformaður Emirates, er búinn að panta heilar 55 Airbus A380S. Það fékk Airbus-menn auðvitað til að brosa breitt, enda pöntun sem líklega hljóðar upp á einhverja tugi milljarða dollara. Þessir nýju rosabelgir frá Airbus geta flutt allt að 900 farþega - en Shékinn ætlar reyndar að láta innrétta vélarnar þannig að vel fari um fólk! Fyrir vikið verður einungis pláss fyrir um 500 farþega í hinum risavöxnu Airbusum hjá Emirates. Orkubloggið hlakkar mikið til að geta teygt úr fótunum – og sinnt umhverfisvernd um leið.

Þetta verða örugglega ákaflega græn flug hjá Emirates, rétt eins og fyrsta Frisco-flugið þeirra var nú um miðjan des. Því til að spara eldsneyti eiga risabelgirnir ætíð að fá forgang á flugvellinum í Dubai. Enginn bið eftir lendingu, né flugtaki Og það á líka að endurvinna öll dagblöð, sem fara um borð. Æðislegt.

Emirates_airbus_in

Og ég vil ekki heyra neitt tuð um það, að á meðan stóru bumburnar fái forgang þurfi nettari og gamlar Boeing 747 að bíða með alla hreyfla á fullu. Gleymið ekki að það á að endurvinna dagblöðin! Grænasta pólflug heims er staðreynd. Geisp.

Sjá má fréttina um flugið græna t.d. hér: http://www.cnbc.com/id/28366929


Spennandi háspenna!

765 þúsund volt. Það er skammturinn fyrir spennufíkla dagsins. Orkubolta sem ekki geta eytt jólunum í leti.

Kannski má segja að í ágúst s.l. hafi orðið ákveðin tímamót í raforkumálum Bandaríkanna. Og endur-rafvæðing hafist þar í landi. Þá var tilkynnt um samstarf fyrirtækjanna American Electric Power og Duke Energy um að byggja nýtt og öflugt háspennukerfi í Indianafylki. Fyrir um 1 milljarð dollara.

Grid_765kV_US

Mest allt flutningskerfi rafmagns í Bandaríkjunum er um aldarfjórðungs gamalt. En nú eru að verða miklar breytingar vestur í Indiana, sem lengi hefur legið í skugganum af Illinois og Michigan. Þetta dreifbýlistúttufylki er líklega þekktast fyrir stálframleiðslu. En þeir sex milljón drottinssauðir sem búa þarna í Indiana eru ekki bara í stáli. Heldur standa þeir líka sveittir við að framleiða rafmagn - samtals hátt í 30 þúsund MW.

Lang stærstur hluti rafmagnsframleiðslunnar í Illinois kemur frá kolaorkuverum eða um 20 þúsund MW. Þrifalegt eða hitt þó heldur. Þar er Gibson-verið í eigu Duke Energy stærst með meira en 3.300 MW framleiðslugetu. Og þetta subbulega rafmagn, sem rekja má til gríðarmikilla kolanáma í fylkinu, er ein helsta "útflutningsvara" íbúa Indiana.

765kV_tower_sunset

Þó svo Indiana verði seint prísað fyrir hreina orku, eru athygliverðir hlutir að gerast þarna á flatneskjunni. Nýju raflínurnar sem ljúflingarnir hjá Duke Energy og hinu fornfræga AEP ætla að reisa til að efla orkuflutning innan Indiana og til miðvesturríkjanna, eru boðberar mikilla breytinga. Nýja kerfið er ekki aðeins hugsað sem öflugra flutningskerfi með nýjum 765 kV línum. Heldur er hönnunin öll miðuð við það, að inn á kerfið komi raforka frá fjölmörgum nýjum vindorkuverum.

Í Indianafylki einu eru nú uppi áætlanir um að framleiða allt að 3 þúsund MW með vindorku. Sem á mannamáli merkir ca. 1-2 þúsund risastórar vindtúrbínur. En miðað við raforkuflutningskerfi Bandaríkjanna í dag, er tómt mál að tala um byltingu í uppbyggingu endurnýjanlegrar orku. Nema til komi gríðarleg fjárfesting í flutningskerfinu.

Nýju vind- og sólarorkuverin þar vestra eru flest fjarri núverandi kola- og gasorkuverum. Þar að auki hefur núverandi kerfi ekki þolað frelsisvæðingu bandaríska orkugeirans. Allt í einu gátu orkufyrirtækin selt raforku til neytanda óralangt fjarri orkuverunum. Enron blómstraði og Kalifornía fór í blackout. Kerfið stóð víða ekki undir þessum breytingum og afleiðingarnar voru víðtækar bilanir og langvarandi rafmagnsleysi á stórum svæðum.

765kV_US_Wnd

Bandaríska orkumálaráðuneytið hefur lagt fram áætlun um að á næstu tveimur áratugum verði 60 milljörðum dollara varið í að byggja upp nýtt landsnet. Sem að stóru leyti verður 765 kV línur. Sjálfir tilkynntu þeir hjá AEP nú í snemma í desember um þau plön sín að byggja 1.600 km af þessum nýju háspennulínunum á næstu 10 árum. Það verður fjárfesting upp á 5-10 milljarða dollara.

Það er ekki hlaupið að því að fleygja upp slíkum rosalegum háspennulínum. Bæði myndast mjög sterkt rafsegulsvið umhverfis svona mikla háspennu, auk þess sem eflaust verða ljón í vegi þess að semja við landeigendur og skipulagsyfirvöld um línulagninguna. NIMBY’s allra landa sameinist!

landsnet

Til samanburðar mætti nefna að svona 765 kV línur þekkjast ekki á Íslandi. Enda tæplega þörf fyrir svo mikla flutningsgetu hérlendis. Enn sem komið er, eru 132 kV og 220 kV línur normið hér á Klakanum góða. En orkuálagið hefur aukist gríðarlega síðustu tvo áratugina. Og í þessum bransa þarf líka talsverða framsýni, sökum þess að endingatími kerfanna er allt að heil öld. Fyrir vikið er nú byrjað að reisa hér á Íslandi 420 kV raflínur, a.m.k. á SV-landi, þó svo spennan á þeim í dag sé einungis 220 kV. Þetta stúss er nú í höndum ríkisfyrirtækisins Landsnets.

Micael_Morris

Höfuðpaurinn að baki metnaðarfullum áætlunum AEP og Duke Energy um nýtt meganet í Bandaríkjunum er reynsluboltinn Michael Morris, forstjóri AEP. Hann hlýtur reyndar að vera Íslandsvinur, því nýlega var Morris kjörinn í stjórn Alcoa. Vonandi býður Rannveig Rist honum fljótlega ti Íslands – og kynnir honum fjárfestingamöguleika hér á landi. Því miður er Orkubloggið ekki persónulega kunnugt Rannveigu. En ég man vel eftir pabba hennar, honum Sigurjóni Rist, þegar hann kom austur í Skaftafellssýslu að mæla Skaftárhlaupin. Í þá gömlu góðu hér í Den. Fátt er tilkomumeira en Eldvatnið í vestanverðu Skaftáreldahrauni í slíku hlaupi.

AEP lætur sér ekki nægja að eiga flutningskerfi upp á meira en 60 þúsund km af raflínum. Heldur eru þeir líka stórtækir í rafmagnsframleiðslu, með tæp 40 þúsund MW. Og eru því reyndar eitt af stærstu raforkufyrirtækjum Bandaríkjanna. Og auðvitað langstærstir í nýju megaháspennulínunum.

Clean_Coal_Vattenfall

Þó svo Morris og AEP hafi stundum mátt sæta ásökunum um að flytja "skítuga" raforku, er vel hugsanlegt að þeir fái bráðum umhverfisverðlaun. Ekki aðeins fyrir nýjar áherslur um flutning endurnýjanlegrar orku - heldur líka framleiðslu "hreinnar" kolaorku.

Nú eru nefnilega komin fram kolaorkuver sem alls ekki losa nokkurt koldíoxíð. Því er öllu dælt ofaní jörðu. Það voru Svíarnir hjá Vattenfall, sem fyrstir byggðu slíkt ver. Og voru einmitt að opnað það fyrir örfáum mánuðum austur í Þýskalandi. Enn eitt lóð á vogarskál þeirra sem trúa á framtíð kola til raforkuframleiðslu. Í huga Orkubloggsins er enginn efi um að kol verða mikilvæg orkuuppsprettan næstu hundrað árin. Þó svo bloggið muni seint samþykkja kol sem hreina orkulind. En það er auðvitað allt önnur saga.

Orkubloggið - og Ketill - óska lesendum bloggsins gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.


Olíufíkillinn

Orkubloggið hefur ítrekað dásamað möguleika sólarorkunnar. Bæði speglatæknina (CSP) og sólarsellurnar (PV). Og ekki síður verið ófeimið að lýsa hrifningu sinni á risastórum vindtúrbínum.

Oil addiction US_2

Bandaríkin eru olíufíkill. "Addicted to oil", svo vitnað sé í Bush sjálfan. Efnahagskerfið hefur kallað á sífellt meiri innflutning á olíu og skattaumhverfið gælt við olíufyrirtækin, meðan möguleikar í endurnýjanlegri orku hafa fengi litla athygli stjórnvalda.

Undanfarin ár hafa bjartsýnismenn engu að síður sett mikinn pening í þróun og byggingu orkuvera, sem framleiða rafmagn úr sól og vindi. Já - jafnvel vestur í Bandaríkjunum, hvar þessi iðnaður hefur nánast verið í herkví tilviljanakenndra skammtímaákvarðana þingsins. Þar vestra hafa sumir framsýnir menn leyft sér að vonast eftir breytingum. Að senn myndu pólitíkusar gera alvöru úr yfirlýsingum um mikilvægi orkusjálfstæðis Bandaríkjanna. Og hætta að láta olíuiðnaðinn hirða mest alla ríkisstyrki í orkugeiranum.

csp_para_mirror

Bæði vindorkan og sólarorkan bjóða upp á mikla möguleika. Sólarorkan er að vísu ennþá mjög dýr. Í reynd er vindorkan ennþá eina tegund endurnýjanlegrar orku sem hefur einhverja burði til að keppa við gas og kol. En hingað til hefur vindorkuna illilega skort aðgang að dreifikerfi - eða öllu heldur flutningskerfi - til að geta orðið umtalsverður þáttur í rafmagnsframleiðslu Bandaríkjanna. Nú virðast loks vera að skapast aðstæður þar vestra, sem gera munu bæði vind- og sólarorku að raunverulegum valkosti. Þetta gæti valdið straumhvörfum og gríðarlegum uppgangi í þessum iðngreinum.

Oil addiction US_3

Nú er að sjá hvort Obama standi við stóru orðin. Og skapi endurnýjanlegri orku hagstæðara rekstrarumhverfi. Það myndi gleðja Orkubloggið. Enda er staðan einfaldlega sú, að án einhverskonar stuðnings getur endurnýjanleg orka almennt ekki keppt við rafmagnsframleiðslu frá gas- eða kolaorkuverum.

Sá stuðningur getur falist í niðurgreiðslum eða skattaívilnunum. Nú er þó líklegast að kolefnisgjald í einhverri mynd muni leika stærsta hlutverkið í orkupólitíkinni vestra. Og geri endurnýjanlega orku samkeppnishæfa við hefðbundna rafmagnsframleiðslu, sem fæst frá bruna á jarðefnaeldsneyti.

Við skulum samt ekki fagna of snemma. Munum hvernig fór með metnaðarfullar áætlanir Jimmy Carter á 8. áratugnum. Þá voru Bandaríkjamenn enn í sjokki eftir olíukreppuna og nú átti að breyta heiminum. Þetta voldugasta ríki heims skyldi sko ekki aldeilis lengur vera háð innfluttri olíu.

US_DOE_logo.svg

Í tíð Carter’s var orkumálaráðuneytið bandaríska stofnað og sólasellum komið fyrir á sjálfu Hvíta húsinu. En svo lækkaði olíuverðið snarlega aftur snemma á 9. áratugnum og endurnýjanleg orka féll meira eða minna í tveggja áratuga gleymsku. Loks upp úr aldamótunum skreið olíuverðið upp á ný og vindorka og sólarorka urðu aftur töfraorð í orkugeiranum.

Menn eru auðvitað óþreytandi við að bera saman kostnaðinn af mismunandi orkugjöfum og lesa þannig út hvar bestu tækifærin liggja. Þar vill hver og einn gera sem mest úr "sínum" orkugeira. Í sólarorkuiðnaðinum benda menn á, að sólin er stærsta mögulega orkuuppsprettan og að tækniframfarir muni senn gera sólarorkuna samkeppnishæfa við gas. Vindorkuiðnaðurinn hamrar á því hversu miklu ódýrari sú orka er heldur en sólarorkan. Og að vindorkan sé þroskuð og áreiðanlega tækni. Kjarnorkan dansar líka á sviðinu og hefur skyndilega fengið grænni ásýnd en áður var. Af því nú er í tísku að óttast hlýnun jarðar - en ekki hina langvarandi geislavirkni frá kjarnorkuúrganginum.

Oil addiction US_1

Lífmassinn er líka ein af lausnunum . En hefur ekki náð að hrista af sér það klístur, að sú orkuuppspretta stuðli að hungri í heiminum. Jarðhitinn þykir nokkuð spennandi, enda eru jarðhitafyrirtækin dugleg að benda á að rekstrarkostnaður orkuveranna þeirra er lágur. Jarðhitinn hefur samt ekki hlotið nándar nærri eins mikla athygli og sólar- eða vindorka. Kannski aðallega vegna þess að á lághitasvæðum eru jarðhitavirkjanirnar fremur litlar og stofnakostnaðurinn hár. Framtíð jarðhita við rafmagnsframleiðslu er engu að síður björt - að mati Orkubloggsins. En verður í miklu minni mæli en sólar- eða vindorka. Þá eru ónefndir fjarlægari möguleikar eins og ölduorka eða virkjun sjávarfalla.

WindTurbinesSenset

Hvað sem öllu þessu líður, þá er það staðreynd að sólarorkan og vindorkan ljóma mest á veraldarhimni endurnýjanlegrar orku. Bæði í Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og í Kína. Í dag er vindorkan á nokkrum stöðum farin að geta keppt við rafmagn frá kolum og gasi. Það er árangur margra áratuga tækniþróunar, þar sem evrópsk fyrirtæki eins og Siemens og Vestas eru í fararbroddi. Enda hafa þau lengi notið mikils fjárhagslegs velvilja heimafyrir og innan Evrópusambandsins.

Vindur hefur ekki bara þótt fínn í Evrópu, heldur líka verið áberandi í Bandaríkjunum. Þeir eru samt talsvert á eftir Evrópu í uppsetningu stórra vindorkuvera. Þar vestra voru menn lengi vel hrifnari af sólarorkunni. Báðar þessar tegundir rafmagnsframleiðslu henta mjög vel á gríðarstórum svæðum í Bandaríkjunum; sólin í suðvesturríkjunum og vindurinn í miðríkjunum. Um 1980 blasti afar björt framtíð við bandaríska sólarorkuiðnaðinum. En svo komust Reagan og Bush eldri í Hvíta húsið, olían lækkaði á ný og einungis brjálaðir milljarðamæringar tímdu að setja pening í aðþrengdan vind- og sólarorkuiðnað.

Oil addiction US_5

Eftir því sem árin liðu jókst olíuinnflutningur Bandaríkjanna og menn fóru á ný að hafa áhyggjur af olíufíkninni. Samhliða þessu fengu umhverfismál æ meiri athygli og ýmis ríki Bandaríkjanna fóru að setja "græn" lög til að styðja við bakið á fyrirtækjum í endurnýjanlega orkugeiranum. Þar bar kannski mest á hinum frjálslyndu Kaliforníubúum. En í reynd var það gamla olíufylkið Texas sem fór þarna fremst. Enda eru þar á sléttunum gríðarleg tækifæri til að reka bæði sólarorkuver og ekki síður vindorkuver.

Einn frægasti Texasbúinn, fyrirtækjahrellirinn Boone Pickens, sneri baki við olíunni og tók að moka peningunum sínum í vindorku. Allt virtist á uppleið í þessum iðnaði. En svo kom kreppan. Olíuverðið hrundi - og dregur allan orkugeirann með sér í kviksyndið. Hlutabréf í endurnýjanlega orkugeiranum hafa flest lækkað hressilega upp á síðkastið. Mun sagan eftir Carter endurtaka sig og endurnýjanleg orka fá sér annan 20 ára Þyrnirósarsvefn?

Ef repúblíkanar myndu ráða Bandaríkjunum er nokkuð víst að nú mætti sjá Orkubloggið hlaupa skrækjandi með skelfingarsvip í burtu frá öllu sem heitir endurnýjanleg orka. En það er smá von í Obama. Jafnvel þótt olíuverðið haldist lágt í einhvern tíma, er bloggið bjartsýnt um að endurnýjanlegi orkugeirinn geri það gott á næstu árum. Það virðist nefnilega vera kominn upp alvöru pólitískur vilji í Bandaríkjunum til að byggja upp raunverulegan valkost – lækningu við olíufíkn landsmanna. Og austan Atlantshafsins var ESB nú í vikunni sem leið, að negla niður metnaðarfulla áætlun um mikinn samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Sem er veisla fyrir bæði vind og sól.

Oil addiction US_9

Með kjöri Obama eru líkur á að endurnýjanlegi orkuiðnaðurinn sjái loks að baki bútasaumi repúblikananna og fái stöðugra rekstrarumhverfi. Það mun hvetja til fjárfestinga í þessum greinum - og jafnvel skapa græna fjárfestingabólu.

Vissulega sveimar nú kreppuvofan yfir iðnaðinum. En það gæti reyndar farið svo að kreppan ýti enn frekar undir uppsveiflu í endurnýjanlegri orku. Kreppu fylgja uppsagnir og atvinnuleysi í hinum hefðbundnu iðngreinum. Obama hyggst ekki einungis moka pening í endurnýjanlega orku út af fögrum fyrirheitum um orkusjálfstæði og minni gróðurhúsaáhrif. Það er nefnilega svo, að ef unnið verður t.d. að því markmiði að 20% rafmagns í Bandaríkjunum komi frá vindorkuverum, mun það eitt skapa allt að 500 þúsund ný störf. Vinna gegn kreppu og atvinnuleysi. Og um leið minnka gasþörfina um 10%. Það gas kæmi að góðum notum í að knýja vöruflutningabílaflota landsins. Tvær stórar flugur í einu höggi. Og mikilvægt skref í átt að orkusjálfstæði bandarísku þjóðarinnar.

electricity_grid

Athyglisvert er að það helsta sem kann að standa í vegi fyrir þessari ágætu framtíðarsýn, er ekki lengur skortur á pólitískum vilja eða ónóg tækniþekking. Heldur flutningskerfið. Raflínurnar sem sjá um rafmagnsflutningana í Bandaríkjunum eru einfaldlega ekki byggðar til að flytja raforku frá fjölmörgum nýjum, stórum vind- eða sólarorkuverum. Fjárfesting í virkjunum af þessu tagi kallar því líka á miklar fjárfestingar í flutningskerfinu. Og menn eru ekki á eitt sáttir um hver eigi að borga þann brúsa. Meira um það síðar hér á Orkublogginu. Því fátt er meira spennandi þessa dagana vestur í Ameríku, en sjálf háspennan. Háspennandi!

---------------------

Annars bar það til tiðinda á Klakanum góða í dag, að Alþingi samþykkti breytingu við íslensku olíulögin. Þau heita reyndar Lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Orkubloggið hefur klórað sér i hausnum yfir því að íslenska ríkið hefur ekki sýnt neina tilburði um að taka þátt í hugsanlegri olíuvinnslu á íslenska landgrunninu. Lagatextinn er enn ekki kominn á vef Alþingis. En skv. frumvarpinu má gera ráð fyrir að Ísland verði að mestu einungis áhorfandi að olíuvinnslunni. Meðan norska ríkið varð strax öflugur þátttakandi í olíuvinnslu á norska landgrunninu. Og fyrir vikið eiga Norðmenn nú eitt öflugasta fyrirtæki heims í olíuvinnslu úr hafsbotni. StatoilHydro.


Ný dögun hjá Aramco

OPEC sagði í morgun að þeir ætli að stöðva þetta rugl. Og kippa 2 milljón tunnum af markaðnum. Svo olíuverðið komist aftir upp í vitrænar hæðir.

opec-logo

Gott að heyra. Þó svo markaðurinn brygðist heimskulega við (verðið lækkaði talsvert á Nymex í dag).

Í færslu gærdagsins lýsti Orkubloggið einmitt eftir einhverju svona frá OPEC. Verðið er orðið rugl. Þeir ljúflingarnir Olíu-Ali og Chakib Khelil brugðust hratt og vel við tilmælum bloggsins um tafarlausar aðgerðir. Auðvitað. Nú er bara að vona að þeir fylgi orðum sínum eftir. Og minnki hressilega bununa úr krananum.

Sádarnir sjálfir segjast vilja fá verðið í 75 dollara. Ættu að fara létt með það blessaðir, ef þeir í alvöru vilja. Best að verðlauna þá með örlítið meiri umfjöllun hér á Orkublogginu. Taka upp þráðinn þaðan sem frá var horfið í gær og velta fyrir sér stöðu Saudi Aramco til framtíðar.

Sumir bölsýnismenn eru eitthvað að spá Sádunum vandræðum. Að Ghawar sé að drukkna í vatnsdælingunni og sé ekki lengur viljugt að skila svarta gumsinu. Ég segi nú bara að menn ættu að skammast sín. Að gefa í skyn að Sádarnr séu einhverjir þumbarar, sem kunni lítið annað en að stinga stráinu í jörðina og bíða eftir að svarta gullið spýtist upp! Í reynd er Saudi Aramco líklega orðið eitthvert tæknivæddasta olíufyrirtæki heims. Með óhemju þekkingu og reynslu, langt umfram bandarísku félögin.

Aramco_capacit_2007

Sádarnir eru búnir að græða þvílíkan óhemju pening síðustu árin, að þeir vita ekki aura sinna tal þessa dagana. Meðan bandarísku félögin hafa þurft að fjárfesta í dýrri djúpvinnslu og slást blóðugum slag til að komast í olíulindir Rússana, hefur Aramco getað notað peninginn í þarfari hluti. Búnir að byggja upp hátæknivædda viðskiptaþróunardeild, sem senn mun gera þeim kleift að láta agnarlitla skynjara skríða eins og slöngur í gegnum sandsteininn og þefa uppi nýjar og ósnertar olíulindir.

Minnumst þess líka að Sádarnir hafa allt aðra strategíu en olíufélög kapítalismans í vestrinu. Þegar venjuleg evrópsk, amerísk eða rússnesk olíufyrirtæki finna olíulind, er allt kapp lagt á að koma gumsinu upp á sem allra stystum tíma. Leita, finna, sækja, búmm. Græða! Halda hlutabréfaverðinu uppi.

Sádarnir eru mildari. “Við umgöngumst Ghawar eins og unga blómarós á brúðkaupsnóttu”. Eins og þeir orða það sjálfir, kallpungarnir. Líklega eru þeir að nýta olíulindir sínar allt að 3svar sinnum hægar en almennt gerist í bransanum. Og það skiptir hreint ótrúlega miklu máli. Ef of harkalega er gengið að olíulind, er hætt við að ekki náist upp nema langt innan við helmingur olíunnar. Þjösnahátturinn gerir það að verkum, að skyndilega er búið að sjúga burt alla aðgengilegustu olíuna - en eftir situr glás sem rándýrt er að sækja. Og þess í stað rokið í að finna nýja lind.

aramco_wireless

Þetta vita Sádarrnir manna best. Fyrstu árin eftir að þeir náðu fullum yfirráðum yfir Aramco fóru þeir líka þannig að. En svo áttuðu þeir sig - í stað skyndigróða var áherslan lögð á meiri og betri nýtingu. Peningi var dælt í þróunarstarf og uppbyggingu gríðarlegs upplýsingabanka. Í Dhahran, þar sem öldur Persaflóans leika við sandinn, reis draumaverksmiðja tölvunördanna. Öflugasta gagnaverið í bransanum. Sem er ekki aðeins að valda byltingu í olíuleit, heldur er líka ætlað að gera Sádunum kleift að stjórna vinnslu djúpt neðanjarðar með þráðlausum joystick. Tær snilld. Gert er ráð fyrir að þessi nýja tækni verði fyrst prufuð á næsta ári. Spennandi.

Tækniþróunin mun hugsanlega gera Sádunum kleift að stórauka nýtingu á olíulindunum sínum. Úr núverandi 50% nýtingu og í 70-80%! Það eitt og sér myndi auka birgðirnar þeirra um 25% í einu vetfangi. Þar að auki gera þeir ráð fyrir að finna nýjar lindir. Á skömmum tíma kunna olíubirgðir Sádanna að fara úr 260 milljörðum tunna í allt að 600 milljarða tunna. Til að setja þetta í samhengi, skal tekið fram að allar þekktar olíulindir heimsins í dag eru taldar geta skilað alls um 1.300 milljörðum tunna.

Khurais_manifa

Markmið Sádanna þessa dagana er að auka framleiðslugetuna fljótlega í 12 milljón tunnur á dag. Það er meira en 15% aukning frá því sem nú er. Í þessu skyni vinna nú mörg þúsund útlendir verkamenn á fullu undir steikjandi sólinni rétt vestan hins magnaða Ghawar, við að byggja upp nýja megavinnslu. Við Khurais, um 250 km suðvestur frá Dhahran.

Sádarnir ætla ekki aðeins að auka framleiðslugetuna. Heldur um leið að draga úr eigin olíuþörf, með því að koma á fót kjarnorkuprógrammi. Það lítur út fyrir að Bandaríkin styðji þau plön Sádanna. Þar vestra samþykkja menn allt sem frá Sádunum kemur svo lengi sem þaðan streymir olía. Svo halda sumir að Bandaríkin stjórni heiminum!

Ef lindirnar kenndar við Khurais eru eitthvað í líkingu við það sem Sádarnir segja, er líklega búið að slengja peak-oil nokkra áratugi fram í tímann í einu höggi. Þarna ofaní sandinn ætla menn að sækja 27 milljarða tunna af olíu.

Khurais_map

Khurais-verkefnið er peningasvolgrari. Kostnaðurinn við þetta risaverkefni er margir milljarðar dollara. En ávinningurinn verður gríðarlegur. Framleiðslan á að skila 1,2 milljón tunnum á dag. Yfir 30 ára tímabil. Erlendir sérfræðingar hafa slegið á, að framleiðslan í Khurais muni kosta ca. 10 dollara tunnan. Sjálfir segja Sádarnir að framleiðslukostnaðurinn verði svona 2 dollarar! Sem meira að segja slær út Ghawar - þar giska flestir á að kostnaðurinn sé í kringum 5 dollarar.

Olían frá Khurais á að byrja að streyma upp á næsta ári (2009). Og duga í a.m.k. 50 ár. Það er magnað - þegar haft er í huga að meðalhnignun olíuvinnslusvæða veraldar er um 6-7% á ári. En minnt skal á, að Sádarnir segjast umgangast olíulindirnar sínar af meiri umhyggju en vestrænir gróðapungar. Og vísa þar í kvenlega fegurð.

Khurais er stórt. Samt var smá spæling á ferðinni. Menn hafa vitað af þessari risalind, Khurais, í meira en 40 ár. Þegar farið var af stað með verkefnið 2006 var verið að gæla við að Khurais yrði jafnvel nýtt Ghawar. Svo reyndist ekki vera - slefar kannski í að vera 1/6 af stærð Ghawar. Og þess vegna urðu Sádarnir pínu vonsviknir - jafnvel þó svo Khurais sé ein allra stærsta olíulind heimsins. Þar að auki er olían þarna ekki alveg það frábæra hágæða gums, eins og Ghawar hafur skilað í gegnum tíðina.

Khurais_lightning

Þannig að fullyrðingin skuggalega er ennþá sönn: “Það er ekki til neitt annað Ghawar!” Og kannski eru Khurais og Manifa síðustu risalindirnar. Kannski… kannski ekki. En eitt er víst; þarna í Khurais einni, eru samtals á ferðinni meiri olíubirgðir en finna má í gjörvallri lögsögu Bandaríkjanna (Kanarnir ráða líklega yfir ca. 21 milljarði tunna). Það eitt segir sitt um ofurstöðu Sádanna í olíuveröldinni.

PS: Sjá má frétt um fyrirætlanir OPEC t.d. hér:

http://www.cnbc.com/id/28234624


Ljósaskipti í eyðimörkinni?

Hvert á Mörlandinn að flýja núna í kreppunni? Verst hversu fáir íslendingar eru með reynslu úr olíuiðnaðinum. Annars gætum við fjölmennt til “olíufríríkisins” góða við Persaflóa. Dhahran. Og átt góða daga þar innan girðingarinnar í þessu undarlega lúxusgettói Sádanna, við strendur Persaflóans.

saudi.arabia.dhahran.map

Dhahran í Saudi Arabíu er sá staður þar sem flestir erlendir starfsmenn í olíuiðnaði Sádanna búa, afgirtir frá hinu raunverulega íslamska þjóðfélagi. Það var einmitt í Dhahran sem olía fannst í fyrsta sinn, þarna í landi spámannsins. Fyrir nánast sléttum 70 árum. Í dag hefur Dhahran að geyma aðalstöðvar einhvers mesta gróðafyrirtækis í heimi; risaolíufélagsins Saudi Aramco. Fyrirtækisins sem gerði villtustu drauma Sékanna hvítklæddu að veruleika.

Aramco er langstærsta olíufélag heims. Og hefur allar forsendur til að skila geggjuðum hagnaði. Af þeim 86 milljón tunnum af olíu, sem heimurinn allur notar nú á degi hverjum, framleiðir Aramco meira en 10%! Og það kostar Sádana einungis svona 5-15 dollara pr. tunnu að ná miklu af þessu gumsi upp. Sem við fábjánarnir í vestrinu höfum undanfarið verið að borga 50-150 dollara fyrir.

Þetta risastóra olíufélag er með meira en 50 þúsund starfsmenn og þar af eru fjölmargir útlendingar. Flestir þeirra búa í afgirtum bæjum á olíusvæðum Sádanna, eins og í Dhahran. Þar eru höfuðstöðvar Aramco, en þrjú önnur svona “útlendingaþorp” er að finna í landinu.

Þó svo þrír aldarfjórðungar séu nú liðnir frá því menn þefuðu í fyrsta sinn uppi svarta gullið í Saudi Arabíu, eru aðeins tæpir þrír áratugir síðan Sádarnir sjálfir náðu fullum yfirráðum yfir olíuauðlindum landsins. Lengst af var stærstur hluti þeirra í höndum Chevron og annarra afkvæma hins bandaríska Standard Oil. Það var ekki fyrr en 1980 að Sádarnir loks fengu þessar auðlindir í eigin hendur. Og hafa síðan farið með svarta gullið eins og mannsmorð, svo ekki nokkur sála utan Aramco veit í raun hversu miklar olíubirgðir þeirra eru. Sá leyndardómur er einfaldlega óbærilega langt utan seilingar og Sádarnir gæta hans betur en dreki á gulli.

Aramco_alSaifRetires

“Saudi Aramco”. Það hríslast um mann einhver óttablandinn sæluhrollur við það eitt að segja nafnið. Þessu netta apparati stjórna gömlu félagarnir; þeir olíumálaráðherra Sádanna og besti vinur Orkubloggsins Ali Al-Naimi og ljúflingurinn Abdúlla Jumah - sem er hinn formlegi forstjóri Aramco. Þessir páfar olíunnar eru einmitt hér á myndinni - OlíuAlí í miðið og Jumah til hægri.

Myndin var tekin í Ghawar-höllinni í janúar s.l. (2008). Þegar þar var smá gleðskapur til að heiðra snillinginn Abd Allah Saif Al-Saif (til vinstri á myndinni). Sem þá var að láta af störfum hjá Aramco eftir hálfrar aldar farsæla þjónustu. Hann gegndi síðast stöðu aðstoðarforstjóra fyrirtækisins. Þeir eru nokkuð kátir vinirnir, enda lítur út fyrir að Saudi Aramco sé barrrasta í nokkuð góðum málum. Sama hvað líður dómsdagsspám Bölmóða eins og Matthew Simmons, sem Orkubloggið vék að í síðustu færslu.

Já - þeir eru glaðir núna Sádarnir. Enda nýbúnir að halda upp á 75 ára stórafmæli Aramco. Þá er miðað við að fæðing fyrirtækisins - þessarar mestu peningamaskínu heimsins - hafi átt sér stað árið 1933. Þegar stjórnvöld í Saudi Arabíu sömdu við gamla Standard Oil of California (sem í dag heitir Chevron) um rétt til olíuleitar á austurströnd þessa ægimikla sandfláka.

aramco_Pioneers

Þessi angi af Standard Oil í arabísku í eyðimörkinni fékk nafnið California Arabian Standard Oil Company (stytt Casoc). Síðar urðu Texaco, Mobil og Exxon meðeigendur Chevron að Casoc. Öll eru þau afsprengi Standard Oil. Skemmtilegt.

Ástæða þess að menn fengu þá hugdettu að Saudi Arabía hefði að geyma örlítið af svarta gullinu, var að snemma á fjórða áratugnum hafði fundist umtalsverð olía í nágrannaríkinu Bahrain. Og það var einmitt á Dhahransvæðinu arabíska sem Bandaríkjamennirnir fundu fyrstu vinnanlegu olíuna í landinu. Þetta var 1938.

Á næstu árum átti heimurinn eftir að breytast með ógnarhraða. Og einungis örfáir menn sáu fyrir að í Saudi Arabíu ættu eftir að finnast mestu olíulindir heims. Auðlind sem mikilvægt væri að eiga aðgang að.

RooseveltArabia

Já - sumir menn voru framsýnir. Ekki síst Roosevelt forseti, sem lauk Jalta-ráðstefnunni 1945 með því að tryggja vináttubönd Bandaríkjanna og Saudi Arabíu. Bönd sem hafa haldið æ síðan og lengst af veitt Bandaríkjunum tryggan aðgang að mestu olíuauðlindum veraldarinnar.

Nafni Casac var breytt í Arabian American Oil Company, lýðveldisárið góða 1944. Og nýja nafnið var skammstafað Aramco. Sjö árum síðar (1951) fundust svo Safaniya-lindirnar - mesu olíulindir heims undir hafsbotni. Og ekki ekki leið á löngu (1956) þar til einnig voru staðfestar hinar óhemju miklu olíulindir í Ghawar. Sem Orkubloggið minntist einmitt á í síðustu færslu.

Sem fyrr segir var Aramco alfarið í eigu bandarískra olíufélaga, sem öll áttu rætur í Standard Oil hans John. D. Rockefeller. Félagið fór með einkaleyfi á öllum olíuiðnaði í Saudi Arabíu, að því undanskildu að tvö önnur félög fengu þar smávægileg réttindi. Gaman að segja frá því að annað þeirra var einmitt Getty Oil - barn hins kaldrifjaða milljarðamærings Jean Paul Getty. Sem Orkubloggið hefur áður sagt frá - og þeim atburðum þegar ítalskir mafíósar skáru eyrað af sonarsyni hans.

getty_signature

Það var 1949 sem Getty dílaði við þáverandi konung Sádanna um skika á hálfgerðu einskismannslandi á landmærum Saudi Arabíu og Kúwait. Og græddi hreint ógrynni fjár á olíulindunum, sem hann fann þar. Þær lindir voru sprengdar í tætlur í Persaflóastríðinu 1991, en þá voru enn eftir 18 ár af gamla, góða leigusamningnum sem Getty gerði við Sádakonung.

Hitt félagið sem ásamt Getty Oil komst með tærnar inn í Saudi Arabíu, var japanskt félag sem líka fékk réttindi þarna á landamærasvæðinu að Kúwait. Það var 1957, en Aramco keypti síðar þau réttindi. Í dag er Aramco því einráða í olíuiðnaði Sádanna.

Fyrstu áratugina sem olíuvinnsla var stunduð í Saudi Arabíu fengu Sádarnir nánast skít á priki í sinn hlut. Það skánaði reyndar smám saman, en lengi vel náðu þeir þó einungis að klípa örlítið af olíugróða bandarísku fyrirtækjanna. Enda voru þeir ekki í sterkri aðstöðu - olíuframleiðsla Bandaríkjanna innanlands stóð ennþá vel undir eftirspurninni þar í landi og bandarísku fyrirtækin fóru sínu fram í krafti stærðarinnar og pólitískra áhrifa.

Ahmed Zaki Yamani_2

Hægt og sígandi jókst þó þrýstingurinn um að Sádarnir kæmu sjálfir að vinnslunni og fengju meira af arðinum í sinn hlut. Það var líklega 1968 sem sú ”ósvífna” uppástunga kom fyrst fram opinberlega, um að Sádarnir ættu að fá eignarhald í Aramco. Þar var á ferð þáverandi olíumálaráðherra Sádanna, hinn litríki Ahmad Zaki Yamani.

Eins og sannir olíu-unnendur vita er Yamani einfaldlega goðsögn í olíuveröldinni góðu. Hann gegndi stöðu olíumálaráðherra Saudi Arabíu í nærri aldarfjórðung (1962-1986) og var einn aðalhöfundurinn að baki því að Aramco komst loks í hendur innlendra aðila. Yamani var ýtt til hliðar í miklu valdatafli í kjölfar hinna svakalegu verðsveiflna á olíumörkuðunum um og eftir 1980. En það er önnur saga. Yamani mun enn við hestaheilsu og ku sýsla með viðskipti í Sviss og víðar.

Loks skömmu fyrir árið örlagaríka - 1973 - var samið um að Saudi Arabía fengi að kaupa fjórðungshlut í Aramco. Fram að því höfðu Sádarnir einungis fengið tiltekna hlutdeild í hagnaðinum - og raunar alls óvíst að þeir hafi fengið að vita um hinn raunverulega hagnað. Samkomulagið náðist 1972 og kom til framkvæmda árið eftir.

Arabian_woman

Varla var blekið þornað á umræddum samningi, þegar olían varð að helsta sprengiefni alþjóðastjórnmálanna. Vegna stuðnings Vesturlanda við Ísrael í Yom Kippur stríðinu, lokuðu Sádarnir á olíuútflutning síðla árs 1973 og olíukreppan skall á Vesturlöndum. Höfuðpaurinn að baki þeirri strategíu var einmitt áður nefndur Yamani. Ballið var búið og etv. má segja að sætasta stelpan hafi verið arabísk yngismær – hin nýja Aramco - sem var lítt gefin fyrir síonista.

Stundum er mannkynssagan háð miklum tilviljunum. Ef menn hefðu áttað sig á því “í tíma” hverjar yrði afleiðingar þess að afhenda Sádunum Aramco, er ekki víst að af því hefði orðið. En svo fór sem fór. Mið-Austurlönd náðu eiginlega að verða efnahagslegt stórveldi án þess að Vesturlönd föttuðu hvað var í gangi. Enda sáu menn þar á bæ einungis rautt - slátruðu Norður-Víetnömum í nafni frelsis en steingleymdu mikilvægi olíunnar. Og voru í barnslegri trú um framtíð kjarnorkunnar sem aflgjafa fyrir Vesturlönd.

carter_arabia

Þar að auki var samningsstaða Bandaríkjanna ekki lengur sterk. Sanngirni og réttlætið var á bandi Sádanna - með öllu óeðlilegt að náttúruauðlindir landsins væru í umráðum útlendra fyrirtækja. Og óbreytt ástand hefði geta leitt til uppreisnar í landinu - líkt og gerðist í Íran 1979. Það vildu Vesturlönd síst af öllu.

Til að tryggja sér áframhaldandi tryggð valdhafanna í Saudi Arabíu á þessum viðsjárverðu tímum kalda stríðsins, var samið um það 1980 að bandarísku fyrirtækin drægju sig burt sem eignaraðilar að Aramco og allt fyrirtækið yrði í eigu Sádanna sjálfra. Þar með hófst nýtt tímabil í hinu sérkennilega vináttusamband Bandaríkjanna og Saudi Arabíu. Með samningnum tryggðu yfirvöld í Saudu Arabíu sér bæði yfirráð yfir auðlindum landsins og um leið viðvarandi völd konungsættarinnar, undir hernaðarvæng Bandaríkjanna. Tvær risaflugur í einu höggi. Og auðvitað var ekki haft fyrir því að spyrja almenning um það hvernig farið skyldi með auðlindirnar.

khomeini_time_cover

Já - það er kaldhæðnislegt að kannski var það fyrst og fremst byltingin í Íran 1979 sem varð til þess að konungsætt Sádanna náði fullum yfirráðum yfir olíuauðlindum landsins. Í reynd eru yfirvöld í Saudi Arabíu dauðhrædd um að Íranar geti stóraukið vinnslu sína og ógnað stöðu þeirra sem olíuherra heimsins. Af sömu ástæðu studdu þeir mjög árásina á Írak í Persaflóastríðinu fyrra - þeir hafa lítinn áhuga á að sjá annað olíustórveldi rísa í þessum heimshluta. Fyrir vikið heldur vináttan við Bandaríkin - sem þar að auki eru ennþá mikilvægasti kaupandinn.

Nafni Aramco var formlega breytti í Saudi Aramco árið 1988. Líklega hefur unga kynslóðin í Saudi Arabíu minnstu hugmynd um, að í reynd er Aramco skammstöfun á gamla heitinu Arabian American Oil Company. Enda er það aukaatriði. Aðalatriðið er að í huga margra þeirra lifir vonin um breytingar – um lýðræði og meira frjálsræði. Og sumir sjá Bandaríkin sem varðhund spilltra valdhafa - og fara þá jafnvel að aðhyllast Osama Bin Laden. Þetta er í raun vítahringur, sem getur af sér ofbeldi. En Orkubloggið ætlar ekki að hætta sér útí frekari stjórnmálatúlkanir. Um það geta lesendur leitað til Jóhönnu Kristjónsdóttur eða annarra sem þekkja þau mál Arabaheimsins miklu betur en bloggið.

Allra síðustu árin hefur olíuveröldin hikstað hressilega. Grunsemdir hafa vaknað um að Saudi Arabía sé ekki lengur sú botnlausa olíuhít sem verið hefur. Ótti hefur komið upp um að framleiðslan þar fari brátt hnignandi og að heimurinn standi senn frammi fyrir nýrri og ógnvekjandi orkukreppu. Sumir tala um að ljósaskipti hafi nú þegar runnið upp í eyðimörkinni. Olíusólin sé farin að lækka á lofti. Þar að auki eru komnir nýir stórkaupendur. Bandaríkin þurfa nú að keppa við risana í austri - Kína og Indland. Þó svo Bandaríkin séu ennþá lang stærsta efnahagsveldið eru ýmsar blikur á lofti.

aramco_logo_75

En hver er hin raunverulega staða Aramco í dag? Hvað eru menn að bauka þarna í hinum hátæknivæddu aðalstöðvum Saudi Aramco í Dhahran? Það er einhver stærsta veraldlega spurning nútímans. Kannski Orkubloggið reyni að svara því einhverntíman í náinni framtíð. Spurningunni sem engin annar hefur getað svarað - fram til þessa!


Veðmálið

Nú er það svart. Olíutunnan komin vel undir 50 dollara! Samt gengur Bölmóður spámaður um og hvíslar draugalegri röddu: "Ghawar er að deyja...".

desert_twilight

Eins og unnendur svarta gullsins geta eflaust giskað á, vísar bloggið hér til Bandaríkjamannsins Matthew Simmons. Sem var á tímabili ráðgjafi Bush yngri í orkumálum.  Frægasta afurð Simmons er líklega bókin Twilight in the Desert: The Coming Saudi Oil Shock and the World Economy. Það er um margt athyglisverð lesning. Þó svo Orkubloggið efist um að niðurstöður og ályktanir Simmons séu réttar. Í huga bloggsins gæti hér verið falsspámaður á ferð. En jafnvel falsspámenn geta stundum rambað á einhvern sannleika.

Simmons er þess fullviss að allar stærstu olíulindir heims, sem flestar eru í Saudi Arabíu og nágrenni, fari nú hnignandi. Og það þýði að við eigum öll að vera skelfingu lostin - af því olían sé brátt á þrotum.

holy-grail-2

Simmons hefur auðvitað ekki hugmynd um það, fremur en hver annar bleiknefur, hvernig framleiðslu og olíuleit Sádanna miðar. Þar er líklega á ferð dýrasta og best varðveitta leyndamál mannkynssögunnar.

Sá sem kemst yfir jarðfræðiskýrslur og tölvulíkön Sádanna um olíubirgðirnar í Ghawar, hefur svo sannarlega í höndum sér hið helga gral. Hreint stórfurðulegt að ekki skuli löngu vera búið að gera Bond-mynd um njósnir þessa glæsilega fulltrúa hennar hátignar á slóðum olíunnar í sandauðnum Saudi Arabíu! Það er efni í dúndrandi spennu.

Ályktun Simmons um að veröldin sé nú á barmi peak-oil kann vissulega að vera rétt. En er samt svolítið langsótt. Niðurstaða hans virðist einkum dregin af ýmsum ummælum, sem Sádarnir og menn í þeirra klíku hafa látið fara frá sér, t.d. á fundum og ráðstefnum um veröld víða. Þar telur Simmons að finna sterkar vísbendingar um að framleiðslan á hinu geggjaða Ghawar-svæði sé hreinlega að hrynja. Og engar almennilegar risalindir séu að finnast, sem komið geti í staðinn. Ergo; olíuframleiðsla muni senn fara hratt minnkandi, meðan orkueftirspurn eykst um 2% á ári.

Simmons_Mathew

Ef spá Simmons rætist gæti þetta á fáeinum árum leitt til mikillar verðhækkunar á olíu. Í vor töluðu sumir helstu vitringarnir í bransanum um að tunnan færi bráðlega í a.m.k 180 dollara. Slíkar spár þóttu voða smart þegar olíutunnan rauf 100 dollara múrinn fyrir um 10 mánuðum og æddi áfram uppí næstum 150 dollara. Allt í einu voru margir helstu fjármálaspekingar heimsins farnir að spá tunnunni í 190 dollara, 200 dollara, 250... Þetta var orðið eins og fíflauppboð hjá nýríkum íslenskum auðmönnum.

Menn virtust ekki skilja að miðað við uppganginn á hlutabréfamörkuðum, hafði olíuverðið setið eftir. Olían var einfaldlega orðin fáránlega ódýr ef litið var til efnahagsvaxtarins síðustu árin. Með hækkandi hlutabréfaverði og miklum efnahagsuppgangi hlaut að koma að því að olían hækkaði verulega. Það var hið eðlilegasta mál.

En svo kom kreppan. Og kreppa þýðir minni iðnaðarframleiðslu og minni aðgang að peningum - og og því minnkar eftirspurn eftir olíu. Reyndar hélt olían áfram að hækka lengi vel, eftir að óveðursskýin voru farin að hrannast upp vestur í Ameríku. Svo virtist sem peningarnir byrjuðu á því, að flýja úr hlutabréfunum yfir í hrávöruna. Áður en bálið náði líka til hrávörumarkaðarins. Olíuverðið tók ekki að lækka almennilega fyrr en íslensku bankarnir féllu!

Oil_nymex_45_12.12.08

Að öllu gamni slepptu, þá hefur verð á olíu hreinlega hrunið allra síðustu mánuðina. Akkúrat núna er verðið á Nymex... undir 45 dollurum! Búið að lækka um rúm 7% bara í dag. Er markaðurinn að segja "good bye Chrysler & GM"?

Þetta er náttlega barrrasta gjörsamlega fáránlegt. OPEC hlýtur að fara að stöðva þessa vitleysu. Vinur minn Hugo Chavez í Venesúela er líklega ekki að græða nema skítlega fimmfalt á hverri seldri olíutunnu um þessar mundir. Og vesalings Sádarnir að meðaltali smávægileg 200-300%. Sorglegt. Ennþá sorglegra er auðvitað að þessa dagana er líklega einhver hluti olíuvinnslunnar í Norðursjó hreinlega rekin með tapi (þó er líklega sjaldgæft að Norðrsjávarvinnslan þurfi meira en 20-30 dollara pr tunnu til að skila hagnaði).

Tierney_John

Olíumarkaðurinn er auðvitað ein allsherjar vitleysa, þar sem taugaveiklun og gróðafíkn slást eins og hundur og köttur. Á þeim markaði ríkir ekki meira vit en við spilaborðin í Vegas. Í heiminum er sæmilegt jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á olíu. Og framleiðsluverðið víðast hvar á bilinu 5-50 dollarar tunnan. Verðið æðir aftur á móti út um allar trissur, allt eftir því hvert græðgin beinir mönnum.

Nú er bara að bíða eftir 1. janúar 2011. Þegar úrslit verða kunn í veðmáli áðurnefnds Matthew Simmons við New York Times-blaðamanninn John Tierney. Þeir kumpánar veðjuðu nefnilega 10 þúsund dollurum um það hvort olíuverðið verði 200 dollarar árið 2010. Þ.e. meðalverðið yfir árið allt, leiðrétt m.t.t. verðbólgu. Simmons vinnur pottinn ásamt vöxtum, ef meðalverðið verður 200 dollarar eða meira. Þetta er líklega eitt frægasta hrávöruveðmál sögunnar. Ásamt málmaveðmálinu skemmtilega, sem þeir viðskiptaprófessorinn bjartsýni, Julian Simon, og skordýrafræðingurinn skondni, Paul Ehrlich, gerðu með sér á níunda áratugnum. En það er önnur saga.

Eins og tryggir lesendur Orkubloggsins ættu að muna, flýði bloggið olíuna þegar tunnan fór undir 120 dollara. Einfaldlega vegna þess að bloggið áleit það vera þröskuldinn, sem táknaði að styggð hefði komið að hjörðinni og algerlega ómögulegt væri að spá um hvert hún myndi vaða. Svo fór að hjörðin tók stefnuna beinustu leið á hengiflugið. Verðið hefur hreinlega fallið eins og steinn upp á síðkastið.

Bogle

Stóra spurningin er hvenær mest öll hjörðin hefur hrapað í gilið? Hvenær verður óhætt að skella sér inn á olíumarkaðinn á ný? Nú eru sumir að spá olíutunnunni allt niður í 25 dollara. Slíkir spekingar hljóta að vera endanlega búnir að afskrifa bæði GM og Chrysler og veðja á mega-atvinnuleysi vestra. Kannski bloggið ætti að bæta um betur - spá líka gjaldþroti Ford og General Electric og að olíutunnan fari í 5 dollara! Því eins og snillingurinn John Bogle hjá Vanguard sagði svo skemmtilega um markaðinn og öflin þar að baki: "Nobody knows nuthin!"

Orkubloggið er ekki aðdáandi Matthew Simmons. En minnumst samt þess að frá því risalindirnar í Arabíu fundust á 5. áratug liðinnar aldar, hefur gengið hreint afleitlega að finna eitthvað í líkingu við hið magnaða Ghawar.

national_geographic_peak_oil

Allt frá því Ghawar fannst árið 1948 hefur þetta verið mesta olíuuppspretta heimsins. Langstærsta einstaka olíuvinnslusvæði veraldarinnar. Sádarnir segja að framleiðslan í Ghawar sé stöðug - og þeir geti meira að segja aukið hana ef þeim sýnist svo. Og fullyrða að lítið mál verið að ná þaðan a.m.k. 70 milljörðum tunna í framtíðinni - sem er ekki ósvipað magn og hefur verið dælt þar upp síðustu sex áratugina. Alls séu heildarbirgðir af vinnanlegri olíu í hinni helgu jörð Múhameðs spámanns a.m.k. 260 milljarðar tunna. Og auk þess muni þeir senn geta staðfest nýjar birgðir upp á samtals 450 milljarða tunna. Segja þeir ljúflingarnir hjá Saudi Aramco.

Já - Sádarnir eru hvergi bangnir. Og nú síðast í nóvember leyfði upplýsingaskrifstofa bandaríska orkumálaráðuneytisins sér að spá því, að olíuframleiðsla Saudi Arabíu aukist um 50% fram til ársins 2020. En hinn mannlegi spámaður, Matthew Simmons, fullyrðir aftur á móti að samdráttur sé þegar byrjaður í Ghawar. Og ekkert sambærilegt muni nokkru sinni finnast.

Þetta er óttalegt svartsýnisraus í Simmons. Það er nóg til af olíu - ekki síst undir hafsbotninum. Aðal vandamálið er að við erum búin að tína öll bestu eplin af neðstu greinunum. Eftir því sem við þurfum að klifra ofar - eða öllu heldur bora dýpra - verður olían æ dýrari í framleiðslu. Vesen. Þegar upp er staðið er bloggið líklega sammála Simmons - þó svo ég muni auðvitað aldrei viðurkenna það!

Það er nefnilega hárrétt hjá Simmons að nýtt Ghawar með skítbillegri olíu mun aldrei finnast. Djúpvinnslan kostar fjári mikinn pening – hún er líklega a.m.k. 5 sinnum dýrari en mest öll vinnslan hjá Sádunum. Kannski smá ýkjur hjá blogginu. En eitt er víst. Þó svo nóg sé af olíu undir hafsbotninum, mun olíuverðið augljóslega hækka, eftir því sem Ghawar minnkar. Til lengri tíma litið.

Ghawar_dying

Sá dagur mun einhverntíma renna upp, að olíuframleiðslan getur ekki lengur aukist. Þess vegna suðar hið hása og draugalega hvísl Simmons í eyrum Orkubloggsins alla liðlanga skammdegisnóttina hér á Kreppuskeri. “Ghawar is dhhayyying…”.


Orkuduftið hvíta

Hverju á maður að svara þegar gamall kunningja frá Suður-Ameríku spyr hvort maður sé til í að setja pening í hvíta duftið? Og lofar undraverði ávöxtun. Auðvitað ekkert annað að gera en að slá til!

scarface

Nei – við erum reyndar ekki á slóðum Scarface. Heldur er Orkubloggið hér að tala um auðlindirnar miklu í skraufþurrum eyðimörkum Chile. Þar í auðnum Atacama - einhverjum þurrasta og lífvanasta stað á jörðinni - liggja nefnilega gríðarleg verðmæti. Liþíum!

Þennan hvarfgjarna alkalímálm vilja sumir íslenskir spekingar reyndar kalla litín, á okkar ástkæra ylhýra. En Orkubloggið mun að þessu sinni halda sig við heitið liþíum. Og í dag ætlar bloggið að staldra við dásamlega peningalyktina, sem finna má af saltauðninni undir steikjandi sólinni í norðurhluta Chile.

Stundum er sagt að tíminn fari í hringi. Núna í árslok 2008 hafa ýmsir sett stefnuna á meiriháttar rafbílavæðingu. Svo skemmtilega vill til, að margir af fyrstu bílunum gengu einmitt fyrir rafmagni. Þannig var t.d. um bílinn sem “rauði belgíski djöfullinn” Camille Jenatzy æddi fyrstur manna á yfir 100 km hraða (náði tæplega 106 km/klkst). Bíllinn sá var nefndur La Jamais Contente - sem kannski er viðeigandi fyrir þann sem lifir hátt og hratt og vill alltaf meira og meira.

El_Car_Jamais_Contente

Það var vorið 1899 sem Jenatzy stýrði bílnum á þessum “ógnarhraða” í nágrenni Parísar. Já - ef litið er til hraðameta var þetta einfaldlega gullöld rafbílanna, þarna um aldamótin 1900.

Nú meira en hundrað árum síðar eru raunverulegir rafbílar sem keppa af alvöru við brunahreyfilinn, ennþá framtíðarmúsík. Menn bíða spenntir eftir Chevrolet Volt. Sem ljúflingarnir hjá General Motors þykjast ætla að verða tilbúnir með árið 2011. Nú er reyndar komið upp það smávægilega vandamál, að óvíst er að GM verði ennþá til eftir þrjú ár! Því bandaríski bílaiðnaðurinn virðist kominn í þrot.

Chevrolet_Volt

Hvað um það. Í reynd er varla til sá bílaframleiðandi í heiminum, sem ekki er að undirbúa rafbílaframleiðslu. Og líklega eiga öll þessi fyrirtæki eitt sameiginlegt; rafbílarnir eiga að hafa endurhlaðanlegar liþíum-rafhlöður. Sem reyndar kallast liþíum-jóna rafgeymar.

En höldum nú inn í dauðalandið - 1.100 km norður af Santiago, höfuðborg Chile. Þarna í kæfandi sólarhitanum í Atacama skiptast á gráleit fjöll, fölar auðnir og bullandi hverir. Maður gæti haldið að skrjóðurinn hafi rambað á vitlausa beygju og hafnað á dularfullri fjarlægri plánetu. En undir gulgráu yfirborðinu leynist lykill að miklum auðæfum. Þar er nefnilega að finna gífurlegt magn af léttasta málmi veraldarinnar - liþíum. Þeim undramjúka alkalímálmi sem hentar frábærlega í létta og öfluga rafgeyma.

Lithium_powder

Auðvitað var liþíum fyrst uppgötvað á Norðurlöndunum. Eins og gildir um fleiri merkileg frumefni. Það gerðist fyrir um tveimur öldum í járnnámu á lítilli eyju í sænska skerjagarðinum utan við Stokkhólm. Þaðan barst þetta undarlega grjót inná vinnustofuna hans Berzelíusar, sem Orkubloggið hefur áður sagt frá í tengslum við umfjöllun um þórín sem eldsneyti í kjarnorkuver.

Þegar Berzelíus greindi og nefndi frumefnið þórín árið 1828, voru liðin nokkur ár frá því hann hafði áttað sig á því að grjótið frá sænska skerjagarðinum hafði einmitt líka að geyma óþekkt frumefni. Og að þar væri á ferðinni óvenjuleg málmtegund, sem mátti skera í sneiðar með sæmilega beittum hníf. Berzelíus nefndi þetta sérkennilega efni “lithos” - sem er einfaldlega gríska orðið yfir grjót eða stein. Síðar var nafni þessa mjúkmálms breytt í “lithium”.

Í hnotskurn þá hefur liþíum þann merka eiginleika að það má nýta í rafhlöður, sem geta geymt mikla orku m.v. þyngd. M.ö.o. eru liþíum-rafgeymar alveg sérstaklega litlir, léttir og nettir miðað við þá raforku sem þar er unnt að geyma. Og það er einmitt þetta sem veldur því, að í dag virðist öll framtíð rafbílaiðnaðarins hvíla á áðurnefndum liþíumrafhlöðum. Reyndar hefur minni útgáfa þessara rafhlaða nú þegar slegið í gegn í t.d. farsímum og fartölvum.

lithium_atacama_drylake

Það ótrúlega er, að mest allt vinnanlegt liþíum veraldarinnar er að finna á einungis örfáum stöðum. Tvær eyðimerkur í Suður-Ameríku kunna að búa yfir meira en ¾ af öllu vinnanlegu liþíum á jörðinni. Þar af er líklega langmest í saltauðnum Bólivíu - Salar de Uyuni - í meira en 2.600 m hæð. Þar er enn engin vinnsla hafin, enda ekki beinlínis hlaupið að námarekstri þar á ægifagurri hásléttunni. En aðra sögu er að segja um Atacama í Chile. Þar hefur chileanska fyrirtækið SQM komið sér þægilega fyrir - ef nota má það orð í tengslum við þennan harðneskjulega stað. Sem minnir helst á brennheita steikarpönnu með kraumandi smjörlíki. Enginn Edensgarður þar á ferð.

Atacama-eyðimörkin er sögð hafa að geyma yfir ¼ af liþíumbirgðum jarðar. Þarna dæla sólbakaðir, útiteknir verkamennirnir gráleitu stöffinu upp á yfirborðið. Sólin er svo látin skína á þessa liþíum-saltblöndu í nokkra mánuði, með þeim áhrifum að smám saman skiljast burt ýmis aukaefni og styrkur liþíumsins í haugunum eykst.

lithium_process

Eftir árs sólbað er þessu mokað upp á vörubíla, sem keyra gumsið þriggja tíma leið vestur til Kyrrahafsstrandarinnar og sturta því þar við hreinsunarstöðina. Þar er stöffið hreinsað og umbreytt í liþíum-karbónat (Li2CO3). Sem er hvítt duft, er minnir suma helst á kókaín. Og er notað við framleiðslu á liþíum-jóna rafhlöðum.

Fyrirtækið Sociedad Química y Minera de Chile eða SQM á sér um margt athyglisverða sögu. Það var stofnað 1968 í þeim tilgangi að byggja upp iðnaðarstarfsemi í Chile og var þá að helmingi í eigu ríkisins. Fyrirtækið fór ekki varhluta af hinni blóðugu pólitísku valdabaráttu í Chile, sem þar ríkti lengi vel. SQM var fljótlega þjóðnýtt, síðan einkavætt að nýju á 9. áratugnum, fáeinum árum seinna varð ríkið eigandi þess á ný og loks hófst endureinkavæðing. Minnir kannski á íslensku bankana?

lithium-julio-ponce

Frá 1992 hefur fyrirtækinu verið stýrt af Julio nokkrum Ponce Lerou. Sem var tengdasonur hins alræmda einræðisherra Chile; Augusto Pinochet. Pinochet lét reyndar af völdum um það leyti að Julio komst til valda innan SQM. Þetta var á svipuðum tíma og Sony setti fyrstu raftækin á markað, með liþíum-jóna batteríum. Þannig að Julio getur með réttu þóst hafa séð liþíum-byltinguna fyrir! Snjall strákur.

Lengst af var SQM reyndar aðallega í áburðarframleiðslu og hefðbundnum námarekstri. Áburðarframleiðsla er enn stærsti hluti starfseminnar hjá SQM. En þegar eftirspurn eftir liþíum tók að aukast mjög með tilkomu ódýrra gemsa og fartölva, varð þessi nýja auðlind til að vekja áhuga margra á fyrirtækinu. Enda ræður SQM yfir stærstu þekktu liþíum-námu heimsins. Og þá var það að kanadískt fyrirtæki tók upp á því að kaupa hlut í SQM. Kanadíski áburðarrisinn Potash.

Orkubloggið fær ekki betur séð en að nú ríki heiftarleg valdabarátta um SQM. Þar sem ljúflingurinn grásprengdi Julio Ponce Lerou og samstarfsmenn hans hjá japanska iðnaðarrisanum Kowa slást við Kanadamennina frá Potash í Saskatchewan. Potash er líklega eitt öflugasta fyrirtæki heims í áburðariðnaðinum og framleiðir t.a.m. gríðarlegt magn af köfnunarefni, fosfati og kalíni. En kalín er einmitt næst léttasti málmurinn - á eftir liþíum. Skemmtilegt.

lithium-ion-market

Báðar viðskiptablokkirnar ráða nú hvor um sig yfir u.þ.b. 32% af heildarhlutafé SQM. Sem mun vera stærsti leyfilegi hluturinn skv. samþykktum félagsins.

Nú vitum við ekki hvort skriffinnarnir í Chile eru jafn skelfilega miklir sauðir eins þeir íslensku, sem ávallt hvítþvoðu eignarhald “óskyldra” aðila í íslenskum almenningshlutafélögum. Kannski er hann Julio Ponce Lerou löngu búinn að tryggja sér samstarf við “óskylda” aðila í SQM, til að halda völdunum í kompaníinu. En kannski er hér tækifæri til að verða þriðji stóri aðilinn í fyrirtækinu? Samþykktir félagsins eru nefnilega þannig að eigendur A-bréfanna, sem blokkirnar tvær ráða nú yfir, kjósa 7 stjórnarmenn. En áttundi maðurinn er kosinn af eigendum B-hlutabréfanna. Og hann getur í reynd ráðið öllu. B-bréfin skiptast milli fjölda eigenda.

bond_atacama_2

Þarna er talsverð peningalykt. Þannig voru tekjur SQM fyrstu níu mánuði þessa árs (2008) um 1,7 milljarðar bandaríkjadala - miðað við einungis 1,2 milljarða allt árið 2007. Kannski engin tilviljun að eitt dramatískasta atriðið í nýjustu James Bond myndinni, Quantum of Solace, er einmitt tekið upp þarna í hinni skraufþurru en spennandi Atacama-eyðimörk. Í Atacama takast nefnilega líka á hinir raunverulegu samúræjar viðskiptalífsins. Og gæti verið æsispennandi að blanda sér í þann leik.

Orkubloggið vill þó jafnframt vara menn við. Íslenskir útrásarvíkingar hefðu líklega ekki fallið í stafi yfir “skitinni” 20% árlegri meðalveltuaukningu (CAGR) hjá SQM síðustu 5 árin. Og nú eru teikn um aukna samkeppni á lofti, því Kínverjar eru að stórauka liþíumvinnslu sína. Þeir ráða þegar yfir næstum því fjórðungi af heimsmarkaðnum með liþíum-karbónat (SQM er með 30% hlutdeild - samtals er heimsframleiðslan nú rúm 100 þúsund tonn á ári). Og Kínverjarnir ætla sér senn að dæla enn meira af hvíta stöffinu útá markaðinn.

En hvaðan á kínverska aukningin að koma? Svo skemmtilega vill til, að á enn einum eyðistað jarðarinnar - hásléttunni í Tíbet - hafa nú fundist miklar liþíumbirgðir. Ein af mörgum ástæðum þess að frjálst Tíbet er ekki beinlínis í sjónmáli.

Það er áleitin spurning hvort kínverskt liþíum skapi hættu fyrir SQM? Nú er markaðsverðið á liþíum-karbónati líklega u.þ.b. tíu sinnum meira en framleiðslukostnaðurinn hjá SQM í Atacama. Sem að hluta til skýrir grimman slaginn sem verið hefur um fyrirtækið. Og liþíum-æðið kann að aukast ennþá meir á næstu arum. Ekki síst ef rafbíladraumurinn rætist. En liþíum-framboðið gæti etv. aukist enn hraðar.

SQM_logo

Gleymum því ekki að þegar liþíumvinnslan hófst í Atacama árið 1996, féll heimsmarkaðsverðið á liþíum-karbónati um þriðjung. Og steindrap hin gamalgróna bandaríska liþíum-iðnað í einu kjaftshöggi. Ódýrt kínverskt liþíum-karbónat gæti hugsanlega klipið all hressilega af hagnaði SQM.

Hafi einhver áhuga á að eignast hlut í SQM, skal viðkomandi bent á Bolsa de Comercio de Santiago (hlutabréfamarkaðinn í Santíagó) og hlutabréfamarkaðinn í New York (NYSE-SQM, SQMA). Því miður eiga stóru keppendurnir tveir nánast öll A-bréfin, eins og bloggið gat um hér ofar. Eigendur B-hlutabréfa SQM eiga einungis einn mann í stjórn. En sá maður getur einmitt verið atkvæðið sem meirihlutinn stendur og fellur með!

Og hvað sem valdabaráttunni innan SQM líður, telur Orkubloggið fullt tilefni til að skreppa í eina lauflétta viðskiptaferð til Chile. Þó ekki væri nema barrrasta til að taka þátt í jarðhitaævintýrinu, sem þar rétt að byrja þessa dagana!

Atacama_geysers

Orkuveitan og Geysir Green hljóta að vera farin að skoða möguleikana þar. Ekki satt? Kannski meira um Suður-Ameríska gufuaflið síðar.


"Og sólin rennur upp"

Kaþólskan á Spáni tekur á sig ýmsar myndir. Stuðningsmenn knattspyrnuliðs Barselóna lyfta höndum, hneigja höfuð og kyrja “Messí, Messí. Messí...”.

Messi_angel

Það er auðvitað Argentínumaðurinn Leo Messi, sem er hinn nýji Messías í Barselóna. Enda hafa knattspyrnustjörnurnar suður á Spáni fyrir löngu tekið yfir hetjuhlutverk nautabanans. Ég er nokkuð viss um að í dag hefði Hemingway hrifist af Messi - og gert hann ódauðlegan í ofurmacho skáldverki.

Messi verðskuldar svo sannarlega mörg “olé!”. Ekki hægt að segja annað en það sé bæði líkamleg og andleg snilld hvernig hann fer með boltann. Það sýndi Messí t.d. suður í Sevilla í liðinni viku, hvar hann gladdi Orkubloggið með töfrum sínum framan við mark andstæðinganna. Skoraði tvö mörk þarna framan við Orkubloggið, ásamt nokkrum tugum þúsunda annarra áhorfenda á troðfullum Sevilla-vellinum. Eigum við að giska á að Argentína verði heimsmeistari í Brasilíu 2014? Og Messí verði markahæstur.

Auðvitað er þetta allt óvissunni háð. Rétt eins og þegar Orkubloggið reynir að veðja á framtíðarsigurvegara í orkugeiranum. En komið til Andalúsíu, gat bloggið auðvitað ekki stillt sig um að fara í sína eigin laufléttu pílagrímsferð.

Seville_bridge

Meðan aðrir túristar voru líklega mest að skoða yfirþyrmandi dómkirkjuna í miðborg Sevilla eða Gullturninn, dreif bloggið sig að hörpulaga Alamillo-hengibrúnni hans Santiago Calatrava.

Og brunaði að því búnu út úr borginni til að kíkja á sólarorkumannvirki snillinganna hjá Abengoa. Til að skoða með eigin augum hin mismunandi CSP- sólarorkuver. Consentrated Solar Power.

Fyrst var rennt framhjá PS 10 turnorkuverinu - sem er eiginlega flottara á myndum en í raunveruleikanum. Enda virðast þeir hjá Abengoa nú um stundir vera orðnir hrifnari af íhvolfu speglatækninni fremur en turntækninni.

CSP_schott_parabolic_trough

Kannski ekki síst af því spænska skattakerfið er búið að galopna fyrir sólarorku - og þessir íhvolfu speglar eða parabóluspeglar - parabolic  trough  mirrrors - eru sú tækni sem hefur þegar sannað sig. Og er því áhættuminnsta leiðin til að komast hratt inní þennan iðnað og njóta ávaxtanna sem þar eru nú í boði. Sem m.a. eru billegt lánsfé frá Evrópska fjárfestingabankanum og fast verð frá spænska ríkinu fyrir rafmagnið.

Sem sagt sáralítil áhætta, en gefur Abengoa gríðarlega reynslu sem mun skapa þeim mikið forskot. Nú eru t.d. mörg parabóluverkefni að fara í gang vestur í Bandaríkjunum og þar verður Abengoa eflaust stór player. Ríkin í N-Afríku og á Arabíuskaganum, svo og Kína, eru líka spennt fyrir þessu sólarsulli. Parabólutæknin virðist ætla að verða sigurvegarinn í CSP-iðnaðinum.

Þess vegna var næsta stopp Orkubloggsins parabólu-speglaverið Andasol 1. Sem er ekki langt frá Máraborginni góðu Granada. Þrátt fyrir að byggingasvæðið eigi að heita aflokað, gat Orkubloggið fundið opinn slóða inná þetta ótrúlega speglaland.

CSP-Andasol-1

Og óneitanlega var heillandi að spóla þarna um milli hinna óhemjulöngu raða af risastórum speglum. Allt þar til brúnaþungur Spánverji birtist á ryðguðum pallbíl og rak bloggið af svæðinu, líkt og hvern annan iðnaðarnjósnara. Svo það var ekki um annað að ræða en drífa sig aftur á Seatnum til Sevilla, skreppa á barinn og biðja um einn Vodka-Martini. Að sjálfsögðu shaken – not stirred! Reyndar guggnaði bloggið á því og lét sér nægja glas af Tio Pepe. Þó ekki væri nema til að falla inní fjöldann og þykjast vera lífsreyndur Andalúsíufari.

Það er reyndar ekki Abengoa sem á heiðurinn að Andasól 1. Heldur þýska fyrirtækið Solar Millennium. En nú eru þeir hjá Abengoa líka að opna sitt fyrsta parabóluver; að sjálfsögðu rétt hjá Sevilla. Ætla greinilega ekki að halda sig við turntæknina eina þegar kemur að CSP.

Gore_Abengoa

Orkubloggið er sammála þeim hjá Abengoa og Solar Millennium að skynsamlegt sé að veðja á parabóluspeglana. Frekar en turninn. Um þetta eru þó skiptar skoðanir. Ekki veit ég hvað Al Gore þykir um þetta, en hann heimsótti einmitt sérrísötrarana hjá Abengoa sléttum mánuði á undan Orkublogginu. Til að klappa þeim á bakið fyrir allt fíneríið.

CSP

Takist mönnum að höndla geggjaðan hitann, sem turntæknin á að gera mögulegan, verða viðkomandi vissulega á grænni grein. Þar stefna menn á allt að 6-900 gráður á celsius, sem myndi hreinlega skapa æpandi gufuafl. En svo kólnar dótið all hressilega yfir nóttina og það er ekkert grín að finna efni sem þola þennan ofsalega hita og hitamun.

En Arabarnir hjá fjárfestingasjóðnum gígantíska Masdar Initative eru hvergi bangnir við þá áhættu. Og eru búnir að veðja á turntæknina með spænsku ljúflingunum í Torresol. Sem Orkubloggið hefur áður sagt frá. Það skal viðurkennt að þeir hjá Torresol – Turnsól - voru vissulega mjög sannfærandi þegar bloggið fundaði með þeim í Madrid í 40 stiga hita s.l. sumar. En þó þeim tækist auðveldlega að sannfæra Arabana, var Orkubloggið samt svolítið hugsi yfir þessari turntækni. Kannski af þeirri einföldu ástæðu að seðlaveski Arabanna ku vera eilítið þykkra en hið vesæla gengisfallna íslenska krítarkort bloggsins.

CSP_mirror_parabolic

Satt að segja myndi bloggið seint vilja setja pening í sjálf CSP-sólarorkuverin. Miklu sniðugra að fara annars staðar inní keðjuna! T.d. framleiðslu á vökvarörunum hitaþolnu sem sólargeislunum er speglað að - eða barrrasta hinum mögnuðu speglum sem orkuverin þurfa. Sennilega er speglabransinn sá sem mun græða mest á uppgangi CSP.

Í dag eru það fyrst og fremst þrjú fyrirtæki, sem framleiða þessa gríðarstóru hátæknispegla. Flabeg, Flagsol og Rioglass Solar. Þau sitja nánast ein að geysilega hratt vaxandi markaði. Þó svo aðrir minni spámenn séu til, t.d. finnska Glaston.

Síðastnefnda fyrirtækið af þessum þreumur (Rioglass Solar) er hluti af Rioglass samsteypunni, sem er aðallega í speglaframleiðslu fyrir bílaiðnaðinn. Og er afar skammt á veg komið í smíði spegla fyrir CSP. Flagsol er aftur á móti með þennan bransa á hreinu. Það er í eigu þýska Solar Millennium og nokkuð augljóst að þekkingin þar á bæ er ekki til sölu. Nema kannski stórhuga Mörlandar slái til og kaupi hreinlega Solar Millennium eins og það leggur sig.

solar_millennium_logo

Þar er athyglisvert fyrirtæki á ferð. Auk þess að eiga Flagsol eru þeir í 50/50 samstarfi með iðnaðarrisanum Man Ferrostaal um byggingu sólarorkuvera. Þar með virðast reyndar Arabarnir líka vera farnir að þefa af Solar Millennium. Ekki er lengra síðan en í október að enn einn fjárfestingasjóður frá Abu Dhabi skrifaði undir viljayfirlýsingu um kaup á stórum hlut í Man Ferrostaal. Vilji menn komast til áhrifa í Solar Millennium geta þeir þó slegið Aröbunum ref fyrir rass. Með því t.d. einfaldlega að bjalla í hann Henner Gladen, í stjórn Solar Millennium, og bjóða i dótið.

Solar_millnnium_Henner_Gladen

Já – Solar Millennium er spennandi kostur. Nefna má að þeir ljúflingarnir þýsku unnu einmitt nýverið Energy Globe verðlaunin. Sem sumum þykir voða fínn pappír.

Svo gæti reyndar farið að olíupeningar frá Arabíu verði senn búnir að kaupa upp stóran hluta af evrópska CSP-iðnaðinum. Þeir hafa líka fjárfest mikið í PV; sólarsellutækninni. Enda gnægð af sól í sandinum þeirra heima! Svo er ekki verra fyrir þessa ljúflinga olíuiðnaðarins, að hafa ítök í endurnýjanlegri orku - svona til að hafa einhverja stjórn á þróun orkugeirans.

En þó svo Flagsol og Solar Millennium séu góður kostur, er Orkubloggið á því að hið þýska Flabeg sé áhugaverðasta fyrirtækið í CSP-speglabransanum góða. Flabeg er öflugt og gamalgróið fyrirtæki - er með 130 ára farsæla sögu að baki. Þó svo bissnessinn þeirra sé aðallega ýmis konar önnur hátæknileg glerframleiðsla, er langmesti vaxtarmöguleiki Flabegmanna einmitt speglaframleiðsla fyrir CSP. Og þetta vita fleiri en Orkubloggið.

flabeg_logo

Einungis örfáir mánuðir eru síðan fjárfestingasjóðurinn Industri Kapital tók sig til og keypti Flabeg (af öðrum fjárfestingasjóði). IK er með rætur í Svíþjóð en starfar um alla Evrópu.

Ekki er gott að segja hvað þeir punguðu miklu út fyrir Flabeg. En til að gefa einhverja viðmiðun skal þess getið, að síðasta fjárhagsár var velta Flabeg um 150 milljónir evra. Ef við tökum fyrirtækjakaup í PV-sólarorkuiðnaðinum sem viðmiðun, þá er margföldunarstuðullinn 4 x velta ekki fjarri lagi. Sem hljómar kannski eins og hver önnur geggjun. Ætli verðið fyrir Flabeg hafi verið í kringum 600 milljón evrur? Kannski – kannski ekki. Það hljómar vissulega all svakalega hátt verð m.v. veltuna. Orkubloggið er auðvitað barrrasta að slá þessari tölu fram eins og hver annar falsspámaður. En minnumst þess að þetta er iðnaður í sprengivexti.

Hemingway_sun+also+rises

Ljúflingarnir hjá Industri Kapital voru reyndar svo upprifnir af því að eignast Flabeg, að blekið var varla þornað á samningnum þegar þeir tóku sig til og breyttu nafninu sínu. Nú heitir þessi blessaði fjárfestingasjóður IK Investment Partners. Bara svo menn viti nú hvert hringja skal til að bjóða í Flabeg.

Íhvolfu speglarnir þeirra Flabegmanna eru mikil völundarsmíði. Ná að nýta hátt í 95% af sólargeislunum (auðvitað nýtist þó miklu lægra hlutfall af sólarorkunni til rafmagnsframleiðslunnar). Og pöntunarstaðan er hreint unaðsleg.

Helsta áhyggjuefnið er kannski það, að þeir hjá Solar Millennium standa nú sveittir við að þróa flata CSP-spegla, sem eru svo miklu ódýrari. Og gætu þar skotið Flabeg ref fyrir rass.

Þessi flata CSP-tækni kallast Fresnel. Enn sem komið er, eru það líklega frumkvöðullinn rosalegi, Vinod Khosla og guttarnir hans hjá Ausra í Bandaríkjunum, sem standa fremstir í þeirri tækni.

Khosla_mystic

Og þar sem Orkubloggið hefur miklar mætur á Khosla - sem er óneitanlega nokkuð spámannslega vaxinn - er bloggið eiginlega svolítið ringlað í að ákveða hvaða speglatækni það eigi að trúa á!

Hvaða vitleysa. Hér gildir ekki eingyðistrú. Því segi ég bæði Flabeg og Ausra. En auðvitað fyrst og fremst Leo Messí.


Hvíti hákarlinn

Í síðustu færslu lofaði Orkubloggið umfjöllun um týnda hvíta hákarlinn. Flotpallinn Perdido. Sem ætlað er það hlutverk að ná upp olíunni úr lindunum kenndar við hvíta hákarlinn - Great White undir djúpi Mexíkóflóans. Og aldrei þessu vant ætlar bloggið að efna loforð sitt.

perdido_spagetti

Já - senn verður Perdido dýpsti flotpallur heims í olíuvinnslu. Á vinnslusvæði nr. 857 - Great White í Alaminos Canyon í Mexíkóflóanum. Þaðan munu spagettí-löguð borsköftin teygja sig í gegnum hafsbotninn, snuðra uppi olíulindirnar á svæðinu og sjúga svart blóðið úr hvíta hákarlinum. 

Það eru Shell og Chevron sem eru aðalpersónurnar í leikritinu um hvíta hákarlinn. Ásamt BP - sem er með aðeins minni hlut í ævintýrinu. Og svo kemur auðvitað fjöldi undirverktaka að þessu risaverkefni. Í olíuveröldinni eru nefnilega allir vinir og keppendur um leið. Að hverju og einu olíuleitarverkefni koma yfirleitt nokkur félög. Ýmist eitt af stóru olíufélögunum, ásamt nokkrum smærri leikendum á þessu sviði – eða nokkrir risar saman þegar um er að ræða stærstu og dýrustu verkefnin. Þannig verður það líka með Drekasvæðið. Vonandi verða einhver íslensk fyrirtæki þar framarlega.

Technip_Logo

Af þeim verktökum sem hafa dúllað sér við Perdido-verkefnið, fer franska fyrirtækið Technip með eitt stærsta hlutverkið. Þeir hjá Technip sérhæfa sig í viðskiptaþróun og verkfræðilausnum fyrir hinn alþjóðlega olíuiðnað. Það voru m.ö.o. Frakkarnir hjá Technip, sem fengu það netta verkefni að smíða stærsta stykkið í Perdido. Sjálfan sívalninginn - alls 300 metra langan og 36 m breiðan. Risaborpall - 10 þúsund tonna tækniundur sem skyldi fljóta á 2.400 m dýpi hinum megin við Atlantshafið. Yfir Great White olíulindunum langt úti á djúpi Mexíkóflóans.

Reyndar voru það alls ekki Frakkarnir sjálfir sem sáu um smíði þessa magnaða borpalls. Heldur Finnlandsdeild Technip, sem er skipasmíðastöðin í Pori á vesturströnd Finnlands.

Jardboranir_logo

Það er nefnilega svo, að það eru ekki bara hefðbundin olíuríki sem koma að þessum risabisness. Ísland gæti vel orðið þátttakandi í olíuiðnaðinum, hafi menn áhuga. Kannski eignumst við Mörlandar bráðum íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki, sem mun bjóða byltingakenndan hugbúnað fyrir olíuvinnslu á hafi úti? Ætli t.d. teymið snjalla hjá Marimo Software niðri á Klapparstíg hafi spáð í það? Og kannski Jarðboranir færi sig útí sjóinn. Hafboranir!

Perdido_towed2

Þó svo það séu Shell, Chevron og BP sem ætli að nota Perdido til að ná olíunni á hákarlasvæðinu, er pallurinn einungis tekinn á leigu.

Þessi sérkennilegi sívalningur er í eigu Transocean- sem lesendur Orkubloggsins ættu að vera farnir að kannast vel við. Transocean á fjölda borpalla og leigir þá út til olíufélaganna.

Það voru sem sagt hinir þöglu Finnar í þjónustu Technip, sem börðu snaggaralega saman þetta mikla mannvirki. Sívalning á hæð við Eiffel-turninn, sem í framtíðinni mun á degi hverjum dæla 100 þúsund olíutunnum og 5,6 milljón rúmmetrum af gasi úr Great White olíulindum Mexíkóflóans. Ásamt tveimur öðrum lindum, sem kallast Tobago og Silvertip.

Tobago-lindin verður reyndar dýpsta olíulind heims - á næstum 3.000 m dýpi. Hvað skyldi það met standa lengi? Nefna má að þetta er u.þ.b. helmingi meira dýpi en á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi. Þar sem vonast er til að olíuævintýri Íslendinga fæðist senn.

perdido_towed

Það var snemma í sumar sem leið, að pallurinn Perdido var tilbúinn austur við Finnlandsflóa. Þá voru liðin slétt 6 ár frá því olíulindirnar kenndar við hvíta hákarlinn fundust. Nú var bara að draga þetta 300 metra háa/langa ferlíki suður Eystrasalt og þvert yfir Atlantshafið, í átt að krummaskuðinu Ingleside í Texas. Rétt rúmlega 7 þúsund sjómílna leið (u.þ.b. 13 þúsund km).

Þar í steikandi sumarsólinni í Ingleside var svo lokið við smíðina og gengið frá ýmsum tæknibúnaði. Svo var spotti aftur settur í stálið og nú haldið út á Mexíkóflóann. Ennþá er þó eftir að setja sjálfan hattinn á pallinn. Þ.e. dekkið ásamt tilheyrandi íbúðum, stjórntækjum, þyrlupalli o.s.frv. Það verður gert síðar.

Og það var einmitt á afmælisdegi Orkubloggarans í ágúst s.l., sem þessi glæsilegi risi náði áfangastað sínum djúpt útí Flóanum. Vart hægt að hugsa sér betri afmælisgjöf?

perdido_map

Þarna 190 sjómílur út af fellibyljaþorpinu Galveston í Texas, rétt utan við lögsögumörkin gagnvart Mexíkó, treður Perdido nú marvaðann. Eins og risastór fljótandi bjórdós á næstum 2.500 m dýpi - strengdur fastur við hafsbotninn með sérstökum polýester-köðlum, sem hver um sig er nærri 4.000 m langur.

Sjálft toppstykkið - hatturinn á draumadósina - verður sett ofan á pallinn á næsta ári. Líklega er aðeins einn kranapallur til í heiminum, sem getur séð um það verkefni. Sem er hinn hollenski Thialf í eigu "lyftingafyrirtækisins" Heerema Marine Contractors.

Stubburinn sá - Thialf - er nú staddur utan við strendur Afríku. Og hann er ansið bisí. Biðtíminn eftir þjónustu Thialf er nú u.þ.b. 3 ár. En Shell hringdi á þennan góða leigara fyrir tveimur árum og því mun hann senn halda vestur um haf. Til að hjálpa Perdido að finna höfuðið sitt.

Thialf_Night

Búist er við því að olíuvinnslan hjá Perdido verði komin á fullt árið 2010. Ætli Thialf verði þá búinn að fá pöntun frá Íslandi? Og setji stefnuna á Drekasvæðið einhverja fagra tunglskinsnótt...


Cajun Express

Skyldi Arnaldur Indriðason vera byrjaður á nýrri spennusögu? Ef ekki, þá er ég með hugmynd:

sam_shepard

Að næsta bókin hans gerist á nýjum risastórum olíuborpalli á íslenska Drekasvæðinu. Svo leikstýrir Balti kvikmyndinni. Með Sam Shepard í aðalhlutverki – hann túlkar veðurbarða harðjaxlinn, sem er æðsti stjórnandinn á borpallinum. Shepard er auðvitað hinn fullkomni karlmaður og smellpassar í þetta jaxlahlutverk!

Plottið er að olían hættir skyndilega að streyma á aðfangadagskvöld. Skömmu síðar verður sprenging í borholunni - og þegar búið er að slökkva eldinn liggja nokkrir dularfullir, grænglitrandi hnullungar á dekki borpallsins. Glitrandi grjót úr iðrum jarðar - ólíkt öllu því sem íslenska skutlan og jarðeðlisfræðingurinn Hannah Gertrude Belker hefur áður séð. Væntanlega leikin af Anitu Briem.

Hvað þetta dularfulla græna jólagrjót reynist vera er leyndarmál Orkubloggsins – ennþá. En ævintýrið mun auðvitað bæði minna áhorfendur á hvað skiptir máli í lífinu og hversu lítt við þekkjum innviði jarðar. Sannkölluð jólamynd um hina nýju “leyndardóma Snæfellsjökuls”. Ég er nokkuð viss um að þau Sámur Shepard og Anita Briem munu brillera. Í liprum höndum Baltasar Kormáks.

Siegele_jack_rig

Ein fyrirmyndin að persónunni, sem Shepard túlkar, gæti verið hann Paul Siegele. Sem árin 2005-8 var framkvæmdastjóri djúpvinnslu Chevron í Mexíkóflóa (varð einn af aðstoðarforstjórum Chevron 1. janúar s.l.).

Siegele þekkir vel tilfinninguna að koma fljúgandi á Bell 430 þyrlunni lágt yfir Flóann og horfa spenntur yfir sjóndeildarhringinn þakinn hundruðum og jafnvel þúsundum borpalla (nú munu alls vera um 3.800 pallar í vinnslu Í Mexíkóflóa - langflestir þeirra eru ómannaðir og skammt utan við ströndina). Og finna strauminn sem fer um mann, þegar þyrlan tyllir sér á lendingapallinn á risamannvirkinu Cajun Express.

Cajun Express er einmitt borpallurinn sem fann olíu á meira en 8 km dýpi undir sjávarmáli og 6 km undir hafsbotninum. Í Jack 2 brunninum - eins og Orkubloggið hefur áður sagt frá (færslan “Djúpið”).

Já - Cajun Express er svo sannarlega eitt alflottasta dótið í olíubransanum öllum. Að fá að nota þennan fljótandi borpall kostar líka meira en hálfa milljón dollara á dag. Eðlilega. Og eftirspurnin er gríðarleg, svo það er eins gott að fleygja inn pöntunarseðli með nokkurra ára fyrirvara. Ábending til þeirra sem hyggja á olíuævintýri á Drekasvæðinu.

Cajun_Express

Þegar við nálgumst pallinn á þyrlunni blasir gríðarlegt stálmannvirkið við. En maður áttar sig samt ekki á stærðinni til fulls, fyrr en við sjáum fólkið þar eins og litla depla í skæru samfestingunum sínum. Og minnumst þess að borskaftið nær u.þ.b. jafn langt niður fyrir yfirborð sjávar, eins og Everest-fjall nær upp. Cajun Express er svo sannarlega eitt af verkfræði-undrum veraldarinnar. Tær snilld.

Það er Transocean sem á Cajun Express, en þeir eru stærsta olíupallafyrirtæki heims. Chevron er einungis með pallinn á leigu. Í dag er Jack 2 brunnurinn í biðstöðu, en áhersla lögð á þrjá aðra megadjúpa brunna hjá Chevron: Blind Faith, Tahiti og Great White Perdido. Sennilega er Cajun Express nú á fullu í Tahiti-brunninum eða nágrenni.

Allir eru þessir brunnar langt úti á djúpi Mexíkóflóans. Til stendur að öll sú vinnsla verði byggð upp á árunum fram til 2010-12. Og þó svo Cajun Express muni eflaust koma að vinnslunni þar, verður hann ekki í aðalhlutverki. Nei – það verður hinn finnskættaði flotpallur Perdido. Sem í vor var dreginn þvert yfir Atlantshafið – litlar 7 þúsund sjómílur - og komið fyrir á ægidjúpi Mexíkóflóans.

Kannski meira um það frábæra ævintýri síðar. Perdido er nefnilega langt í frá að vera týndur - þó svo nafnið gefi það til kynna.

anita_briem_2

En þó svo bæði sögurnar af Cajun Express og Perdido séu heillandi, verður auðvitað ennþá meira spennandi að lesa reyfarann hans Arnaldar um grænglitrandi grjótið úr iðrum Drekans. Bókina sem ég er að vonast eftir í jólabókaflóðinu að ári. Titillinn hlýtur einfaldlega að verða Leyndardómar Drekasvæðisins.

Nema ég barrrasta hirði hugmyndina sjálfur. Og byrji jafnvel strax á kvikmyndahandritinu...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband