28.12.2008 | 11:08
Frá miðbaugi að Eyríki
Eins og dyggir lesendur Orkubloggsins vita, þá er nú byrjað mikið djúpborunarævintýri í Mexíkóflóanum. En það er jafnvel hægt að finna ennþá meira spennandi hafsvæði.
Þannig virðist Brasilíudýpið utan við Rio de Janeiro geyma brjálæðislegar olíulindir. En kannski er Gíneuflóinn bestur? Hann er a.m.k. töfraorðið í djúpvinnslubransanum í dag.
Olíuvinnsla á sér nokkuð langa og merka sögu í sumum þeirra ríkja, sem liggja að Gíneuflóanum. Þar er Nígería líklega dæmið sem flestir þekkja. Nígeríski olíuiðnaðurinn þykir reyndar einhver svakalegasta táknmynd þeirrar spillingar og harðræðis sem á sér víða stað í olíuríkjum þriðja heimsins. Milljarðar hverfa í vasa embættismanna og mannrán og skemmdarverk eru nánast daglegt brauð. Og þegar spillingin lætur ekki á sér kræla í smátíma reynist það svikalogn - því skýringin er að það hefur skollið á fellibylur.
Nígería hefur í áratugi verið langstærsti olíuframleiðandinn í Afríku. Komst upp í 2,5 milljón tunnur á dag fyrir nokkrum árum, en hefur allra síðustu árin verið að dansa í kringum 2 milljón tunnur. Lengst af hafa það verið Líbýa og Alsír sem komið hafa á hæla Nígeríu á olíuvinnslulista Afríku.
En nú hefur hið ótrúlega gerst á örskammri stundu. Snemma árs (2008) stökk Angóla upp í annað sætið með um 1,7 milljón tunnur og hratt vaxandi framleiðslu. Og um mitt árið varð ljóst að vesenið í Nígeríu var búið að minnka framleiðsluna þar í 1,8 milljón tunnur meðan Angóla bætti við sig og var komið í 1,9 milljón tunnur á dag!
Þar af fara nú um 500 þúsund tunnur beint til Kína. Bandaríkin og Kína eru í miklum slag um olíuna frá semi-marxistunum í Angóla. Samdrátturinn í Nígeríu er talsvert áhyggjuefni fyrir Bandaríkin og ekki beint þeirra óskastaða hvernig Kínverjarnir laumuðust í angólsku olíuna.
Bandaríkin vilja minnka þörf sína fyrir á olíu frá Mið-Austurlöndum og því lykilatriði að þeir eigi góðan aðgang að Afríku. Þar að auki er mjög praktískt fyrir þá að flytja olíuna frá Vestur-Afríku beint yfir Atlantshafið. Þess vegna streyma nú olíuskip sömu leið og þrælaskipin streymdu fyrir tveimur öldum.
Já - Angóla er allt í einu orðinn mesti olíuframleiðandi Afríku. Hver hefði trúað því fyrir svona fimm árum? Enn sem komið er, fer mest af vinnslunni þar fram örskammt utan við ströndina. Og þetta er sannkallað hágæðagums. Nú eru sum olíufyrirtækin byrjuð að færa sig út á dýpið, utan við þröngt landgrunnið. Og eru vongóð um að djúpvinnsla geti innan skamms aukið framleiðslu í lögsögu Angóla um heilar 500 þúsund tunnur á dag.
Angóla hreinlega æðir áfram þessa dagana. Kannski verður Angóla búið að ná olíuframleiðslumagni Norðmanna eftir örfá ár. Og mun taka yfir virðulegan sess Noregs sem eitt mesta olíuútflutningsríki heims. Ekki leiðum að líkjast.
Meðan Angóla er nú í einhverri mestu olíu-uppsveiflu sem sögur fara af síðustu árin, fer olíuframleiðsla Norðmanna nefnilega hnignandi. Þess vegna er ekki skrítið að norsku skotthúfurnar í StatoilHydro eru nú þessa dagana einmitt að koma sér þægilega fyrir með flotpalla úti á Gíneuflóanum. Sama hvenær norska olían verður búin; Norðmenn ætla sér áfram að verða leiðandi í olíuvinnslu úr hafsbotni út um alla heim.
Horfur eru á að olíuævintýrið þarna í Gíneuflóanum sé eitt hið allra mest spennandi í bransanum þessa dagana. Menn eru komnir með vinnsluna út á allt að 3 þúsund metra dýpi og virðist enginn endir ætla að verða á því hvað þarna er að finna. Auk Mexíkóflóans er Gíneuflóinn að verða æðislegasti leikvöllur þeirra sem eru tilbúnir að leggja á djúpið. Þess vegna eru menn hjá fyrirtækum eins og Chevron, Shell og auðvitað Statoil nú með trylltan glampa í augum, þegar þeir horfa til Vestur-Afríku. Ásamt Kínverjunum auðvitað.
En hvaða olíusvæði skyldi verða heitast eftir að nýjabrumið hverfur af Vestur-Afríku-ævintýrinu? Það gæti orðið sjálft Norðrið. Verða kannski Barentshaf og jafnvel Drekasvæðið íslenska táknmynd nýrra tíma í olíuvinnslu? Upphaf olíulandnámsins mikla á Norðurskauti?
En áður en það mikla ævintýri hefst, væri kannski ráð að Ísland sameinist fyrst Grænlandi. Útlit er fyrir að mikil olía eigi eftir að finnast í grænlenskri lögsögu. Auðvitað ættu Grænland, Færeyjar, Ísland og Noregur að mynda eitt sambandsríki. Og taka upp sameiginlegan gjaldmiðil. Eiríkskrónu! Sem bæði rímar vel við Eirík rauða og Eyríki. Sem er tillaga Orkubloggsins um nafn á hið nýja ímyndaða draumastórveldi á Norðurhjaranum.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:18 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ketill Sigurjónsson
- Arnar Steinn
- Ágúst H Bjarnason
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Guðmundur Magnússon
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hrannar Baldursson
- Júlíus Sigurþórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Óskar Þorkelsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Skák.is
- Vefritid
- Hagbarður
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Stefán Gunnarsson
- Guðjón Baldursson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Eiður Ragnarsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gunnar Axel Axelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Dofri Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Steingrímur Helgason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- HP Foss
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Ívar Pálsson
- Hallur Magnússon
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Arnar Pálsson
- Árni Davíðsson
- Árni Gunnarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Bjarni Kristjánsson
- Björn Emilsson
- BookIceland
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Fjarki
- Friðgeir Sveinsson
- Friðrik Björgvinsson
- Frosti Sigurjónsson
- Gerður Pálma
- Gísli Ingvarsson
- Grétar Eiríksson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðmundur Eyjólfur Jóelsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Sverrir Þór
- Gullvagninn
- gummih
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Halldóra Halldórsdóttir
- Haraldur Baldursson
- Haraldur Rafn Ingvason
- Haraldur Sigurðsson
- Heidi Strand
- Heimir Ólafsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Héðinn Björnsson
- Hólmfríður Pétursdóttir
- Hörður Halldórsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Indriði Viðar
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jón Finnbogason
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kama Sutra
- Kári Harðarson
- Kristinn Sigurjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristján Sigurður Kristjánsson
- Leikhópurinn Lotta
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magnús Birgisson
- Magnús Jónsson
- Marinó Már Marinósson
- Már Wolfgang Mixa
- Níels A. Ársælsson.
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingólfsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Pétur Þorleifsson
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Róbert Tómasson
- Samtök Fullveldissinna
- Sigurbjörg Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurjón Bogi Ketilsson
- Sigurjón Jónsson
- Sigurjón Sveinsson
- Skeggi Skaftason
- Stefán Jónsson
- Steinn Hafliðason
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Trausti Jónsson
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Árnason
- Vísindin.is
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Hilmarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þór Saari
- Ævar Rafn Kjartansson
Tenglar
Mínir tenglar
- Orka og jarðhiti
- Næsta bóla?
- Þróun olíuverðs
- Er olían búin?
- Kyssum olíuna
- Á valdi óttans
- Ruglið í Economist
- The boys from Brazil
- Hubbert-trúin
- Dallas!
- Olían fór aðeins í 119.95!
- Kolefnisviðskipti
- Metanól á Íslandi
- Peak Oil Theory
- Spennandi tímar
- IceGreen
- Bjart framundan
- Frábært!
- Bjöggi og hvítabirnir
- Þýskt Heklugos
- Æsispennandi!
- Sjávarútvegsstefna EB
- Köbenbókunin?
- Lula!
- Dularfullu salthellarnir
- Kína þarf miklu meira
- Glæsilegur árangur
- Olíuveldið Danmörk
- Svalasti töffarinn?
- Obama er Íslandsvinur
- "Get the nuclear started"!
- Bankamaður bullar
- Þúsund og ein nótt
- Mikilvæg lög í USA
- Angóla er olíuspútnik
- Kennedy elskar Ísland
- Tinni og kolafarmurinn
- Vindorka fyrir vestan
- Framtíðarorka
- Olíubóla?
- Spámaður olíuguðsins
- Ótti og gleði í Ameríku
- Trilljón dollarar
- Frjálst Atlantshafsflug
- Heitasta sambandið!
- Fallegasta hönnunin?
- Bananalýðveldið
- Hrikalegt stefnuleysi
- Skelfingin í Kína
- Kol og hvalir
- Siðasti dropinn?
- Svart gull Norðmanna
- Í klóm efans
- Glæsilegt mannvirki!
- Endurkoma víkinganna
- Risagjaldþrot flugfélags?
- Fjósalykt á þingi
- Fagnaðarefni?
- Árás á Persíu?
- Skelkaðir Danir
- Arabía... mjög langsótt
- Ótrúlega ódýr olía
- Hjólandi snilld
- Nobody knows nuthin!
- BIG business!
- Tækifæri eða kafsigling?
- Lækkun vegna hækkunar
- Íslenskur sóðaskapur
- Álver og Álvör
- Fáránlega ódýr olía
- Land tækifæranna_
- Alvitur á Apaplánetunni
- Tollað í olíutískunni
- Decode pennystocks!
- Óendanlegir möguleikar
- Íslenski olíudraumurinn
- Olíu-Alí bregður á leik
- Brýr!
- Hikstar Kína?
- Pöddubensín
- The Nuke
- Bissness fyrir Björgun?
- Los chunguitos
- Í leit að sparibauk
- Eyðimerkursápa
- Ný heimsmynd
- Sól, vatn og salt
- Kókoshnetuveisla
- Grjónagrautur
- Stríð?
- Rockefeller
- Fucking smart!
- Enron-stelpurnar
- "Ég er betri en þú!"
- "Killing an Arab"
- Strákarnir í Stavanger
- Fjórði þríburinn
- Blautagull
- Dauðadaður
- EnOne
- Bláa gullið
- Kíkóti og vindurinn
- Úthafstúrbínur
- Íslenska vatnssullið
- Svaðilför í Surtsey
- Markaðstorg orkunnar
- Zagros!
- Olíudreki
- Geysir Green Energy
- Amerískir vindar
- Kill them all!
- Hamlet í sinningskalda
- Norsk Hydro í ölduróti
- SkyHook
- GAS!
- Glæðir
- Hrunið mikla
- Olíuviðskipti í ólgusjó
- Framtíðin í Öldudal
- Kaupsýslumenn og TED
- Vindkóngurinn glottir
- Las Vegas og Húgo
- Hið góða
- Fagmennska
- Úran (Kjarnorka I)
- Kjarnorka II
- Kjarnorka III
- Postorkumódernismi
- Orkustefnuleysi
- Olíusinfónían
- Eiríkur Batista
- VerðbólguÓmarkmiðið
- Spákerlingar bankanna
- Vesenið í Evrópu
- Drekagull og bíóbull
- From Russia with love...
- BP í ævintýraleit
- Össur og Össur
- Olíuvandræði Evrópu
- "Verðbólguskot"
- Trillion dollars
- Sólarorkan sigrar
- Þórsmerkurhjartað slær
- Þrek og tár
- Skákborð veraldarinnar
- Salthellarnir tæmdir?
- Drengur góður?
- Kjarnorkuveldið Íran
- Crush on Obama
- Þrumuguðinn og þóríum
- Rússnesk rúlletta
- Rio Tinto og úran
- Ísland talað í þrot?
- Paris Hilton
- Skjölin í Flórens
- Orkusnaran og N-Afríka
- Kjarnorkan á Indlandi
- Norskt þórín
- Norskt þórín
- Ölduorka
- Pólsk orka
- Alaska og Kárahnjúkar
- Færeyjar og Alsír
- Safe bet hjá Buffet?
- Misvindasamt
- Madonna og Ísland
- Nýja-Ísland
- Norðurskautið
- Arabískir gæðingar
- Metanól og DME
- Þörungaflug
- When rock was young!
- Ísland úr öskustónni
- Kviksyndi
- Mikil gleði í Mosdalnum
- Billjón tonn hjá Billiton?
- Nouriel Roubini
- Rússagullið
- Orkuboltinn Ísland
- Rússajepparnir koma
- Nótt í Moskvu
- Sólgyðjan
- Eyde og Einar Ben
- Das Kapital
- Alexander Lebedev
- Gæfa og gjörvileiki
- Turner, sól og tuddar
- Gaztroika
- Miller time!
- Tröllaorka
- LNG - og Onassis
- Mjallhvít...
- ...og dvergarnir sjö!
- Tangentopoli
- Golíat
- Fláráður stórvesír
- Djúpið
- Demanturinn
- Drekasvæðið
- Tárahliðið
- Vesturfararnir
- Leyndardómar Drekans
- Hvíti hákarlinn
- "Og sólin rennur upp"
- Orkuduftið hvíta
- Ghawar
- Saudi Aramco I
- Saudi Aramco II
- Olíufíkillinn
- Spennandi háspenna!
- Grænt pólflug
- Frá miðbaugi að Eyríki
- Stund þín á jörðu
- Olíuverðið!
- Demantar I (Angóla)
- Demantar II (Rhodes)
- Æpandi Drekabjartsýni
- Ali er vaknaður
- Bakkafjarðarsoldáninn
- Nýtt Ísland í fæðingu?
- Olíuballið er byrjað!
- Manstu...
- Bakken til bjargar?
- Bændaolían á Bakken
- Álið, orkan og Roubini
- Vatnaskil í Vestrinu
- Drekaskatturinn
- Ódýrasta rafmagnið
- Var 30 - er nú 70
- Recovery.gov
- Olíuhásléttan
- IRENA og véfréttin IEA
- Töfrakanínan NGL
- Vinur í Vestri?
- Línan er brotin!
- Bréfið frá Buffet
- ENRON
- Íslenskir uppljóstrarar?
- Hvað gerir Evrópa?
- Ef, ef, ef...
- Besta jólagjöfin
- Sádarnir safna skuldum
- FPSO
- Kraftur gegn kreppu
- Olíutromman
- Tölfræðistuð
- Olíusandur
- Græni kapallinn
- Fisker Karma
- Dan Yergin
- Tap Landsvirkjunar
- Skuldir Landsvirkjunar
- Silfur Egils I
- Silfur Egils II
- Tap Orkuveitunnar
- Hver á skuldir HS Orku?
- Hverjum klukkan glymur
- Orka og mútur
- Sandhóla-Pétur
- Texas á Jótlandi
- Í hlutverki leiðtogans
- Vindorka og sjávarorka
- Um vindorku
- Vindrafstöðvar á Íslandi
- Vindorka framtíðarinnar
- Sjávarfallavirkjanir
- Hafstraumavirkjanir
- Íslenskir straumar
- Ölduvirkjanir
- Osmósa- og seltuvirkjanir
- Er vindorkan dýr?
- Efnahagslegt tækifæri?
- Orkuframtíð Íslands
- Dagur jarðar
- Paradísarheimt?
- 2009 Missouri Summit
- Fangarnir í Sólhofinu
- Júdas og Kristur
- Suckers rally?
- Samsonarleiðin
- Nú er það svart...
- Fall fararheill?
- Í jöklanna skjóli
- Völva og snillingur
- Icesave
- Græni herinn
- Endurkoma styrjunnar?
- Kolefnisvísitalan
- "Spurðu vindinn"
- W-laga kreppa?
- Vofa Leópolds konungs
- ACES
- Sigraði raunsæið?
- Bill Reinert
- Tígrís!
- Hagkvæmnin skiptir öllu
- Silfurrefurinn
- Demantakonungurinn
- Engin lognmolla
- Upp... eða niður?
- Síðasti tunglfarinn
- Armstrong í Öskju
- Maritza
- Grænni framtíð
- O tempora o mores
- Kínverski risaskurðurinn
- Veolia og vatnið í Kína
- "Le Cost Killer"
- Sólargangurinn
- Skeppa af sojabaunum
- 150 ára afmæli olíuvinnslu
- Sandur í skónum?
- Um bjartsýni og svartsýni
- 1 lítri á hundraðið!
- Geitskór í Rúþeníu
- Kínverjar á orkuveiðum
- Áhrif olíunnar
- Hikstinn í Kína
- Paradís á Jörðu?
- Græðgin á kreiki í Írak
- Magma á Suðurnesjum
- BYD og Framtíðarorka
- Listagyðjan í olíubaði
- Þyrnirós í Texas
- Norman Borlaug
- Bifreiðaeldsneyti
- Græna kolaorkulandið
- First Solar í Kína
- Ylurinn frá Saudi Arabíu
- Drekinn snýr aftur
- Afleitar afleiður?
- Niður... eða kannski upp
- Olíulindir Líbýu
- Krókur á móti Beaty?
- Er Peak Oil afstaðið?
- Íslensk orkustefna
- Orkuskattar
- TvöfaltWaff
- Norðurskautsolían
- Funheitur jarðhiti
- 10.000 Flash Back
- Íslenskt metanól
- Fljótandi flugdrekar
- Drekinn: Draumurinn lifir
- Miðjarðarhafsævintýrið
- Mikilvægi tölfræðinnar
- Frjálsa olían á niðurleið
- Landsvirkjun
- Beaty, HS Orka og ESB
- Kverkatak OPEC
- Orkusjálfstætt Ísland
- Bonneville
- Búðarhálsbólga
- Bæjarhálsinn
- Vangaveltur um W
- AC DC
- Óskalandið?
- Hywind
- Renewable Deal
- Tækifæri í rokinu
- Flugumferð
- Siemens Direct Drive
- Loftslagsstefna Íslands
- Svona var það...
- E15
- Antonio Benjamin
- Nú er það svart!
- Söguleg froða?
- Rúlletta vindorkunnar
- Skilaboð frá COP15
- Heimabruggið
- Tíu dropar
- Villihænsnaveiðar
- Verðbólguótti og álbros
- Olíutoppur OECD
- Undir rauðru kápu Kína
- Heimsendspár
- Kon Tiki og Te Papa
- Blessar Guð Ísland?
- Icesave-lögin hin síðari
- Ólafur Ragnar í BBC
- Codexis
- "Frakkað" í New York
- Funheitt grjót
- Orkubloggið á Facebook
- Olíuhreinsun í US
- Raforkumarkaðurinn
- Burt með feitu kettina!
- Dýrir etanóldropar
- K-19
- Pickens í stuði
- Grænt Google
- Wanda!
- Aramco
- Khurais
- Ljúf og sæt í Cushing
- Askja Energy
- Bjöllurnar glymja
- Cantarell
- Leyndarmál um raforkuverð
- Strictly Confidential!
- Álsamkeppnin við Afríku
- Gullmyllan Glencore
- Ævintýri í Azerbaijan
- Samtök álfyrirtækja
- Deepwater Horizon
- Spennandi Valorka
- Svarta Perlan
- HS Orka & Magma
- Kjarnorkuolía
- OR á tímamótum?
- Silkileiðin
- Afghanistan og Grænland
- Vanmetinn jarðhiti?
- Eignarhald og arðsemi
- 65 ára reglan
- Afnotatíminn
- Gasrisi í úlfakreppu
- Skammsýni ASÍ og SA
- Orkuframtíð ESB
- Hvað finnst JR?
- Einka- eða ríkisvæðing?
- Orkumál á Íslandi
- Carter, Chris og Hirsch
- Skóflustungur
- Vítislogar
- Silfur!
- Tækifæri í jarðhita
- Sæstrengur
- Vatnsafl & Kína
- Aðvörunarorð
- Orkubrúin Tyrkland
- Skammsýni á Alþingi
- Suðurlandið til sölu
- Rothschild í hrávörustuði
- Wikileaks og olía
- Ísrael
- Nýársskaup
- NorGer-strengurinn
- Wallenberg og Elkem
- Hólmsá
- Íslensk orkustefna
- Orkustefnan í Silfrinu
- Forseta dreymir
- Olían á þrotum?
- Álverskórinn syngur
- Gasið í Egyptalandi
- Vesturlandahræsnin
- Spenna við Flóann
- Kjarnorkuslysið í Japan
- Græningjar fagna
- Ferðasaga frá Bakú
- Orkuþurrð í Bretlandi
- Eignarhald á virkjunum
- 30 TWst árið 2025?
- Hrávöruhöfuðpaurinn
- Sæstrengjaáratugur?
- Alterra Power
- Heimskautadraumur BP
- Vestas
- Olía í norðri
- Beutel og Pickens
- Norska gullgerðarvélin
- Íslenska rokið
- Norska Petoro
- Umræða um orkumál
- Virkjað í Eldsveitum
- Olían í Suður-Súdan
- "...Pamela í Dallas"
- Orka á Nýfundnalandi
- Google og Atlantic Wind
- Rammaáætlunin
- Sólveig & Gassled
- Prelude FLNG
- Vatnsaflið í Síberíu
- Gullregn
- Rosneft og ExxonMobil
- Sólsetur í vestri
- Gullæði í Yukon
- Kolarisinn Peabody
- Kolin í Mongólíu
- Olían við Grænland
- Keisarasprengjan
- Íslensk orkustefna
- Evrópa versus Gazprom
- Arðsemi Landsvirkjunar
- Gasæði í Póllandi
- Áratugur frá Enron
- Hólmsá í verndarflokk
- Norðlingaölduveita
- Gas í Úkraínu
- Pippa sjóðandi heit
- Kusur og hveiti
- Titringur á Hormuz
- Barmafull ofurskál
- Olíuævintýri framlengt
- Gunnvör
- Verkefnafjármögnun
- Landsvirkjun einkavædd?
- Íslensk raforkukauphöll
- Gasöldin gengin í garð?
- Orkumál Evrópu
- Hjemfall
- Námuvinnsla á Grænlandi
- Drekasvæðið I
- Drekasvæðið II
- Drekasvæðið III
- Falklandseyjar og Ghana
- Afródíta heillar
- Auðlindapistlar
- Rosneft kaupir TNK-BP
- Konungur Kaspíahafsins
- Bjargvætturinn Tight Oil
- Vatnaskil í veröldinni?
- Járnöldin síðari
- Námur Nataníels konungs
- Blóðrautt sólarlag?
- Keisarans hallir skína
- Vorhret hjá Desertec
- Hrávöruparadísin Brasilía
- Bless að blöffa?
- Risaálverin við Persaflóa
- Álverð og orkuverð
- Ögurstund í orkumálum?
- Gámafiskur í Helguvík
- Kínverska vistarbandið
- Miðjarðarhafskapallinn
Athugasemdir
Skemmtilegur pistill hjá þér. Athyglisvert með Angólu. Ég var einmitt að setja inn myndir mínar frá Paulinia (ríkasta olíusvæði Brasilíu enn sem komið er) á facebook síðuna mína. Slóð: http://www.facebook.com/photo.php?pid=258676&id=1041491245#/album.php?aid=79484&id=779832872&ref=mf
Ég er hinsvegar hrædd um að Grænlendingar hafi engan áhuga á yfirgangi Íslendinga sem því miður telja sig oft bera höfuð yfir herðar hinna ríkjanna í Norður Atlantshafi - jafnvel þó að Eiríkskrónan hljómi skemmtilega og jafnvel hið nýja ímyndaða draumastórveldi á Norðurhjaranum.
Annars er skemmtilegt að lesa pistlana þína! Haltu áfram að skrifa svona skemmtilega.
Anna Karlsdóttir, 28.12.2008 kl. 13:09
Takk fyrir það.
Nee - enginn vill vera vinur Íslands þessa dagana. Það er víst nokk satt og rétt.
Ketill Sigurjónsson, 28.12.2008 kl. 13:52
Þakka þér enn fyrir stórgóðan pistil, Ketill. Ef þú tekur pistlana saman í bók á www.blurb.com (sem er góð hugmynd) þá skal ég kaupa eintak nr. 2.
En varðandi olíuna, finnst þér ekkert skrýtið að spillingin velli upp nákvæmlega í sama hlutfalli við magnið, nær hvar sem er? Meir að segja Norðmenn verða að sætt sig við snaraukna glæpahörku. En förum samt í Drekasvæðið! Svo er annað, 40 USD hráolíuverð heldur ekki uppi vinnslu Norðmanna, er það? Ef þetta heldur áfram er ekkert framhald hér á landi í þessu.
Ívar Pálsson, 29.12.2008 kl. 01:35
Sæll og takk fyrir innleggið, Ívar. Siðferði Norðmanna í fárfestingum takmarkast við olíusjóðinn þeirra - losa sig við hlutabréf í fyrirtækjum sem uppylla ekki viðmiðanir um eðlilega viðskipahætti. StatoilHydro er aftur á móti rekið sem einkafyrirtæki og tekur þátt í þvi sem tíðkast í olíubransanum hverju sinni. Lauflétt siðferðisklemma.
Sniðugt að þú nefnir olíuverðið. Hafði einmitt hugsað mér að smella inn smá innleggi um það og djúpvinnsluna, sem áramótafærslu.
Þú nefnir vinnsluna í Norðursjó. Hún er líklega mest öll u.þ.b. rekin á sléttu þessa dagana. En lækki verðið enn frekar, gæti farið að syrta þar í álinn. Ég er þó fullviss um að þetta lága olíuverð verði skammvinnt. Það gæti engu að síður farið enn neðar tímabundið.
Ketill Sigurjónsson, 29.12.2008 kl. 09:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.