Nú er það svart!

Veröldin er kolsvört. Þrátt fyrir allt talið um stórkostlega aukningu vindorkuvera og sólarorkuvera eru kol sá orkugjafi sem vaxið hefur hraðast í heiminum undanfarin ár. M.ö.o. þá sýnir reynsla síðustu ára, að heimurinn veðjar á kolin. Þrátt fyrir aðvaranir og dómsdagsspár um hlýnun jarðar. Þetta fer bara ekki mjög hátt.

Coal_Power_Station_Bergheim_GermanyÞað að nýta varma frá kolabruna til að framleiða raforku, hefur í áratugi verið ódýrasta tegundin af rafmagnsframleiðslu víðast hvar um heiminn. Fyrir vikið hafa kolin lengi verið mikilvægasti orkugjafi mannkyns. Í dag er um 40% allrar raforku heimsins framleiddur með kolabruna og þetta hlutfall hefur ekkert verið að minnka. Þvert á móti gera flestar spár um orkunotkun fram til ársins 2030, að hlutfall kolaorkunnar fari heldur vaxandi!

Ástæðan er einföld. Kol eru ekki aðeins ódýrasti orkugjafinn, heldur líka sú tegund jarðefnaeldsneytis sem ennþá er óumdeilanlega gnótt af. Mannkyninu er ennþá að fjölga og nokkur af stærstu efnahagskerfunum eiga enn eftir að upplifa mikinn efnahagsvöxt.

Þess vegna á raforkuþörfin eftir að vaxa mikið á næstu áratugum og stór hluti af þeirri raforku mun að öllum líkindum koma frá fjölda nýrra kolaorkuver. Undanfarin ár munu hafa verið byggð um hundrað ný kolaorkuver í Kína á ári hverju - sem þýðir að þar í Austrinu góða rísa tvö ný kolaorkuver í viku hverri! Hljómar gæfulega í baráttunni gegn losun koldíoxíðs - eða hittó.

World-proven-coal-reservesSem fyrr segir er til nóg af kolum í heiminum. Þar að auki vill svo "skemmtilega" til, að þetta er sú auðlind sem risahagkerfin eiga einmitt mikið af. Þau fjögur lönd sem búa yfir mestu kolabirgðum veraldar eru nefnilega Bandaríkin, Kína, Rússland og Indland. Þarna á meðal eru þrjú fjölmennustu ríki heims (Kína, Indland og Bandaríkin), stærsta hagkerfi veraldar (Bandaríkin) og tvö af hraðast vaxandi hagkerfum heimsins (Kína og Indland).

Samtals eru íbúar þessara fjögurra kolsvörtu kolaríkja næstum 45% af öllum jarðarbúum. Að auki er vert að hafa í huga að ESB, sem í dag er fjölmennasta vestræna hagkerfið, byggir raforkuframleiðslu sína líka hvað mest á kolum. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að kol skuli vera svo gríðarlega mikið notuð til raforkuframleiðslu.

Þessi fjölmennu lönd - Bandaríkin og þó sérstaklega Kína og Indland - eiga ekkert alltof mikið af olíu. En þau búa aftur á móti yfir miklu af kolum. Og munu því ekki svo glatt draga umtalsvert úr kolanotkun sinni. Þvert á móti er þess að vænta að raforkuframleiðsla með kolabruna eigi á næstu árum og áratugum eftir að verða nokkuð stöðug í Bandaríkjunum og aukast mjög í Kína, á Indlandi og víðar.

China_Coal_Consumption_2006-2015-2030Vissulega horfa þessi stóru og fjölmennu ríki til bæði endurnýjanlegrar orku og einnig til gassins (sem losar um helmingi minna af gróðurhúsalofttegundum en kolin gera). En í þessari óvissu veröld er orkusjálfstæði  að verða sífellt mikilvægara. Hvorki bandarísku olíusvolgrararnir, né hratt vaxandi iðnveldi Kína og Indlands eru spennt fyrir því að þurfa að auka innflutning á orku.

Þau þurfa þvert á móti að nýta sínar eigin orkulindir. Og þá eru kolin hvað nærtækust. Þess vegna eru það einungis draumóramenn sem trúa því að veröldin munu að einhverju marki draga úr losun gróðurhúsalofttegunda næstu áratugina. Líkurnar á að sá draumur rætist eru svona álíka miklar eins og Vímuefnalaust Ísland árið 2000 eða markmiðið um að útrýma fátækt í heiminum.

Auðvitað á maður að vera bjartsýnn. Og metnaðarfullur. Og vonast til þess að með samstilltu átaki þjóða heimsins verði unnt að takmaka og minnka losun gróðurhúsalofttegunda umtalsvert. En það er nákvæmlega engin skynsemi í því að horfa fram hjá staðreyndum eða leggjast í afneitun. Það eina sem getur snúið okkur af braut síaukinnar kolefnislosunar, er að Bandaríkin, Kína, Indland, Rússland og ESB setjist niður og komi sér saman um raunverulega lausn og leiðir. En af því kol eru einhver mikilvægasti, aðgengilegasti og ódýrasti orkugjafi allra áðurnefndra fjögurra ríkja og líka Evrópusambandsins, er nánast vonlaust að búast við raunverulegu og árangursríku samkomulagi um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.

World_Coal_Energy_share_2006-2015-2030Það má vel vera að Kaupmannahafnarráðstefnan skili "glæsilegri" niðurstöðu. Samkomulagi um 15%, 20% eða jafnvel 50% samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda. En að búast við því að slíkar "skuldbindingar" muni nást eða ganga eftir, er nánast barnaskapur. Um þetta eru flestar ef ekki allar þær stofnanir sem reyna að spá sæmilega raunsætt um framtíðarorkunotkun Jarðarbúa almennt sammála. Það er ekki nóg með að eftirspurn eftir rafmagni eigi eftir að aukast mikið á næstu áratugum - þar að auki er nefnilega barrrasta talið afar ólíklegt að hlutfall kola í raforkuframleiðslunni eigi eftir að minnka. Því miður.

Af hverju? Jú - segjum nú svo að kolarisarnir nái að koma sér saman um mikinn og hraðan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Því yrði einungis unnt að ná fram með byltingarkenndum breytingum á orkubúskap veraldarinnar. Einn mikilvægur þáttur í því væri t.d. að gera rafmagnsbíla miklu samkeppnishæfari - sem yrði mjög dýrt fyrir skattgreiðendur og/eða ríkissjóð. Betra húsnæði (bætt einangrun) og ýmsar aðrar orkusparandi aðgerðir myndu einnig vera þýðingamiklar. En lykilatriðið hlýtur alltaf að vera að losna við útblásturinn frá kolaorkuverunum.

Menn gæla við að dæla koldíoxíðinu niður í jörðina. Það er tær framtíðarmúsík og verður í besta falli mjög dýrt og í versta falli tæknilega ómögulegt. Þess vegna verður að finna valkost sem getur leyst kolaorkuver af hólmi. Ný gasorkuver  gætu þar skipt verulegu máli. Fjölmörg ný gasorkuver eru samt varla besti eða skynsamlegasti kosturinn til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, þó svo þau losi almennt miklu minna en kolaorkuverin. Jarðefnaeldsneyti mun varla leysa vandann!

Coal_production_and_consumption_1998-2008Ein lausnin verður að leggja stóraukna áherslu á endurnýjanlega orku. En hvorki vindorka, sólarorka né jarðhiti munu geta haft þá þýðingu á næstu áratugum að draga stórkostlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Eini raunhæfi kosturinn til að leysa kolaorkuverin af hólmi og um leið mæta síaukinni raforkuþörf, er endurreisn kjarnorkunnar.

Kjarnorkan er auðvitað mjög umdeild vegna ýmissar hættu sem henni fylgir. Í dag eru þeir þó að verða sífellt fleiri, sem eru farnir að líta á kjarnorku sem grænan orkukost. Af þeirri ástæðu einni að slík raforkuvinnsla losar ekki gróðurhúsalofttegundir. Vandamálið er bara að kjarnorkan er ekkert endilega mjög spennandi lausn. A.m.k. hvorki fyrir Bandaríkin, Kína, Indland né ESB. Af þeirri einföldu ástæðu að mestur hluti úranbirgða veraldarinnar er ekki innan lögsögu þessara ríkja og ekkert sérstaklega aðlaðandi að byggja framtíðarorkubúskap sinn á erlendu hráefni - oft frá óvinveittum eða vafasömum ríkjum. Ný kjarnorkuver munu þó vafalaust líta dagsins ljós í öllum þessum löndum og líka í ESB. En bygging þeirra mun taka langan tíma og verður varla lausn á "loftslagsvandanum".

COP15_LOGOÞað er einmitt þessi skortur á framtíðarsýn, sem Orkubloggaranum finnst vanta svo sárlega þarna í Borginni við Sundin. Þar situr mikill sérfræðingahópur og reynir að komast að sameiginlegri niðurstöðu um að draga mjög úr losun gróðurhúsalofttegunda. Vandamálið er bara að það virðist alveg hafa gleymst að spá í það hvernig ná eigi markmiðunum.

Ef ekki liggur fyrir skýr, tæknilega raunhæf og þokkalega fjárhagslega hagkvæm áætlun um það hvernig Bandaríkin, Kína, Rússland, Indland og ESB ætla að loka kolaorkuverunum sínum, er vandséð að eitthvert samkomulag um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda muni nokkru sinni skila þeim markmiðum sem að er stefnt. Niðurstaðan væri innistæðulaus - líkt og eigið fé hjá glæsilegum íslenskum spútnikbanka. Geisp.

Menn ættu a.m.k. að fara að horfa raunsætt á hlutina. Og hér gildir því miður ekkert annað en kolsvart raunsæi. Vissulega er mögulegt að samkomulag í Kaupmannahöfn geti orðið mikilvægt skref. Og að í framhaldinu verði unnt að móta leiðirnar að markmiðunum. En þegar litið er til staðreyndanna í orkumálum heimsins er það því miður barrrasta heldur ólíklegt.

World_Carbon_emissions_2000Alfíflalegust er þó framkoman gagnvart Afríkulöndunum og fleiri þróunarríkjum, sem eiga nákvæmlega enga sök á stóraukinni losun gróðurhúsalofttegunda síðustu áratugina eða aldirnar. Þessar þjóðir munu aldrei nokkru sinni ná að nútímavæðast og byggja upp heilbrigð og mannvæn samfélög, nema að um leið verði umtalsverð aukning í losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim. Í stað þess að eyða tímanum á Loftslagsráðstefnunni í að finna einhverja styrkjaleið til að Afríka taki á sig skyldur um að takmarka losun, væri nær að kolaveldin myndu líta í eigin barm. Og lýsa yfir bindandi markmiðum sínum og útlista nákvæmlega hvernir þau ætli að hætta að reiða sig á kolaorku. Þá yrði kannski kominn raunverulegur hvati fyrir önnur ríki að leggja sitt af mörkum.

Lars-og-ConnieEn nú ætla Lars Lökke og félagar að taka enn einn þróunarsnúninginn á þriðja heiminn. Og kaupa þessi ríki til að halda að sér í eðlilegri uppbyggingu atvinnulífs. Þó svo hún Connie Hedegaard sé harðdugleg, er hún eitthvað að höndla þetta vitlaust. Danir eru líklega ekki ennþá lausir við gamla góða fílinginn af því að vera nýlenduþjóð. Enda umhugað um að geta áfram mætt mestallri raforkuþörf sinni með kolaorkuverum. Þetta er svo gjörsamlega fáránleg stefna þarna á Loftslagsráðstefnunni að Orkubloggarinn á eiginlega barrrasta ekki eitt aukatekið orð.

 


Antonio Benjamin á Litla-Hrauni

Eitt af mörgum svolítið sérviskulegum verkefnum sem Orkubloggarinn hefur tekið sér fyrir hendur, er þátttaka í lögfræðinganefnd Alþjóða náttúruverndarsambandsins (IUCN's Commission on Environmetal Law; skammstafað CEL).

cel_logoÞað kom til af því, að um árabil vann bloggarinn talsvert á sviði umhverfisréttar og hafréttar og kynntist þá m.a. tveimur áströlskum lögfræðingum, sem hafa mikið unnið á sviði alþjóðlegs umhverfisréttar. Þeir heita Ben Boer og Ian Hannam  og eru gamlir vinir frá þeim dögum þegar Orkubloggarinn vann nokkra mánuði suður í Sydney. Var þá m.a. fyrirlesari í lögfræðikúrsum við Háskólann þar í borg (University of Sydney), hvar Ben er prófessor, en dags daglega starfaði  bloggarinn með Ian í ráðuneyti sem nefndist NSW Department of Land and Water Conservation. Í framhaldi af Sydneyjar-dvölinni fékk bloggarinn svo boð um að taka þátt í þessu athyglisverða lögfæðingasamstarfi á vegum IUCN, en Ben Boer hefur einmitt lengi verið ein helsta driffjöðrin í CEL. Annars má sjá tæmandi lista yfir meðlimi CEL hér á vef IUCN.

Innan CEL hefur bloggarinn átt sæti í sérfæðinganefnd um samningu sérstaks alþjóðlegs jarðvegsverndarsamnings, sem er ennþá í vinnslu. Þannig háttar til að nokkrir af mikilvægustu þjóðréttarsamningum heimsins á vettvangi umhverfisréttar eiga einmitt upphaf sitt í vinnunni innan IUCN. Til að samningur verði að veruleika þarf hann þó auðvitað að komast inn á borð Sameinuðu þjóðanna  og fá afgreiðslu þar. Auk jarðvegsverndarsamningsins, sem enn er bara draft, hefur bloggarinn líka tekið þátt í starfi hafréttarnefndar CEL og komið að samstarfi um náttúruvernd og auðlindanýtingu á Norðurslóðum.

benjamin_antonioÞetta hefur verið fróðlegt ferli. En það allra skemmtilegast við þessi verkefni hefur verið að kynnast nokkrum af þekktustu umhverfislögfræðingum heimsins. Af því sumir þeirra eru óneitanlega ansið sterkir og litríkir karakterar.

Meðal þeirra er brasilískur ljúflingur að nafni Antonio Herman Benjamin. Þó svo bloggarinn hafi upphaflega kynnst Antonio í gegnum CEL voru þau kynni þó afar yfirborðsleg, allt þar til hann kom til Íslands haustið 2005. Tilefnið var alþjóðleg ráðstefna  um jarðvegsvernd, sem haldin var á Selfossi undir forystu Landgræðslunnar, Landbúnaðarháskólans og evrópsku stofnunarinnar Scape (Soil conservation and protection strategies for Europe).

Sao_Paulo_megapolisAntonio hafði þá starfað í tvo áratugi hjá saksóknaranum í megaborginni Sao Paulo og þar verið yfir umhverfisbrotadeildinni í 4 ár. Hann taldist á þeim tíma einn helsti lagasérfræðingur Rómönsku Ameríku í umhverfisrétti og hafði lengi starfað á þeim vettvangi innan IUCN og CEL.

Skömmu eftir ráðstefnuna bárust svo þær ánægjulegu fréttir að Lula Brasilíuforseti hefði tilnefnt Antonio sem dómara við sjálfan Hæstarétt Brasilíu. Sú tilnefning var svo staðfest um mitt ár 2006 og síðan þá hefur Antonio væntanlega m.a. verið í því hlutverki að senda delíkventa í hin alræmdu brasilísku fangelsi. Hann er þó ennþá mjög virkur í samstarfinu á vettvangi CEL. Og virðist ekki ætla að láta Hæstaréttardómaraembættið koma í veg fyrir að hann geti áfram unnið að því að styrkja og efla alþjóðlegan umhverfisrétt.

Hæstiréttur í Brasilíu er í raun tvær stofnanir. Annars vegar er ellefu manna stjórnskipunardómstóll, sem nefnist Supremo Tribunal Federal og hins vegar er svo æðsti dómstóll í öðrum áfrýjunarmálum og nefnist sá Superior Tribunal de Justiça. Þar sitja um þrjátíu dómarar og einn þeirra er sem sagt Antonio Benjamin.

Antonio_Benjamin_3Þessa ljúfu haustdaga um miðjan september 2005 vissi enginn okkar að Antonio væri um það bil að forframast svo mjög í hinu risastóra og fjölmenna heimalandi sínu. En það kom svo sannarlega ekki á óvart að þessi litlu kubbur skyldi hljóta þetta mikla embætti. Sjaldan hefur Orkubloggarinn hitt mann sem sameinar jafn vel greind, hæfileika í mannlegum samskiptum, ákveðni og alúðleika. Hrein perla.

Það er ekki alltaf gaman á ráðstefnum. Eins og sjá má af myndinni hér til hliðar, sem tekin er af Antonio á einu af allsherjarþingum IUCN. En það voru allir í góðu stuði þarna á Selfossi haustið 2005.

Við þetta tækifæri fór Orkubloggarinn í smá bíltúr á Land Rovernum í nágrenni Selfoss, með Antonio ásamt þremur öðrum gestum af umræddri ráðstefnu. Með okkur í för voru áðurnefndur Ástrali - Ben Boer frá Sydney - ásamt konu hans og síðast en ekki síst Sheila Abed, þrautreyndur lögfræðingur frá Paraguay, en hún er í fararbroddi þeirra sem sinna málefnum náttúruauðlinda í Suður-Ameríku.

Sheila_Abed_CELÞar er svo sannarlega af nógu að taka, með einhverja mestu frumskóga og fjallgarða veraldar, stærstu sléttur heimsins og nokkur mestu vatnsföllin. Það má líka nefna að það var talsvert dramatískt þegar þau Sheila og Suður-Ameríkumennirnir náðu völdum innan CEL og losuðu nefndina undan gömlu klíkunni, en það er önnur saga. Sheila er núna stjórnarformaður CEL.

Veðrið þennan dag var milt og óhemju fallegt; miðseptemberdagur eins og þeir gerast bestir. Ég byrjaði á því að renna með þennan góða hóp vestur fyrir Selfoss og stoppa í Kömbunum. Þar lagðist allur hópurinn í mjúkan haustmosann og gæddi sér á ógrynni krækiberja úr lynginu. Antonio kunni vel að meta að liggja þarna í grámosanum og horfa upp í heiðan íslenskan himin. Líklega talsvert ólíkt hversdeginum suður í milljónaþvögunni í Sao Paulo. Eftir nokkra stund var svo haldið til baka  niður brekkurnar og beygt suður á Þorlákshafnarveginn. Og ekið þaðan yfir á Eyrarbakka og loks endað "heima" á Hótel Selfossi eftir góðan síðdegistúr.

litla_hraun_1Þegar við vorum í þann mund að aka framhjá afgirtu fangelsinu á Litla Hrauni spurði Antonio hvað í ósköpunum þessi bygging hefði að geyma. Það stóð auðvitað ekki á svari frá Orkubloggaranum, sem freistaðist til að dramatísera: "Þetta er fangelsi. Þarna geyma íslensk stjórnvöld alla hættulegustu glæpamenn landsins".

Antonio horfði á mig nokkrar sekúndur forviða á svip, en sprakk svo úr hlátri. Enda staða fangelsismála suður í Brasilíu eilítið önnur og ógnvænlegri en á Íslandi. Helstu fangelsin þar margvíggirt og minna mest á hervirki, enda eru fangauppreisnir og blóðug átök þar nánast daglegt brauð. Svo hringdi gemsinn hjá Antonio og þar var sjálfur Lula Brasilíuforseti, sem bauð honum sæti í Hæstarétti landsins. Svona til að færa í stílinn! En hvað sem því líður, þá mun Orkubloggarinn aldrei gleyma einlægum undrunarsvipum á Antonio Benjamin, núverandi Hæstaréttardómara suður í Brasilíu, þarna í græna Land Rovernum við Litla-Hraun haustið 2005.

 


E15

Fuel_pump_US_e10Alltaf gaman að upplifa eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Orkubloggarinn var í fyrsta sinn á bíl vestur í Bandaríkjunum núna um daginn. Og kynntist því þá af eigin reynslu hversu etanól hefur mikla þýðingu þar vestra. Hver einasta bensíndæla bauð upp á ýmsar tegundir af eldsneyti og þ.á m. var venjulega einn kosturinn E10. Bensínblanda þar sem etanól er 10%.

Í Bandaríkjunum eiga allar bílvélar að geta notað E10 og langflestar þeirra kunna reyndar ráða við mun hærra blöndunarhlutfall af etanóli. Þess vegna yrði hugsanlega einfalt mál að hækka blöndunarhlutfallið um a.m.k. helming og bjóða upp á E15  og jafnvel E20. Enda hefur bandaríski etanóliðnaðurinn lobbíað massíft fyrir því í Washington DC að fá a.m.k. E15 samþykkt sem standard. Það myndi augljóslega hafa gríðarlega þýðingu fyrir etanóliðnaðinn.

Lífmassaiðnaðurinn bandaríski hefur gengið í gegnum miklar sveiflur síðustu misserin. Enda er etanólið í raun fyrst og fremst að keppa við heimsmarkaðsverð á olíu, sem hefur sveiflast hreint svakalega. Etanóliðnaðurinn hefur notið áherslunnar á lífmassaeldsneyti, sem finna má í Energy Independence and Security Actfrá 2007. Engu að síður hafa etanólmenn viljað ganga skref lengra. Og bundið vonir við að þingið samþykki E15 sem standardblöndu; að bandarískt etanól-bensín muni innan tíðar innihalda 15% af etanóli í stað 10% eins og nú er.

corn_fuel_pumpMeð kjöri Obama og áherslu hans á endurnýjanlega orku jókst bjartsýni margra um að brátt verði E15 lögbundin blanda. En það hefur enn ekki gengið eftir. Ekki vegna andstöðu Obama, heldur vegna efasemda um að bílvélarnar almennt þoli svo háa blöndu. Til samanburðar þá hafa Brasilíumenn nokkuð lengi notað blöndur eins og E20 og E25, en þar hafa bílarnir sérhannaðar vélar fyrir slíka blöndu. Að mati Orkubloggarans eru góðar líkur á því að bílvélarnar í Bandaríkjunum, sem allar eru hannaðar með E10 í huga, þoli vel a.m.k. E15. En í þessari paradís skaðabótamálann ráðast stjórnvöld þar vestra auðvitað ekki í að lögbinda E15 nema að vera algerlega fullviss um að slíkt eldsneyti henti bílaflotanum.

Ástæða þess að mikill áhugi er á því Bandaríkjunum að auka notkun etanóls er einföld: Þar vestra er mjög öflugur etanóliðnaður og hærra hlutfall etanóls myndi einfaldlega bæði efla þann innlenda iðnað enn frekar OG um leið draga úr þörfinni á innfluttu eldsneyti. Etanólið hefur löngu sannað sig og ekki skrýtið að menn hafi áhuga á að auka notkun þess enn meira.

Margir gagnrýna reyndar að etanólið keppi við matvælaframleiðslu. En á móti kemur að öll fremstu etanólfyrirtækin vinna á fullu í því að þróa annarrar kynslóðar etanóleldsneyti. Þar sem ekki er notast við fæðuhráefni, eins og t.d. maís, til að búa til etanólið. Margt bendir til þess að brátt takist að framleiða slíkt annarrar kynslóðar lífmassaeldsneyti með þokkalega ódýrum hætti. Og því full ástæða til að gefa etanólinu séns.

E10_signÞeir sem eru tilbúnir að veðja á að E15 standard líti brátt dagsins ljós í Bandaríkjunum hljóta að nota tækifærið núna og festa sér hlutabréf í einhverjum af álitlegustu etanólfyrirtækjunum. Það almagnaðasta hlýtur að vera sú staðreynd að af þeim fyrirtækjum sem myndu hagnast hvað allra mest af aukinni áherslu Bandaríkjanna á etanól, eru dönsk fyrirtæki hvað fremst i flokki. Þar má sérstaklega nefna Novozymes og Danisco, sem eru afskaplega áberandi í etanólbransanum víða um heim.

Það eru m.ö.o. horfur á því að stefna Bandaríkjanna í eldsneytismálum verði vatn á myllu dansks hugvits og tækniþekkingar. Danir eru svo sannarlega seigir. En þetta leiðir huga Orkubloggarans að þeirri svolítið broslega stefnu  íslenskra stjórnvalda að ætla að draga stórlega úr losun CO2 hér, með því að koma fiskiskipaflotanum á jurtaolíu. Það væri kannski betra að einhver tengsl væri milli slíkra markmiða og stöðunnar í íslenskum eldsneytisiðnaði. En hver veit; kannski verða Íslendingar e.h.t. jafn öflugir í að framleiða og nota biodiesel eins og Danir eru stórir í etanóliðnaðinum.

 


Svona var það... og er það enn

Raforkuútflutningur um sæstreng gæti orðið eitt stærsta hagsmunamál Íslendinga í framtíðinni. Eftirspurn eftir umhverfisvænni orku, sem kemur frá endurnýjanlegum auðlindum, fer í vöxt á meginlandi Evrópu. Margt bendir til, að verkefnið sé framkvæmanlegt og íslenzk raforka geti orðið samkeppnishæf á markaði í Evrópu. Umsvif við virkjanir myndu stóraukast, ef útflutningur raforku hæfist, og því er spáð, að hagvöxtur gæti aukizt hér um 2% á ári, ef af lagningu sæstrengs yrði. Atvinna myndi aukast og ný leið væri fundin til að breyta orkunni í fallvötnum Íslendinga í útflutningstekjur.

zzzzNei - þetta er ekki innlegg frá Orkubloggaranum. Þetta er aftur á móti orðrétt úr ritstjórnargrein Morgunblaðsins þann 19. nóvember. Árið 1992! Hvað eru margar zetur þarna á ferðinni?

Í áratugi hafa menn hér á Klakanum góða velt fyrir sér þeirri hugmynd að selja rafmagn um sæstreng frá Íslandi til Evrópu. Og virðast strax fyrir um 15 árum hafa vera orðnir afar trúaðir á þessa hugmynd og hagkvæmni þess að koma henni í framkvæmd.

Upp úr 1990 var hugmyndin kölluð ICENET. Þetta var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og hollenskra fyrirtækja, sem sögð voru heita PGEM, EPON og NKF Kabel. Ef Orkubloggarinn man rétt var þetta á svipuðum tíma og fréttatímar voru uppfullir af fréttum um stórt álverkefni, sem kallað var Atlantal og átti held ég rætur sínar hjá hollensku álfyrirtæki sem nefnist Hoogovens. Þetta er náttlega allt í þoku fortíðar. Var það ekki örugglega Jón eðalkrati Sigurðsson, helsta vonarstjarna Jóns Baldvins, sem þá var iðnaðarráðherra?

David_Oddsson_fyrsta_raduneytidÁ þeim tíma rifust menn eins og alltaf um ál - en þeir rifust líka um ágæti þeirrar hugmyndar að flytja út raforku um sæstreng. Þá, rétt eins og nú, var álverð lágt og þess vegna var það svolítið þungur róður fyrir Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, að laða álfyrirtæki að Íslandi. Atlantal vildi bara borga skít og kanil fyrir rafmagnið og ekkert varð úr stórhuga áætlunum um risaálver á Íslendi - að sinni. Þrátt fyrir mikinn vilja. Kannski var það þess vegna sem menn fóru að vinna í hugmyndinni um sæstreng.

Álversmálið virtist komið í strand. Þess vegna kann raforkusala til Evrópu hafa þótt upplagður kostur. Nú skyldi ekki lengur bara veðjað á álið, heldur einfaldlega opna leið að evrópska raforkumarkaðnum.

Inn í þetta blönduðust líka hörð pólitísk átök í borgarstjórn Reykjavíkur. Borgarfulltrúar meirihlutans (Sjálfstæðismenn) sáu m.a. tækifæri í því að reist yrði sæstrengsverksmiðja við Reykjavík. Ekki er Orkubloggarinn viss um hvort sjálf orkan sem átti að fara um strenginn hafi átt að koma frá jarðhitavirkjunum í lögsögu Reykvíkinga. Sennilega var fremur horft til þess að nýjar vatnsaflsvirkjanir á vegum Landsvirkjunar á Austurlandi myndu framleiða raforkuna í sæstrenginn. Á þessum tíma var orðinn mikill spenningur fyrir því að virkja norðan Vatnajökuls, þó svo enn væri langt í að Kárahnjúkadraumurinn yrði að veruleika. Í þá daga var Reykjavík vel að merkja stór hluthafi í Landsvirkjun, þannig að sala á raforku frá Landsvirkjun hentaði hagsmunum Reykjavíkur prýðilega.

jon_sigiurdsson-idnadarradherraEn menn voru svo sannarlega ekki á einu máli um ágæti þessarar hugmyndar. Rétt eins og nú logaði allt í illdeilum milli meirihluta og minnihluta (hvernig nenna menn að taka þátt í þessara íslensku stjórnmálavitleysu?). Hinni leiðigjörnu en raunsönnu klisju eggin mega ekki öll vera í sömu körfunni, var mikið haldið á lofti af þeim sem horfðu til raforkuútflutningsins. Aðrir sáu þessari hugmynd allt til foráttu og töldu okkur þar með fara í sama flokk og aumir hrávörubændur í þriðja heiminum.

Já - þarna tókust á stálin stinn og fullyrti hvor hópur fyrir sig að heimurinn væri hvítur... eða svartur. Þegar raunin er auðvitað sú að veröldin er bara undursamlega grásprengd og langflestir hafa einfaldlega pínulítið rangt fyrir sér en líka svolítið rétt fyrir sér. Þessi leiðindavenja hér á Klakanum og víðar, að trúa í blindni á tiltekna forystumenn eða flokka, er satt að segja frekar kjánaleg.

En höldum aftur til daganna góðu um og upp úr 1992. Þegar Orkubloggarinn var hættur að vera með „jafnsítt" og Casablanca og Tunglið höfðu tekið við aðalhlutverkinu af Hollywoodinu hans Óla Laufdal. Í Casa dansaði Nilli  flottasta Moonwalk á Íslandi. Og hefur haldið áfram að dansa í gegnum lífið og er nú að ég hygg einn af rafmagnsverkfræðingunum sem sjá til þess að Landsnetið streymi sem skyldi um raforkuæðar Íslands. Bragi  beib var jafnan tilbúinn að kíkja á bíó á Lancernum og taka svo einn snúning á Glaumbær á eftir. Alltaf hægt að treysta á Braga, enda hefur hann slegið út alla stjórnendur Íslands og stýrt Eimskipum gegnum hvern brimgarðinn á fætur öðrum. Og væri maður heppinn gat maður jafnvel lent í skemmtilegu eftirpartýi hjá Grjóna  á hlýlegu hæðinni hans í gamla húsinu við Bjarnastíg. En maður var sossem ekkert að velta fyrir sér hvað hann Sigurjón Þ. Árnason ætti eftir að afreka. Lífið var „hér og nú", við Þórdís ofurástfangin og dúndrandi danstaktur þeirra Dr. Alban, C&C Music Factory og Dee Lite hljómaði undir gleðinni: "It‘s my life...!"

basic-instinct-sharon-stoneÞetta var barrrasta ansið góður tími. Orkubloggarinn nýbúinn að kaupa sér glimmerjakka í Camden, Sharon Stone dró Michael Douglas á tálar í Basic Instinct og úti bæ sátu menn og plönuðu rafstreng til Evrópu. Og notuðu undarleg orð eins og bakskautsvirki og afriðilsmannvirki. Í fúlustu alvöru og án þess að roðna hið minnsta. Enda óþarfi að skammast sín; það blautlegast við þessi sérkennilegu hugtök var að rafstrengurinn myndi liggja á hafsbotninum milli Íslands og Evrópu. Gagnkaupaviðskipti þótti líka nokkuð fínt orð í þessu sambandi. Vissara að leggja þessi ofursvölu hugtök á minnið til að geta aftur orðið gjaldgengur í ofurræðu nútímans um sæstreng.

Þetta var, sem fyrr segir, löngu fyrir daga Kárahnjúkavirkjunar og 300 þúsund tonna álvera. Gott ef Finnur Ingólfsson var ekki bara enn búðargutti í Kaupfélaginu í Vík. Menn þóttust metnaðarfullir og rætt var um að að útflutningur m.v. uppsett afl yrði 1-2 þúsund MW og rafmagnið myndi geta farið að streyma til Evrópu um aldamótin. Árið 2000 virtist ennþá í órafjarlægð og nægur tími til stefnu.

CC_Music_FactoryTil marks um metnaðinn, þá var lengsti rafsæstrengur heims á þessum tíma rafmagnsstrengur milli Vancouver-eyju og meginlands Kanada (ca. 240 km). Og lengsti jafnstraumsstrengur heimsins var þá smáspotti sem lá yfir Eystrasaltið milli Svíþjóðar og Finnlands. Hérlendis ætluðu menn aftur á móti að fara með strenginn frá Austfjörðum og alla leið til hins flata Hollands! Eða a.m.k. til Skotlands.

Þetta var skoðað af fullri alvöru. Ef af þessu hefði orðið hefðu Íslendingar komið að einu mesta tækniundri heims á þeim tíma. Þá var sko almennilegur metnaður hjá þjóðinni og ekki verið að væla yfir einhverju bankakvefi. Embættismenn Reykjavíkurborgar og erlendir samstarfsaðilar fullyrtu að hagkvæmnisathugun sýndi að þetta væri mjög arðbært. Þrátt fyrir að allir vissu að í reynd væri alger óvissa um að þetta væri tæknilega unnt og enginn raunverulegur samanburður fyrir hendi.

Þessi tími var einfaldlega frábær. Og menn hugsuðu í einhverju áþreifanlegu og voru ekki komnir útí þetta innihaldslausa froðukennda verðbréfarugl, sem svo heltók þjóðina.

Þó svo ekkert yrði úr þessu sæstrengsverkefni þarna á tímum Viðeyjarstjórnarinnar viðkunnanlegu, héldu menn áfram lífi í hugmyndinni. Næstu árin var nokkrum sinnum dustað rykið af sæstrengsmöppunni og allt reiknað upp á nýtt. Sú saga bíður betri tíma.

Icesave_cartoon_2En nú er tímabært að taka upp þráðinn enn á ný. Nú er loksins runnin upp sá tími að þetta sé bæði tæknilega og pólitískt mögulegt (sleppum því að fullyrða nokkuð um fjárhagslega hagkvæmni). Ef bara stjórnmálamennirnir nenna að vinna heimavinnuna sína og stuðla að samstarfi við erlendar ríkisstjórnir og erlend orkufyrirtæki. ESB hungrar í endurnýjanlega orku. Notum tækifærið og komum þessu í framkvæmd. Það skemmtilega akkúrat núna er að hugsanlega mætti nýta þetta sem hluta af skynsamlegri lausn á Icesave.

Og ef það tekst ekki, þá getur kannski einhver annar bloggari - eftir önnur 15 ár - rifjað upp þessa ofurbjartsýnu færslu og boðað þann sannleika að NÚ sé rétti tíminn kominn fyrir sæstrenginn. Við sjáum til. Höfum þetta í huga 2024. Kannski verður bleyjustrákurinn á myndinni þá loksins laus við Icesave-hlekkina frá Bjögga frænda og Alþingi Íslendinga.

 


Orku- og loftslagsstefna stjórnvalda

Þegar litið er til fólksfjölda einstakra ríkja og orkuframleiðslu, kemur svolítið athyglisvert í ljós: Ísland er mesti orkuframleiðandi veraldar.

Power_Consumption_Capita_2009

Já - jafnvel þó svo miðað sé við alla orku, bæði græna og svarta og þar með talin öll kolavinnsla ásamt allri olíu- og gasvinnslu, þá er Ísland nefnilega einhver allramesti orkuframleiðandi og orkunotandi veraldar. Miðað við stærð þjóðarinnar að sjálfsögðu; höfðatölu.

Það þykir kannski ekki par fínt að framleiða og nota svo svakalega mikla orku, eins og Íslendingar gera. Gæti verið túlkað sem bruðl og óhóf.  En þegar dýpra er kafað kemur jú upp sú stórkostlega staðreynd, að öll þessi mikla orkuframleiðsla Íslands byggist á grænni orku. Og þessi staðreynd skapar okkur Íslendingum mikla sérstöðu; þegar eingöngu er litið til grænu orkunnar verður Ísland líkt og fögur stjarna á svörtum himni.

Ástæðan fyrir því að Orkubloggið vill vekja athygli á þessari staðreynd, er að nú standa yfir í Kaupmannahöfn samningaviðræður um markmið og skuldbindingar um að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda, eftir að s.k. Kyoto-tímabili lýkur 2012. Í því sambandi er nauðsynlegt að spá svolítið í þróun orkunotkunar og hvernig sum ríki heims, eins og flest Evrópuríkin, Bandaríkin og Kína, byggja efnahags sinn á kolvetnisbruna meðan önnur ríki nýta fyrst og fremst endurnýjanlegar náttúruauðlindir.

Eins og við öll vitum olli iðnbyltingin straumhvörfum í efnahagslífi heimsins. Grundvöllurinn að þeirri velmegun sem við þekkjum í dag, byggist á iðnvæðingu. Framan af voru kol undirstaða iðnbyltingarinnar. Á 20. öld tók svo olían við sem undirstaða iðnþróunar. Samfara þessu urðu miklar tækniframfarir, framfarir í matvælaframleiðslu, framfarir í læknisfræði o.s.frv. Framfarir sem þó allar byggðust á einum grundvallarþætti: Ódýrri orku.

Industrial_revolution_1En þessu fylgdi leiðinda fylgifiskur. Sem er stórfelld losun kolefnis vegna bruna á kolvetniseldsneyti. Menn deila að vísu um það hvort og hvaða áhrif kolefnislosunin hafi. Seint verður algerlega fullsannað að hún valdi umtalsverðri hlýnun og/eða neikvæðum veðurfarsbreytingum. Skynsamt fólk hlýtur þó að setja á sig öryggisbeltið þegar það sest upp í bíl; það er ekkert vit í öðru en að sporna gegn mögulegum alvarlegum loftslagsbreytingum af völdum manna. Annað væri alger einfeldni og fáheyrt fyrirhyggjuleysi.

Þess vegna er Orkubloggarinn einlægur stuðningsmaður þess að lönd heimsins reyni að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda. En Orkubloggarinn álítur engu að síður mikilvægt að skynsemi og raunsæi ráði för í loftslagsstefnu Íslands. Og er afar hugsi yfir þeirri "metnaðarfullu" stefnu íslenska umhverfisráðherrans og sitjandi ríkisstjórnar að Ísland eigi að vera í fararbroddi í þessari baráttu.

Wind_blades_chinaLang mikilvægasta atriðið í að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda felst í því að minnka hlutfall jarðefnaeldsneytis í orkunotkun. Flestar og nánast allar iðnvæddar þjóðir veraldarinnar fá orku sína að langstærstu leyti frá kolvetnisauðlindum í jörðu (kolum, olíu og gasi). Þessar þjóðir eiga tæknilega tiltölulega auðvelt með að auka hlutfall endurnýjanlegrar orku, t.d. með því að byggja fleiri vindorkuver, sólarorkuver, lághitavirkjanir og síðast en ekki síst kjarnorkuver.

Svo skiptir líka miklu að spara orku með því t.d. að framleiða sparneytnari bíla og einangra hús betur, en flestir Íslendingar sem hafa ferðast erlendis þekkja það hversu ömurlega illa einangruð hús í útlöndum eru.

Ísland er mesta orkuveldi veraldar. Engin þjóð framleiðir og notar jafn mikla orku eins og Íslendingar, m.v. fólksfjölda. Nema þá kannski olíuríkin við Persaflóa, auk þess sem olíuveldin Kanada og Noregur eru líka risaframleiðendur á orku.

Að einu leyti sker Ísland sig algerlega úr í þessum ofurorkuhópi: Allt rafmagn á Íslandi kemur nefnilega frá endurnýjanlegum orkulindum - þveröfugt við Persaflóaríkin sem byggja sína orkuframleiðslu og notkun eingöngu á olíu og gasi. Og þó svo bæði Noregur og Kanada framleiði mikið af grænni orku (með vatnsafli) er orkubúskapur þessara landa líka allt annar og svartari en Íslendinga. Af því bæði þessi lönd eru stórframleiðendur og útflytjendur á olíu og gasi.

Power_Consumption_Capita_2009_few_countriesÍsland er eitt örfárra dæma um vestrænt land þar sem raforkubúskapurinn byggir alfarið á endurnýjanlegri orku. Einungis Noregur kemst með tærnar þar sem Ísland hefur sína grænu hæla í raforkuframleiðslu og talsvert langt þar á eftir koma lönd eins og Nýja Sjáland og Kanada. Og sem fyrr segir eru bæði Noregur og Kanada stórtæk í olíuframleiðslu og olíuútflutningi. Og Kanadamenn þar að auki á kafi í einhverri sóðalegustu olíuframleiðslu heims (úr olíusandi). Það er þess vegna í meira lagi skrítið þegar því er haldið fram að Ísland þurfi að "bæta orðspor sitt" í tengslum við losun gróðurhúsalofttegunda.

Sérstaða Íslands í orkugeiranum er mikil. Og að sumu leyti bæði góð og slæm. Góð að því leyti að við eigum auðvelt með að fullnægja raforkuþörf okkar með endurnýjanlegri orku. En slæm að því leyti að við eigum nánast enga möguleika til að auka hlutfall endurnýjanlegrar orku í raforkubúskapnum.

Sumir kunna að segja að þetta sé ekki kjarni málsins. Að við eigum margvíslega möguleika til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, algerlega án tillits til þess hvernig staðið er hér að raforkuframleiðslu. Með nýrri og betri tækni gætum við t.d. minnkað losun frá fiskiskipaflotanum, við gætum sett strangari losunarkröfur á stóriðjuna og við gætum líka minnkað losun frá bílaflotanum með því að nota t.d. meira lífmassaeldsneyti og/eða rafbíla.

Industrial_revolution_2Þetta er allt satt og rétt. Íslenski bílaflotinn losar t.a.m. mikið af gróðurhúsalofttegundum og Íslendingar eiga ansið marga bíla. Og margt smátt getur vissulega gert eitt stórt.

Nú liggur loksins sæmilega ljóst fyrir hver er afstaða íslenskra stjórnvalda á Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Af fyrstu drögum  að aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum, sem birt var á vef umhverfisráðuneytisins í gær 9. desember, virðist sem íslensk stjórnvöld miði að því að við verðum að mestu leyti samstíga Evrópusambandinu í því hversu mikið eigi hér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 

Í grófum dráttum virðist stefnan gera ráð fyrir því að Ísland verði að fullu bundið að losunartakmörkunum ESB gagnvart bæði stóriðju og flugi. Einnig virðist gert ráð fyrir að losun frá annarri starfsemi verði minnkuð í takt við markmið ESB. Þetta er þó enn óljóst; í áðurnefndri aðgerðaráætlun frá því í gær er talað um 19-32% minni losun árið 2020 en var árið 2005 og í viðtölum hefur umhverfisráðherra ítrekað talað um 15% samdrátt í losun 2020 m.v. það sem var 1990. Það er þó a.m.k. ljóst að gert er ráð fyrir mjög miklum samdrætti í losun Íslendinga á gróðurhúsalofttegundum á næstu tíu árum. Og þar að auki má nefna að í aðgerðaráætluninni segir að íslensk stjórnvöld hafi sett sér það markmið að draga úr nettólosun (kolefnisbinding innifalin) um 50-75% fram til 2050. Hvort viðmiðunarárið þarna er 1990, 2005 eða eitthvað annað er ekki augljóst. Enda er í reynd einungis um drög að aðgerðaráætlun að ræða en raunveruleg loftslagsstefna íslenskra stjórnvalda ennþá óljós.

Það sem aftur á móti liggur fyrir er alger stefnubreyting frá því sem var í aðdraganda Kyoto-bókunarinnar. Þá var niðurstaðan sú að Ísland fékk mestu losunarheimildina; 10% umfram losunina viðmiðunarárið 1990. Þar að baki voru veigamikil rök og afar villandi þegar núverandi umhverfisráðherra lýsir þeirri losunarheimild Íslands í Kyoto-bókuninni sem "undanþágu". Þetta var einfaldlega talin sanngjörn niðurstaða.

UNFCCC_logoÍ Kyoto-viðræðunum mótuðust samningsmarkmið Íslands af þeirri staðreynd að við framleiðum allt okkar rafmagn frá endurnýjanlegum auðlindum en ekki með kolvetniseldsneyti. Og þar var mjög litið til þess að ef Ísland ætti að taka á sig skuldbindingar um að draga úr losun, yrði útilokað að hér yrði byggð ný stóriðja á skuldbindingartímabilinu. Nú stendur aftur á móti til að Ísland - sem er eyja þúsundir km frá meginlandi Evrópu (mjög háð flugsamgöngum) og framleiðir allt sitt rafmagn með endurnýjanlegum orkulindum - ætli að taka á sig sambærilegar skuldbindingar í loftslagsmálum eins og eitthvert iðnvæddasta og mest mengandi ríkjabandalag heimsins.

Velta má fyrir sér hvað ráði þessum samningsmarkmiðum Íslands? Því er reyndar svarað í aðgerðaráætluninni, því þar segir berum orðum að eitt helsta leiðarljósið að baki henni sé "metnaður". Að Ísland eigi að vera "í fararbroddi í viðleitni við að draga úr losun". Þetta er athyglisvert. Samkvæmt þessu ætlar Ísland sér forystuhlutverk í að minnka kolefnislosun í veröldinni og tekur þess vegna á sig samsvarandi skyldur eins og einhverjir mestu kolvetnissóðar heimsins.

Hugsjónin er falleg. En er þetta rökrétt stefna?  Er einhver sanngirni eða rökvísi í því að lífræni bóndinn sem hefur varla notað eitt einasta korn af tilbúnum áburð í áratugi, svo dregin sé upp myndlíking, taki á sig skuldbindingu um að minnka áburðarnotkun sína til jafns á við verksmiðjubændurna. Væri ekki nær að Ísland legði fremur áherslu á að kynna sig sem einn af mikilvægum leikendunum í því að hjálpa versmiðjulandbúnaðinum - þ.e.a.s. þjóðunum sem eru ennþá nær algerlega háðar kolvetniseldsneyti - til að minnka þessa fíkn sína í kolvetniseldsneyti?

Desertec-map-bigVið búum meira að segja svo vel að útí Evrópu eru nokkrir fremstu vísindamenn álfunnar og einhver öflugustu stórfyrirtækin búin að undirbúa jarðveginn fyrir okkur. Orkubloggarinn hefur áður nefnt Desertec-verkefnið, sem ætlað er að verða mikilvægur þáttur í því að breyta orkubúskap Evrópu. Þar er m.a. horft til möguleikans á að Evrópa kaupi græna orku frá Íslandi. Það ætti að vera einn af grunnvallarþáttunum í orku- og loftslagsstefnu íslenskra stjórnvalda. Bloggarinn hefur reyndar líka talað fyrir því að við eigum að brjótast útúr þessari þröngu og arfavitleysu Icesave-deilu og þess í stað bjóða breskum stjórnvöldum og ESB í viðræður um víðtæka samvinnu í orkumálum.

Hvergi í Evrópu er ónýtt endurnýjanleg orka aðgengilegri en á Íslandi. Sé miðað við fólksfjölda, þá á Ísland einfaldlega mestu og bestu tækifæri heimsins í endurnýjanlegri orku. Það skapar okkur einstaka möguleika.

Iceland_hot_spotEn þetta virðast íslensk stjórnvöld ekki skynja. Telja framtíð Íslands og hinnar örsmáu íslensku þjóðar aftur á móti best borgið með því að við stimplum okkur í flokk með þeim ríkjum sem byggja orkubúskap sinn nánast alfarið á kolvetnisbruna. Að mati Orkubloggarans er einfaldlega ekki heil brú í þeirri stefnu.

Það er enginn vandi fyrir umhverfisráðherra og flokksmenn hennar að vera stórhuga í umhverfismálum, þó svo þau myndu draga aðeins úr metnaði sínum gagnvart losun gróðurhúsalofttegunda. Alþingi getur vel varið meira fjármagni í að sporna gegn jarðvegseyðingu og ofbeit og/eða í endurheimt votlendis, án þess að múlbinda þjóðina til að taka þátt í kostnaði vegna nauðsynlegra breytinga á orkubúskap Evrópu. Ísland er einfaldlega grænasta raforkuland í heimi og á enga mengunarskuld að gjalda í alþjóðlegu samhengi.

Orkubloggið leyfir sér að minna á athyglisvert erindi Halldórs Þorgeirssonar  frá Orkuþingi árið 2001. Halldór var lykilmaður í að semja um hver yrði skuldbinding Íslands skv. Kyoto-bókuninni og er sennilega sá Íslendingur sem best þekkir til Loftslagssamningsins. Hann starfar nú á skrifstofu  Loftslagssamningsins í Bonn og gegnir þar einni æðstu stöðunni innan þessarar mikilvægu stofnunar. Það er auðvitað engan veginn víst að Halldór sé sammála því sem Orkubloggarinn hefur hér haldið fram. En í áðurnefndu erindi sagði Halldór m.a.:

"Ísland stendur mjög vel í loftslagsmálunum. Miklu skiptir að litið sé til réttra mælikvarða þegar mat er lagt á stöðu ríkja á þessu sviði. 96% losunar gróðurhúsalofttegunda frá iðnríkjunum kemur frá bruna jarðefnaeldsneytis. Notkun jarðefnaeldsneytis er því rót þess vanda sem jarðarbúar standa nú frammi fyrir gagnvart loftslagsbreytingum af manna völdum. Baráttan við loftslagsvandann snýst því öðru fremur um það að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og að nota endurnýjanlega orkugjafa annað hvort beint eða til þess að framleiða eldsneyti s.s. vetni.

Halldor_ThorgeirssonEins og staðan er í dag þá kemur 99,9 % af raforkuframleiðslunni hér á landi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. 70% af frumorkuþörfinni er mætt með endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta hlutfall er hæst hjá okkur af þeim ríkjum sem við berum okkur almennt saman við. Þetta hlutfall verður ekki hækkað enn frekar nema með því að draga úr olíunotkun í samgöngum og sjávarútvegi eða með því að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa t.d. með vetni sem millilið.

Það má því segja að loftslagsmálin snúist öðru fremur um orkubúskap mannkynsins. Ekki verður haldið áfram á þeirri braut að auka sífellt orkunotkunina og að mæta aukinni orkuþörf hvort sem er á heimilunum, í samgöngum eða í atvinnulífinu með jarðefnaeldsneyti. Áhugi hefur þegar aukist á nýtingu kjarnorku til raforkuframleiðslu með þeim úrgangs- og öryggisvandamálum sem því tengjast. Nýting endurnýjanlegrar orku leysir ekki allan vanda en hún getur skipt miklu máli á vissum svæðum.

Mikilvægt er að aukning orkunotkunar í þróunarríkjunum verði mætt með endurnýjanlegum orkulindum þar sem kostur er. Þar eru víða ónýttir möguleikar. Skortur á þekkingu takmarkar hins vegar möguleika þróunarríkjanna til þess að nýta eigin orkulindir en litla þekkingu þarf hins vegar til þess að auka notkun á jarðefnaeldsneyti til raforkuframleiðslu. Það er því ljóst að þörfin fyrir þá þekkingu sem byggst hefur upp hér á landi við beislun orku náttúrunnar mun aukast og við Íslendingar getum miðlað öðrum af okkar reynslu."

GeoSteamNákvæmlega! Miðlum öðrum af okkar reynslu. Bjóðum fram okkar þekkingu og leitum eftir samstarfi um að nýta orku Íslands með skynsamlegum hætti og til hagsbóta fyrir bæði Íslendinga og aðra sem vilja kaupa og nýta sér þessa orku. En skipum okkur ekki í ruslflokk orkugeirans á grundvelli einhvers misskilins metnaðar um að Ísland þurfi að standa fremst í flokki þeirra sem draga úr losun.

Einhverjum kann að finnast þetta hálf undarlegt tuð hjá Orkubloggaranum. Er ekki barrrasta fínt að Ísland sýni "metnað" í loftslagsmálum? Þar að auki virðist nokkuð almenn samstaða um málið. Ekki einu sinni krónískir nöldrarar eins og Samtök atvinnulífsins hafa gert athugasemd við málatilbúnað umhverfisráðherra.

Í reynd snýst þetta samt allt um peninga. Af aðgerðaráætluninni er augljóst að losunarmarkmiðunum er ætlað að réttlæta auknar álögur á t.d. eldsneyti og líklega einnig á bifreiðar. Það mun koma niður á kaupmætti almennings, hækka verðtryggð lán o.s.frv. Ennþá verra er, að ein af grunnforsendunum fyrir þessari losunarstefnu virðast vera einhver þokukennd tækifæri að koma fiskiskipaflotanum á "jurtaolíu" eða annað lífmassaeldsneyti. Repjan er vissulega spennandi - en miðað við þau smáu verkefni sem eru í gangi hér með tilraunir af því tagi, er þetta vægast sagt vafsöm forsenda fyrir svo mikilvægri pólitískri ákvörðun sem loftslagsstefna stjórnvalda er.

airplane_vaporTil að gera langa sögu stutta er satt að segja mikil óvissa um að unnt verði að standa við þau markmið að minnka losun hér verulega innan tíu ára eða svo. Nema þá a.m.k. með mjög umtalsverðum auknum skattaálögum. Þar að auki er vert að minnast þess að losunarheimildir hafa fjárhagslegt verðmæti. Íslands hefur þá sérstöðu að nota ekkert kolvetniseldsneyti til rafmagnsframleiðslu, meðan flest önnur ríki eru að framleiða 70-90% af rafmagninu sínu með kolvetnisbruna. Það er sérkennilegt að nýta ekki þessa sérstöðu og setja okkur þess í stað í sama flokk eins og kolsvartar kolaþjóðir Evrópu. Þó svo Íslendingar aki um á bílum og geri út fiskiskip er varla réttlætanlegt að við eigum að sætta okkur við jafn takmarkaðar losunarheimildir eins og þjóðir sem byggja velmegun sína og kolvetnisbruna.

Fyrir vikið er líklega best fyrir íslensku þjóðina að Kaupmannahafnar-ráðstefnan skili engri endanlegri niðurstöðu og íslensk stjórnvöld fái tækifæri til að endurmeta samningsmarkmið sín og kynna þau. Bara verst að nú er hann Halldór líklega ekki í samninganefnd Íslands.

 


Siemens 3-MW Direct-Drive

Í síðasta Silfri spjallaði Egill Helgason við breskan blaðamann, Roger Boyes, sem er höfundur bókar sem nefnist Meltdown Iceland.

Þá bók hefur Orkubloggarinn enn ekki lesið. En mikið afskaplega þótti bloggaranum þetta hressandi viðtal. Svo var líka ágætt að heyra Boyes leggja áherslu á að Íslendingar geri sér verðmæti  úr skuldum sínum. Svaðalegur skuldari getur nefnilega átt ýmis tækifæri gagnvart lánadrottnum sínum.

Wind_Turbine_large_GAMESA_2MWHvort þessi skoðun rímar við það sem Orkubloggið hefur verið að tala fyrir, um að umsnúa Icesave-deilunni yfir í víðtækan samning um uppbyggingarstarf í endurnýjanlegri orku og útflutning á grænni raforku til Evrópu, er kannski vafamál. En hvort sem þarna er samhljómur á milli eður ei, þá er Orkubloggarinn áhugasamur um að komið verði á fót fjölþjóðlegu tæknifyrirtæki, með aðalstöðvar sínar hér á landi, sem ráðist í það verkefni að leggja rafstreng frá Íslandi til Evrópu.

Reyndar virðist sú trú nokkuð útbreidd á Íslandi, að vindorka sé svo rándýr að þetta sé tóm tjara. Það er vissulega miklu hagkvæmara að virkja mikla fallhæð vatns eða virkja háhitann. Og raforka frá kolum eða jarðgasi, jafnvel með einhverjum kolefnissköttum, er líka talsvert ódýrari en frá vindorkuverum. En í Evrópu verður pólitískum markmiðum um að stórauka hlutfall endurnýjanlegrar orku ekki náð nema með því að horfa til dýrari kosta en kola og jarðgass. Og þar í sveit eru hvorki fyrir hendi möguleikar í anda Kárahnjúka né Hellisheiðar.

Þess vegna horfir ESB langmest til sólarorku annars vegar og vindorku hins vegar. Og til að ljúka þessum alltof langa inngangi, þá leyfir Orkubloggarinn sér að fullyrða að vegna landþrengsla í Evrópu og langvarandi logntímabila, séu góðar líkur á að það sé bæði rökrétt og fjárhagslega framkvæmanlegt, að að reisa stór vindorkuver á Íslandi og flytja raforkuna til Evrópu um sæstreng.

Vindorkuiðnaðinum er oftast lýst sem „þroskuðum" iðnaði. Sem er í reynd eiginlega tóm tjara. Framfarirnar í vindorkunni hafa verið talsverðar á síðustu 10-15 árum, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Hagkvæmnin hefur stóraukist vegna tækniframfara og nú eru horfur á að enn eitt stökkið verði tekið. Töfraorðin í vindorkunni þessa dagana eru mörg - en eitt það mest spennandi er örugglega Siemens 3-MW Direct-Drive.

Þess nýjasta tækniuppfinning verkfræðisnillinganna hjá Siemens er afrakstur fimm ára þrotlausrar vinnu. Það þarf auðvitað ekki að kynna Siemens fyrir lesendum Orkubloggsins. Siemens hefur í marga áratugi starfað í orkutækninni og selur búnað í bæði vindrafstöðvar, sólarorkuver og jarðvarmavirkjanir. Svo fátt eitt sé talið. Þar á bæ eru menn alls ekki sáttir við að vera einungis 6. stærsti framleiðandi vindrafstöðva í heiminum. Og hafa sett sér það markmið að þeir nái fyrsta sætinu í alþjóðlega vindorkugeiranum strax árið 2012!

Til að svo megi verða þarf Siemens helst að geta boðið upp á byltingakennda nýjung. Vindrafstöð sem verður mun hagkvæmari en þær sem þekkjast í dag. Og þar sem hvert eitt og einasta af stóru vindorkufyrirtækjunum er á fullu að bæta túrbínurnar sínar, spaðana og annað sem lýtur að þessari tækni, þarf sprettur Siemens að verða ansið hressilegur til að fyrirtækið nái forystunni á þessum hratt vaxandi og spennandi markaði.

Wind_China_GansuBaráttan stendur ekki aðeins við þekkt nöfn eins og Vestas, GE eða Gamesa. Harðasta keppnin kemur ekki síst frá Kínverjunum, hvar vindorka er á blússandi siglingu og gríðarmikil og hröð þróunarvinna er í gangi. Bæði vind- og sólarorka njóta ríkulegs stuðnings frá kínverskum stjórnvöldum og það munar um minna fyrir kínversku vindorkufyrirtækin.

En nú eru ýmsir sem spá því að Siemens kunni að takast ætlunarverk sitt um að verða stærstir. Lykilatriðið í því verði ný tegund vindrafstöðva frá Siemens, þar sem búið er að losa sig við gírbúnaðinn. Það vill nefnilega svo til að það sem hefur valdið vindorkufyrirtækjunum hvað mestum höfuðverk eru bilanir í gírbúnaði. Og sökum þess að vindrafstöðvar eru almennt ekki að skila nema um eða innan við 30% nýtingu, mega þær illa við dýru rekstrarstoppi af þessu tagi.

Þessi vandræði voru orðin svo stórfelld að árið 2007 hugleiddi meira að segja danska Vestas að draga sig út af markaðnum fyrir offshore-vinrafstöðvar. Endalaust vesen með gírana í dönsku vindrafstöðvunum þar utan við ströndina, þótti benda til þess að þar yrði nægjanlegri hagkvæmni hugsanlega aldrei náð. Árið 2008 sáu þó engillinn hann Ditlev Engel og hinir ljúflingarnir hjá Vestas að sér. Og hafa nú á ný sett allt á fullt að leita tæknilausna í því skyni að leysa gírkassavandamálin í stóru vindrafstöðvunum.

Siemens_wind_prototypeEn þessi ársseinkun gæti orðið Vestas dýrkeypt. Siemens hefur nefnilega í laumi unnið í heil fimm ár að lausn þar á. Og fyrr á þessu ári (2009) kynnti Siemens svo nýja túrbínu, sem er eins konar frumgerð (prótótýpa) að stórri gírkassalausri vinrafstöð.

Þetta hafa Siemensararnir verið að dunda sér við í skógarrjóðrunum við hátæknisetrið sitt í Brande á Jótlandi. Og þeir byrja sko ekki smátt. Fyrsta gerðin sem þetta leyniteymi verðfræðipælaranna hjá Siemens kynna,  með hinum nýja búnaði, er 3 MW gírkassalaus rafstöð. Sem er einfaldlega nefnd Siemens 3MW Direct Drive Turbine.

Wind_Siemens-3mw-direct-drive-turbineBúnaðurinn á svo að vera kominn í sölu á næsta ári undir heitinu SWT-3.0-101. Og í dúndrandi fjöldaframleiðslu skömmu síðar. Fyrstu kaupendurnir eru auðvitað strax orðnir óþolinmóðir að prufa herlegheitin. Þetta er einfaldlega mjög spennandi.

Til marks um það hversu mikil nýjung þarna er á ferðinni, þá hefur nær allur vindorkuiðnaðurinn verið á einu máli um það s.l. þrjá áratugi að gírbúnaður sé algerlega nauðsynlegur til að ná sem mestri hagkvæmni. En nú er Siemens sem sagt búið að snúa við blaðinu. Og segja a framtíðarþróunin í vindorkunni muni byggjast á einu grundvallarhugtaki: Einfaldleika.

Það eru satt að segja engin smátíðindi þegar reynslubolti eins og risafyrirtækið Siemens tilkynnir að það sé búið á ná tökum á nýrri og ódýrri tækni, sem fækki hreyfanlegum hlutum í vindrafstöð um 50%. Markmiðið er að framleiða risastórar gírlausar vinrafstöðvar innan fárra ár; stöðvar upp á 5-10 MW. Það liggur við að Orkubloggarinn kaupi sér strax flugmiða til Billund til að kíkja á þessa frumgerð að vindrafstöðvum framtíðarinnar; þennan 90 metra háa turn við aðalstöðvar Siemens Wind í jóska smábænum Brande, með spaða sem eru 101 metri í þvermál. Og ENGIR gírar!

Wind_snowy_MistÞað er líka athyglisvert hvernig áherslur danskra stjórnvalda á vindorku hafa dregið til sín stóran hluta af alþjóðlega vindorkuiðnaðinum. Sem lengi vel einblíndi á dönsku skattareglurnar, sem svo lengi gerðu vel við vindorkuna. En í dag eru öll þessi "dönsku" fyrirtæki í því að framleiða risastórar vindrafstöðvar fyrir allan heiminn. Hvort sem er Vestas, Siemens eða Suzlon (sem er að vísu auðvitað með aðalskrifstofu sína á Indlandi en skipuleggur sölu um allan heim frá Árósum).

Þetta er árangur framsýnnar og metnaðarfullrar orkustefnu Dana. Ætli við fáum einhvern tímann að sjá eitthvað svoleiðis hjá íslenskum stjórnvöldum? Eða er álið bara málið hér á Klakanum góða?


Theroux

Ekki ætla ég að fara að troða fiction eða ferðasögum upp á orkuþyrsta landa. En leyfi mér samt að benda á þessa hugleiðingu dagsins um Paul Theroux.

Flugumferð

Orkubloggarinn átti sér eitt sinn þann draum að verða flugmaður. Eins og lesa má um hér.

Hartsfield–Jackson-DeltaFyrir vikið er bloggarinn nokkuð meðvitaður um hvernig flugumferð er háttað og umferðarstjórnun í nágrenni flugvalla. Og verður stundum hugsað til þeirrar geggjuðu umferðar sem er við fjölförnustu flugvelli heimsins. Eins og t.d. Heathrow við London eða flugvöllinn við Frankfurt í Þýskalandi, svo dæmi séu tekin um stóra evrópska flugvelli.

Eru þá ótaldir fjölförnustu flugvellirnir í N-Ameríku og Asíu, eins og t.d. í Los Angeles, Chicago, Tokyo og Hong Kong. Reyndar mun fjölfarnasti flugvöllur veraldar vera Hartsfield–Jacksonvið Atlanta í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Um hann fóru 90 milljónir farþega árið 2008 og næstum milljón flugvélar.

Air traffic in 24 hoursÞessi gríðarlega umferð um Atlanta-flugvöll stafar af því að hann er einhver mikilvægast miðstöð innanlandsflugsins í Bandaríkjunum. Sem er kannski táknrænt fyrir það hvernig Bandaríkjamenn nota flugvélar nánast sem almenningsfarartæki. Sennilega er floti Delta-flugfélagsins með um 500 farþegaþotur stærsti notandi Hartsfield–Jackson og eflaust einhverjir Íslendingarnir sem hafa notað Delta í innanlandsflugi vestra.

Myndina að ofan, þar sem hver flugvél er ljós punktur, má sjá hér  með hreyfingu. Sams konar mynd í meiri slow motion sést á myndbandinu hér að neðan. Gott að hugsa til þessa t.d. rétt fyrir lendingu á dásamlega tómum Keflavíkurflugvelli.

Það er líka athyglisvert að sjá hversu sáralítil flugumferð er um Suðurhluta Kyrrahafs. Sem skýrir t.d. af hverju hann Chuck "FedEX" Noland átti ekki séns á að finnast, í kvikmyndinni Cast Away. Sama má segja um flug yfir sunnanvert Atlantshaf og yfir Indlandshaf; þetta virðast fáfarnar slóðir farþegaflugvéla.

 

 


Tækifæri í rokinu

Í síðustu færslu fjallaði Orkubloggið um útflutning á raforku um sæstreng. Og fékk óvenju mikil viðbrögð. Þetta er bersýnilega talsvert hitamál og fólk með afar ólíkar skoðanir á því hvort slíkur útflutningur sé mögulegur og jafnvel hvort hann sé réttlætanlegur. Sumir tala um að slíkt væri hráefnisútflutningur án nokkurs virðisauka - og eru þá líklega að vísa í það sem algengt er í þriðja heiminum. Aðrir telja þetta snilldarleið til að efla íslenskan iðnað og muni hafa mjög jákvæð áhrif á margvíslegar þjónustugreinar hér. Eitt er víst; jafnvel þó slíkur raforkuútflutningur myndi geta borið sig yrði þetta pólitískt hitamál.

Tæknilega og pólitískt séð hefur raforkuútflutningur aldrei verið jafn raunhæfur eins og núna. Og líka fjárhagslega.  A.m.k. að mati Orkubloggarans. Ætlar bloggarinn að leyfa sér að hnykkja á þessu, með því að setja hér inn nokkur atriði sem hann lét fljóta inn á athugasemdir með síðustu færslu. Sem sagt í reynd endurtekið efni!

WIND_PARK_BEING_BUILTOrkumál Evrópu eru í dag gjörólík því sem nokkru sinni hefur verið. Olíuframleiðslan innan ESB-ríkjanna minnkar hratt, ESB er orðið mjög háð innflutningi á rússnesku gasi og þar að auki er ríkur vilji innan ESB að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Allt er þetta sem vindur í segl endurnýjanlegrar orku og nýtist þeim sem geta boðið ESB slíka orku. Það er sem sagt einfaldlega þannig að orkustefna ESB er til þess fallin t.d. að auka áhuga fjárfesta á verkefnum af því tagi sem lýst var í síðustu færslu Orkubloggsins; að flytja raforku til ESB um sæstreng frá Íslandi.

Þó svo Orkubloggarinn líti ekki síst til raforku úr iðrum jarðar í þessu sambandi, eru möguleikarnir í vindorkunni kannski ennþá áhugaverðari. A.m.k. svona fyrst í stað til að auka orkufjölbreytnina hér á Íslandi. Raforkuframleiðsla vindorkuvera er mjög sveiflukennd og hentar illa í raforkusamfélagi eins og hér á Íslandi. Raforkusamfélag sem byggir svo svakalega á stóriðju, þarf mjög stöðugt raforkuframboð.

Um þetta fjallaði Orkubloggarinn lítillega í skýrslunni sem bloggarinn vann í vor fyrir þáverandi iðnaðarráðherra. Þar var sett fram sú viðmiðun að vegna þess hversu stóriðjan notar mikinn hluta íslenskrar raforku, verði raforka frá íslenskum vindorkuverum vart nokkru sinni umfram 5% af heildar-raforkuframleiðslunni á Íslandi. Er þá vel að merkja miðað við innanlandsmarkað, enda er nú ekki um neinn útflutning að ræða.

wind_power_fiberglass_bladesVindorkuver á Íslandi gætu hins vegar mallað endalaust inn á hið stóra raforkukerfi Evrópu; t.a.m. Bretlands. Nefna má að vindorkuver upp á nokkur hundruð MW þekkjast víða í dag og nokkur vindorkuver með uppsett afl upp á ca. 4 þúsund MW hvert eru í bígerð. Það er alveg tímabært að framkvæma raunverulega athugun á því að reisa stór vindorkuver á Íslandi. Og beina íslensku vindorkunni inn í rafstreng til Evrópu. Tær snilld - ef þetta væri fjárhagslega framkvæmanlegt.

Kannski er þetta útópía. Eða dystópía! En að mati Orkubloggsins er full ástæða til að skoða slíka möguleika. Dönsk dagblöð tala nánast aldrei um Ísland nema að hnýta "den vindforblæste klippeö" í textann. Tökum þá á orðinu. Við borgum Icesave einfaldlega með rokinu - sem varla telst endanleg auðlind! Það væri fjarska einkennilegt ef evrópskir pólitíkusar myndu hafna slíkri leið - jafn viljugir og þeir eru til að dásama endurnýjanlega orku og mikilvægi þess að verða óháðari kolum og innfluttu gasi.

Wind_turbines_rotatingVæri ekki gaman að sjá t.d. rokið á Miðnesheiði streyma niður í nýja, fína rafstrenginn til Skotlands og þaðan áfram um Bretlandseyjar? Og horfa yfir turnana þegar maður kæmi til lendingar á nýja alþjóðaflugvellinum við Reykjavík. Sem líka var borgaður með vindi til Bretlands.

Bretar horfa fram á að þurfa að loka fjölmörgum kolaorkuverum til að geta mætt skuldbindingum ESB um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Þeir nota nú um 350 TWh á ári - og þar af koma einungis rúmlega 5% frá endurnýjanlegum orkulindum. Til samanburðar framleiða Íslendingar nú um 17 TWh árlega. Það að Íslendingar myndu auka rafmagnsframleiðslu sína um 100% myndi því einungis mæta tæplega 5% af allri rafmagnsnotkun Breta. Það væri mikill bissniss fyrir Ísland en varla stórmál fyrir Breta.

wind_blades_on-groundAllra leiða er nú leitað í Bretlandi til að auka hlutfall endurnýjanlegrar orku. Þess vegna er Bretland t.d. Mekka sjávarfallavirkjanaiðnaðarins. Þrátt fyrir að sú tækni sé ennþá almennt mjög dýr og í reynd nánast á byrjunarreit. Reyndar er varla ofsagt að Bretar standi frammi fyrir gífurlegri áskorun í orkumálum. Það virðist hreinlega vonlaust verkefni fyrir Breta að ætla að ná markmiðum um að losa sig frá kolarafmagninu nema að byggja fjölmörg ný kjarnorkuver. Til að vega upp á móti gangrýni á kjarnorkuna munu þeir líka fjárfesta mjög í endurnýjanlegri orku og grípa tækifæri á að flytja inn slíka orku.

Þarna kunna að vera áhugaverðir möguleikar fyrir Íslendinga að flytja út græna orku. T.d. íslenska vindorku. Og hugsanlega einnig rafmagn frá jarðvarma, t.d. eftir því sem djúpboranatækni fleygir fram. Það að flytja út hreinustu raforku sem þekkist hefur nákvæmlega ekkert með þriðja heims hráefnisútflutning að gera. Þvert á móti væri þetta leið til að auka bæði hagsæld og virðingu Íslands. Góða helgi!

 


Renewable Deal

Norðmenn flytja út jafn mikið rafmagn eins og öll sú raforka sem framleidd er á Íslandi í dag. Um 17 þúsund GWh.

HVDC_EuropeLengst af fór raforkan frá Noregi til Evrópu, um raflínur gegnum Svíþjóð og kapla sem liggja eftir hafsbotninum milli Noregs og Danmerkur. En nú er búið að leggja nýjan rafmagnskapal neðansjávar frá Noregi og alla leið til Hollands. Hann er í dag lengsti neðansjávarrafstrengur í heimi. Og kallast NorNed.

NorNed er um 580 km langur og liggur eftir botni Norðursjávar frá smábænum Feda á suðurströnd Noregs og til hollenska bæjarins Eemshaven. Hann var lagður á árunum 2005-07 og í maí 2008 byrjuðu formleg viðskipti með rafmagn um kapalinn.

Það eru norska Statnett og holenska TenneT sem reka kapalinn, en hann var smíðaður af sænsk-svissneska iðnaðarrisanum ABB. Skv. fréttum um rekstur kapalsins virðist hann vera að skila mun meiri tekjum en áætlað var og þau tæknivandamál sem komið hafa upp hafa reynst óveruleg. Enda eru menn farnir að plana ýmsar fleiri nýjar raftengingar með slíkum köplum hingað og þangað um bæði Norðursjó, Eystrasalt og Miðjarðarhaf.

Auk NorNed eru nú uppi áætlanir af hálfu Norðmanna um að leggja fleiri rafstrengi frá Noregi til bæði meginlands Evrópu og Bretlands. Það eru nýju jafnstraums-háspennustrengirnir (HVDC) sem gera þennan möguleika raunhæfari en nokkru sinni. Rafmagnsflutningar langar leiðir eftir hafsbotni eru sem sagt orðnir að veruleika. Og þó svo leiðin frá Íslandi til Evrópu sé öllu lengri en milli Noregs og Hollands og dýpið miklu meira, sýnir þessi magnaði rafmagnskapall NorNed að Ísland á sennilega prýðilegan möguleika á að verða rafmagnsútflytjandi.

Desertec_plan_mapÞetta vita framsýnir menn. Það er athyglisvert að hjá Desertec-verkefninu, sem rekið er af einhverjum alklárustu verkfræðingum Evrópu og á rætur sínar hjá evrópsku geimferðastofnuninni, er t.a.m. gert ráð fyrir því að í framtíðinni muni rafmagn frá íslenskum vindorkuverum streyma um neðansjávarkapla til Evrópu. Það kann jafnvel að vera bæði raunhæfari og skynsamlegri möguleiki en að Evrópa verði háð sólarorku frá heldur vafasömum stjórnvöldum á Arabíuskaganum og í N-Afríku, eins og Desertec-verkefnið horfir hvað mest til. Það er a.m.k. augljóst að innan ESB ætti að vera mikill áhugi á íslenskri raforku.

Að baki Desertec standa nokkur af öflugustu stórfyrirtækjum álfunnar. Einnig er framkvæmdastjórn ESB áhugasöm um verkefnið og það nýtur pólitísks stuðning margra stærstu aðildarríkja sambandsins.

Fyrirtækin sem hyggjast koma Desertec í framkvæmd hafa stofnað til þess sérstakt félag (D II). Þ.á m. eru áðurnefnt ABB, orkufyrirtækin E ON og RWE, Deutsche Bank, þýska Munich Re Group (Münchener Rück, sem er stærsta endurtryggingafyrirtæki heims), spænska iðnaðarsamsteypan Abengoa, þýski bankinn HSH Nordbank, og þýski verkfræðirisinn M+W Zander. Það er einfaldlega borðleggjandi að kynna þessum glæsta hópi Ísland sem áhugasaman þátttakanda í mótun orkustefnu Evrópu.

HVDC_Siemens_ABBMenn eiga ekki að óttast þá hugmynd að selja íslenskt rafmagn til annarra landa. Þvert á móti er skynsamlegt að nýta sér tækifærin sem skapast vegna orkuþorsta ESB og stefnu sambandsins um að auka hlutfall endurnýjanlegrar raforku í orkuneyslu ESB-ríkjanna. Framleiðsla og sala á raforku af þessu tagi til ESB yrði lykill að meiriháttar nýjum íslenskum hátækni-iðnaði.

Nú er tækifæri fyrir forsætisráðherra Íslands, ríkisstjórnina og Alþingismenn að taka af skarið. Og sýna Evrópuþjóðunum að þrátt fyrir glórulausa og óafsakanlega áhættufíkn íslenskra útrásarsukkara, er gott samband við íslenska sérþekkingu og íslenskar auðlindir miklu verðmætara en að fá borgaða þessa Icesave-aura í beinhörðu.

Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga gæti hér líka tekið frumkvæðið. Forræði á skipulagsmálum er á hendi sveitarfélaganna og þau hafa því miklu hlutverki að gegna um hvernig nýta eigi orkuauðlindirnar innan lögsögu þeirra. Þar sem verulegur hluti af þeim auðlindum eru innan þjóðlendna er þó bersýnilega mikilvægt að eiga gott samstarf við ríkið. Varla ástæða til að vænta áhugaleysis þaðan; uppbygging á nýrri stoð í íslenska orkugeiranum yrði jú allra hagur.

Landvernd_keppni_11Umbreytum Icesave-málinu yfir í öflugan endurreisnarsamning! Bjóðum Evrópusambandinu til viðræðna um umfangsmikla uppbyggingu nýrra jarðhitavirkjana og vindorkuvera í þágu bæði Íslands og Evrópu. Og að slíkar framkvæmdir verði hluti af því að leysa deiluna um Icesave. Innst inni vill ESB örugglega leysa Icesave-málið í góðu og sá pakki er bara smámunir þegar byrjað er að tala um möguleikana sem felast í endurnýjanlegri íslenskri orku.

ESB vill draga úr þörf sinni á rússnesku gasi og minnka bruna á kolvetniseldsneyti. Ísland vill fjölbreyttara og styrkara atvinnulíf. Uppbyggilegt samkomulag af þessu tagi er rétta leiðin, í stað þess að þvinga skuldum einkafyrirtækis ofan í kokið á þjóðinni.

Einu sinni sköpuðu menn New Deal. Nú er rétti tíminn til að ýta af stokkunum ekki síður merkilegu verkefni; Renewable Deal!


Hywind

Osmosis_Statkraft_Tofte_NorwayÞað eru merkilegir hlutir að gerast í Noregi þessa dagana.

Nú í vikunni sem leið voru Norsararnir að ræsa aðra af tveimur fyrstu osmósuvirkjunum heimsins (eða fyrstu, allt eftir því hvar skilin liggja á milli hreinna tilrauna og raunveruleikans). Virkjunin er reyndar enn á algeru tilraunastigi og langt í að þarna hefjist raunveruleg og umfangsmikil raforkuframleiðsla. Orkubloggaranum þykir sumir hérlendis hafa verið heldur hástemmdir um gríðarlega möguleika slíkra virkjana hér á Íslandi. En vissulega er þetta mjög áhugavert verkefni hjá Norsurunum. 

Norðmenn horfa ótrauðir til framtíðar og eru svo sannarlega ekki hræddir við að reyna nýja hluti. Nú í haust var t.a.m. fyrstu fljótandi vindrafstöð veraldar komið fyrir utan við norsku ströndina. Hún er umfjöllunarefni Orkubloggsins í dag.

Það er nýorkuteymi StatoilHydro sem stendur að baki þeirri brautryðjendatilraun, í samstarfi við þýska Siemens. Verkefnið felst í því að taka flotpall eins og nýttir eru í olíuvinnslunni og festa við hann turn með vindrafstöð. Vindurinn á hafi úti er almennt mun sterkari og stöðugri en á landi og þess vegna er heppilegt að geta staðsett vindrafstöðvar utan við ströndina. Að auki sparar það landrými, sem ella færi undir turnana, og veldur líka minni sjón- og hávaðmengun vegna fjarlægðar frá landi.

wind_horns_rev_3Það er vissulega búið að reisa nokkur stór vindorkuver útí sjó. Slík offshore vinorkuver þekkjast t.d. utan við strendur Danmerkur og víðar við strendur nokkurra ríkja í N-Evrópu. Bandaríkjamenn hafa einnig verið spenntir fyrir slíkum vindorkuverum, en eru skemmra á veg komnir en Evrópuþjóðirnar við Norðursjóinn.

Öll eiga þessi vindorkuver það sameiginlegt að turnarnir standa á hafsbotni, skammt utan við ströndina. Til að þetta verði ekki alltof dýrt má dýpið ekki vera of mikið. Þess vegna hafa framsæknir menn nú horft til þess möguleika að nýta flotpallatæknina til að staðsetja  stórar vindrafstöðvar djúpt útaf ströndinni, þar sem vindurinn er mun sterkari og stöðugri. Slík fljótandi vindorkuver gætu mögulega verið mun hagkvæmari heldur en þau sem við þekkjum í dag og opnað nýja og umfangsmikla möguleika í framleiðslu á umhverfisvænni raforku.

StatoilHydro er með meira en þriggja áratuga reynslu af því að athafna sig með olíuborpalla á norska landgrunninu. Smám saman færðist olíuleitin á dýpri svæði og tækniframfarirnar birtust m.a. í fljótandi borpöllum. Statoil varð meðal fremstu fyrirtækja heimi í að hanna slíka flotpalla og nú hyggst fyrirtækið nýta sér þessa þekkingu til að setja upp fljótandi vindrafstöðvar.

Hywind_diagram_1Norðmenn skortir ekki raforku. En öfugt við íslensku orkufyrirtækin telja hin norsku sjálfsagt að horfa út fyrir boxið. Þess vegna eru Norðmenn t.d. mjög framarlega í að gera sólarsellur fyrir sólarorkuver. Og þeir eru heldur ekki feimnir við að flytja út raforku. Þeir vita sem er, að það er miklu betri bissness í því að selja orkuna á góðum prís, fremur en að gefa hana til álvera. Og nú telja Norðmenn tímabært að skoða betur þann möguleika að nýta afl vindsins, sem nóg er af við vesturströnd Noregs.

Til eru þeir sem sjá rafmagnsútflutningi allt til foráttu og telja slíkt einkennast af nýlenduarðráni. En í reynd er útflutningur á endurnýjanlegri raforku allt annað mál en útflutningur á hrávöru, eins og t.d. silfri eða banönum. Í endurnýjanlegri orku fara saman uppbygging á verðmætri hátækniþekkingu og sköpun nýrra arðsamra útflutningsgreina. Norðmenn gera sér grein fyrir því að í framtíðinni mun verðmæti endurnýjanlegrar raforku verða ennþá meira en er í dag. Útflutningur á slíkri raforku er líklegur til að efla margs konar tækni- og verkþekkingu í landinu og skapa grunn að enn fleiri hugbúnaðarfyrirtækjum og þjónustu af ýmsu tagi.

Þess vegna eru Norsararnir nú að skoða ýmsa nýja möguleika í að flytja út rafmagn. Þ.á m. er samstarfið við vindorkuarm þýska iðnaðarrisans Siemens, um að hanna fljótandi vindorkuver, í því skyni að kanna hvort slík raforkuframleiðsla til útflutnings sé raunhæfur kostur. Hér á Íslandi fæst aftur á móti ekki einu sinni pólitískur stuðningur til að mæla vindinn í nauðsynlegri hæð, til að meta hagkvæmni vindrafstöðva á Íslandi. Status quo eða jafnvel afturhvarf til fátæktar virðist vera helsta áhugamál íslenskra stjórnvalda nú um stundir. Eins og Spaugstofan lýsti svo skemmtilega nú á laugardaginn.

Þessi fljótandi vindrafstöð þeirra StatoilHydro og Siemens, sem nefnd er Hywind, er hugsuð sem fyrsta skrefið í því að framleiða þúsundir MWh af rafmagni fyrir meginland Evrópu. Orkustefna ESB mun skapa síaukna eftirspurn efir raforku frá endurnýjanlegum auðlindum og ríki sem eiga tækifæri til að framleiða mikið af slíku rafmagni munu njóta góðs af.

Hywind_installing_2Fyrsta vindrafstöð Hywind felst í nettri 2,3 MW vindtúrbínu frá Siemens, sem stendur á tiltölulega hefðbundnum sívölum flotpalli sem lengi hafa þekkst í olíuvinnslunni í norsku lögsögunni. Flotpallurinn er frá franska risaverkfræðifyrirtækinu Technip, sem einmitt nýverið hóf samstarf á sviði jarðhitatækni við íslensku verkfræðistofuna Mannvit. Herlegheitin voru sett saman í Åmøyfirðinum nágrenni olíubæjarins Stavanger í sumar sem leið og þaðan var dótið dregið út á sjó. Þar skoppaði dollan í öldunum í nokkra mánuði meðan á endanlegum frágangi stóð.

Þarna  er sjávardýpið um 220 m og halda þrjú þung og mikil akkeri sívalningnum á sínum stað, en hann nær um 100 metra undir yfirborðið. Sjálfir spaðarnir eru um 80 m í þvermál

Raflínan í land kemur frá öðrum frönskum iðnaðarrisa; fyrirtækinu Nexans, en það er raforkufyrirtækið Haugaland Kraft  sem tekur rafmagnið inn á kerfið sitt. Þess er vænst að þessi 2,3 MW virkjun geti skilað 9 GWh árlega gegnum þann ágæta rafmagnskapal. Það gerir 3,9 GWh á hvert uppsett MW, sem væru svo sannarlega mjög viðunandi afköst hjá vindrafstöð.

Almennt er nýting vindrafstöðva (m.v. uppsett afl) ca. 1/3 af því sem gerist hjá hagkvæmum vatnsaflsvirkjunum. En skv. áætlunum Hywind virðist gert ráð fyrir nærri helmingi betri nýtingu en gerist og gengur í vindorkunni! Ef það gengur eftir mun þetta hugsanlega marka talsverð tímamót.

En hvað með kostnaðinn? Fjárfestingin í Hywind mun vera um 400 milljónir norskra króna, sem samsvarar u.þ.b. 10 milljörðum ISK á núverandi gengi. Það gera nokkurn veginn 1,1 milljarð íslenskra króna pr. GWh á ári (Hywind á að skila 9 GWh árlega). Það þætti óneitanlega nokkuð hressilega mikið í íslenska orkugeiranum og fær Orkubloggarann gjörsamlega til að tapa þræðinum. En minnumst þess að hér er tilraunastarfsemi á ferðinni. Þar að auki er íslenska krónan jú í algerum skít, en sú norska firnasterk þessa dagana. Þannig að samanburður þarna á milli á núverandi gengi er eiginlega alveg útí hött.

Hywind_installing_1Já - Hywind er enn á tilraunastigi og eflaust nokkuð langt í að hagkvæmar fljótandi vindrafstöðvar verði að veruleika. Markmið Norsaranna er að upplýsingar um hagkvæmni þessa ævintýris liggi fyrir eftir tvö ár og þá verður hægt að taka ákvörðun um framhaldið. Draumur Statoil er að í framtíðinni muni þeir geta framleitt þúsundir ef ekki tugþúsundir kílóvattstunda af hreinni og tiltölulega ódýrri vindorku úti á sjó og flutt hana um sæstreng til raforkuþyrstra Evrópubúa.

Vert er að minnast þess að Norðmenn eru löngu orðnir stórútflytjendur á rafmagni.  Í Noregi eru nú framleiddar um 143 þúsund GWh á ári og þar af fara um 17 þúsund GWh til útlanda (sem er nánast sama magn af rafmagni eins og framleitt var á Íslandi þetta sama ár; 2008 framleiddu allar íslensku virkjanirnar samtals 16.467 GWh).

Norðmenn flytja sem sagt út gríðarlega mikið rafmagn. Og leita leiða til að geta boðið Evrópusambandinu ennþá meira grænt rafmagn í framtíðinni. Hywind er einn þáttur í því.  Þetta ætti að gefa Íslendingum tilefni til huga betur að slíkum tækifærum. Á síðustu árum hafa nefnilega orðið straumhvörf í rafmagnsflutningum um kapla eftir hafsbotni. Meira um það í næstu færslu Orkubloggsins.

 


Óskalandið?

Orkuboltinn Kanada er að gera allt vitlaust í einhverri alsóðalegustu olíuvinnslu heims. Olíuvinnslu úr olíusandinum í kringum Athabasca-fljótið, á mörkum hins byggilega heims norður í Alberta.

FM_Athabasca_Icelandair_2Orkubloggarinn var svo heppinn fyrir örfáum dögum að fljúga beint yfir miðpunkt kanadíska olíusandævintýrisins í björtu og fögru veðri. Yfir krummaskuðið Fort McMurray, hvar friðsæld barrskógana hefur heldur betur verið rofin af stærstu skurðgröfum heims, sem skófla upp jarðveginum til að kreista megi olíuna úr þessu undarlega sandklístri. Þettanýjasta olíuævintýri veraldarinnar hefur skapað einhverja mestu dýrtíð sem sögur fara af. Maður þorir varla að hugsa til þess hvað kaffibolli og kleinuhringur kostar á Bills Inn í Fort McMurray þessa dagana. Hvað þá húsaleiga fyrir rottuholu í kjallara. Sem sagt land tækifæranna - eða ofþenslunnar?

Bloggaranum til mikillar ánægju var nánast heiðskýrt þegar þota Icelandair flaug beint yfir Fort McMurray. Og auðvitað hlýnaði Orkubloggaranum um hjartarætur þegar sjá mátti Athabaska-fljótið í öllu sínu veldi liðast um gjöreyddan greiniskóginn. Varla hægt að fá skýrari og táknrænni sýn um kolsvarta framtíð olíuvinnslu. Myndin hér að ofan var einmitt tekin af bloggaranum við þetta tækifæri. Úr 30 þúsund feta hæð! Ef hún birtist sæmilega skýr eiga lesendur að geta séð Athabasca ána nokkuð greinilega.

Allt útlit er fyrir að kanadíski olíusandurinn geymi stærstu óunnu olíulindir veraldar. Á sama tíma og efasemdarraddirnar um að Sádarnir eigi enn jafn mikla olíu í jörðu eins og þeir sjálfir segja verða æ háværari, eru sífellt fleiri sem telja að kanadíski olíusandurinn eigi eftir að skila tugum og jafnvel hundruðum milljarða tunna af olíu úr jörðu. Þar með er Kanada einfaldlega mesta olíuveldi heimsins. Enda vart ofsagt að það ríki algjört gullæði í kanadísku olíusandveislunni í óbyggðum Alberta.

Canada_electricity_generation_2008En Kanadamenn eru ekki aðeins sigurvegarar orkugeirans þegar talað er um olíu. Kanada er nefnilega líka það land sem hefur náð hvað lengst í að nýta endurnýjanlega orku. Þar kemur til gríðarlegt afl kanadísku fallvatnanna. Lengi vel framleiddu Kanadamenn um 75% af öllu rafmagni sínu með vatnsafli. Síðustu árin hefur þetta hlutfall lækkað eilítið eða í um 60%. Afgangurinn (um 40% rafmagnsins) er nánast allur framleiddur með kjarnorku, kolum og gasi. Nýju kanadísku vindrafstöðvarnar eru enn algert smáræði í heildarsamhenginu - þó svo vinorkan sé vissulega sá hluti orkugeirans sem hefur vaxið hlutfallslega mest í Kanada síðasta áratugina (uppsett afl nú hátt í 3 þúsund MW).

Kanada var lengi það land sem stóð fremst í virkjun vatnsaflsins. Þ.e. hafði virkjað flest MW. Í dag hafa Kínverjarnir yfirtekið þann sess, en Kanada er þó enn með sterka stöðu í öðru sætinu. Samkvæmt tölfræðiteyminu frábæra hjá BP er uppsett vatnsafl í Kína nú 170 þúsund MW, Kanada er með u.þ.b. 90 þúsund MW og í þriðja sæti koma Bandaríkin með 80 þúsund MW (Brasilíumenn framleiða reyndar meira rafmagn með vatnsafli en Bandaríkin, en eru í fjórða sæti m.v. uppsett afl með „einungis" 69 þúsund MW).

Kanadamenn byrjuðu snemma að reisa vatnsaflsvirkjanir og náðu strax afar góðum tökum á tækninni. Fyrstu umtalsverðu vatnsaflsvirkjanirnar risu þar fyrir aldamótin 1900 og fljótlega urðu borgir og bæir víðsvegar um Kanada upplýstar með rafmagni. Rafmagnið nýttist einnig til að knýja sögunarmyllur og alla tíð síðan hefur vatnsaflið verið mikilvægasti raforkugjafi Kanadamanna og varð undirstaða gríðarlegs áliðnaðar í landinu.

Canada_electricity_2006Í dag eru kanadísku vatnsaflsvirkjanirnar hátt í fimm hundruð talsins og uppsett afl þeirra samtals um 90 þúsund MW, sem fyrr segir. Það samsvarar um 120 stykkjum af Kárahnjúkavirkjun. Ársframleiðsla kanadísku vatnsaflsvirkjananna árið 2008 var um 370 teravattstundir (TWh). Til samanburðar þá framleiddu íslensku vatnsaflsvirkjanirnar 11.866 GWst (11,9 TWH) árið 2008. Orkustofnun telur að miklu meira rafmagn megi framleiða með íslenska vatnsaflinu; að líklega megi ná þar 35-40 TWh með hagkvæmum hætti og 25-30 TWh þegar litið er til þess að vegna náttúruverndarsjónarmiða verða ekki allir fjárhagslega hagkvæmir kostir hér nýttir.

Þó svo Kanada búi yfir gnægð af gasi, sem er jafnvel ennþá ódýrari raforkugjafi en vatnsaflið, hefur það sýnt sig að kanadísku vatnsaflsvirkjanirnar eru flestar afskaplega hagkvæmar. Kanadamenn geta því með góðri samvisku notað gasið í að kreista olíuna úr olíusandklístrinu norður í Alberta og þannig framleitt einhverja viðurstyggilegustu olíu í heimi til handa nágrannanum í suðri.

Canada_Hydro_decew-fallsSaga kanadíska vatnsaflsins er heillandi og þó sérstaklega áhugavert hvernig uppbyggingin var nátengd lagningu járnbrautanna. Orkuvinir hljóta að fyllast lotningu við að heyra nöfn eins og t.d. DeCew  (virkjun í Ontario frá 1898 sem enn er í gangi), Pointe de Bois (virkjun í Manitoba frá 1911) eða Shawinigan  (virkjun reist í Saint-Maurice fljótinu skömmu eftir 1900). Síðast nefnda virkjunin gerði borgina Shawinigan í Quebec einhverja nútímalegustu borg heims og um skeið var hún jafnan kölluð Borg ljósanna.

Í dag má finna vatnsaflsvirkjanir í öllum fylkjum Kanada, en eðlilega síst á sléttunum. En það sem er allra best: Talið er að enn hafi ekki verið nýttur nema um helmingurinn af hagkvæmu virkjanlegu vatnsafli í Kanada! Núna er kanadísk jarðhitafyrirtæki komið í rafmagnsframleiðslu á Íslandi. Kannski væri þá upplagt að íslensk raforkufyrirtæki skelltu sér í vatnsaflið í Kanada.

Canada_Annapolis_marine_hydroKanadíska vatnsaflið hefur þar að auki einn spennandi aukamöguleika, sem óvíða er að finna. Það er nefnilega svo, að á nokkrum stöðum við strönd Kanada er gríðarlegur munur flóðs og fjöru. Fyrir vikið er unnt að virkja sjávarföllin með sæmilega hagkvæmum hætti. Þar er auðvitað þekktust sjávarfallavirkjunin kennd við Annapolis, sem nýtir sjávarfallastrauminn í Fundyflóa.

Uppgangur vatnsaflsins í Kanada varð til þess að þar liggja að hluta til rætur margra af stærstu iðnfyrirtækjum heimsins. Virkjunin í Shawinigan dró t.d. fljótlega að sér Northern Aluminum Company, sem nú er hluti af risasamsteypunni Rio Tinto Alcan. Áliðnaðurinn varð óvíða öflugri en í Kanada. En svo breyttust tímarnir og alfyrirtækin hófu undanhald frá hækkandi raforkuverði til iðnaðar sem treystir sér til að greiða hærra verð. Samskonar þróun hefur einmitt orðið í Noregi. Þróunin varð sú að áliðnaðurinn tók að leita uppi fjarlæg furðulönd sem helst vildu gefa þeim raforkuna, meðan Kanadamenn, Norðmenn og aðrar siðaðar þjóðir tóku að selja raforkuna til arðbærari iðnaðar. Þess vegna þurfa álfyrirtækin að leita uppi afkima veraldarinnar, þar sem enginn alvöru bissness vill vera. Af einhverjum undarlegum ástæðum hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að Ísland eigi sérstaklega vel heima í þessum útnárahópi - og eigi að vera þar áfram.

Í dag áætla Kanadamenn að raforkuþörf landsins muni aukast um rúmlega 1% á ári næstu ár og áratugi. Þetta mun geta haft slæm umhverfisáhrif, þ.e. ef reisa þarf fleiri raforkuver sem nýta gas eða kol. Til að losun gróðurhúsalofttegunda aukist ekki um of líta Kanadamenn vongóðir til þess að stórauka uppbyggingu vatnsaflsvirkjana. Þó svo vindorkugeirinn sé orðinn nokkuð öflugur í Kanada, bendir margt til þess að kanadíska vatnsaflið dragi að sér mestu fjárfestinguna á næstu árum. Bjartsýnir telja jafnvel að bæti megi við 100 þúsund MW í kanadíska vatnsaflinu og þar af eru a.m.k. tveir kostir sem verða sannkallaðar risavirkjanir; yfir 3 þúsund MW hvor um sig!.

Ottawa_Rideau_Canal_WinterJá - Kanadamenn verða sigurvegararnir í orkugeiranum til framtíðar. Það er næsta víst, eins og Bjarni Fel myndi væntanlega orða það. Kannski ætti eyþjóðin sérkennilega, sem virðist sífellt helst vilja kyssa vöndinn þar sem hún velkist um norður Dumbshafi, að sækjast eftir nánum tengslum við Kanada. Í stað þess að vera að snobba fyrir orkumögrum öldrunarsjúklingnum ESB. Orkubloggarinn getur a.m.k. fullyrt af eigin reynslu að Ottawa, hin tvítyngda höfuðborg Kanada, er mun skemmtilegri staður heldur en fullkomlega óspennandi Brussel. Og Montreal miklu notalegri heldur en París. Kanada er einfaldlega snilldarland. Og ætti kannski að vera Óskalandið.

Þó svo öllu gamni fylgi nokkur alvara, gerir Orkubloggarinn sér engar vonir um að Ísland tengist Kanada. Og styður aðild Íslands að ESB. Enda kunna gríðarleg tækifæri að felast í því að flytja raforku frá endurnýjanlegum auðlindum okkar um sæstreng til Evrópu. Rétt eins og Kanadamenn flytja mikið af sinni raforku til nágrannans í suðri. Orkuþyrst og kolefnissjúkt Evrópusamband mun örugglega taka Íslandi vel. Nánast sem óskalandi!

Grín? Alls ekki, heldur rammasta alvara. Málið er bara að íslensk stjórnvöld haldi rétt á spöðunum. Sem virðist reyndar ekki alveg vera að gerast þessa dagana.


AC DC

Went down the highway
Broke the limit, we hit the town
Went through to Texas, yeah Texas

Eitt það skemmtilegasta sem Orkubloggarinn lék sér að sem snáði, var að fikta með skrúfjárni í rafmagnstækjum ýmiss konar. Svo sem að rífa í sundur gömul útvarpstæki og skoða innihaldið gaumgæfilega.

AC_posterOg það var ekki bara spekúlerað í tækjunum eða rafmagnsklóm. Innstungurnar í gamla húsinu austur á Klaustri voru líka spennandi viðfangsefni, en rafmagnið þar kom beint ofan af Systravatni. Þetta fikt olli auðvitað stundum tilheyrandi "straumköstum" af og til. Það að fá 230 volta straum var alltaf jafn undarleg og óþægileg tilfinning. Þó svo afleiðingarnar hafi aldrei orðið alvarlegri en stutt dofakennd tilfinning í puttunum, skýra þessar rafstraums-tilraunir bloggarans kannski ýmislegt í síðari tíma hegðun hans?

Nema þá að persónuleiki Orkubloggarans hafi meira mótast af því, að sofa alla sína barnæsku í litla herberginu beint ofan við miðstöðvarkompuna. Þar sofnaði bloggarinn jafnan undir notalegu muldrinu í olíukynntri miðstöðinni. Hér skal þó tekið fram að sá sem síðastur gekk til náða í fjölskyldunni, hafði það verkefni að slökkva á miðstöðinni. Enda sú gamla til alls vís ef hún fengi að malla yfir nóttina. Slíkar miðstöðvar áttu það nefnilega til að springa í loft upp og gátu þá tekið hálft húsið með sér.

shell_logoOlían sem kynnti miðstöðina kom úr olíugeyminum sem grafinn var handan við vegginn, rétt um metra frá rúmi Orkubloggarans. Einu sinni í mánuði eða svo renndi Finnur úr Vík á Shell-tankbílnum upp heimreiðina, tengdi leiðsluna við olíugeyminn og fyllti á. Those where the days. Kannski ekki skrýtið þó bloggarann langi að bjóða í Skeljung.

Ósléttur veggurinn milli olíugeymisins og næturfleti bloggarans var lengst af prýddur stóru plakati með mynd af spænsku nautaati. Frá fyrstu sólarlandaferð bloggarans til Torremolinos og Malaga með Guðna í Sunnu. Síðar voru þar myndir af ungum Bubba Morthens, Utangarðsmönnum og fleiri slíkum snillingum unglingsáranna. Þ.á m. voru auðvitað stuttbuxnastrákurinn fíngerði Angus Young og félagar hans í AC DC!

Sem kunnugt er stendur AC DC fyrir Alternating Current og Direct Current. Eða riðstraum og jafnstraum upp á ástkæra ylhýra. Það er svolítið athyglisvert að "feður rafmagnsins", þeir Thomas Edison og Nikola Tesla, háðu það sem stundum hefur verið nefnt Straumstríðið. Edison er sagður hafa hallast að því að jafnstraumur (DC) væri skynsamlegasta leiðin til raforkuflutninga, meðan Tesla aðhylltist aftur á móti riðstraum (AC).

Það varð fljótt ljóst að straumtap varð meira þegar notast var við jafnstraum heldur en riðstraum. En Edison taldi heppilegast að framleiða raforkuna nálægt notendum og þá myndi rafmagnstap ekki verða vandræði. Hann hafði sjálfur varið miklu fé í að þróa jafnstraums-flutningskerfi og kann það að hafa verið ein ástæða þess að hann barðist svo hatrammlega gegn riðstraumnum. Fræg er sagan af því þegar Edison kom að smíði fyrsta rafmagnsstólsins, til þess m.a. að sýna fram á hversu riðstraumur væri hættulegur. Það verk var unnið fyrir New York ríki til að framkvæma dauðarefsingu með mannúðlegri hætti en hengingu. Og svo sannarlega reyndist þetta riðstraumstæki banvænt. Þúsund volta riðstraumurinn náði reyndar ekki að deyða fangann, hinn þrítuga William Kemmler, en svo hækkuðu menn í 2.000 volt og steiktu Kemmler.

Tesla_Nikola_3Þetta varð samt ekki til þess að almenningur eða stjórnvöld tækju að óttast riðstraum, eins og sumir segja að Edison hafi gert sér vonir um. Þó svo við öll þekkjum til Edison's en Tesla sé flestum (að ósekju) gleymdur, fór svo að riðstraumurinn hans Tesla varð ofaná.

Ástæðan var sú að riðstraumurinn gaf möguleika á því að flytja rafmagnið lengri leiðir í formi háspennu. Með spennubreytum var einfalt að lækka spennuna fyrir neytendatækin og þetta var einfaldlega hagkvæmasta leiðin til að flytja rafmagn.

Riðstraumur þótti sem sagt miklu skynsamlegri kostur. Og sá sannleikur breiddist út með rafvæðingu veraldarinnar. Löngu síðar tókst Svíunum hjá Allmänna Svenska Elektriska Aktiebolaget (ASEA) að þróa nýja jafnstraumstækni, sem gerir jafnstraum að afar hagkvæmri flutningsaðferð þegar flytja þarf mikið rafmagn langar leiðir.

Sú tækni varð þó ekki til fyrr en eftir seinna stríð og enn um sinn var riðstraumstæknin yfirgnæfandi í öllum rafmagnsflutningum. Og er enn. En undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir í jafnstraumstækninni. Svo virðist sem þessi tækni sé að skapa nýja og spennandi möguleika í rafmagnsflutningum. Kannski má segja að kenning Edison hafi einkennst af framsýni og að hugmynd hans sé sigurvegarinn þegar upp er staðið.

Nýju jafnstraumstengingarnar þykja henta sérstaklega vel þegar rafstrengir eru lagðir langar leiðir eftir hafsbotni. Þarna er m.ö.o. komin fram tækni, sem kann að vera áhugaverð fyrir okkur Íslendinga í því skyni að selja rafmagn frá Íslandi til annarra landa. Kannski væri besta og skynsamasta leiðin til að leysa þetta leiðinda Icesave-mál, að semja við Breta um slíka rafmagnssölu. Orkubloggarinn er á því að Alþingi eigi að hætta þessu Icesave-rugli þegar í stað og þess í stað setjast niður með Bretum, Hollendingum og Þjóðverjum og semja um að leysa málið af skynsemi. Allar þessar þjóðir eru hungraðar í endurnýjanlega raforku og þetta myndi um leið geta orðið besta sóknin gegn atvinnuleysi og kreppu. Slíkt risaverkefni myndi þar að auki líklega hafa hér mikil og jákvæð ruðningsáhrif og stórefla bæði íslenskan tækniiðnað og hugbúnaðarfyrirtæki.

Já - rafmagnsflutningar eru svo sannarlega spennandi viðfangsefni. En þetta er kannski alltof mikið alvörumál til að velta vöngum yfir á svona funheitum föstudegi. Nær að koma sér í stuð með einu góðu myndbandi: Thunder Struck!

 

 

 


Vangaveltur um W

Orkubloggið hefur um nokkurt skeið lýst þeirri skoðun sinni að tvöfalt-waffið  sé líklegt. Að enn eigi eftir að koma djúp dýfa í efnahagslíf veraldar, sem muni gera kreppuna enn verri, áður en raunverulegur bati hefst. Svo gæti þetta auðvitað orðið enn flóknara; þrefalt-U eða fjórfalt WW!

Recovery_Triple-UEn hvernig og hvenær mun þessi seinni dýfa þá koma? Ef þessi spá rætist, er allsendis óvíst hvar fyrstu merki seinni dýfunnar munu sjást. Það mun ekki sýna sig fyrr en eftir á, hvort táknin verði lækkun á dollar, lækkun á hlutabréfum eða lækkun á olíuverði.

Þessi svartsýni spádómur byggist aðallega á því að uppsveiflan síðustu mánuðina sé í reynd fölsk. Að hún sé fyrst og fremst drifin áfram af sértækum en ósjálfbærum efnahagsaðgerðum Kína, ESB og þó fyrst og fremst Bandaríkjanna. Hvorki það að veita fólki styrki til að leggja gamla skrjóðnum og kaupa nýjan bíl eða sérstakan skattaafslátt vegna húsnæðiskaupa, er nóg til að byggja upp og viðhalda efnahagsbata. Þegar draga fer úr áhrifum slíkra aðgerða og ríki leggja ekki í fleiri rándýr úrræði, kemur nýr skellur. Líklega.

Oil_tradersOrkubloggið veltir eðlilega mest fyrir sér, hvaða áhrif þetta muni hafa á olíuverð. Bloggarinn hefur séð vísa en varkára menn vera að spá ca. 20% verðlækkun á hlutabréfum og 30% verðlækkun á olíu vegna seinni dýfunnar. Sem myndi þýða að olíuverðið færi niður í u.þ.b. 50-55 dollara tunnan. Orkubloggarinn yrði þó ekki hissa þó verðið færi tímabundið ennþá lægra. Birgðastöðvar virðast víðast ennþá vera yfirfullar af olíu og ekki þarf mikinn hiksta til að menn fari í paník við að losa sig út úr olíusamningum. Þá gæti steininn fallið.

En ef þetta gerist, hvenær verður það? Snemma árs 2010 segja sumir. Að þá muni botn kreppunnar líta dagsins ljós. Þetta gæti þó auðveldlega dregist talsvert lengur. Hér er auðvitað verið að tala um hina alþjóðlegu kreppu með fókusinn á Bandaríkin. Ísland aftur á móti, með ofurskuldir, ónýtan gjaldmiðil og afborganir af Icesave á sér auðvitað ekki viðreisnar von. Fyrr en eftir mörg ár.

Recovery_mickey_mouseNú eru sumir farnir að tala um þann möguleika að Neyðarlögunum verði hnekkt fyrir dómstólum. Með þeim afleiðingum að skuldabyrði ríkissjóðs verði ennþá meiri en áætlað hefur verið. En kannski munu Hæstaréttardómararnir sem hafa verið svo duglegir við að sýkna Jón Ásgeir og lækka sektir í samkeppnismálum, loksins taka af skarið og koma í veg fyrir að Weimar-lýðveldi 21. aldarinnar muni fæðast hér í norðri.

Þá er ótalið hvað EES-dómstóllinn myndi segja. Það er stjórnskipulega hæpið að hann geti breytt einhverju um niðurstöðu Hæstaréttar; yfirþjóðlegt vald skv. EES-samningnum er mjög takmarkað. En hvað sem því líður, þá bendir allt til þess að hér séu að skapast Paradísarskilyrði fyrir okkur lögfræðingana.

 


Óveðursský yfir Bæjarhálsinum

Hver var helsta orsökin fyrir falli fjármálakerfisins og hruni bankanna?

lehman-brothers_signMenn eru eflaust með mörg og mismunandi svör við því. En eitt svarið hlýtur að vera að bankarnir hafi smám saman misst alla tilfinningu fyrir áhættu og fjármagnað langtímaskuldbindingar um of með skammtímalánum. Það er kannski einfaldasta skýringin- pent orðað.

Vítavert virðingarleysi fyrir áhættu var a.m.k. helsta orsökin fyrir falli Lehman Brothers- og margra annarra bandarískra banka og fjármálastofnana. Jafnskjótt og loftið tók að leka úr húsnæðisblöðrunni kom í ljós að efnahagsreikningur Lehman var byggður á sandi. Og engin veð lengur fyrir hendi til að viðhalda fjármögnunarrúllettunni, sem gekk út á uppblásinn efnahagsreikning og nánast óheftan aðgang að skammtímalánum.

Þetta kemur upp í hugann núna þegar fréttir berast af því að Orkuveita Reykjavíkur hafi tekið upp viðskiptahætti ekki alveg ósvipaða eins og bandarísku fjárfestingabankarnir. Að fjármagna jarðhitaverkefni sín með skammtímalánum. Þetta veldur Orkubloggaranum talsverðum áhyggjum. Þessi litla frétt um skammtímafjármögnun Orkuveitunnar til að fjármagna framkvæmdir sínar gæti verið slæmur fyrirboði.

Jardhiti_gufuaflJarðhitavirkjanir eru þess eðlis að fjármögnunarþörfin í upphafi er gríðarleg. Þær einkennast sem sagt af miklum föstum kostnaði, sem svo þarf að greiða upp á löngum tíma með tekjunum af raforkusölunni. Sé ekki unnt að fjármagna slíkar framkvæmdir með hagstæðum langtímalánum myndi oftast vera skynsamlegast að doka við með slíkar framkvæmdir. Nema menn sækist eftir mikilli áhættu og skelli´sér í skammtímafjármögnun. Það getur skapað talsvert vesen, því sífellt þarf að vera að endurfjármagna með nýjum skammtímalánin. Þá er eins gott að keðjan rofni ekki - eins og gerðist í tilviki Lehman.

Skammtímafjármögnun í íslenska jarðhitageiranum kann þó að vera í besta lagi. Ef úr rætist á fjármálamörkuðum og bankar verði brátt á ný fúsir til að lána íslenskum fyrirtækjum peninga á þokkalegum kjörum. En ef það dregst umtalsvert, þá er sú fjármögnunaraðferð að taka dýr skammtímalán nú hreint út sagt háskaleg.

Hverahlid_hola53Með þessu er bersýnilega verið að auka áhættuna hjá OR. Þarna virðist skilja á milli Orkuveitunnar og Landsvirkjunar. Þegar íslensku bankarnir féllu og fárviðrið skall á, tók Landsvirkjun strax þá stefnu að hægja á öllum áætlunum um nýjar virkjanir. Orkuveita Reykjavíkur heldur aftur á móti ótrauð áfram.

En það sem er kannski sérstaklega skuggalegt við afkomu Orkuveitunnar, er að reksturinn virðist ekki að vera að skila neinum hagnaði þessa dagana. Gróflega sagt þá hefur Orkuveitan verið með þetta 4-4,5 milljarða króna í rekstrarhagnað á ári hverju síðustu árin. En nú bregður svo við að rekstrarhagnaðurinn fyrstu sex mánuðina 2009 var einungis tæplega einn milljarður. Og þar af einungis um 29 milljónir  króna á 2. ársfjórðungi! Nú bíður Orkubloggið milli vonar og ótta eftir 3ja árshlutauppgjöri OR. Á síðasta ári var það dagsett 21. nóvember, þ.a. það hlýtur að vera að bresta á.

En gluggum aðeins í þær tölur sem liggja fyrir um afkomu OR. Þetta ágæta fyrirtækið, sem var með eigið fé upp á 48 milljarða króna um síðustu áramót og 37 milljarða í lok júní s.l., skilaði 29 milljónum króna í rekstrarhagnað í síðasta 3ja mánaða uppgjöri. Maður þorir nú barrrasta ekki að reikna út hvaða ávöxtun á eigin fé það reynist vera. Og hér er vel að merkja einungis verið að tala um rekstrarhagnaðinn. Fjármagnsliðirnir eru þessu óviðkomandi!

hellisheidarvirkjun_2Skv. upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur eru ástæður versnandi rekstrar á 2. ársfjórðungi af ýmsum toga. M.a. hafi kostnaður vegna orkukaupa OR frá Landsvirkjun hækkað mikið (sem er þá væntanlega ekki að skila sér til baka með hækkun á orkuverði frá OR). Einnig hefur OR nefnt að umtalsverð hækkun rekstrarútgjalda sé vegna hækkunar á tryggingu virkjana, auk nokkurra fleiri orsaka. Í fljótu bragði virðist sem sagt að ýmislegt hafi orðið til þess að þrengja að hagnaði af rekstri OR og  kostnaðarhækkunum hafi ekki verið velt út í raforkuverðið frá Orkuveitunni.

Hvað sem þessu líður, þá er bersýnilegt að rekstur OR hefur alls ekki verið viðunandi síðustu misserin. Og fjármagnsliðirnir gera stöðu Orkuveitunnar ennþá svartari, en ef bara er litið til rekstrarafkomunnar. Þetta sést berlega  á því hvernig u.þ.b. 11 milljarðar af eigin fé fyrirtækisins brunnu upp fyrstu sex mánuði ársins. Það er væntanlega fyrst og fremst tilkomið vegna gengisbreytinga.

Það er kannski eins gott að Orkuveitan sé ekki hlutafélag skráð á markaði. Bréfin væru væntanlega í frjálsu falli þessa dagana með tilheyrandi áhrifum á lánasamninga og ekkert annað en gjaldþrot myndi blasa við. Til allrar hamingju fyrir OR og eigendur þess er fyrirtækið ekki leiksoppur fjárhættuspilara hlutabréfamarkaðarins. En Orkuveitan er engu að síður í veseni. Og enn eru lánakjör fyrirtækisins að versna. Þetta er einfaldlega grafalvarlegt mál.

Það er líka sérkennilegt að stjórnarformaður Orkuveitunnar virðist ekki skilja alvöru málsins. Sbr. þessi frétt Viðskiptablaðsins:

Orkuveituhusid_3"Í Morgunblaðinu í morgun er haft eftir Guðlaugi G. Sverrissyni, stjórnarformanni Orkuveitunnar, að fyrirtækið hefði fengið þær upplýsingar að opinber fyrirtæki væru alltaf einum matsflokki fyrir neðan það ríki sem þau tilheyrðu. „Við áttum aldrei séns,“ segir Guðlaugur."

En þetta stenst bara ekki, eins og réttilega er bent á í fréttinni: "Miðað við lánshæfismatseinkunn Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs þá er það ekki rétt fullyrðing hjá Guðlaugi að opinber fyrirtæki séu alltaf einum lánshæfisflokki neðar en viðkomandi ríki."  Það var nefnilega svo að Moody's setti Landsvirkjun og Íbúðalánasjóð í sama flokk eins og íslenska ríkið, en OR var ein um að fara í ruslflokkinn.

Orkuveitan átti víst "séns". En þarna er því miður einfaldlega á ferðinni fyrirtæki sem er nánast búið að glata öllu eigin fé og skuldirnar að draga það á kaf. Sennilega bjargaði innkoma Ross Beaty HS Orku; kröfuhafarnir virðast nú treysta á að HS Orka geti unnið sig út úr vandræðunum og ætla ekki að yfirtaka fyrirtækið. En hver á að bjarga Orkuveitu Reykjavíkur undan hrammi kröfuhafanna?

Kannski er það bara smámál að formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur átti sig ekki á lánsfjármati á alþjóðlegum mörkuðum og þýðingu þess. Það vita hvort eð er allir að stjórnarformennska í OR er bara þægilegur pólitískur bitlingur og ekki nokkur ástæða til að fólk sem situr í stjórn Orkuveitunnar hafi víðtæka þekkingu á orkumálum né því  sem snýr að fjármögnun virkjana eða áhættusamri stefnumótun. Og þetta kunna vissulega bara að vera tímabundin vandræði hjá Orkuveitunni - ef allt fer á besta veg og lánsfjármarkaðir opnast íslenskum fyrirtækjum á ný. Og Orkuveitan er jú nýbúin að tryggja sér lán frá Evrópska fjárfestingabankanum og vonast til að íslenskir lífeyrissjóðir fjárfesti í skuldabréfum  Orkuveitunnar - jafnvel þó svo skuldabréf fyrirtækisins séu komin í ruslflokk. En það er satt að segja varla sjálfgefið að þeir sem eiga peningana í lífeyrissjóðunum vilji endilega lána þá til OR. Á aðeins 4,65% vöxtum. Er eitthvað vit í því fyrir eigendur lífeyrissparnaðar að veita fyrirtæki í þessari stöðu lán á slíkum kjörum?

Orkuveitan virðist bera sig vel. En að mati Orkubloggsins er það engu að síður raunhæft áhyggjuefni hvort rekstur OR næstu misserin standi undir afborgunum lána - jafnvel þó svo hlutfall skammtímaskulda fyrirtækisins sé kannski ekkert svo óskaplega hátt. Þegar ofan á slaka rekstrarafkomu bætist, að Orkuveitan stendur líka frammi fyrir fjárþörf vegna umtalsverðra framkvæmda, er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að dökk óveðursský hafi hrannast upp yfir Bæjarhálsinum.

Orka_blikurStóra spurningin í huga Reykvíkinga hlýtur að vera þessi: Hvernig gat það skeð að þetta fjöregg borgarbúa, undir stjórn kjörinna fulltrúa sem hljóta að hafa að leiðarljósi að forðast að OR ráðist í of áhættusama skuldsetningu, er komið í þessari skuggalegu stöðu?

Og Íslendingar almennt ættu kannski að hugleiða hvort það sé áhættunnar virði að gera efnahagslíf þjóðarinnar ennþá háðara alþjóðlegum álmörkuðum en orðið er. Sjálfur telur Orkubloggarinn ástæðu til að staldra við með ný álver og leggja alla áherslu á meiri fjölbreytni í atvinnulífinu.


Búðarhálsbólga

Umræðan um virkjanamál á Íslandi hefur verið svolítið sérstök undanfarið. Sumir tala á þeim nótum að orkan sé nánast uppurin. Aðrir vilja keyra í nýjar virkjanir til að mæta þörf álvera og/eða annarrar nýrrar stóriðju.

Titan_FossafelagidRaunveruleikinn er aftur á móti sá, að vegna erfiðra aðstæðna í efnahagslífi bæði Íslands og umheimsins síðustu 12 mánuðina eða svo, þá hefur allt verið í strandi í fjármögnun íslensku orkufyrirtækjanna. Nú berast reyndar fréttir  um að OR sé að fá lán frá Evrópska fjárfestingabankanum til að ljúka við Hellisheiðarvirkjun og komast áleiðis með Hverahlíðarvirkjun á Hellisheiði. Orkan þaðan mun eiga að fara til Norðuráls.

Ekkert hefur aftur á móti heyrst af fjármögnun næstu verkefna Landsvirkjunar. Það hefur reyndar verið svolítill hringlandaháttur með það hvar Landsvirkjun hyggst reisa næstu virkjun. Á tímabili leit út fyrir að það yrðu virkjanir í neðri hluta Þjórsár; Hvammsvirkjun (82 MW), Holtavirkjun (53 MW) og Urriðafossvirkjun (130 MW). Undirbúningur að þessum virkjunum hefur staðið lengi yfir og unnið var umhverfismat á þessum kostum fyrir nokkrum árum. Muni Orkubloggarinn rétt féllst umhverfisráðherra á framkvæmdirnar með einhverjum minniháttar skilyrðum. Og bæði hönnun og gerð útboðsgagna munu vera löngu tilbúin.

Thjorsa_nedri_virkjanirÞað eina sem er eftir í undirbúningsferlinu er að fá sveitarfélögin til að afgreiða skipulagið og að semja við landeigendur og aðra vatnsréttarhafa. Skipulagsmálin eru reyndar komin mjög vel áleiðis. Nokkuð er um liðið síðan þessar virkjanir komust inn á aðalskipulag Ásahrepps og Rangárþings Ytra og málið mun líka hafa verið afgreitt af hálfu í Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Aftur á móti mun það enn vera óafgreitt í Flóahreppi, en það mál snertir Urriðafossvirkjun.

Það er athyglisvert að nú eru liðnir um átta áratugir síðan Einar Benediktsson og Fossafélagið Títan voru u.þ.b. byrjuð á því að virkja Urriðafoss. Framkvæmdirnar þarna hafa sem sagt tafist eilítið, ef svo má segja. Það magnaðasta er að þá, rétt eins og nú, strandaði allt á skorti á lánsfé. Eftirfarandi frásögn er af vefnum Thjorsa.is:

Urridafoss_1"Í frumvarpi sem varð að lögum 31. maí 1927 var Títan gefið leyfi til að virkja Urriðafoss í Þjórsá. Fól það leyfi í sér heimild til að gera uppistöðu í ánni ofan við fossinn, hækka eða lækka vatnsborð eða farveg og gera vatnsrásir ofanjarðar eða neðan eftir þörfum. Ráðgert var að hin fyrirhugaða virkjun yrði allt að 160.000 hestöfl, en það jafngildir um 117 MW. Þess ber að geta að þarna var reiknað með mun meira vatnsrennsli en nú fer um farveg Þjórsár, eða um 500 m3/s í stað 360 m3/s sem nú er að jafnaði. Sakir fjárskorts varð ekkert úr þessum virkjunaráformum og lognaðist Fossafélagið Títan að mestu útaf uns félaginu var formlega slitið árið 1951."

Myndin hér efst í færslunni er einmitt at einni útfærslunni á hugmyndum Fossafélagsins Títan á stöðvarhúsi Urriðafossvirkjunar. Og enn er tekist á um Urriðafossvirkjun og aðra virkjunarmöguleika í neðri hluta Þjórsár. Í byrjun september s.l. (2009) kom svo upp úr dúrnum að greiðslur frá Landsvirkjun til sveitarfélaganna og/eða beint til sveitarstjórnafólks vegna skipulagsvinnu sveitarfélaganna, kunni að vera óeðlilegar og jafnvel ólögmætar. Það mál er einn angi af miklum deilum manna um hvort yfirleitt eigi að virkja í neðri hluta Þjórsár. Sá ágreiningur verður ekki rakinn hér.

Auk þess sem skipulagsmálin eru enn ekki endanlega frágengin vegna allra þriggja virkjananna í neðri hluta Þjórsár, hafa viðræður Landsvirkjunar við landeigendur á svæðinu gengið eitthvað brösuglega. Þetta virtist reyndar lengst af ekki valda Landsvirkjun miklum áhyggjum. Möguleikarnir virtust óþrjótandi þrátt fyrir eitthvert vesen með landeigendur.

Eftirminnilegt er þegar stjórn Landsvirkjunar boðaði nokkuð óvænta áherslubreyting hjá fyrirtækinu haustið 2007. Nú skyldu nýir orkusölusamningar við stóriðju á Suður- eða Vesturlandi ekki lengur njóta forgangs, heldur yrði áherslan lögð á fjölbreytni. Það væri lang skynsamlegast; þannig mætti bæði dreifa áhættunni og líka væri þetta góð leið til að fá sem allra hæst raforkuverð.

Já - Landsvirkjun var í miklu stuði draumaárið mikla 2007, þegar Ísland virtist algerlega ósigrandi fjármálaveldi. Í árslok 2007 voru Landvirkjunarmenn greinilega mjög vongóðir um að það myndi ganga nokkuð hratt að hnýta lausa enda vegna neðri hluta Þjórsár. Sögðust ætla að að sækja um formlegt virkjunarleyfi vegna virkjananna þar strax á árinu 2008 og fullyrtu að raforkan þaðan færi til nýrrar tegundar af stórnotendum. M.a. væri verið að semja við kísilverksmiðju Becromal og netþjónabú Verne Holding eða Verne Global eða hvað það nú heitir þetta fyrirtæki Björgólfs Thors og félaga.

budarhals_yfirlitsmyndAllt í einu var sem álver væru barrrasta orðin púkó. Og yfirlýsingar Landsvirkjunar gáfu eiginlega nokkuð sterklega í skyn að orkuverðið til álveranna væri heldur snautlegt. En þrátt fyrir boðaða stefnubreytingu, var enn ekki öllum hindrunum rutt úr vegi. Samningar við landeigendur á Þjórsársvæðinu gengu afleitlega og í ágúst 2008 urðu enn á ný straumhvörf í virkjunaráætlunum Landsvirkjunar. Þá ákvað fyrirtækið, líkt og hendi væri veifað, að setja Búðarhálsvirkjun í forgang. Þannig mætti hraða hlutunum úr því svona hægt gekk á Þjórsársvæðinu.

Búðarhálsvirkjun  hljómaði kunnuglega í eyrum, en margir þurftu þó smá upprifjun. Sá kostur að virkja við Búðarháls hafði mikið verið til skoðunar upp úr aldamótunum. Öll leyfi munu hafa verið til staðar, en af einhverjum ástæðum ákvað Landsvirkjun árið 2003 að leggja Búðarhálsinn í salt. Kannski af því menn hafa talið virkjanir í neðri hluta Þjórsár arðsamari? Orkubloggaranum þykir þó líklegra að hjá Landsvirkjun hafi þótt skynsamlegt að geyma Búðarhálsvirkjun aðeins og eiga hana í handraðanum. Það hefði a.m.k. ekki verið galið plan, að mati Orkubloggarans.

Ákvörðunina um að setja Búðarhálsvirkjun aftur í forgang þarna síðsumars 2008 má væntanlega skýra með því, að farið var að liggja á að mæta aukinni orkuþörf álversins í Straumsvík. Þó svo Hafnfirðingar hafi verið á móti stækkun álversins þarf Straumsvíkurverið að fá 75 MW í viðbót. Vegna 40 þúsund tonna aukaframleiðslu sem unnt verður að fá með endurnýjun á tæknibúnaði í álverinu.

budarhals_landsnetVegna tafa á að ljúka undirbúningsferli virkjana í neðri hluta Þjórsár var sem sagt ákveðið í ágúst 2008 að drífa í Búðarhálsvirkjun, enda sú virkjun komin lengst áleiðis í undirbúningi. Búðarhálsvirkjun var aftur komin á dagskrá, fimm árum eftir að hún var sett í geymslu.

Virkjunin nýtir vatn af Tungnaársvæðinu og er í reynd afar lógísk framkvæmd. Reist verður tveggja km löng og allt að 24 m há stífla skammt ofan við ármót Köldukvíslar og Tungnaár, neðan við Hrauneyjafossstöð. Lónið sem þannig myndast hefur verið kallað Sporðöldulón  og á að verða um 7 ferkm. Stöðvarhúsið verður svo í í hlíð Búðarhálsins við Sultartangalón.

Frá Sporðöldulóni verður aðrennslisskurður inn að Búðarhálsi og þaðan fer vatnið að stöðvarhúsinu eftir 4 km löngum aðrennslisgöngum. Frá stöðvarhúsinu þarna rétt við Sultartangalón mun svo verða rúmlega 300 m frárennslisskurður út í lónið. Loks verður 17 km löng háspennulína lögð frá Búðarhálsstöð að tengivirki við Sultarstangastöð og þar með verður rafmagnið frá þessari nýju virkjun komið inn á landskerfið.

Langisjor_3Einfalt og örugglega mjög hagkvæm virkjun. Að því gefnu að menn ætli sér ekki að gefa rafmagnið. Svo gælir Landsvirkjun eflaust við það að auka afköstin í framtíðinni með því að veita vatni úr Skaftá yfir í Tungnaá. Orkubloggarinn vonar þó innilega að náttúruundrinu Langasjó verði þar hlíft. Til að svo megi vera þarf væntanlega að taka Skaftá vestur eftir, norðan við Langasjó. Það yrðu óneitanlega nokkur viðbrigði ef hin fornfræga jökulá Skaftá umbreyttist í lauflétta bergvatnsá niður með Skaftárdal, Síðu og Landbroti. Stóra spurningin hlýtur að vera hvaða áhrif það myndi hafa fyrir blessaðan sjóbirtinginn? En það er allt önnur saga.

Næsta skref er sem sagt Búðarhálsvirkjun. Sem af einhverjum ástæðum er enn í strandi, þó svo Landsvirkjun segist hafa nóg laust fé til að byggja tvær slíkar virkjanir. Af hverju drífa þeir þá ekki barrrasta í þessu? Þetta átti jú að gerast hratt. Af hálfu Landsvirkjunar var þarna síðsumars 2008 stefnt að því að fara eins og skot í útboð vegna vélbúnaðar í virkjunina. Þetta verður reyndar einungis 80 MW virkjun og jafnast því ekki á við allar þrjár nýju Þjórsárvirkjanirnar (sem eiga að vera með uppsett afl yfir 260 MW!). Til að ná meiri hagkvæmni við kaup á búnaði í Búðarhálsvirkjun planaði Landsvirkjun að bjóða út allt heila gumsið í einum pakka; Búðarhálsvirkjun OG um leið búnaðinn fyrir virkjanirnar þrjár í neðri hluta Þjórsár (með valrétti). Þannig myndu fást enn betri verð. Og allar þessar virkjanir yrðu hvort eð er örugglega reistar innan örfárra ára.

Budarhals_stodvarhus_stadurJá - menn voru ennþá æpandi bjartsýnir í virkjanabransanum þarna síðsumars 2008. Virtust trúa því að lítið mál yrði að koma Búðarhálsinum og öllum þremur virkjununum í neðri hluta Þjórsár í útboð. Þetta var jú á sama tíma og horfur voru á að Glitnir og Geysir Green Energy myndu brátt stjórna jarðhitageira heimsins eins og hann legði sig. Menn voru meira að segja líka farnir að tala um Bjallavirkjun. Þetta var í ágúst 2008 og hvorki Landsvirkjun né iðnaðarráðuneytið virtust telja minnsta tilefni til að staldra við. Héldu menn í alvöru að allt væri í stakasta lagi og íslenskt efnahagslíf væri enn á blússandi sigurbraut? Svolítið sérkennilegt, svona eftir á að hyggja.

Draumurinn um hraðútboð fjögurra nýrra virkjana Landsvirkjunar upp á meira en þrjú hundruð MW gekk því miður ekki eftir. Höggið reið yfir. Íslenska efnahagsundrið reyndist einhver mesta blaðra sem sögur fara af og íslenska fjármálakerfið hrundi. Eins og spilaborg - og sá frasi hefur líklega sjaldan átt betur við. Hrunið olli því að möguleikar Landsvirkjunar til að fjármagna nýjar virkjanir gufuðu upp. Í bili. Og örskömmu eftir hrunið - á haustdögum 2008 - birtist lítil frétt þess efnis að Landsvirkjun hefði ákveðið að fresta því um þrjá mánuði að opna útboð við virkjun við Búðarháls.

Tungnaa_ofan_sigolduSíðan er liðið ár og ekkert bólar á útboði. Reyndar á Landsvirkjun sjálf að eigin sögn nógan pening til að rífa þessa virkjun upp. Ekki bara einu sinni, heldur tvisvar: "Landsvirkjun á laust fé að fjárhæð um 340 milljónir dollara eða sem nemur ríflega 40 milljörðum króna. Þetta fé dugar til að byggja tæplega tvær Búðarhálsvirkjanir. Erlendir lánsfjármarkaðir eru hins vegar lokaðir íslenskum aðilum vegna sérstakra aðstæðna sem snúa að íslenska ríkinu. Á meðan ástandið er með þeim hætti er óábyrgt af hálfu Landsvirkjunar að ráðast í nýjar framkvæmdir nema að fyrirtækið hafi fjármagnað þær að fullu með nýjum langtímalánum. Að því er unnið." Af þessari fréttatilkynningu Landsvirkjunar má draga þá ályktun að fyrirtækinu sé nauðsynlegt að hafa umrætt lausafé tiltækt til að geta greitt af lánum sínum á næstu misserum.

En í dag vill sem sagt enginn lána Landsvirkjun né íslenska ríkinu pening til að reisa Búðarhálsvirkjun. A.m.k. ekki á viðráðanlegum kjörum. Til að leysa þann vanda hafa stjórnmálamenn sett fram ýmsar hugmyndir um fjármögnun. Sumir vilja að lífeyrissjóðirnir reddi málunum, aðrir að krónubréfaeigendur sjái um að skaffa fjármagnið. Enn aðrir stungu upp á því að erlendu verktakarnir sæju sjálfir um fjármögnunina - eða jafnvel að álverið í Straumsvík útvegaði þessa aura.

Rannveig_Rist_FVÞað var ekki síst þáverandi iðnaðarráðherra - Össur Skarphéðinsson - sem talaði fyrir þeirri hugmynd að Straumsvíkurverið eða móðurfélag þess kæmi að fjármögnuninni. En svo virðist sem ekki einu sinni RioTintoAlcan vilji hafa milligöngu um að útvega þessar 400 milljónir dollara sem þessi bráðódýra virkjun kostar. Undarlegt. Treysta þau Rannveig Rist og félagar sér kannski ekki til að taka veð í virkjuninni - af því rafmagnið sé selt á svo hlægilega lágu verði?

Nýjustu fréttir af fjármögnun Búðarhálsvirkjunar eru að íslenskir lífeyrissjóðir séu nú í samningaviðræðum við Landsvirkjun (þetta kom fram á ráðstefnu Capacent Glacier fyrir um tveimur vikum). Ísland er sniðugt land. Ríkið á Landsvirkjun, en þjóin má ekki vita á hvaða verði Landsvirkjun selur rafmagnið til stærstu kaupendanna. Launþegarnir eiga peninginn í lífeyrissjóðunum, en hafa í reynd ekkert um það að segja hvernig lífeyrissjóðirnir starfa eða ráðstafa fjármunum launþeganna. Var einhver að tala um Nýja Ísland?


Bonneville

Flestir þekkja Mt. Rainier líklega best af myndum sem sýna Seattle í forgrunni og þetta mikla fjall rísa tignarlega sunnan borgarinnar.

seattle_rainierOrkubloggarinn skaust einmitt upp slyddublautan veginn á Mt. Rainier í morgun. Upp að Paradise, en lengra komast ökutæki ekki á þessum árstíma.

Þrátt fyrir dimm snjóél þóttumst við feðginin auðvitað grilla bæði í svartbjörn og fjallaljón þarna í snarbröttum skógivöxnum brekkunum í um 1.600 m hæð. Einhvers staðar yfir okkur gnæfði tindurinn, nærri 4.400 metra hár, í dimmum skýjabökkum. Einstaka sinnum sást glitta í draugalegar snævi þaktar greinibrekkurnar, en svo hvarf allt á ný í snæhvítt kófið.

En nú er komið kvöld hér í Washington-fylki. Og auðvitað var stefnan frá Rainier NP tekin beint suður í átt að Portland. Eftir nokkurra tíma stífa keyrslu, suður Freeway No. 5 á traustum amerískum Suburban, með einungis einu sjeikstoppi hjá McDonalds, var komið að drottningunni sjálfri; Columbiafljótinu. Og til að geta sagst hafa komið til Oregon var auðvitað skotist yfir brúna, en svo tekin U-beygja aftur yfir og stefnt austur eftir þröngum sveitaveginum í átt að Bonneville.

bonneville_dam_powerhouseBonneville-stíflan er eitt af þessum stórvirkjum, sem ráðist var í á tímum kreppunnar miklu í Bandaríkjunum. Því miður lítur ekki út fyrir að við Íslendingar eignumst okkar Roosevelt, en það er sama hvar maður fer hér í norðvesturhorni Bandaríkjanna; Roosevelt virðist hreinlega hafa verið heilinn að baki öllu sem hér var gert fyrir daga Microsoft. 

Þegar framkvæmdunum við Bonneville lauk árið 1938 var þarna risið mesta stíflumannvirki veraldar og virkjun með uppsett afl upp á um 500 MW. Fjórum áratugum síðar var virkjunin stækkuð um annað eins og er nú með framleiðslugetu upp á lítil 1.100 MW.  Við stífluna kútveltast sæljón og laxar, en styrjan kemst ekki upp laxastigann og missti því hrygningarstöðvar sínar ofar í fljótinu.

bonneville_dam_powerhouse_turbinesOfar í Columbia-fljótinu eru í dag margar ennþá stærri virkjanir. Þar er Grand Coulee  stærst; 6.800 MW og þar með fimmta stærsta vatnsaflsvirkjun heims! Þó svo Columbia sé mikið fljót er satt að segja svolítið erfitt að ímynda sér að allt þetta afl skuli leynist í þessum lygna straumi. 

Rétt að ljúka þessari stuttu færslu á ljóðlínum sveitasöngvarans ástsæla; Woody Guthrie:

At Bonneville now there are ships in the locks
The waters have risen and cleared all the rocks,
Shiploads of plenty will steam past the docks,
So roll on, Columbia, roll on.

Með góðum kveðjum frá bökkum Columbia.


Biocrude: Orkusjálfstætt Ísland

Það er athyglisvert að öll íslensku olíudreifingarfyrirtækin hafa "valið" sér framtíðareldsneyti. Skeljungur tók þátt í vetnisverkefni, OLÍS ætlar að vinna með CRI að metanóleldsneyti  og N1 er bæði í metanævintýrinu og að vinna með fyrirtæki í Sandgerði að því að umbreyta fiskúrgangi í lífdísil.

Þetta er allt saman afskaplega áhugavert. Enda myndi skipta miklu máli ef Ísland gæti leyst innflutt eldsneyti af hólmi með íslensku eldsneyti.

World_Oil_Consumption_pr_CapitaEins og sjá má á á myndinni frá tölfræðiteymi BP, hér til hliðar, er notkun á olíuafurðum (m.v. fólksfjölda) mest í þremur nokkuð svo ólíkum löndum. Sem eru Saudi Arabía, Kanada og Ísland. Íslendingar eru sem sagt meðal þeirra þjóða sem nota allra mest af olíuafurðum.

Það er auðvitað ljúft að vera í hópi með blessuðum Sádunum og kanadísku ljúflingunum.  En það sem verra er fyrir Ísland: Saudi Arabía og Kanada búa yfir mestu olíuauðæfum veraldar. Öll bensín- og olíukaup Íslendinga - hver einasti dropi - eru aftur á móti í formi innflutnings. Þessi gríðarlegu eldsneytiskaup Íslands eru ekkert annað en gapandi gjaldeyrishít og varla nokkur þjóð jafn illa stödd að þessu leyti eins og við.

Það sem bjargar orkubúskap okkar Íslendinga er að við framleiðum eigið rafmagn. Og þar erum við alveg á hinum vængnum; engin önnur þjóð á viðlíka möguleika í framleiðslu á endurnýjanlegri raforku m.v. fólksfjölda. Það breytir því ekki að skorturinn á íslensku eldsneyti fyrir samgöngutækin er hið versta mál.

En nú vinna sem sagt nokkur metnaðarfull íslensk fyrirtæki í samstarfi við íslensku olíudreifingarfyrirtækin, að framleiðslu ýmissa tegunda af eldsneyti, sem ætlað er að minnka þörfina á hefðbundnu innfluttu eldsneyti. Þetta er auðvitað hið besta mál. Vandinn er bara sá að vetnisvæðing er ennþá í órafjarlægð, metanól er ekki unnt að nota nema í mjög lágu blöndunarhlutfalli (veldur annars tæringu) og mikil óvissa er um að íslenskt metan eða lífdísilframleiðsla geti nokkru sinni náð því umfangi og þ.m.t. þeirri hagkvæmni að geta keppt við olíu - nema með umtalsverðum niðurgreiðslum eða styrkjum.

Þetta á eflaust eftir að koma betur í ljós á næstu árum. En það sem er eftirtektarvert, er að hér á landi virðist enginn vera að skoða einn allra forvitnilegasta möguleikann í eldsneytisiðnaðinum. Sem er að framleiða hér lífhráolíu  (biocrude).

biocrude_coverSá möguleiki felst í því að byggja upp íslenskan lífhráolíuiðnað á grundvelli endurnýjanlegrar orku og nýta sér um leið sömu hagkvæmni og gerist í hinum hefðbundna og vel þekkta hráolíuiðnaði. Já - Íslendingar eiga raunhæfan möguleika á að framleiða allt sitt eldsneyti sjálfir; eldsneyti sem er algerlega sambærilegt við olíuafurðirnar sem við eyðum milljörðum króna og dýrmætum gjaldeyri í að kaupa frá útlöndum.

Slík tækifæri virðist nákvæmlega ekkert hafa verið skoðuð á Íslandi. A.m.k. ekki af hálfu stjórnvalda eða þeirra fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu á raforku eða leita möguleika í íslenskri eldsneytisframleiðslu. Snögg athugun bendir til þess að hugtakið lífhráolía hafi einungis verið nefnt einu sinni á íslenskum netsíðum - að undanskildu Orkublogginu - en það var á vef Viðskiptablaðsins árið 2007).

Í dag ætlar Orkubloggið að beina sjónum að þessum tækifærum Íslands. Að Íslendingar framleiði lífhráolíu og verði þar með nánast algerlega orkusjálfstæð þjóð - ekki aðeins í raforkuframleiðslu heldur einnig í eldsneytisgeiranum. Það besta er auðvitað að þetta orkusjálfstæði myndi byggjast á 100% endurnýjanlegri orku og afurðirnar (sjálft eldsneytið) eru jafn orkuríkar og praktískar eins og hefðbundið bensín, díselolía og aðrar olíuafurðir.

Of gott til að vera satt? Kannski - kannski ekki. Þetta er vissulega iðnaður sem er ennþá á tilraunastigi. Það sker engu að síður í augu að áhugaleysið á þessum möguleika virðist algert hér á Íslandi, meðan íslensk  fyrirtæki og fjárfestar hella sér í dýrar eða takmarkaðar lausnir eins og framleiðslu á lífdísil eða óraunsæja framtíðardrauma um vetnissamfélag.

Vissulega er um að gera að skoða vel alla möguleika - hvort sem er íslenskt vetni, lífdísill, etanól, metan eða metanól. En fyrir land með svo mikla endurnýjanlega orku, er framleiðsla á lífhráolíu hugsanlega miklu áhugaverðari kostur. Það er staðreynd að hækkandi olíuverð, aukin áhersla margra ríkja á innlenda orku og umhverfishvatar hafa skapað grundvöll að nýjum eldsneytisiðnaði; lífhráolíuiðnaði. Þar er um að ræða orkuríkt, hagkvæmt og samkeppnishæft fljótandi eldsneyti - hefðbundið bensín og díselolíu úr lífhráolíu.

Bæði í Bandaríkjunum og Evrópu hefur lífhráolía fengið aukna athygli á síðustu árum. Og þetta er iðnaður sem myndi líklega henta Íslandi afskaplega vel. Hér eru í gangi ýmis verkefni í eldsneytisiðnaði, t.d. verkefni með styrkjum upp á nokkrar milljónir frá Rannís, um að framleiða etanól úr lúpínu. Sniðugur möguleiki - en allir sem hafa kynnt sér slíka eldsneytisvinnslu vita að langlíklegast er að þetta sé vitavonlaust peningalega.
 
Lífhráolía hefur aftur á móti margvíslega yfirburði gagnvart öllu öðru tilbúnu fljótandi lífrænu eldsneyti. Lífhráolía hefur nefnilega alla sömu eiginleika eins og hefðbundið bensín, díselolía og flugvélaeldsneyti. Þar að auki hentar slíkur iðnaður ákaflega vel fyrir þjóð sem býr yfir miklum endurnýjanlegum orkuauðlindum. Þetta er mögulega besta og áhugaverðasta tækifæri Íslands í orkumálum.


Eftirfarandi eru tíu áherslupunktar sem lýsa hugmyndinni í hnotskurn:
 
1. Í framleiðsluna er notaður lífmassi og endurnýjanleg orka.
 
2. Unnt er að nota hvaða lífmassa sem er í þessa framleiðslu (hvaða plöntur sem er og þ.á m. sellulósa, lífrænt sorp og annan lífrænan úrgang). Þetta skapar aukna möguleika á að nálgast ódýr hráefni í lífhráolíuvinnsluna og er snjall valkostur til að minnka þörf á innfluttu eldsneyti umtalsvert.
 
3. Framleiðslan skiptist í tvö meginstig:
Annars vegar yrðu litlar vinnslustöðvar víða um land þar sem lífmassi er unnin í fljótandi lífmassaþykkni. Hins vegar er stór olíuhreinsunarstöð  (biorefinery) sem vinnur olíuafurðir úr lífmassaþykkninu.
 
4. Þetta tvískipta ferli sparar flutningskostnað á lífmassanum umtalsvert og eykur þannig hagkvæmnina (tankbílar flytja fljótandi lífmassaþykknið í hreinsunarstöðina).
 
5. Lokaafurðirnar eru hefðbundnar olíuafurðir, þ.m.t. bensín, díselolía, svartolía, flugvélabensín og aðrar verðmætar olíuafurðir. Afurðir lífhráolíu hafa reyndar að nokkru leyti reynst mun betri að gæðum en afurðir út jarðolíu og eru því orkuríkasta fljótandi eldsneyti sem fáanlegt er m.v. rúmmál. Þetta er því bæði orkuríkara og væntanlega hagkvæmara eldsneyti en t.d. etanól, lífmetan, metanól eða DME.
 
6. Afurðirnar flokkast sem endurnýjanlegar vegna þess að þær byggja á endurnýjanlegri orku og lífmassa - og ferlið er kolefnishlutlaust.
 
7. Ekki þarf að gera neinar breytingar á vélbúnaði samgöngutækjanna, núverandi skattkerfi né dreifikerfi eldsneytis.
 
8. Þetta er eldsneyti sem hentar neytendum mjög vel og kallar ekki á niðurgreiðslur né skattaafslætti af hálfu ríkissjóðs.
 
9. Afurðirnar eru samkeppnishæfar við hefðbundið jarðefnaeldsneyti svo lengi sem verð á hráolíu er yfir tiltekinni viðmiðun (sem er mun lægra olíuverð en nú er). Flestir sérfræðingar í orkumálum telja líklegt að meðalverð á olíu næstu áratugina verði mun hærra, þ.a. áhættan af lækkandi olíuverði virðist ekki mikil.
 
10. Þetta er bæði fjárhagslega hagkvæm og tæknilega raunhæf leið til minnka verulega þörfina á innfluttu eldsneyti, spara gjaldeyri, byggja upp nýja og mikilvæga stoð í íslenskum iðnaði, auka tækifæri í landbúnaði, auka fjölbreytni í orkugeiranum, minnka kolefnislosun, skapa mörg ný störf á Íslandi og verða þýðingarmikill þáttur í íslensku efnahagslífi.
 
 
 
Hvatar:
 
Hátt olíuverð, umhverfishvatar, síaukin þörf á innfluttu eldsneyti og hagsmunir tengdir auknu orkusjálfstæði hafa á örfáum árum skapað ný og mjög áhugaverð tækifæri í eldsneytisiðnaði bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_02Sökum þess að lífefnaeldsneyti eins og t.d. etanól eða lífdísill er með mun minna orkuinnihald pr. rúmmálseiningu en hefðbundið jarðefnaeldsneyti, þarf beina fjárhagslega hvata til að slíkur eldsneytisiðnaður geti borið sig. Þetta á aftur á móti ekki við um lífhráolíu. Hún er jafn orkurík eins og hefðbundið eldsneyti og er reyndar að eilítið meiri gæðum og oktanríkari.
 
Afurðir lífhráolíu geta því keppt við hefðbundið jarðefnaeldsneyti án tillits til umhverfishvata - að því gefnu að meðalverð á hráolíu úr jörðu sé yfir tilteknu lágmarksverði. En þar að auki gera umhverfishvatar lífhráolíuna eftirsóknarverða lausn í eldsneytismálum. Lífhráolíuafurðir eru unnar úr lífmassa og fyrir tilstilli endurnýjanlegrar orku og eru því skilgreindar sem kolefnishlutlaust eldsneyti og endurnýjanlegur orkugjafi.
 
 
 
Markaðurinn og samkeppni:
 
Afurðir úr lífhráolíu og reyndar allt annað eldsneyti keppir við bensín, díselolíu og annað hefðbundið eldsneyti. Þó svo margvíslegir hvatar eins og t.d. umhverfishvatar og orkusjálfstæði kalli á nýjar lausnir í eldsneytisiðnaðinum, er hækkandi olíuverð meginástæðan fyrir því að lífhráolíuiðnaður er að líta dagsins ljós nú. Undanfarin 3-4 ár hafa orðið verulegar kostnaðarhækkanir í olíuvinnslu og vaxandi líkur eru á að meðalverð á hráolíu til langframa komi til með að vera talsvert hærra en þekkst hefur lengst af. Gangi slíkar spár eftir þýðir það gjörbreytingu í olíuiðnaðinum frá því sem var fyrir einungis nokkrum árum og gerir lífhráolíu samkeppnishæfa til frambúðar án nokkurra styrkja né umhverfishvata. 
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_03Og þar sem lífhráolía er orkuríkari en bæði metanól, DME og hefðbundið lífefnaeldsneyti eins og t.d. etanól eða lífdísill - og býður upp á meiri möguleika til umfangsmikillar eldsneytisframleiðslu sem getur nýtt hefðbundnar olíuhreinsunarstöðvar - hefur lífhráolíuiðnaður óneitanlega talsvert forskot á allt þetta lífefnaeldsneyti.
 
Sem hráefni (kolefnisgjafa) í lífhráolíuþykkni má nota hvaða tegund lífmassa sem er (öfugt við það sem gerist í lífeldsneytisiðnaði, þar sem annars vegar er byggt á sykrum og hins vegar á olíuríkum plöntum eins og t.d. repju eða dýraslógi). Fyrir vikið keppir lífhráolíuiðnaður ekki við fæðuframboð og framleiðandinn getur einfaldlega valið ódýrasta lífmassa sem býðst (þ.á m. grös og hvaða lífræna úrgang sem er, svo dæmi sé tekið). Þetta skiptir miklu til að draga úr kostnaði - og getur einnig orðið til þess að forðast megi samkeppni við matvælaframleiðslu.
 
Öfugt við annað lífrænt eldsneyti eins og t.d. etanól eða lífdísil, má nota afurðir lífhráolíu í hvaða blöndunarhlutfalli sem er með venjulegu bensíni eða díselolíu og nota óblandað ef vill. Ekki þarf að gera neinar breytingar á vélbúnaði samgöngutækjanna. Lífhráolíuiðnaður er þess vegna hagkvæmasti, einfaldasti og raunhæfasti kosturinn sem getur komið í stað eldsneytis úr hefðbundinni hráolíu úr jörðu.
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_04Að auki er vert að hafa í huga að ennþá er tæknilega langt í að vetni verði nothæfur orkugjafi og einnig munu líða margir áratugir þar til rafmagnsbílar verða mjög útbreiddir. Önnur leið er að framleiða hefðbundið fljótandi eldsneyti úr kolum eða gasi (s.k. synfuel). Sú tækni er mjög vel þekkt, en þeirri framleiðslu fylgir því miður mikil kolefnislosun og hún hefur því afar neikvæð umhverfisáhrif.
 
Það eru m.ö.o. heldur litlar líkur á að vetni, rafmagn, hefðbundið lífefnaeldsneyti (biofuel) eða synfuel komi til með að hafa víðtæk áhrif í eldsneytisiðnaði veraldarinnar næstu áratugina. Nærtækasta lausnin virðist allt önnur. Lausnin er lífhráolía (biocrude).
 
 
 
Styrkur og sérstaða:
 
Þessi framleiðsla byggir í grunninn á vel þekktri tækni og kallar ekki á neinar breytingar á núverandi samgöngukerfi, nýtir sama dreifingarkerfi og stendur undir sama verðuppbyggingarkerfi á eldsneyti sem er afar mikilvæg tekjulind fyrir ríkissjóð.
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_05Enn er ónefndur einn stærsti hvatinn til að þessu verði komið í framkvæmd hér á Íslandi. Engin þjóð í heiminum á jafn góða möguleika í þessum iðnaði eins og Íslendingar. Hvergi annars staðar er jafn mikið af vinnanlegri endurnýjanlegrar orku m.v. fólksfjölda. Og þar er um að ræða ódýrustu tegundir endurnýjanlegrar orku; vatnsafl og jarðvarma. Erlendis er þessi iðnaður að verða til þrátt fyrir að þar verði notuð margfalt dýrari orka frá sólarorkuverum.
 
Í þeim löndum þar sem mest vinna hefur verið lögð í þróun og framleiðslu á lífhráolíu hefur gas verið nýtt sem orkugjafi í framleiðsluferlinu - en horft til þess að í framtíðinni verði sólarorka nýtt í þessu skyni. Sólarorkan er allt að fimm sinnum dýrari orkuframleiðsla en t.d. jarðvarmi. Þess vegna er augljóslega skynsamlegt að nýta þessa tækni fyrst á jarðvarmasvæðum.
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_06Þetta veitir Íslandi tækifæri á því að stytta sér leið. Að sækjast eftir samstarfi við þau fyrirtæki sem eru komin með bestu og hagkvæmustu tæknina til þessarar eldsneytisframleiðslu. Slíkt samstarf er líklegt til að flýta fyrir tækniframförum í þessum iðnaði og veita viðkomandi fyrirtæki / fyrirtækjum samkeppnisforskot á keppinauta sína.

Til að styrkja stöðu okkar er þó um að gera að nýta sér þekkinguna sem fyrir hendi er hér á Íslandi. Og smíða íslenska frumgerð (prótótýpu) sem sannar bæði tæknina og fyrirliggjandi þekkingu hér á landi.
 
Þetta myndi verða nýr, samkeppnishæfur og öflugur íslenskur iðnaður, sem bæði myndi auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi, skapa ný störf og draga úr áhættu sem einhæf stóriðja skapar. Þetta myndi ekki aðeins verða til auka fjölbreytni í stóriðju (olíuhreinsunarstöð) og byggja upp nýjan iðnað víða um land (forvinnslustöðvar). Heldur líka skapa ný tækifæri í íslenskum landbúnaði, sökum þess að  nýta má hvaða tegund lífmassa sem (þ.m.t. hvaða gróður sem er) er í framleiðsluna.
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_07Síðast en ekki síst myndi þetta íslenska eldsneyti bæði leysa af hólmi innflutt eldsneyti (hefðbundið bensín, díselolíu og flugvélabensín, auk annarra verðmætra olíafurða) og verða til útflutnings. Þar með bæði sparar þessi leið gjaldeyri og gæti jafnframt skapað nýjar gjaldeyristekjur.
 
Þetta er leiðin sem getur gert Ísland nánast 100% orkusjálfstætt og er einfaldlega einhver áhugaverðasti kosturinn í orkumálum Íslendinga. 
 
 


Veikleikar:
 
Það sem helst gæti ógnað iðnaði af þessu tagi er eftirfarandi:
- Annars vegar mikil og langvarandi lækkun á olíuverði. Skammvinn veruleg olíuverðlækkun getur orðið en langvinn lækkun er ólíkleg.
- Hins vegar er tæknin ekki fullþroska! Það skapar reyndar einnig eitt mesta tækifærið til vaxtar. Þetta er engu að síður helsti veikleiki hugmyndarinnar. Lífhráolíuiðnaður er m.ö.o. ennþá á tilraunastigi og þó svo mörg athyglisverð frumkvöðlafyrirtæki hafi sprottið upp á þessu sviði eru ennþá nokkur ár í að lífhráolíuframleiðsla hefjist í stórum stíl. En tæknin hefur þróast hratt á síðustu árum og ódýr endurnýjanleg orka á Íslandi er sérstaklega vel til þess falllin að vekja áhuga þeirra sem fremst standa í þessari tækni.
 
 
 
Tæknin og framkvæmdin:
 
Þetta er iðnaður sem byggir á sömu innviðum og sömu grunnhugmynd eins og hefðbundið eldsneyti unnið úr hráolíu úr jörðu. Lífhráolíu (biocrude) má, sem fyrr segir, vinna úr hvaða lífrænum efnum sem er og hana má hreinsa í venjulegum olíuhreinsunarstöðvum. 
 
Orkusjalfstaett_Ísland_slide_08Í dag þekkjum við hráolíu fyrst og fremst sem jarðolíu sem myndast hefur í jörðu á milljónum ára. Vinnsluaðferð lífhráolíuiðnaðar felst einmitt í því að nýta orku til að búa til samskonar kolefniskeðjur eins og orðið hafa til djúpt í jörðu vegna mikils þrýstings og hita. Þetta má orða sem express-vinnslu á olíu úr lífrænum efnum. 
 
Minnt skal á að það að umbreyta lífmassa í fljótandi eldsneyti eru engar töfrakúnstir, heldur þvert á móti afar vel þekkt tækni . Fischer-Tropsch aðferðin hefur lengi verið nýtt í þessu skyni, en þá er gösun (gasification) t.d. notuð til að vinna díselolíu úr kolum eða lífdísil úr lífmassa. Gallinn við þessa vinnslu er að hún nýtir fremur lítinn hluta af lífmassanum. Á síðustu árum hafa aftur á móti verið þróaðar aðrar aðferðir þar sem unnt er að nota nánast allan lífmassann. Þannig hefur náðst mun meiri hagkvæmni í eldsneytisvinnslunni og það er einmitt þessi nýja tækni sem kallast lífhráolíuvinnsla (biocrude process).
 
Þá er s.k. hraðhitasundrun (flash pyrolysis) notuð til framleiða orkuríkt fljótandi lífmassaþykkni úr hvaða lífmassa sem er. Sú aðferð er vel þekkt efnafræðilega og ekki dýrari eða flóknari en svo að hafa mætti slíkar forvinnslustöðvar dreifðar um landið. Þar sem flutningur á lífmassa er einn helsti kostnaðarliðurinn í framleiðslu á eldsneyti úr lífmassa, er forvinnslan lykilatriði til að ná fram hagkvæmni. Lífmassaþykkninu er svo safnað saman í stóra olíuhreinsunarstöð. Þessi lífhráolíuvinnsluaðferð er líklega raunhæfasta aðferðin til að framleiða fljótandi eldsneyti sem jafnast á við olíuafurðir úr jarðolíu að orkuinnihaldi og hagkvæmni.
 
Biomass_Processing_UOPLífhráolíuvinnsla með hraðhitasundrun er raunhæfur kostur til að framleiða umhverfisvænt fljótandi eldsneyti sem nýta má með nákvæmlega sama hætti eins og eldsneyti unnið úr jarðolíu. Lífhráolía er eina fljótandi eldsneytið sem mun geta keppt við bensín, díselolíu eða flugvélaeldsneyti og/eða leyst slíkt eldsneyti af hólmi, án styrkja eða annarra sértækra efnahagslegra stuðningsaðgerða.

Hvorki etanól, lífmetan, metanól né DME eiga slíka möguleika nema með umtalsverðum niðurgreiðslum, styrkjum eða skattaafslætti. Þar að auki skilar lífhráolíuframleiðsla mörgum öðrum verðmætum efnasamböndum, sem nýtt eru í margvíslegum iðnaði. Með slíkri eldsneytisvinnslu verða því til verðmæti og virðisauki umfram það sem þekkist í annarri lífrænni eldsneytisframleiðslu.
 
Sökum þess að lífhráolíuvinnsla krefst umtalsverðrar orku er hún ekki álitleg fyrir tilstilli hefðbundinna kolvetnisorkugjafa (hvort sem er kol eða gas). Þess vegna hafa rannsóknir einkum beinst að því að nýta sólarorku til þessarar framleiðslu. Ísland er aftur á móti í þeirri einstöku aðstöðu að búa yfir mikilli endurnýjanlegri orku - meira að segja umtalsverðri afgangsorku á næturnar án nýrra virkjana. Þess vegna er lífhráolíuframleiðsla óvíða raunhæfari en einmitt á Íslandi.
 
Lífhráolíuiðnaður getur nýtt sér sömu stærðarhagkvæmni eins og þekkist svo vel í jarðolíuiðnaðinum. Meginmunurinn felst í því að í stað þess að safna saman olíu úr borholum og í olíuhreinsistöðvar, er safnað saman lífrænum efnum (eins og plöntuafurðum eða lífrænu sorpi), þau forunnin í kolvetnisþykkni sem síðan eru unnar olíuafurðir úr í olíuhreinsunarstöð, eins og áður var lýst.
 
Til að koma þessu í framkvæmd hér á landi er hugsanlega skynsamlegast að leita samstarfs við fyrirtæki sem standa fremst í þessari tækni nú þegar og eru með nokkra fremstu frumkvöðla heims sem bakhjarla. Í þessu sambandi er unnt að kynna Ísland sem áhugaverðan kost til að nýta þessa tækni fyrir tilstilli hagkvæmrar endurnýjanlegrar orku og laða þannig öflugustu fyrirtækin í lífhráolíuiðnaðinum til Íslands. Aðkoma slíkra fyrirtækja að því að gera Ísland 100% orkusjálfstætt væri mikilvæg auglýsing fyrir viðkomandi fyrirtæki og gæti hjálpað því á þessum markaði heima fyrir, hvort sem er í Bandríkjunum eða Evrópu. 
 
biocrude_total-refinery_gasolinu_ethyl_tertiary_butyl_ether-etbe_2Þannig má nýta sérstöðu Íslands í endurnýjanlega orkugeiranum til að hraða uppbyggingu þessa iðnaðar á Íslandi. Um leið yrði stuðlað að tugmilljarða króna erlendri fjárfestingu á Íslandi og fjöldi nýrra starfa myndu skapast.

Engu að síður er æskilegt að sýna fram á hversu vel tæknin virkar hér á landi. Það yrði gert með því að smíða og setja upp frumgerð (prótótýpu) að slíkri vinnslu. Tekið skal fram að þekking til að framkvæma þetta er fyrir hendi hér á Íslandi - vilji og fjármagn er allt sem þarf.
 
Í tengslum við uppbyggingu á íslenskum lífhráolíuiðnaði mætti t.d. horfa til orkunnar á Þeistareykjum. Um erlendan samstarfsaðila verður ekki fjallað hér. Þó skal tekið fram að Orkubloggarinn hefur að sjálfsögðu skýra mynd af því hvaða tækni hefur þarna reynst best og hvaða fyrirtæki eru þar áhugaverðust. Er einnig með tölur á hraðbergi um fjárfestingarþörfina, mannafla og orkuþörfina - en vill halda því út af fyrir sig að svo stöddu.
 
 
 
Að grípa tækifærið:
 
Rétt eins og farsímatækni Nokia hefur orðið táknmynd fyrir Finnland og vindorkutækni Vestas táknmynd fyrir Danmörku, gæti lífhráolía (bicrude) orðið táknmynd fyrir Ísland. Ísland yrði nánast 100% orkusjálfstætt og ynni alla sína orku úr endurnýjanlegum auðlindum. Og með því að íslenskt fyrirtæki einbeitti sér að þessari tegund eldsneytisframleiðslu, eru líkur á að viðkomandi fyrirtæki myndi ná forskoti í þessari ungu iðngrein, sem hefur mikil vaxtartækifæri.
 
Jafnvel án tillits til ímyndarinnar er augljóst að það hefði mikla efnahagslega þýðingu ef hér myndi byggjast upp nýr og umfangsmikill iðnaður. Tækifærið hefur sjaldan verið betra en núna þegar heiminn hungrar í endurnýjanlega orku og jafnvel hörðustu talsmenn jarðolíunnar eru farnir að tala um að dagar hinnar ódýru hráolíu úr jörðu séu senn taldir (end of cheap oil).

 
 
 
Af hverju hefur þetta ekki löngu verið framkvæmt?
 
Sem fyrr segir hefur olíuverð lengst af ekki verið nægilega hátt til að framleiðsla af þessu tagi gæti borgað sig. Síðustu 3-4 ár hafa aftur á móti orðið vatnaskil í olíuiðnaðinum, sem gera þennan kost nú í fyrsta sinn fjárhagslega hagkvæman. 
 
Biocrude_pyrolysisÞó svo tæknin sé þekkt í flestum grundvallaratriðum er framleiðsla af þessu tagi enn á tilraunastigi. Ástæða þess er fyrst og fremst sú að einungis örfá ár eru síðan fjárfestar tóku að laðast að þessum möguleika. Horfur eru á að fyrstu lífhráolíustöðvarnar muni skila af sér afurðum á næstu 2-4 árum.
 
Næsta skref mun verða að þróa tækni til að vetnisbæta lífmassann og ná þannig enn meiri hagkvæmni. Slíkar rannsóknir eru þegar byrjaðar en árangur ennþá óljós. Þó svo vetnisbæting sé ekki forsenda þess að þessi iðnaður verði hagkvæmur, mun það styrkja mjög samkeppnisstöðu lífhráolíufyrirtækja og minnka áhættuna ef hráolíuverð úr jörðu lækkar umtalsvert. Vegna lægri nýtingar á íslenskum raforkuverum yfir nóttina yrði sáraeinfalt að stunda þessa vetnisframleiðslu hér án mikils tilkostnaðar (einnig væri mögulegt að nýta vindorku í vetnisframleiðsluna ef orkuþörfin yrði mikil).
 
Það eru sem sagt efnahagsleg skilyrði sem fyrst og fremst valda því að þessi iðnaður er fyrst að fara af stað nú. Réttu hvatarnir hafa ekki verið til staðar fyrr en á allra síðustu árum.
 
Með þeim vaxandi áhuga sem nú er þessum iðnaði er líklegt að kostnaðarlækkanir munu verða nokkuð örar á næstu árum - og mikilvægt að vera snemma á ferðinni til að ná tæknilegu forskoti. Þar með gæti íslensk þekking á þessum iðnaði orðið mikilvæg útflutningsþjónusta.

Orkusjalfstaett_Ísland_slide_10Að mati Orkubloggarans er þarna á ferðinni tækifæri sem kann að reynast mjög áhugavert fyrir Íslendinga og íslenskt atvinnulíf. Vegna hroðalegrar íhaldssemi í íslensku stjórnkerfi og skorts á áhættufjármagni, er því miður líklegast að ekki nóg verði gert til að láta það rætast að Ísland verði orkusjálfstætt og framleiði eigið eldsneyti fyrir samgöngutækin. Heldur mun orka Íslands halda áfram að fara í fleiri álver, íslenskt atvinnulíf þar með verða ennþá einhæfara en nú er, og dýrmætur gjaldeyrir halda áfram að fara í stórfelldan innflutning á bensíni og olíu. Nema einhver duglegur maður eða kona taki að sér að vinna þessari hugmynd brautargengi.


Olía næstu áratuga: Herðist kverkatak OPEC?

Stutt er síðan Orkubloggið boðaði þá miklu og djúpu speki að farið sé að þrengja að olíuauðlindum Vesturlanda. Og að smám saman muni OPEC geta hert snöruna og gert Vestrið sér æ háðara um olíuframboð.

Þessi ábending bloggsins var gerð af því tilefni að nú er svo komið að OPEC ásamt Rússum framleiða meira en helming allrar olíu í heiminum. Eru nú með um 55% framleiðslunnar og Vestrið líklega endanlega búið að tapa getu sinni til að viðhalda hlutfalli sínu í olíuframleiðslunni. Vegna hnignandi auðlinda og hægagangs í að finna nýjar stórar lindir.

Oil_Reserves_01Aukið hlutfall OPEC í olíuframleiðslu framtíðarinnar verður ennþá augljósara þegar litið er til þess hvar þá olíu er að finna sem enn er í jörðu. Þá er miðað við s.k proven reserves. Sem eru olíulindir sem hafa verið staðreyndar og  fremur lítil óvissa er um hversu mikilli olíu þær munu skila. Um proven reserves gildir líka að unnt er að ná þeirri olíu upp með viðunandi tilkostnaði. Eftir því sem tækninni fleygir fram og/eða olía hækkar í verði, verður efnahagslega hagkvæmt að vinna olíu á sífellt erfiðari svæðum. Þess vegna hafa sannreyndar, vinnanlegar olíubirgðir smám saman farið hækkandi. Og það stundum í risastórum stökkum.

Skammt er síðan proven reserves höfðu vaxið hvert einasta ár í heilan áratug, þrátt fyrir sívaxandi spádóma Bölmóðanna um að Peak Oil væri brostið á. Sem dæmi má nefna, að á síðustu tveimur áratugum hefur talan um sannreyndar olíuauðlindir Saudi Arabíu haldist nánast alveg óbreytt. Allan tímann - á næstum 20 ár - hafa olíulindir Sádanna verið álitnar hafa að geyma nálægt 270 milljörðum tunna. Samt hafa Sádarnir dælt upp u.þ.b. 60 milljörðum tunna á þessu tímabili. Þannig að fyrir hverja tunnu sem hefur komið upp, telja Sádarnir sig hafa fundið aðra vinnanlega tunnu. 

Árið 2008 kom loks að því að proven reserves minnkaði á milli ára. Það stafar af því að nýjar sannreyndar olíulindir náðu ekki að mæta hratt hnignandi lindum utan OPEC, þ.e. innan lögsögu Noregs, Kína og Rússlands. Sem sagt; sannreyndar olíubirgðir veraldar minnkuðu milli 2007 og 2008. En hafa ber í huga að aldrei nokkru sinni hefur jafn mikilli olíu verið dælt upp áeinu ári eins og einmitt 2008. 

Í reynd veit þó enginn fyrir víst hversu mikil olía er enn í jörðu. Tölurnar byggja að mestu á upplýsingum frá ríkjunum skjálfum. Vegna mikils vægis landa eins og Saudi Arabíu og Írans, sem eru utan vakandi auga Vesturlanda, eru uppi miklar efasemdir hvort trúa eigi tölunum frá OPEC. Bölsýnismenn í olíubransanum eru margir handvissir um að það sé hreinlega ekkert að marka tölur OPEC-ríkjanna; segja OPEC hafi tilhneigingu til að ýkja tölurnar stórlega í pólitískum tilgangi. Aðrir benda á að þessi krítík standist ekki, af því skynsamara væri fyrir OPEC-ríkin að gefa upp sem allra lægstar tölur, því þá myndi olíuverð samstundis hækka og þau fá meira fyrir sinn snúð.

Í olíuveröldinni er sem sagt ekki algjör samstaða! En bandaríska olíumálaráðuneytið áætlar að proven reserves nemi nú um 1.360 milljörðum tunna af olíu. Sem er nokkru meira en öll sú olía sem hefur verið dælt upp allt til þessa dags. Þeir ljúflingarnir á þurrlegum skrifstofum EIA í Washington DC trúa sem sagt alls ekki að peak oil hafi verið náð. Nefna má að talan þeirra um vinnanlega olíu, er nokkurn veginn sama tala og OPEC ber á borð (þeir tilgreina að birgðirnar séu samtals 1.300 milljarðar tunna).

OPEC_statesEn hvar er alla þessa olíu að finna? A.m.k. ekki á Drekasvæðinu né undir hafsbotni Norðurskautsins. Sú mögulega olía er ennþá bara getgátur og hefur ekki öðlast þá virðingu að teljast sannreynd. Langt frá því. Svarið við því hvar olía næstu áratuga er, er satt að segja fremur einfalt: Olían er við Persaflóann. Öll önnur olía er bara eitthvert afgangsgums.

Flestir eru sammála um að næstum 80% af þessum 1.360 olíutunnum séu innan lögsögu OPEC-ríkjanna. Þ.á.m. eru Arabaríkin, Íran og Venesúela. Nánar tiltekið segir bandaríska orkumálaráðuneytið að sannreyndar olíubirgðir OPEC nemi 940 milljörðum tunna, en sjálf segjast OPEC-ríkin ráða yfir rúmlega 1.000 milljörðum tunna. Sem fyrr segir er þetta nálægt 80% allrar olíu heimsins, sama hvor talan er notuð. Þau 20% olíunnar sem þá eru afgangs - smotteríið - eru að hluta til innan lögsögu Vesturlanda, en einnig innan landa eins og Kína og Rússlands.

OPEC-ríkin ráða sem sagt yfir hvorki meira né minna en 80% af þeirri olíu sem sótt verður úr jörðu næstu áratugina. Yfirgnæfandi hluti af þeirri olíu er í lögsögu Persaflóaríkjanna - á mjög afmörkuðu svæði undir Flóanum sjálfum og landsvæðum þar í kring. Hátt í 75% allrar vinnanlegrar olíu sem eftir er í veröldinni er á þessu órólega svæði við Persaflóann. Þau smávægilegu 5% sem eftir standa af 80 prósentunum í lögsögu OPEC, eru innan OPEC-ríkja utan Flóans. Eins og t.d. Venesúela og Nígeríu.

Oil_Reserves_16_Saudi-ArabiaÞað er athyglisvert að þrátt fyrir að mestöll olían sé innan lögsögu OPEC-ríkjanna, kemur "einungis" um 40% heimsframleiðslunnar frá OPEC í dag. Sé litið til olíulindanna sem eru sannreyndar í dag og ennþá er eftir að nýta, virðist augljóst að hlutfall OPEC í olíuframleiðslunni hljóti að eiga eftir að hækka verulega. OPEC er þekkt fyrir að reyna að pressa upp verðið. Það kann að verða enn auðveldara innan örfárra áratuga. Þess vegna snúast heimsmálin í reynd einungis um eitt atriði; yfirráð yfir olíuauðlindum. Að skapa mótvægi við OPEC - og þar að auki hrista Vesturlönd vopnabúr sín af og til, til að minna OPEC-ríkin á að ganga ekki of langt í að græða á olíufíkn Vesturlanda. Framboðið frá OPEC má ekki verða svo lítið að almenningur í Vestrinu ráði ekki við verðið og framboðið frá OPEC má ekki verða svo mikið að vestræni olíuiðnaðurinn skili tapi (olíuvinnsla Vesturlanda er miklu dýrari en hin hræódýra olía við Persaf´lóann).

Þarna er á ferðinni geggjaður línudans, sem hefur meiri áhrif á alþjóðastjórnmálin og efnahagslíf veraldarinnar en flesta grunar. Það skemmtilega er að æpandi skuldsetning Sádanna og fleiri OPEC-ríkja veldur því að þau þurfa helst að fá 60-70 dollara fyrir tunnuna til að lenda ekki í alvarlegum fjárlagahalla (þó svo sjálf olíuframleiðsla þeirra sé miklu ódýrari). Þetta er einmitt sama verð og hentar vestrænu olíufyrirtækjunum prýðilega og almenningur og fyrirtæki virðast þola. Þannig að í dag eru allir bara sæmilega ánægðir.

Reyndar teja margir, sem fyrr sagði, að OPEC-ríkin ofmeti birgðir sínar stórlega. Og það sé m.a. til að koma í veg fyrir að Vesturlönd setji allt á fullt í að finna orkugjafa sem geti leyst olíuna af hólmi. Sumir segja að í reynd séu sannreyndar olíubirgðir OPEC-ríkjanna einungis þriðjungur af því sem þau segja sjálf. Að mörg OPEC-ríkjanna hafi stórlega ofmetið auðlindir sínar og ekkert réttlæti massífa aukningu uppgefinna sannreyndra olíubirgða landa eins og t.d. Írans og nú síðast Venesúela.

Ef þessir efasemdarmenn hafa rétt fyrir sér, gæti það þýtt að meiriháttar olíukreppa sé á næsta leyti. En þetta eru getgátur og enginn getur fullyrt hvað sé rétt og rangt í þessu efni. Ekki einu sinni Orkubloggarinn! Sem er reyndar lítill aðdáandi samsæriskenninga. Hér verða tölurnar frá bandaríska orkumálaráðuneytinu matreiddar sem hinn ljúfi sannleikur. Þær ríma að langmestu leyti við tölur OPEC, með smávægilegum undantekningum. Listinn yfir þau ríki sem ráða yfir mestum olíubirgðum er þá sem hér segir:

1.  Saudi Arabía (aðili að OPEC).
Að sjálfsögðu eru Sádarnir í fyrsta sæti eins og allir lesendur Orkubloggsins auðvitað vita. Með birgðir upp á 267 milljarða tunna. Til samanburðar þá notaði heimurinn samtals um 31 milljarð tunna af olíu á liðnu ári (2008).

Oil_Reserves_15_Canada2.  Kanada.
Lof sé almættinu fyrir olíusanddrulluna  vestur í Alberta. Það er a.m.k. skoðun Bandaríkjamanna. Þegar olíuverð fór almennilega yfir 30 dollara varð ljóst að tímabært væri að ryðja friðsæla barrskógana norður af Calgary, skófla upp olíublönduðum jarðveginum, sulla yfir ógrynni af vatni þar yfir og kreista svo olíuna úr klístrinu með ofurhita frá gasorkuverum. Fyrir vikið rauk Kanada eins og hendi væri veifað í annað sæti yfir ríki með mestu sannreyndu, vinnanlegu olíubirgðir í heimi. Þær eru nú áætlaðar 178 milljarðar tunna. Olíusandurinn hefur stóraukið olíuframleiðslu Kanadamanna, sem nú sjá Bandaríkjunum fyrir um 20% af allri olíunni sem þessi mesti olíusvolgrari heimsins notar.

3.  Íran (aðili að OPEC).
Í þriðja sæti eru bestu vinir Orkubloggarans; Persarnir. Með 138 milljarða tunna  af þekktum vinnanlegum olíubirgðum. Í dag fá Bandaríkjamenn ekkert af þessari olíu. En eru aftur á móti búnir að tryggja sér sæmilegan aðgang að olíulindum nágrannana; Írakanna:

Oil_Reserves_14_Iran4.  Írak (aðili að OPEC).
Í dag eru olíulindir Íraks taldar nema 115 milljörðum tunna. Í reynd hefur bæði olíuiðnaðar Íraks og Íran lengi þjáðst af miklum fjármagns- og tækniskorti. Það er því ekki ólíklegt, nú þegar menn fara á ný að koma góðum skikk á olíuleit í Írak, að proven reserves þar hækki brátt umtalsvert. Bjartsýnir telja að Írak lumi jafnvel á meiri olíu en Saudi Arabía. Persaflóastríðin tvö - stríðið við Íran og innrásin í Kuwait - höfðu skelfilegar afleiðingar fyrir íraska olíuiðnaðinn. Hugsanlega verður brátt búið að staðreyna allt að 100 milljarða tunna í viðbóta af olíu í Írak. Það myndi gera Írak að næstmesta olíuveldi veraldar - og kannski finnst þar jafnvel enn meiri olía en í sjálfri Saudi Arabíu. En auðvitað hafði ákvörðun Bush um innrás í Írak ekkert með olíu að gera. Geisp.

5.  Kuwait (aðili að OPEC).
Sem kunnugt er vakti það litla hrifningu í Vestrinu þegar Saddam Hussein réðst inní Kuwait. Sannreyndar olíubirgðir Kúveita eru 104 milljarðar tunna. Say no more.

Masdar_City_016.  Sameinuðu arabísku furstadæmin (UAE) (aðili að OPEC).
Sameinuðu arabísku furstadæmin eru bandalag sjö smárra furstadæma sunnan Kuwait. Þekktar olíuauðlindir þar í jörðu nema um 98 milljörðum tunna. Þar af er langmest af þessu svarta gulli UAE í furstadæminu Abu Dhabi. Sem kunnugt er ætlar Abu Dhabi ekki að láta sér nægja að vera eitt mesta olíuveldi heimsins, heldur hafa ljúflingarnir þar mikil plön á sviði endurnýjanlegrar orku. Þar er sólarorkan eðlilega mest spennandi, en Arabarnir í Abu Dhabi eru einnig mjög áhugasamir um vindorku og munu einnig eiga góða möguleika í jarðvarma. Það virðist ekki hafa farið hátt hér á landi að nú í haust var Guðmundur Þóroddsson, fyrrum forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, að gera laufléttan jarðhitadíl þarna suður í eyðimörkinni ásamt félögum sínum í fyrirtækinu Reykjavík Geothermal. Og fyrr á þessu ári var ákveðið að aðalstöðvar hinna nýstofnuðu alþjóðasamtaka um endurnýjanlega orku (IRENA) verði staðsett í Abu Dhabi. Sem sagt mikið að gerast hjá furstanum í Abu Dhabi.

7.  Venesúela (aðili að OPEC).
Annar mikilvægasti olíunágranni Bandaríkjamanna er ekki alveg jafn vinsamlegur eins og Kanada. Í Venesúela eru þekktar, vinnanlegar olíulindir upp á 99 milljarða tunna. Þarna mun olíueðjan við Orinoco-fljótið  skipta öllu máli til framtíðar. Olíusandurinn þar hefur hugsanlega að geyma meira en 100 milljarða tunna í viðbót! Enn sem komið er, telst þetta ekki sannreynd auðlind, en hafa má í huga að til eru ennþá bjartsýnni spár sem hljóða upp á næstum 300 milljarða tunna af olíusandi við Orinoco. Með nútíma tækni og olíuverði dagsins í dag, verður þess vart langt að bíða, að þarna bætist miklar olíubirgðir við auðlindir Venesúela og þar með í olíubókhald OPEC-ríkjanna.

Oil_Reserves_09_ Russia8.  Rússland.
Rússland er mesti olíuframleiðandi heims í dag. En þó aðeins í áttunda sætinu yfir þau ríki sem búa yfir mestum þekktum olíuauðlindum. Þó svo Rússland sé ekki í OPEC eru ýmsir á Vesturlöndum sem sjá Rússana ekki beint sem sína bandamenn í olíuveröldinni. Enda hefur verið til tals að Rússarnir gangi inn í OPEC. Hvort sem það rætist eður ei, þá eru sannreyndar olíulindir Rússa metnar sem nemur 60 milljörðum tunna.

9.  Líbýa (aðili að OPEC).
Gaddafi hershöfðingi ræður yfir 44 milljörðum tunna af olíu í jörðu. Þarna er á ferðinni enn ein risaolíuþjóðin, sem hefur um langt skeið nánast ekki flutt einn einasta olíudropa til Bandaríkjanna. Og það virðast helst vera evrópsk olíufélög, sem þess dagana ná að komast með puttana í líbýsku olíulindirnar. Eins og Orkubloggið greindi einmitt nýlega frá.

Oil_Reserves_07_Nigeria10.  Nígería (aðili að OPEC).
Þó svo Angóla sé helsti olíuspútnik Afríku þessa dagana, eru mestu þekktu olíuauðlindir álfunnar svörtu í lögsögu Nígeríu. Þær eru metnar sem 36 milljarðar tunna.

11.  Kazakhstan.
Í stærsta landlukta ríki heims ræður Nursultan nokkur Nazarbayev ríkjum. Eitthvað hefur gengið rólega hjá Nazarbayev að berjast gegn æpandi spillingu í landinu, enda erfitt við að eiga þegar 30 milljarðar olíutunna  eru annars vegar. Þ.á m. eru einhverjar mestu olíulindir veraldar; Tengiz-lindirnar á votlendissvæðum við norðausturströnd Kaspíahafsins. Sem aðdáendur George Clooney kvikmyndarinnar Syriana kannski kannast við.

12.  Bandaríkin.
Loksins, loksins. Sannreyndar olíubirgðir í lögsögu Bandaríkjanna eru metnar rúmlega 21 milljarður tunna. Það er talsvert, en stærsta vandamál Bandaríkjanna er kannski það að þar búa einungis 5% jarðarbúa en þeir nota 25% allrar olíunnar. Ellefu ríki búa yfir meiri olíubirgðum en Bandaríkin og af þessum ellefu ríkjum er einungis eitt sem getur talist almennilega trúr bandamaður Bandaríkjamanna. Þar er auðvitað átt við Kanada. Þetta þykir Bandaríkjamönnum auðvitað súrt - fíkillinn vill síður að allir dílerarnir séu óvinir hans. Þetta er tvímælalaust stærsta vandamálið sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir. Ef Orinoco-svæðið í Venesúela reynist hafa að geyma jafn mikið af vinnanlegum olíusandi, eins og sumir gæla við, er líklegt að Bandaríkjamenn horfi ekki þegjandi upp á það að Chavez hleypi Kínverjunum endalaust inn á svæðið. Kannski tímabært að endurvekja Monroe-kenninguna?

Oil_Reserves_04_China13.  Kína.
Kína ræður nú yfir 16 milljörðum tunna af olíu innan sinnar lögsögu, en þrátt fyrir miklar olíulindir þarf Kína að flytja inn stóran hluta af allri olíunni. Framtíð olíuiðnaðarins mun að miklu leyti ráðast af því hversu hratt eftirspurnin eykst frá Kína. Þrátt fyrir gríðarlegan efnahagsvöxt notar kínverska þjóðin enn miklu minni olíu miðað við fólksfjölda en gengur og gerist á Vesturlöndum. Ef ekki hægist á eftirspurninni frá Kína gæti olíukreppa skollið á innan fárra ára. Þ.e. að framboðið nái ekki að mæta eftirspurninni. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá.

14. Katar (aðili að OPEC).
Katar er kolvetnisauðugasta ríki veraldar. Það eru aðallega risastórar gaslindir sem skapa Katörum þennan mikla auð. Engu að síður er líka gríðarlega mikið af olíu í lögsögu Katar. Rúmlega 15 milljarðar tunna. Það gefur kuflklæddum íbúum leiðindaborgarinnar Doha 14. sætið yfir mestu olíulindir veraldar.

15.  Alsír (aðili að OPEC).
Bandaríska orkumálaráðuneytið setur Alsír í 15. sætið yfir þau lönd sem búa yfir mestum þekktum olíuauðlindum. Með um 12 milljarða tunna. Á þessum sömu slóðum er annað OPEC-ríki; Angóla. Svo eru bæði Brasilía og Mexíkó með svipað magn af þekktum vinnanlegum olíulindum. Mexíkó er þó á hraðri niðurleið í sinni framleiðslu. En það er a.m.k. næsta víst að öll þessi ríki eru nálægt því að búa yfir 12 milljörðum tunna af sannreyndum vinnanlegum olíulindum.

En þar með eru upptalin öll lönd sem geta talist eiga eftir að vinna meira en 10 milljarða tunna af olíu úr jörðu, m.v. þekkta tækni og líklegt olíuverð næstu árin og áratugina. Að vísu mætti rifja hér upp að norsk skotthúfa hefur sagt að það séu 10 milljarða tunna af olíu í íslenskri lögsögu - reyndar að íslenska Drekasvæðið eitt og sér geti skilað því magni. Þá eru væntanlega svona 20-30 milljarar tunna í viðbót á Keilisdjúpi og víðar undir landgrunni Íslands. Þar með yrði Drekasvæðið eitthvert mesta olíusvæði veraldarinnar og Ísland myndi sökkva undan öllum peningunum. Sniðugt.

World_Oil_Reserves_MapHér hafa verið nefnd þau 15 lönd sem ráða yfir mestu olíuauðlindum heimsins. Það er athyglisvert að ekki eitt einasta Evrópuríki kemst hér á blað (Rússland telst hér Evrasíu ríki). Samtals eru t.d. allar sannreyndar olíulindir ESB-ríkjanna samanlagt taldar vel innan við 6 milljarðar tunna. Sem er náttlega barrrasta ekki í nös á ketti. Innan ESB búa 500 milljónir manna, sem gerir bandalagið að næst fjölmennasta efnahagskerfi heimsins (á eftir Kína). Er nema von að sumir segi Evrópu dæmda til glötunar í orkuveröld framtíðarinnar?

Í Speglinum nú í kvöld var vitnað í sænskar efasemdir um að ekkert sé að marka olíuspár IEA og að spár þeirra séu alltof háar vegna pólitísks þrýstings frá Bandaríkjunum. Þar með er í raun verið að segja, að ekkert sé heldur að marka tölurnar frá bandaríska orkumálaráðuneytinu. Í huga Orkubloggarans er þetta svona álíka gáfulegt kenning eins og ruglið skemmtilega í X-files þáttunum. Af hverju í ósköpunum ættu Bandaríkjamenn eða aðrir íbúar Vesturlanda ekki að þora að horfast í augu við það, ef miklu minni olía er í jörðu en haldið hefur verið fram? Olían sem eftir er, er hvort sem er nánast öll á Persaflóasvæðinu og hjá ljúflingum eins og Pútín og Chavez. Eins og það sé eitthvað sérstaklega gott fyrir Bandaríkin að ýkja þessar tölur! Nebb.

Oil_Rig_flare_NGOrkubloggið leyfir sér að endurtaka það sem sagði hér að ofan: Í reynd veit enginn fyrir víst hversu mikil olía er enn í jörðu. Og enginn veit hvernig olíuverð mun þróast. Ef það helst hátt verður hagkvæmt að vinna olíusandinn við Orinoco-fljótið. Og þá verður líka hagkvæmt fyrir Bandaríkjamenn og Kínverja að vinna olíu úr kolunum sínum, sem nóg er af. Orkugeirinn er ein allsherjar óvissa og það þarf engar samsæriskenningar til að varpa dulúð á þennan gljáandi svarta iðnað. Þar er þokan hvort eð er alls ráðandi. Málið er hlusta vel á þokulúðrana, sem óma úr öllum áttum og reyna átta sig á hver besta stefnan er. Í huga Orkubloggarans væri það hugsanlega skynsamlegasti kúrsinn fyrir okkur Íslendinga, að nota orkuna úr iðrum jarðar til að framleiða sjálf olíuna sem við þurfum. Meira um það í næstu færslu.

 


Beaty, HS Orka og ESB

Það var að koma út skýrsla um erlendar fjárfestingar á Íslandi.

Capacent_glacier_logoÞað er Capacent Glacier  sem stendur að útgáfunni og þykir Orkubloggaranum þarna hafa tekist nokkuð vel til. Hér ætlar bloggarinn þó að láta nægja að vekja sérstaklega athygli á því sem kemur fram á bls. 5 í umræddri skýrslu, um afstöðu Íslendinga gagnvart erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi og orkuframleiðslu (skv. könnun Capacent Gallup í september s.l.). Þar kemur fram að um 56% svarenda eru hlynntir erlendri fjárfestingu í orkuframleiðslu á Íslandi og 58% hlynntir erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi.

Tekið skal fram að líklega er þarna eingöngu litið til þeirra sem töku afstöðu í könnuninni. Og Orkubloggarinn gat í fljótu bragði ekki séð á skýrslunni hvert svarhlutfallið var, né úrtakið. En satt að segja varð bloggarinn nokkuð undrandi að sjá hversu margir Íslendingar virðast hlynntir fjárfestingu útlendinga í þessum grunnstoðum efnahagslífsins. Miðað við þessar niðurstöður ætti leiðin að ESB að verða tiltölulega greið. Enda er það líklega eina vitið fyrir Íslendinga.

Samt sýna skoðanakannanir nú mikla andstöðu við ESB-aðild Íslands. Auðvitað væri gaman ef Ísland gæti staðið á eigin fótum, þyrfti aldrei að hlusta á útlendinga og samt notið alls þess besta sem frá útlöndum kann að koma og átt fullan aðgang að t.d. menntun erlendis og að selja þangað vörur og þjónustu. Slík hugmyndafræði er bara dálítið absúrd. Og satt að segja veit Orkubloggarinn ekki til þess að erlendar fjárfestingar hafi valdið okkur tjóni. Þvert á móti var það lánsfé sem Íslendingar sjálfir sóttu sér, sem gerði okkur mestan grikk.

Ross_Beaty_rockUmrædd skýrsla var kynnt á ráðstefnu Capacent fyrr í dag. Meðal ræðumanna var einn af þessum voðalegu mönnum, sem vilja leggja fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf: Kanadíski jarðfræðingurinn Ross Beaty, sem nýverið stóð að kaupum Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Þó svo hann reyndist ekki sami töffarinn og Orkubloggarinn hafði ímyndað sér af ljósmyndum og eyddi kannski óþarflega mörgum orðum í að smjaðra fyrir dugnaði Íslendinga, verður að segjast eins og er: Það er erfitt að ímynda sér af hverju í ósköpunum fjármálaráðherra vor hafi beinlínis lagst gegn því að Magma eignist HS Orku.

Vissulega geta menn haldið því fram að Magma, sem lagði út 30% kaupverðsins og greiddi 70% með skuldabréfi, hafi fengið góðan díl. En hafa ber í huga að Magma hefur líka skuldbundið sig til að leggja fram verulegt fjármagn í tengslum við nýjar framkvæmdir á vegum HS Orku. Ekkert bendir til annars en þarna sé á ferðinni einlægur langtímafjárfestir, sem vill veg HS Orku sem mestan og um leið að fyrirtækið verði að sem allra mestu gagni fyrir samfélagið.

Til eru þeir sem botna hreinlega ekkert í því hversu rausnarlegur Ross Beaty var í þessum viðskiptum, m.v. helstu kennitölur í reikningum HS Orku. Hrista t.d. höfuðið yfir því að hann skuli hafa greitt vel yfir tuttugufalt EBITDA. Fyrir hlut í fyrirtæki sem líklega sé ennþá rekstrarlega blindað af áður auðfengnum tekjum frá bandaríska hernum og var orðið nánast á framfæri kröfuhafanna. Þegar upp verði staðið megi Beaty þakka fyrir ef Magma nær 3% arðsemi af þessari fjárfestingu sinni. Þetta sé svo fáránleg fjárfesting að það eina sem geti vakað fyrir Beaty, sé að eignarhlutur í íslensku jarðhitafyrirtæki sé góð leið til að opna meiri möguleika í alþjóðlega jarðhitageiranum. Þetta sé sem sagt frekar snjöll taktík hjá Beaty, heldur en að þetta sé hugsað sem arðbær leikur. Segja sumir.

svartsengi_steamSjálfur telur Orkubloggarinn reyndar að sjálft verðið sem Magma greiddi fyrir HS Orku hafi verið lágt. Án þess að ætla að rökstyðja þá skoðun hér og nú. Hreinlega reyfarakaup. En að vera á móti því að Beaty og Magma eignist stóran eða jafnvel ráðandi hlut HS Orku - bara af því hann er ekki með íslenskt ríkisfang og Magma útlenskt fyrirtæki - er algerlega útí hött.

Slík pólitík er einungis til þess fallin að verða enn eitt lóðið á einhverja misskilda og skemmandi þjóðernisrembu. Sem virðist því miður þjaka alltof marga Íslendinga og mun sennilega koma í veg fyrir að við getum nýtt okkur náið og vinsamlegt samstarf flestra annarra ríkja Evrópu. Þó svo Orkubloggarinn sé æpandi reiður hollenskum og breskum stjórnvöldum vegna framkomu þeirra í Icesave-málinu, mun raunsæi stýra atkvæði bloggarans. Þegar og ef til þess kemur að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Stóra vandamálið í viðræðunum verður líklega sjávarútvegsstefnan. ESB mun vonandi skilja rök þess efnis að fiskveiðilögsaga Íslands snertir hvergi lögsögu annarra ESB ríkja og því algerlega útí hött að láta sér detta í hug að færa ákvarðanir um kvóta á Íslandsmiðum til stofnana ESB. Við eigum að geta náð réttri niðurstöðu um fiskveiðistjórnunina. Aftur á móti verðum við að gefa eftir sérreglur um fjárfestingar í sjávarútvegi. Og það yrði auðvitað súrt að kyngja því t.d. að Ísland missi umboð til að gera sjálft viðskiptasamninga við ríki utan ESB. En eins og í öllum samskiptum milli þjóða byggist raunhæfur samningur á því að litið sé til hagsmuna beggja aðila.

globe-europeÞó svo sjálfstæðisdraumur Bjarts í Sumarhúsum búi í brjósti bloggarans, telur hann yfirgnæfandi líkur á því að aðild Íslands að ESB myndi einfaldlega skapa börnum okkar betri framtíðarmöguleika og enn meiri tækifæri. Það hlýtur að vera lykilatriðið. Þess vegna mun bloggarinn segja já við aðild.

Það breytir því þó ekki að Orkubloggarinn á von á því að meirihluti íslenskra kjósenda muni hafna aðild. Og er óhræddur að takast á við það - með hinum ævintýralegu dýfum á krónunni og ofsfengnu sveiflum í íslensku efnahagslífi. Innst inni hefur bloggarinn alltaf haft svolítið gaman af þessum fáránlega óstöðugleika, sem hefur einkennt íslenskt efnahagslíf allt frá fæðingu hans - og auðvitað miklu lengur. Það er nefnilega einhver dularfullur sjarmi yfir þessari þrjósku og þrautseigu þjóð hér í norðri. Sem kannski gerir það þess virði að við berjumst áfram ein á báti við bæði náttúruöflin og alþjóðasamfélagið - með krónuna að vopni. Sama hver niðurstaðan gagnvart ESB verður, mun Orkubloggarinn horfa bjartsýnn fram á veginn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband