Olíuhreinsun á tímamótum?

Spekúlantar geta endalaust hagnast á olíunni. Í dag er hugsanlega ein farsælasta leiðin til þess, sú að sjorta bandarísk olíuhreinsunarfyrirtæki.

oil_refinery_night_946426.jpg

Það fer a.m.k. ekkert á milli mála að olíuhreinsunar-iðnaðurinn hjá hinum alræmdu olíusvolgrurum westur i Bandaríkjunum, er í tómu veseni þessa dagana. Þar má með sanni segja að skjótt skipist veður í lofti. Einungis örfá ár eru síðan flestir "sérfræðingar" voru sammála um að til lengri tíma litið myndi notkun á bensíni og díselolíu vaxa jafnt og þétt þar vestra. Jafnvel til eilífðarnóns. Þó svo einhver hiksti myndi af og til verða í efnahagslífinu, myndi ávallt verða meiri og meiri þörf á fljótandi eldsneyti úr hráolíu. Sífellt meira myndi þurfa af bæði bensín og díselolíu.

Það var m.ö.o. svo, að sérhverjum manni þótti það vera augljóst að Bandaríkin þyrftu að styrkja enn frekar afkastagetu sína í olíuhreinsun. Þess vegna gerðu bandarísk stjórnvöld allt sem þau gátu til að liðka fyrir nýjum olíuhreinsunarstöðvum. Olíuhreinsun var einfaldlega talin vera skotheldur bissness, þar sem ekki væri hægt að tapa.

bush_cornfield.jpg

Á síðara kjörtímabili Bush var opinber stuðningur við uppbyggingu nýrra olíuhreinsunarstöðva í algleymingi. Og þó svo Bush væri líka velviljaður etanólinu, trúðu menn að það væri hreinlega ekki hægt að byggja nógu margar bandarískar olíuhreinsunarstöðvar. Það var líka talið vera mikilvægt til að stuðla að auknu orkusjálfstæði Bandaríkjanna.

Reyndar leit á tímabili út fyrir að góð rök væru að baki þessari  olíuvinsamlegu orkustefnu Bush og félaga. Efnahagslífið var á blússandi ferð og menn töldu víst að það myndi kalla á aukna eftirspurn eftir eldsneyti. En í reynd stóð eftirspurn eftir fljótandi eldsneyti að mestu í stað eftir 2005, þrátt fyrir hagvöxtinn.

Og nú hefur framtíðarsýnin gjörbreyst eins og hendi væri veifað. Tækniframfarir og breytt neyslumynstur fólks tók völdin af spám sérfræðinganna og olíustefnu bandarískra stjórnvalda. Eftirspurn eftir bifreiðaeldsneyti í Bandaríkjunum hefur hreinlega hrapað síðustu misserin. Fyrir vikið er nú hverri olíuhreinsunarstöðinni á fætur annarri lokað þar vestra, allt frá New Jersey til Kaliforníu.

Það virðist lítil von um betri tíð með blóm í haga í olíuhreinsuninni. Jafnvel þrátt fyrir að efnahagslífið komist auðvitað aftur á skrið einhvern daginn, óttast margir í olíuhreinsunar-iðnaðinum að nú sé runnin upp ögurstund. Vöxtur í bifreiðaeign pr. fjölskyldu virðist kominn að endamörkum og fólk leitar í sparneytnari bíla. Þó svo kreppan muni ekki vara að eilífu, telja nú margir að bensínnotkun í Bandaríkjunum hafi einfaldlega náð hinu endanlega sögulega hámarki!

oil_refinery_hovensa.jpg

Hvort það er raunin eður ei verður barrrasta að koma í ljós. Best að fullyrða sem minnst um svo dramatískar orkuspár. En við þetta bætist síaukinn þrýstingur um hærra hlutfall etanóls í bandarískt bensín. Það mun gera olíuhreinsunarstöðvunum ennþá erfiðara að viðhalda stöðu sinni - hvað þá að bæta hana.

Í dag er afkastageta bandarísku olíuhreinsunarstöðvanna sennilega a.m.k. 5-10% of mikil. Árið 2008 féll bensínnotkun um nærri 3,5% frá árinu áður, sem er mesta fall milli ára síðan 1965! Eftirspurn eftir díselolíu féll ennþá meira eða um næstum 7% og hafa menn ekki séð slíkt síðan í kringum 1980. Og allt bendir til þess að neyslan vestra árið 2009 hafi verið ennþá minni en 2008.

Aftur á móti eru horfur á aukinni eftirspurn eftir etanóli. Obama-stjórnin leggur mikla áherslu á endurnýjanlega orku og grænt eldsneyti. Olíuhreinsunar-iðnaðurinn virðist öngvan vin eiga. Svartálfarnir þar á bæ eru líka dauðhræddir um að "kommarnir" í Washington DC muni brátt leggja nýja skatta á kolefnislosun. Sem verði ekki aðeins til þess að minnka bensínnotkun enn frekar, heldur líka gera bandarísku olíuhreinsunarstöðvunum erfiðara að keppa við ódýrari hreinsistöðvar erlendis. Þar að auki er búist við hertum mengunarreglum, sem muni skila ennþá sparneytnari bílum og minnka bensínnotkun í Bandaríkjunum ennþá meira.

oil_refinery_2.jpg

Já - græna byltingin virðist hafa yfirtekið Bandaríkin hægt og hljótt. Afleiðingin er sú að sumar olíuhreinsunarstöðvar hafa dregið verulega úr framleiðslu sinni og öðrum hefur beinlínis verið lokað! Meðan nýjar olíuhreinsunarstöðvar spretta nú upp víðsvegar um heiminn - í löndum eins og Saudi Arabíu, Indlandi og Kína - virðist allt á niðurleið í þessum bransa í Bandaríkjunum.

Árið 2008 voru bandarísku stöðvarnar einungis keyrðar á um 85% afköstum, sem er lægsta hlutfall þar í landi í heil 20 ár. Á nýliðnu ári (2009) lítur út fyrir að þetta neikvæða met hafi verið slegið á ný og afköstin séu aðeins um 75%! Þegar haft er í huga, að stutt er síðan hver einasta olíuhreinsunarstöð þar vestra var keyrð á yfir 90% afköstum, er augljóst að ekki er mikið um bros núna hjá mönnum í þessum iðnaði.

ethanol-refinery_poet.jpg

En neyðin kennir naktri konu að spinna. Fyrirtæki sem reka olíuhreinsunarstöðvar leita nú logandi ljósi að etanólfabrikkum til kaups. Aðlögunarhæfni bandaríska kapítalismans er aðdáunarverð og sennilega munu flestir koma þarna standandi niður.

Sú stefna að færa sig yfir í etanólið hefur t.d. verið áberandi undanfarið hjá Valero, sem er stærsta olíuhreinsunarfyrirtæki Bandaríkjanna. Þar á bæ hafa menn ekki aldeilis misst móðinn og eru óhæddir við að veðja á etanólið.

Þegar og ef Bandaríkjaþing afgreiðir löggjöf um E15 blöndu mun allt sem tengist etanóli einfaldlega rjúka upp í verði. Og fyrst að Valero virðist tilbúið að veðja á etanólið, er freistandi að draga þá ályktun að lobbýisminn muni virka og E15-staðall verða að veruleika. Jafnvel fyrr en seinna.

Það allra skemmtilegasta við samdráttinn í bandarísku olíuhreinsuninni er kannski það, að þetta kann að skapa Íslendingum athyglisvert viðskiptatækifæri. Orkubloggarinn hefur áður talað fyrir þeim möguleika, að hér verði framleidd íslensk lífhráolía. Vegna þess að það er sennilega besti og skynsamasti kosturinn til að framleiða innlend verðmæti úr íslenskri orku

grindavik-loftmynd.jpg

Dýrasti bitinn í slíkri iðnaðaruppbyggingu felst sjálfsagt í því að koma upp olíuhreinsunarstöðvum. En þær verða einmitt nær örugglega á brunaútsölu í Bandaríkjunum á næstu árum. Þess vegna er hreinlega upplagt að Íslendingar grípi nú tækifærið og kaupi a.m.k. einn slíkan eðalgrip þar vestra - og flytji heim. Með þá stefnu að íslenska þjóðin verði fyrsta algerlega orkusjálfstæða þjóð veraldar; framleiði bæði allt sitt rafmagn OG allt sitt eldsneyti með hægkvæmum og þokkalega umhverfisvænum hætti. Spurningin er bara hvort fyrsta lífhráolíu-hreinsunarstöðin eigi að verða staðsett í útjaðri Keflavíkur, Grindavíkur eða Húsavíkur?

 


Orkubloggið á Facebook

kroflugos_950619.gif

Ein leið til að rifja upp færslur af Orkublogginu, er að vera með blogginu á Fésbók. Þar getur fólk líka sett inn sínar eigin hugleiðingar, myndir og annað sem Facebook býður upp á.

Stay tuned!


Funheitt grjót

Talsverð tímamót urðu nýverið í stefnu Ástrala í orkumálum.

Þessi 20 milljón manna þjóð framleiðir um 90% af rafmagninu sínu með kolum og gasi. Lengi vel var maður að nafni John Howard þar við stjórn og sá gaf bæði skít í allt umhverfishjal og gróðurhúsatal. En nýverið varpaði  ástralska þjóðin hinum litlausa Howard loks fyrir borð og nýja stjórnin hefur kúvent orkustefnu Ástralíu. Og sett sér það takmark að á næstu tíu árum verði framleiðsla á endurnýjanlegri raforku margfölduð.

australi_electricity_generation_sources_future.gif

Í dag framleiða Ástralir einungis um 10% raforku sinnar með endurnýjanlegum orkugjöfum. Þar um að ræða ca. 15 þúsund GWh árlega; álíka mikið eins og öll raforkuframleiðsla á Íslandi er núna. Samkvæmt nýlegri samþykkt ástralskra stjórnvalda á ársframleiðslan á grænu raforkunni að vera orðin 60 þúsund GWh eftir einn áratug, þ.e. árið 2020.

Gangi það eftir er áætlað að þá muni hlutfall endurnýjanlegrar orku í orkubúskap Ástrala hafa tvöfaldast (úr 10% í 20%). Og til að þetta markmið náist, þarf að fjórfalda framleiðslu á endurnýjanlegri raforku á einungis tíu árum. Dágóð viðbót það.

Ástralir ætla sér sem sagt að bæta 45 þúsund GWh af grænni orku inn á kerfið hjá sér. Sem að meðaltali þýðir 4.500 nýjar grænar gígavattstundir á hverju ári - næstu tíu árin. Í reynd mun dreifingin auðvitað ekki verða svo jöfn. Þetta mun kalla á fjölmargar nýjar virkjanir, sem verður bæði fjárfrekt og tímafrekt að koma upp. Gert er ráð fyrir að megnið af þessari nýju raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum muni byrja að streyma á ástralska raforkumarkaðinn eftir nokkur ár og svo fara hratt vaxandi á síðari hluta tímabilsins. 

Til að setja þessi 45 þúsund GWh í eitthvert samhengi, má nefna að Kárahnjúkavirkjun framleiðir  um 4.600 GWh á ári. Þ.a. Ástralir ætla sér á næstu tíu árum að reisa virkjanir sem framleiða u.þ.b. tífalt það magn af rafmagni sem kemur frá  Kárahnjúkavirkjun. Það er fjárfesting upp á eina Kárahnjúkavirkjun á ári.

australia_hydro_snowy_949672.jpg

Til að framleiða 45 þúsund grænar GWh á ári þarf ansið hreint margar nýjar virkjanir. Vandamálið er bara að Ástralir hafa fyrir löngu síðan nánast algerlega fullnýtt vatnsaflið sitt í fjalllendinu í austanverðu landinu (ónýttir möguleikar eru aftur á móti fyrir hendi á Tasmaníu). Þar að auki hafa langvarandi þurrkar í Ástralíu valdið því að rafmagnsframleiðsla vatnsaflsvirkjananna þar hefur heldur farið minnkandi síðust árin. Það verða því ekki nýja vatnsaflsvirkjanir sem munu skila Áströlum þessum tugþúsundum gígavattstunda. En hvaðan á þá allt þetta nýja ástralska rafmagn að koma? Frá sólinni? Eða vindorkuverum?

australia_windy_hill_farm_queensland.jpg

Ástralir hafa svolítið verið að fikta með vindorkuna og í dag framleiða áströlsku vindrafstöðvarnar u.þ.b. 1% af rafmagninu í landinu. En þó svo sum svæði í Ástralíu henti prýðilega fyrir vindorkuver, þá er hæpið að vindurinn í Ástralíu geti skilað því að framleiða tugi þúsunda "nýrra" gígavattstunda á ári, eftir aðeins tíu ár.

Þar að auki er vindorkan afar sveiflukennd og því myndi þurfa hreint æpandi magn af uppsettu afli til að framleiða allt þetta rafmagn með vindorkuverum. Til að framleiða 45 þúsund GWh af rafmagni árlega með vindrafstöðvum í Ástralíu, þarf uppsett afl líklega að vera ca. fjórum sinnum meira en ef um væri að ræða "íslenskar" virkjanir (þ.e. vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir). Þess vegna álíta áströlsk stjórnvöld að vindorka geti aldrei orðið nema tiltölulega hógær hluti af lausninni. Finna þarf leið sem ekki krefst jafn mikils uppsetts afls og gefur stöðugri og tryggari raforkuframleiðslu.

Spurning hvort sólarorkan sé þá betri kostur? Sólarspeglaver (CSP) með þeim möguleika að geyma orkuna (hitann) í saltlausn eru ennþá einungis á tilraunastigi. Og þó svo sólarselluver (PV) séu vel þekkt tækni þá er slík rafmagnsframleiðsla ennþá svakalega dýr og bundin við það að sól sé á lofti. Þess vegna telja áströlsk stjórnvöld augljóst að þó svo bæði vindur og sól muni skila einhverjum hluta af þessum 45 þúsund GWh árið 2020, verður að finna stóru lausnina annars staðar. 

australian_hot_rocks_map.jpg

Það magnaða er að nú horfa Ástralir til orku sem við Íslendingar þekkjum svo prýðilega vel. Jarðvarmans! Að vísu er engin eldvirkni í Ástralíu og þar er þvi ekki að finna háhita í því formi sem við þekkjum svo vel hér á Íslandi. Þess vegna hefur líka ennþá ekki ein einasta jarðvarmavirkjun verið byggð í Ástralíu, að undanskilinni lítilli 120 kW virkjun í Birdsville í Queensland, sem nýtir lághita.

En nú hefur komið í ljós að þokkalega stutt undir yfirborði ástralska meginlandsins má víða finna mjög heitt berg (s.k. hot rocks). Þarna leynist sem sagt mikill hiti; nokkur hundruð gráða heitt berg. Þetta er mun meiri varmi en gengur og gerist á öðrum svæðum í heiminum og mun það stafa af miklu magni af úrani, þóríni og fleiri geislavirkum efnum sem finnast í óvenju miklu magni í berggrunni Ástralíu. Það má kannski lýsa þessu þannig, að "hægfara kjarnaklofnun" hafi í gegnum tíðina hitað upp þetta ævagamla berg. Jarðlögin þar fyrir ofan eru þeirrar gerðar að virka sem dúndrandi einangrun og þess vegna hefur svo mikill hiti byggst þarna upp. Gárungarnir lýsa þessari gríðarlegu uppsöfnuðu varmaorku í ástralska berginu, sem grænni geislavirkni. Skemmtilegt.

Til að komast í 250 gráða heitt berg eða jafnvel enn heitara þarf reyndar að fara hressilega djúpt. En þó svo jafnvel þurfi að bora niður á 3-5 km dýpi, er það ekki mikið meira en nú er verið að gera hér á Hellisheiðinni. Þar eru menn komnir með reynslu af því að fara vel niður fyrir 3 km línuna, þ.a. tæknilega yrði þetta ástralska megadýpi ekki algert nýjabrum í jarðhitabransanum. Það er sem sagt fullkomlega raunhæft að nýta megi þetta óvenjulega jarðfræðilega fyrirbæri suður í Ástralíu til að fá allt að 200 gráða heita gufu til að knýja jarðhitavirkjanir.

Undir hinu þurra yfirborði þessa risastóra lands leynist mikið neðanjarðarvatnakerfi. Hitann og vatnið sem þarna leynist engum til gagns er upplagt að nýta til að búa til gufuafl í anda íslenskra háhitavirkjana. Þá er einfaldlega borað í bergið og vatninu dælt þangað niður í ofsalegan hitann. Hugsanlega kann þróunin sem hefur orðið í háþrýstitækninni í bandaríska gasiðnaðnum, að flýta enn frekar fyrir uppbyggingu hagkvæmra og afkastamikilla ástralskra jarðhitavirkjana. Menn tala um að sumar virkjanirnar verði hundruð MW (til samanburðar þá er afl Kröfluvirkjunar um 60 MW og þar er nú talað um að bæta 150 MW við).

australia_geothermal_diagram_birdsville.jpg

Hitinn í ástralska berginu er svo mikill að ekki verður einu sinni þörf á að dæla upphituðu vatninu upp á yfirborðið. Þegar vatnið kemur ofaní 200-300 gráðu heitt bergið mun það sjálft brjótast upp af miklum krafti í formi gufuafls. Getur varla orðið einfaldara.

Þessi aðferð hefur auðvitað fengið athygli víðar en í Ástralíu. Rannsóknir á að nýta þennan djúpa jarðhita, sem finna má víða um heim, hafa t.d. lengi átt sér stað í Bandaríkjunum. Núna eru t.d. eigendur Google að skoða möguleika á að ráðast í svona verkefni þar vestra - eru mjög spenntir fyrir þessari tækni. En Ástralía virðist njóta þess forskots að heldur styttra sé þar niður í nægjanlega mikinn hita (jafnvel allt að 30-50% grynnra en í Bandaríkjunum). Auk þess getur vinnsla af þessu tagi haft netta jarðskjálfta í för með sér og þess vegna er gott að geta gert þetta í nokkurri fjarlægð frá þéttbýli. Það er auðvelt í ástralska dreifbýlinu!

australia_geothermal_drilling.jpg

Orkubloggarinn þekkir bærilega vel til í Ástralíu og hefur fylgst náið með jarðhitaþróuninni þar; ekki síst rannsóknum hjá vinum sínum á áströlsku rannsóknastofnuninni CSRIO. Þó svo löngu væri vitað að mikill varmi sé í ástralskri jörð, var hugmyndin um ástralska háhitavirkjun lengi vel aðeins fjarlægur draumur og nánast útópía. Ekki síst vegna þess að Ástralir eiga gríðarlegar kolanámur og ekki voru fyrir hendi pólitískir hvatar til að farið yrði útí nýja og dýrari orkutækni í landinu. Að sumu leyti var ástandið þarna svipað eins og gagnvart vindorkunni hér á Íslandi; hugsanlega er mikið af virkjanlegri vindorku hér en ennþá er enginn pólitískur vilji til að gera þær rannsóknir sem þörf er á til að geta metið þetta.

Nú hefur á skömmum tíma orðið gjörbreyting á stöðu jarðvarmans í Ástralíu. Á síðustu árum hefur jarðhitinn skyndilega orðið ein helsta von Ástrala til að auka hlutfall endurnýjanlegrar raforku og draga úr ofuráherslu á kolaorkuna. Stjórnvöld hafa stofnað sérstaka sjóði upp á nokkur hundruð milljónir ástralíudollara, til að kosta rannsóknir og þróun jarðhitavirkjana, sem geta nýtt funheitt bergið. Fyrir vikið hafa nú sprottið upp mörg jarðhitafyrirtæki suður í Ástralíu, sem vilja ná í sneið af þessari fínu köku. Talið er að á næstu tveimur áratugum muni verða fjárfest fyrir ca. 3-3,5 milljarða ástralíudollara bara í jarðhitaverkefnum. Sem er talsvert, þegar haft er í huga að í dag fer ástralíudollarinn nálægt því að jafngilda einum bandaríkjadal.

reykjavik_geothermal_hole_949996.jpg

Hin nýja jarðhitastefna ástralskra stjórnvalda hefur hugsanlega gert Ástralíu að einum áhugaverðasta kostinum fyrir fyrirtæki með þekkingu og reynslu á hönnun og byggingu jarðvarmavirkjana. Ekki síst fyrirtæki sem kunna að höndla háhitagufu. Þó svo bæði ESB og Bandaríkin bjóði upp á ýmsa möguleika í jarðhitanum og spennandi tækifæri kunni t.d. líka að leynast á Arabíuskaganum, í Kína, Indónesíu, Rómönsku-Ameríku og jafnvel víðar, er funheitur berggrunnur Ástralíu kannski albesta tækifærið fyrir t.d. íslenska jarðvarmaþekkingu.

 


"Frakkað" í New York

Þeir kalla það fracking. Þetta hugtak er notað yfir nýja vinnslutækni í gasiðnaðinum vestur í Bandaríkjunum.

gas_drillers.jpg

Fracking er dregið af nafnorðinu fracture, sem er sprunga eða brestur. Fullu nafni kallast þetta hydraulic fracturing. Þessi vinnsluaðferð felst í því að ryðja sér leið inní grjóthörð sandsteinslög, með því að beita háþrýstivatni; gjarnan blönduðu sandi og ýmsum efnum sem gera þrýstibununa ennþá öflugri. Þannig má brjótast þvers og kruss í gegnum sandsteininn, til að komast inn í þunn gaslögin sem þar liggja inniklemmd og þvinga gasið út og upp á yfirborðið.

Ekki var fyrr búið að finna upp á þessari vinnsluaðferð vestur í Texas, en til varð slanguryrðið fracking í gasiðnaðinum. Sú aðferð að beita sandblönduðu vatni undir háþrýstingi sem borunaraðferð, er reyndar fjörgömul. En það er alveg nýtt að nota þessa tækni við að nálgast gas.

fracking-drawing.jpg

Upp á ástkæra ylhýra mætti kannski tala um brotvinnslu. Nema háþrýstitækni sé nærtækara hugtak. Brotvinnsla er samt kannski meira lýsandi; þessi aðferð við gasvinnslu veldur nefnilega litlum jarðskjálftum þegar vatnið brýtur sér leið í gegnum sandsteininn. Orsakar sem sagt bresti í jarðskorpunni, ef svo má segja. Kannski vilja samt einhverjir óþjóðhollir barrrasta nota lauflétt slangur og búa til íslensku sögnina að "frakka".

Þó svo horfur séu á að þunnildisgasið verði jafnvel lausn á orkuvanda Bandaríkjanna til langrar framtíðar, þá er þetta umdeild vinnsluaðferð. Reyndar standa tveir afskaplega ólíkir hópar saman í andstöðu gegn háþrýstiaðferðinni. Annars vegar er fólk sem horfir til umhverfisverndar og vill alls ekki að Bandaríkin halli sér enn og aftur að kolefniseldsneyti. Og segja háþrýstitæknina þar að auki bæði sóun á vatni og skemmi líka vatnsból vegna mengunar sem fylgi vinnslunni. Hins vegar er svo kolaiðnaðurinn, sem segir þessar háþrýstiboranir stórhættulegar og það verði að stöðva þessa vitleysu eins og skot áður en alvarlegur jarðskjálfti verði. Hér má hafa í huga að meira framboð af gasi er jú ekki til þess fallið að hækka verð á kolum!

fracking-diagram.jpg

Það að sækja þunnildisgasið með háþrýstitækninni er sem sagt ekki nein sáttaleið þarna vestra. En þessi gasvinnsla gæti slakað á þeirri spennutreyju sem Bandaríkin eru í vegna innfluttrar orku. Þar að auki er þetta nýja gasævintýri mjög atvinnuskapandi. Pólitíkusarnir hallast því margir á sveif með því að þunnildisgasið verði sótt - sem allra fyrst og sem allra mest. Jafnvel undir Central Park í New York.

Í Bandaríkjunum heyrir flest það sem lýtur að vatnsbúskap landsmanna undir Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA). En það að nota háþrýstivatn í gasvinnslu fellur samt ekki undir alríkislög. Eftirlit með þessum háþrýstiborunum er nefnilega í höndum fylkjanna. Ástæðan fyrir því fyrirkomulagi er sögð vera sú, að gasiðnaðurinn hafi ekki viljað sæta takmörkunum vatnsverndarlöggjafarinnar. Og hafi náð sínu fram með massífum lobbýisma  í Washington DC, þegar Bandaríkjaþing samþykkti vatnsverndarlöggjöfina Safe Drinking Water Act árið 2005. Og stjórnvöld í Texas og fleiri fylkjum virðast hafa takmarkaðan áhuga á því að leggja stein í götu þess að háþrýstivinnslan breiðist út. Þess vegna hefur þessum nýja gasvinnsluiðnaði stundum verið lýst sem paradís fjárfesta utan marka laga og réttar.

Orkubloggið hefur áður greint frá því að það er hreinlega allt að verða vitlaust í þunnildisgasinu þarna fyrir vestan. Nú er ævintýrið að breiðast út frá Texas og fleiri fylkjum Suðurríkjanna. Nýjasta svæðið þar sem háþrýstitæknin er að fara á fullt er sjálft New York fylki.

new_york_central_park_winter_948619.jpg

Austurstrandarliðið í Nýju Jórvík hefur nokkrar áhyggjur af möguleikum neikvæðum fylgifiskum háþrýstitækninnar. Þar lítur fólk m.a. til þess að frá því þessi nýja tækni ruddi sér til rúms í Texas hafa þar á stuttum tíma mælst fleiri jarðskjálftar en næstu þrjá áratugi á undan. Ekki stórir skjálftar, en samt nóg til að titringurinn valdi mönnum áhyggjum.

Að auki er lítt vitað hvaða göróttu efnum gasleitarfyrirtækin blanda í vatnið, til að gera það áhrifameira í að brjótast gegnum sandsteininn. Vitað er að þar er um að ræða alls konar vafasamt glundur og margir hafa áhyggjur af því að þetta geti mengað vatnsból í nágrenni vinnslusvæðanna. Sumir álíta hreinlega að þetta skyndilega gasæði geti valdið einhverju mesta umhverfistjóni í sögu New York borgar!

Það er óneitanlega frekar kjánalegt, að miklu strangari reglur gilda um olíu- og gasleit t.d. djúpt útí Mexíkóflóa heldur heldur en gildir um það að stunda gasvinnslu með háþrýstivatnsborunum í miðjum stórborgum. Þess vegna hljóta senn að verða settar ítarlegri og strangari reglur um vinnslu af þessu tagi.

new_york_no_fracking.png

Talið er að allt að 40-60% af sand- og efnablönduðu háþrýstivatninu verði eftir í berginu og jarðlögum, þrátt fyrir uppdælingu. Hverjum manni ætti að vera augljóst að ekki er hægt að una við óvissuna og mengunarhættuna sem þetta kann að skapa. Vandamálið er bara að í hugum pólitíkusa er auðlindanýting einfaldlega oft meira spennandi en umhverfisvernd. Enda eru styrkirnir frá gasvinnslufyrirtækjunum í kosningasjóðina líklega umtalsverðir. Þess vegna lítur út fyrir að XTO og aðrir í þunnildisgasbransanum geti áfram "frakkað" á fullu án mikilla afskipta stjórnvalda. 

 


Codexis

Það er tímabært að Orkubloggið snúi sér á ný að því sem máli skiptir. Orkunni og auðlindum náttúrunnar!

-------------------- 

Hér undir miðnættið ætlar Orkubloggarinn að byrja á því að láta hugann reika til þess tíma þegar stjórnvöld óttuðust eitthvað sem kallað var "Aldamótavandinn". Og fólst í því að tölvukerfi um veröld víða myndu ganga af göflunum þegar árið 2000 rynni upp.

Það virðist ríkt í eðli manna að þurfa bæði að hafa eitthvað að óttast - og hafa eitthvað að trúa á. Um aldamótin var það líftæknin sem þótti mest spennandi af þeim veðmálunum sem í boði voru. Í dag eru margir helstu líftæknigúrúarnir búnir að finna sér annað skemmtilegt átrúnaðarmál. Sem eru nýjar leiðir í að framleiða fljótandi lífmassaeldsneyti fyrir tilstilli líftækninnar.

enzyme_ethanol_next_genration.gif

Líftæknin getur nýst með ýmsum hætti við að framleiða lífrænt fljótandi eldsneyti. Nýlega sagði Orkubloggið t.d. frá áætlunum fóstbróður Kára Stefánssonar hjá Synthetic Genomics um að nýta örverur í þessum tilgangi. Enn fleiri fyrirtæki eru að þróa aðferðir til að framleiða etanól úr sellulósa (beðmi) - í stað þess að nota korn eða sykurreyr eins og gert hefur verið í áratugi.

Vandamálið við sellulósann er að ná að brjóta niður fjölliðurnar í sellulósanum með viðunandi kostnaði. Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar í þessum tilgangi. Nú síðast hafa menn verið að horfa til þess að nota örverur eða lífræna hvata (ensím). Hér á landi munu t.d. hafa farið fram tilraunir með að nota hitakærar örverur í þessu sambandi. Enn sem komið er hafa allar slíkar vísindarannsóknir því miður skilað heldur fátæklegum árangri. Samt er mikil bjartsýni um að lausnin sé rétt handan við hornið og brátt opnist flóðgáttir af ódýru og hagkvæmi lífefnaeldsneyti, sem ekki muni keppa við fæðuframboð.

codexis_logo.jpg

Eitt þeirra fyrirtækja sem telur sig hafa lausnina er bandaríska Codexis. Nú eru horfur á að Codexis verði senn skráð á Nasdaq. Og verði þar með fyrsti nýi fulltrúi lífmassaeldsneytisins á þessum virðulega verðbréfamarkaði í meira en þrjú ár.

Rétt eins og það að fjárfesta í Decode og öðrum líftæknifyrirtækjum, þá er annarrar kynslóðar lífmassaiðnaður hvorki fyrir hjartveika né taugaveiklaða. Einungis fáein fyrirtæki í þessum nýja eldsneytisbransa hafa hætt sér útá hlutabréfamarkaðinn og þess í stað flest sótt fjármagnið til áhættufjárfesta. En kannski er að verða breyting þar á. Fyrir fáeinum dögum hóuðu snillingarnir hjá Codexis í menn hjá Nasdaq og vilja bjóða þar 100 milljón dollara hlutafé.

Codexis ætlaði sér reyndar upphaflega að fara í hlutafjárútboð haustið 2008. En ákveðið var að doka aðeins við, sökum þess að nokkur órói virtist vera á fjármálamörkuðunum. Fáeinum dögum síðar féll Lehman Brothers, þ.a. það var kannski eins gott að Codexis staldraði við. Menn voru ekki beint í miklum fjárfestinga-fíling þessa æsilegu haustdaga árið 2008, þegar bankageiri veraldarinnar riðaði til falls.

codexis-shell.jpg

En nú á sem sagt að kýla á þetta. Þeir sem vilja vera með í þessu spennandi dæmi hjá Codexis verða meðeigendur í fyrirtæki sem nú þegar hefur varið tugum milljóna dollara í að þróa tæknina. Og hefur sjálft Shell með sem stóran hluthafa.

Það er vissulega ekki sjálfgefið að þeir sem skrá sig fyrir hlutafé í Codexis græði á öllu saman. Þegar maður rennur í gegnum þær ljúfu 840 blaðsíður sem skráningarlýsingin er, hljómar þetta ekki beint eins og ævintýri með öruggum góðum endi. Á móti kemur að spennan hlýtur að koma adrenalíninu af stað - og það er auðvitað miklu skemmtilegra en að þjást af einhverri leiðinda áhættufælni. Hér er smá dæmi úr þessari bráðskemmtilegu lesningu sem skráningarlýsing Codexis er (leturbreyting hér):

enzymes_ethanol_2.jpg

"The development of technology for converting sugar derived from non-food renewable biomass sources into a commercially viable biofuel is still in its early stages, and we do not know whether this can be done commercially or at all... There are no commercial scale cellulosic biofuel production plants in operation. There can be no assurance that anyone will be able or willing to develop and operate biofuel production plants at commercial scale or that any biofuel facilities can be profitable... Fears of genetic engineering could pinch the company; and there might not be enough feedstock to turn into biofuels".

Og loks - af því Codexis er auðvitað til húsa á San Francisco svæðinu eins og flest önnur bandarísk spútnikfyrirtæki síðustu ára og áratuga - eru hugsanlegir hluthafar minntir á það að þetta getur allt saman einn daginn hrunið til grunna í orðsins fyllstu merkingu: "Our headquarters is located in the San Francisco Bay Area near known earthquake fault zones and is vulnerable to significant damage from earthquakes"!

Þetta er sem sagt bara fyrir alvöru töffara. Sem Íslendingar flestir auðvitað eru. Orkubloggarinn getur a.m.k. vart beðið með að senda nokkra snjáða dollarana þarna vestur til Frisco. Codexis!

 


Ólafur Ragnar í BBC

Ólafi Ragnari tókst nokkuð vel að eiga við hákarlinn Jeremy Paxman í Newsnight.

Orkubloggarinn hefur ætíð verið mikill aðdáandi breskrar fréttamennsku eftir námsdvöl sína í London fyrir margt löngu. En viðtalstæknin sem Paxman beitir er svolítið sérkennileg; spurningarnar oft leiðandi og fela í sér lúmskar rangtúlkanir. Sjálfum þykir bloggaranum sem Paxman eigi stundum erfitt með að hlusta á viðmælendur sína og fari gjarnan yfir það fína strik sem aðskilur góða ágenga fréttamennsku og dónaskap.

Og það er auðvitað erfitt fyrir Breta að skilja ríki, sem byggja stjórnskipun sína á ritaðri stjórnarskrá. Slíkt grundvallaratriði lýðræðisins er í raun ekki til í Bretland. Hvað um það; viðtalið má sjá á YouTube:

 

 

 

Og hér er annað viðtal við Ólaf Ragnar - á Bloomberg. Ólafur virkar svolítið pirraður á bullinu í fréttakonunni, sem virðist lítið vita um fyrri Icesave-lögin:

 

 


Icesave-lögin hin síðari

"Íslendingar ætla ekki að greiða skuldir sínar".

Þessi fullyrðing birtist nú í fjölmiðlum um allan heim. Og er til komin vegna ákvörðunar forseta Íslands að vísa nýju Icesave-lögunum um ríkisábyrgð til þjóðaratkvæðagreiðslu. Komi til þess að lögin verði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem virðist mjög líklegt þegar litið er til skoðanakannana, taka gildi fyrri Icesave-lög frá því í sumar. Sama yrði uppi á teningnum ef Alþingi dregur nýju Icesave-lögin til baka (með því að fella þau úr gildi líkt og gert var með Fjölmiðlalögin).

althingi-sett.jpg

Í fyrri Icesave-lögunum tók Ísland á sig að greiða Icesave-skuldirnar. Með tilteknum fyrirvörum. Það er því einfaldlega alrangt að Ísland hafi hafnað því að taka á sig ábyrgð vegna Icesave-skulda hins einkarekna Landsbanka Ísland. Þvert á móti eru fjórir mánuðir liðnir síðan hér tóku gildi lög þess efnis; lög nr. 96/2009. Þar segir í 1.g.r.:

Fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að veita Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta ríkisábyrgð vegna lána sjóðsins frá breska og hollenska ríkinu samkvæmt samningum dags. 5. júní 2009 til að standa straum af lágmarksgreiðslum, sbr. 10. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi. Ábyrgðin tekur til höfuðstóls lánanna eins og hvor um sig mun standa að sjö árum liðnum frá undirritun samninganna, 5. júní 2016, auk vaxta af lánsfjárhæðinni, með þeim fyrirvörum sem fram koma í lögum þessum og gildir til 5. júní 2024.

org_clinton_initative.jpg

Staðreyndin er sem sagt sú að ákvörðun forsetans snýst ekki um hvort greiða eigi Icesave-innistæðurnar eða ekki. Alþingi er löngu búið að samþykkja ríkisábyrgð vegna þessara innistæðna. Málið snýst einfaldlega um það hvort eðlilegt er að íslenska þjóðin taki á sig nánast óútfylltan tékka vegna þessara innistæðna. Ekkert er vitað hversu mikið mun fást upp í þetta af eignum Landsbankans. Það er heldur ekkert vitað hvernig efnahagsmál munu þróast á komandi árum. Það var ekki einu sinni full vissa um að innistæðutryggingakerfið eigi við þegar allsherjar bankahrun verður, líkt og varð hér á landi. Þess vegna var bæði eðlilegt og skynsamlegt að tilteknir fyrirvarar yrðu á greiðsluskyldu vegna Icesave-innistæðnanna.

Í sumar sem leið varð breið samstaða um það á Alþingi að veita ekki ótakmarkaða ríkisábyrgð vegna Icesave-innistæðnanna. Þess vegna voru settir í lögin ákveðnir fyrirvarar. Þar sem m.a. var litið var til þess að greiðslur skyldu taka tillit til efnahagsþróunar. Einnig var þar gert ráð fyrir þeim möguleika að þar til bærir dómstólar myndu geta fjallað um það hvort reglur um innistæðutryggingar gildi að fullu þegar kerfishrun verður á fjármálamarkaði, eins og hér varð.

dominique-strauss-kahn-meeting.jpg

Að mati Orkubloggsins voru þetta sjálfsagðir fyrirvarar. Þeir miðast við það að málefnið heyri undir úrlausn lögmætra dómstóla. Þeir miðast líka við það að forðast sé að stofna þjóðríki í gjaldþrot vegna slíkrar greiðsluskyldu.

Bretar og Hollendingar vildu aftur á móti ekki ganga að þessum sjálfsögðu og eðlilegu hlutum. Þar með var ekki aðeins allri sanngirni ýtt til hliðar og efnagaslífi þjóðarinnar til langrar framtíðar stefnt í voða, heldur einnig hafnað að mark sé takandi á íslenskum dómstólum. Þar að auki bendir flest til þess að Bretar hafi misbeitt stöðu sinni til að hafa óeðlileg áhrif á bæði Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og ýmis aðildarríki ESB til að einangra Ísland. Þar er bersýnilega fyrst og fremst verið að líta til hagmuna kröfuhafa og meingallaðs innistæðutryggingakerfis ESB, á kostnað íslensks almennings sem ekkert hafði með einkafyrirtækið Landsbanka Íslands að gera.

Þessi ömurlegu vinnubrögð breskra stjórnvalda eru í algerri andstöðu við það sem kallast geta eðlileg nútímasamskipti evrópskra lýðræðisríkja. Það er algerlega fráleitt að Ísland geti gengið að því að taka á sig skuldbindingar sem geta gert íslenska ríkið gjaldþrota og um leið afsalað sér þeim rétti að leita eftir bindandi niðurstöðu dómstóla um lögmæti þessarar samningsniðurstöðu, sem hefur verið þröngvað upp á ísland.

Þess vegna hefði Alþingi aldrei átt að afgreiða nýju Icesave-lögin. Og þess vegna var sjálfsagt mál að forseti Íslands vísaði þessu máli til þjóðarinnar.

Þar að auki voru fyrirvararnir í fyrri Icesave-lögunum einfaldlega til mikillar fyrirmyndar. Þeir ættu að vera leiðarljós í að breyta vinnubrögðum alþjóðlegra lánastofnana gagnvart skuldsettum þjóðríkjum. Í stað þess að þjóðir séu "aðstoðaðar" með lánveitingum sem byggjast á kverkataki, væri nær að alþjóðasamfélagið breytti um vinnubrögð og að slíkir efnahagslegir fyrirvarara yrðu einfaldlega venjubundin viðmiðun í flestum svona lánasamningum. Það er tímabært að fjármálaumhverfi veraldar þurfi að taka tillit til þess að peningar eigi ekki að stjórna öllu. Því miður skilja gömlu nýlenduveldin Bretland og Holland ekki slík sjónarmið, enda með langa sögulega reynslu af því að arðræna þjóðir í krafti ofbeldis.

gordon-brown-joyful.jpg

Misskilningur og vanþekking á málinu veður nú uppi í erlendum fjölmiðlum. Það er vissulega slæmt. En við getum ekki miðað ákvarðanir okkar við slíkt rugl. Þetta mál þarf að leysa eins og aðrar milliríkjadeilur milli siðaðra þjóða. Þar sem bæði er gætt að sanngirni og tillit tekið til þess að niðurstaðan sé í samræmi við lög og rétt.

Framtíð íslensku þjóðarinnar má ekki ráðast af taugaveikluðu kosningabrölti breskra stjórnmálamanna, ótta sumra íslenskra stjórnmálamanna um pólitískt ofbeldi erlendra ríkja, né vanþekkingu fáfróðra blaðamanna sem helst virðast vilja búa til æsifréttir. Orkubloggarinn vill ítreka orð sín í síðustu færslu hér á Orkublogginu og hvetja til þess að þaulvanur sáttasemjari komi að því að leysa þessa alvarlegu milliríkjadeilu. Kannski ætti Ólafur Ragnar að bjalla í Bill Clinton! Þetta mál snýst nefnilega um meira en bara peninga - þetta snýst líka um mannleg gildi og það að taka tillit til náungans.

 


Blessar Guð Ísland?

Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu. 

stjornarskra_islands_forseti.jpg

Þannig segir í 26. gr. stjórnarskrár íslenska lýðveldisins. Mun forseti Íslands staðfesta Icesave-lögin? Eða mun hann hafna því? Og lögin verða borin undir þjóðaratkvæði?

Alþingi samþykkti umrætt frumvarp eftir mikla og nokkuð ítarlega umfjöllun. Varla er hægt að segja að þar hafi gerræði ráðið ríkjum. Engu að síður virðist mjög stór hluti þjóðarinnar vilja að málið komi til þjóðaratkvæðagreiðslu - og þar með má segja að myndast hafi "gjá milli þings og þjóðar". Samkvæmt því má kannski álykta sem svo að til að vera samkvæmur sjálfum sér hljóti forsetinn að synja lögunum um staðfestingu sína.

Lögin fela í sér ríkisábyrgð á skuldbindingum Íslands vegna milliríkjasamnings sem gerður var við Breta og Hollendinga um uppgjör á Icesave (í gegnum Tryggingasjóð innistæðueigenda og fjárfesta). Sumir kunna að telja óeðlilegt að forsetinn bregði fæti fyrir milliríkjasamning. Ákvæði 26. gr. stjórnarskrárinnar gera reyndar engan mun á því hvað um er fjallað í lögum, þegar kemur að staðfestingi forseta eða synjun. Af orðum þessarar stjórnarskrárgreinar má vera augljóst að forsetinn hefur vald til að synja lögunum um staðfestingu sína og þar með skjóta þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.

althingi_bal.jpgMeðan stjórnarskráin er þannig úr garði gerð að forsetinn getur hafnað að staðfesta lög og vísað þeim í þjóðaratkvæði, er ekkert óeðlilegt við þá leið. Það er vissulega afar óvenjulegt að slíkt gerist; fjölmiðlalögin alræmdu eru eina dæmið fram til þessa. En þessi Icesave-lög eru heldur ekki neitt venjulegt mál! Í reynd er ómögulegt að segja hversu mikið muni fást uppí Icesave með eignum Landsbankans. Þetta er því í reynd mjög óáþreifanleg skuldbinding og gæti mögulega orðið þjóðinni afar þungbær, svo ekki sé fastar að orði kveðið. 

Í grein í Guardian í gær  er talað um að það geti tekið heila kynslóð Íslendinga að greiða skuldirnar sem ríkissjóður er að sökkva í. Í huga Orkubloggarans er málið sáraeinfalt: Einkafyrirtækið Landsbankinn safnaði innlánum undir merkjum Icesave, með loforði um óvenju háa vexti, til að afla fjár til að geta mætt skuldbindingum sínum. Þetta skilaði bankanum miklu fjármagni, en reyndist engu að síður ekki lausn á vanda Landsbankans. Bankinn fór í þrot.

Geir_blessi_IslandÞó svo aðalörsök þess að svo fór fyrir Landsbankanum, hafi verið glæfralegur rekstur stjórnenda bankans, áttu bresk stjórnvöld líka þátt í atburðarásinni. Þau lögðu sitt af mörkum til að koma ekki aðeins Landsbankanum - heldur öllu íslenska bankakerfinu - fram af hengifluginu. Með því að beita s.k. Hryðjuverkalögum.

Það má vel vera að bankarnir hafi algerlega verið komnir að fótum fram. Og það getur vel verið að Íslendingar geti sjálfum sér um það kennt að hafa í gegnum tíðina kosið yfir sig óhæfa Alþingismenn - og þar með einnig tryggt að hér var allt eftirlit með fjármálalífinu í skötulíki. Það var líka vafasamur gjörningur hjá íslenskum stjórnvöldum að tryggja að fullu innstæður í íslenskum bankaútibúum hér á landi, en telja sig geta hlaupist undan sambærilegri skuldbindingu gagnvart Icesave og öðrum bankainnistæðum í útibúum Landsbankans erlendis.

icesave_clear-difference_948443.jpgOrkubloggarinn er þeirrar skoðunar að þetta réttlæti samt ekki að hroðalegum skuldum einkafyrirtækisins Landsbankans vegna Icesave, verði velt yfir á íslensku þjóðina. Hér hrundi heilt bankakerfi. Slíkar efnahagslegar hamfarir valda því, að mati Orkubloggarans, að íslensk stjórnvöld eru í fullum rétti til að grípa til sértækra aðgerða og hafna ábyrgð vegna Icesave. Bretar eru ekki með hreinan skjöld og þrátt fyrir ömurlegt getuleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart því að tryggja að íslenska fjármálakerfið myndi ekki lenda í slíkum ógöngum, hljóta neyðarréttarsjónarmið að koma hér til skoðunar. 

Naumur meirihluti þingmanna ákvað fyrir nokkrum dögum að ríkið taki á sig ábyrgð vegna Icesave í þeirri mynd sem nú hefur verið samþykkt. Um þessa niðurstöðu er mikill ágreiningur meðal þjóðarinnar. Hugsanlega er um að ræða gríðarlega þunga skuldabyrði - vegna einkafyrirtækis sem almenningur hafði ekkert með að gera. Þess vegna þykir Orkubloggaranum sjálfsagt að þjóðin fái að kjósa um þetta mál. Úr því Alþingi gat ekki ákveðið slíka þjóðaratkvæðagreiðslu, hlýtur forseti Íslands að grípa hér inní og vísa málinu til þjóðarinnar.

Þar með væri forsetinn ekki að taka neina afstöðu. Hvorki með né á móti ríkisstjórninni, né með eða á móti Icesave-samningnum. Hann væri aðeins að inna af hendi sjálfsagða skyldu sína sem þjóðhöfðingi; að leyfa þjóðinni að tala í þessu gríðarlega mikilvæga máli.

olafurragnargrimsson.jpgÞað er samt augljóslega erfitt fyrir Ólaf Ragnar Grímsson að fara þannig gegn vilja ríkisstjórnarinnar; þessarar fyrstu vinstristjórnar í sögu íslenska lýðveldisins. Það væri vatn á myllu andstæðinga ríkisstjórnarinnar og klíkunnar sem hvað harðast hefur barist gegn Ólafi Ragnari. Þess vegna er kannski ólíklegt annað en að hann staðfesti lögin.

Engu að síður kann að vera að forsetinn láti andstöðu stórs hluta þjóðarinnar við lögin verða sitt leiðarljós. Og synji þeim um staðfestingu.

Ef til þess kemur er mikilvægt að vel verði hugað að því að þjóðin gangi vel upplýst til kosninga um þessa löggjöf. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar væri mikilvægt að kynna með vönduðum hætti hvaða afleiðingar niðurstaðan muni líklega hafa. Fólk þarf að fá góðar upplýsingar til að geta tekið afstöðu til þess hvort skynsamlegra sé að undirgangast Icesave-samninginn með ríkisábyrgð eða að því sé hafnað. Síðari kosturinn kann að hafa alvarlegar pólitískar afleiðingar fyrir samskipti Íslands við önnur ríki og mikilvægt að kjósendur geti áttað sig á hverjar þær kynnu að verða. En lokaorðið um þetta mál á að vera hjá íslensku þjóðinni.

Loks má minnast þess hvernig fór um fjölmiðlafrumvarpið. Segjum nú að svipað gerist með þetta Icesave-frumvarp. Segjum sem svo að forsetinn synji um staðfestingu. Þá gæti ríkisstjórnin einfaldlega dregið frumvarpið til baka, eins og gert var við fjölmiðlafrumvarpið. Og gefið viðsemjendum sínum kost á að ganga að fyrri Icesave-samningnum, með þeim fyrirvörum sem þar er að finna og um varð víðtæk samstaða á Alþingi. Það væri kannski eðlilegasta niðurstaðan úr því sem komið er.

rikisstjorn_johanna.jpg

Orkubloggarinn lýsir sig algerlega mótfallinn nýja frumvarpinu, sem Alþingi var að afgreiða. Og vonast svo sannarlega til þess að forseti Íslands taki sig til og geri sitt til að þjóðin fái að sýna hug sinn gagnvart því. Íslenska þjóðin á að fá að eiga lokaorðið um gildistöku þessara ólaga.

 


Kon Tiki og Te Papa

Á þeim tugum fermetra af veggjaplássi, sem bækur þekja hér á heimili Orkubloggarans, eru nokkrir kilir í sérstöku uppáhaldi. Einn þeirra er lúinn kjölurinn á ferðabók norska ævintýramannsins Thor's Heyerdahl um Kon Tiki leiðangurinn.

kon_tiki_bw.jpg

Þetta er íslensk þýðing eftir Jón Eyþórsson frá árinu 1950 og ber titilinn Á Kon Tiki yfir Kyrrahaf. Fáar ef nokkrar bækur las bloggarinn sér til meiri ánægju sem krakki. Og les hana ennþá af og til - á nokkurra ára fresti.

Ástæða þess að þessi ævintýraleiðangur frá árinu 1947, þegar Heyerdahl sigldi við fimmta mann á balsaflekanum Kon Tiki frá Perú til Suðurhafseyja, er rifjaður upp hér í dag, er sú að nú á jóladag lést síðasti eftirlifandi leiðangursmaðurinn.

Sá var Norðmaðurinn Knut Haugland. Þó svo Heyerdahl sé auðvitað þekktastur áhafnarmeðlimanna um borð í Kon Tiki - og Svíinn Bengt Danielsson  sennilega sá sem næstmesta athygli hlaut af Kon Tiki-förunum - er saga Haugland ekki síður sérstök og merkileg.

telemark_heroes_948349.jpg

Haugland var á sinum tíma mikil andspyrnuhetja og tók m.a. þátt í því að sprengja upp þungavatnsbirgðirnar í Rjukan. Það skemmdarverk kom hugsanlega í veg fyrir að þýska nasistastjórnin næði að búa til kjarnorkusprengju fyrstir þjóða. Reyndar er í dag talið að Þjóðverjarnir hafi ekki haft yfir nægu þungavatni að ráða til að smíða kjarnorkusprengju. En hetjurnar frá Þelamörk tryggðu það a.m.k. að Hitler ætti ekki séns á slíku gjöreyðingarvopni.

Það er fastur liður í hvert sinn sem Orkubloggarinn kemur til Osló, að sigla út á Bygdöy og heimsækja skemmtilegu söfnin þar. Ekki aðeins Kon Tiki safnið, heldur líka Víkingaskipasafnið og svo auðvitað skipið hans Friðþjófs Nansen; Fram. Nú fer að verða tímabært að drífa sig brátt aftur til Osló, því stráksa mínum, 8 ára, langar að sjá á dýrðina sem pápi er búinn að lýsa svo vel.

Það er sérkennilegt þetta aðdráttarafl, sem gömul skip hafa. Orkubloggarinn minnist t.d. skemmtilegrar heimsóknar um borð í rússneskt seglskip í Reykjavíkurhöfn í sumar sem leið og í gamlan dísil-kafbát frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar á safni í Svíþjóð. Til að magna áhrifin þar, glumdu bæði vélarhljóð og drunur frá djúpsprengjum um bátinn og sjaldan hefur bloggarinn upplifað meiri innilokunarkennd heldur en þarna inni í kafbátnum. Sem þó var uppi á þurru landi!

Það er sorglegt að fiskveiðiþjóðin hér í norðri skuli ekki hafa komið sér upp myndarlegu siglinga- og sjóminjasafni. Þar sem öll siglinga- og fiskveiðisaga Íslendinga væri rakin, með gripum og skipum frá bæði árabátatímanum, skútuöldinni og upphafi togaraútgerðar. Slíkt safn gæti bæði verið geysilega fræðandi fyrir æsku landsins og spennandi áfangastaður fyrir ferðafólk. Það hefði kannski verið nær að ráðast frekar í byggingu á slíku siglinga- og sjávarminjasafni, heldur en að fara útí þessa Hörpuvitleysu.

wellington_947085.jpg

Rakin fyrirmynd að myndarlegu íslensku siglinga- og sjóminjasafni hefði verið hið flotta Te Papa Tongarewa suður í Wellington á Nýja Sjálandi. Sem reyndar er þjóðminjasafn en leggur mikla áherslu á náttúru Nýja Sjálands og samskipti mannsins við hana í gegnum tíðina.

Maoríarnir hafa einmitt búið álíka lengi á Nýja Sjálandi, eins og við Íslendingar hér á Klakanum góða (Maoríarnir komu líklega til hins óbyggða Nýja Sjálands e.h.t. á tímabilinu 800 til 1200 - og áttu mera að segja sína Sturlungaöld eftir að þeir höfðu útrýmt Móafuglinum snemma á 16. öldinni og fór að skorta fæðu). Sjaldan ef nokkurn tímann hefur Orkubloggarinn komið á skemmtilegra safn, en einmitt Te Papa í Windy Wellington. Nema ef vera skyldu söfnin á Bygdöy hinni norsku!

fram_in_the_ice.jpg

Það er hálf nöturlegt til þess að hugsa, að Íslendingar skuli aldrei hafa gerst landkönnunarþjóð. Þ.e.a.s. viðhaldið forvitni sinni eftir þjóðveldið og landafundi Leifs heppna og félaga.

Rétt eins og Íslendingar, þá voru Norðmenn lengi vel sárafátæk bændaþjóð. Noregur öðlaðist ekki sjálfstæði fyrr en árið 1905 - um það leyti sem Íslendingar fengu heimastjórn. Engu að síður náðu Norðmenn fljótt miklum árangri í bæði uppbyggingu iðnaðar og að seilast til áhrifa á Norðurslóðum. Og eignuðust hetjur eins og Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.

norway_economic_zone.png

Það munaði reyndar minnstu að Noregur næði líka austurhluta Grænlands undir sig, stuttu eftir nýfengið sjálfstæði. Hinni þrautreyndu dönsku stjórnsýslu tókst þó að verja tilkall Danmerkur til alls Grænlands - og fá viðurkenningu þar um frá hinum einsleitna nýlendudómstól Þjóðabandalagsins.

Norskir landkönnuðir sigruðu aftur á móti sjálft breska heimsveldið í kapphlaupinu um Suðurpólinn og áttu glæstar könnunarferðir um bæði Grænlandsjökul og ísbreiður Norðurhjarans. Fyrir vikið ráða Norðmenn nú yfir bæði Jan Mayen og njóta víðtækra réttinda yfir Svalbarða.

 


Trúarbrögð og heimsendaspár

gasoline-shortages_1973.jpg

Olíuframleiðsla í heiminum hefur aukist jafn og þétt.  Mannkynið hefur í meira en hundrað ár þurft sífellt meiri olíu til að knýja samgönguflotann og efnahagskerfið. Ávallt hefur verið unnt að mæta eftirspurninni. Í þau tvö skipti sem borið hefur á ónógu framboði (1973 og 1979) var það í bæði skiptin vegna mikils óróa tengdum Persaflóa-svæðinu og eingöngu um skammtíma vandamál að ræða.

Engu að síður er það auðvitað svo að hver einasta olíulind tæmist smám saman, jafnóðum og olíunni er dælt upp. Hingað til hefur jafnan verið hægt að snúa sér að nýjum lindum þegar hinar fyrri fara að slappast. En ef - eða kannski öllu heldur þegar - að því kemur að ekki verður lengur unnt að finna nógu margar nýjar lindir til að taka við þeim sem tæmast, hlýtur að draga úr olíuframleiðslu.

Þó ber að hafa það í huga, að það er alls ekki útilokað að hámark olíuframleiðslu veraldarinnar muni ekki koma til af því að framleiðslan geti ekki mætt eftirspurninni. Heldur muni ástæðan einfaldlega verða sú að eftirspurn eftir olíu staðni - eða taki jafnvel að minnka. Vegna nýrra orkughafa og nýrrar tækni. Þá myndi um leið draga úr framleiðslunni hjá olíuríkjunum, til að forðast offramboð og verðfall. Þar með hefði olíuframleiðsla náð hámarki - vegna þess einfaldlega að eftirspurnin hefði náð hámarki.

world_fuels_consumption_nov2009_2002-2010_944323.gif

Olíuframleiðslan árið 2009 verður talsvert minni en metárið 2008. Þó telja fæstir að hámarki olíueftirspurnar hafi verið náð. Olíuframleiðslan muni þurfa að vaxa á ný, þegar efnahagslífið tekur að hjarna við. Og þá telja sumir að framleiðslan geti jafnvel ekki annað eftirspurninni. Það myndi augljóslega hafa alvarlegar afleiðingar um allan heim. Umframeftirspurn eftir olíu myndi fjótlega þrýsta verðinu upp og þá gæti hátt olíverð virkað sem bremsa hagvöxt. 

Sá tímapunktur þegar olíuframleiðsla heimsins nær toppi er á ensku nefnt Peak Oil. Almennt er þetta hugtak eingöngu notað yfir þann framleiðslutopp þegar framleiðslan mun ekki lengur geta annað eftirspurninni.

Ef aftur á móti olíuframleiðsla toppar og svo dragi úr henni, einfaldlega vegna minni eftirspurnar, er ekki um að ræða hið klassíska Peak Oil - heldur er þá gjarnan talað um Peak Demand. Munurinn er sá, að þá skapar toppurinn ekki umframeftirspurn.

Slík þróun olíueftirspurnar myndi eiginlega gjöreyðileggja hin dramatíska svartsýnisspádóm Bölmóðanna, sem trúa á hið sótsvarta Peak Oil. Samt gæti auðvitað komið að því síðar, að olíuframleiðsla næði ekki lengur  að standa undir eftirspurninni. Þá yrði í reynd komin upp samskonar staða eins og fram til þessa hefur fyrst og fremst verið tengd Peak Oil. Að upp komi viðvarandi framboðs-skortur á olíu með þeim afleiðingum að olíuverð hækki mjög og valdi mögulega mikilli kreppu. En er þetta raunveruleg hætta?

oil-production-2004-2009.jpg

Fram til þessa hefur ávallt verið unnt að mæta olíueftirspurn veraldar án vandræða. Með örstuttri undantekningu í tengslum við Súez-deiluna 1973 og 1979 vegna valdaráns klerkanna í Íran.

Og þrátt fyrir marga svartsýnisspádóma um olíuskort - ekki aðeins síðustu árin heldur með reglulegu millibili í hundrað ár - er ennþá fátt ef nokkuð sem bendir til þess að skortur verði á olíu næstu áratugina - eða jafnvel ennþá lengur.

Það er nefnilega gríðarlega mikið til af olíu. Enn er af mikilli olíu að taka á Persaflóasvæðinu og víðar þar sem hefðbundin olíuvinnsla á sér stað. Þar að auki eru góðar líkur á að vinna megi nokkur hundruð milljarða tunna af olíu úr olíusandinum í Kanada og Venesúela. Jafnvel miklu meira; sumir segja eitt þúsund milljarða tunna bara í Kanada. Sem sagt eina trilljón tunna af olíu - sem slagar vel í alla þá olíu sem heimurinn hefur notað síðustu hundrað árin! Og þetta er bara olíusandurinn.

Þá er ótalið olíugrýtið (oil shale) vestur í Kólórado og víðar í Bandaríkjunum. Sem líklega er annað eins magn eins og olíusandurinn. Samtals erum við husanlega að tala um nokkur þúsund milljarða tunna af olíu úr olíusandi og olíugrýti (til samanburðar þá hefur heimurinn fram til þessa dags notað samtals u.þ.b. 1,2-1,3 þúsundir milljarða olíutunna).

Þetta yrði ekki umhverfisvæn olía - en nógu ódýr til að mæta olíuþörf mannkyns langt inn í framtíðina. Ef og þegar hnignun verður viðvarandi í hefðbundnu olíuframleiðslunni, er því líklega af nógu öðru að taka.

Loks væri unnt að framleiða óhemju magn af olíu úr kolabirgðum veraldarinnar. Vissulega hvorki grænt né vænt, en allt gerir þetta hina svartsýnu Peak Oil kenningu ótrúverðuga. Það er miklu líklegra að draga fari úr olíuframleiðslu af þeirri einföldu ástæðu, að menn snúi sér að öðrum orkugjöfum - af eigin frumkvæði!

peak_oil_exxon_desert.jpg

Samt er fullt af skynsömu og vel menntuðu fólki óþreytandi við að boða yfirvofandi Peak Oil; olíuskort með tilheyrandi himinháu olíuverði og efnahagskreppu. Í huga Orkubloggarans byggir slíkur boðskapur á fátæklegum rökum. Og er meira í takt við trúarbrögð en vísindi.

Þar með er bloggarinn ekki að fullyrða að þetta muni aldrei gerast. Þvert á móti mun olíuframleiðsla (eða olíueftirspurn) auðvitað einhverntíma ná toppi - og það jafnvel fyrr en seinna. En sé litið til staðreynda, lært af fortíðinni og skoðað hvaða möguleikar eru í olíuvinnslu, er bara afskaplega ólíklegt að svarsýnisspárnar um alvarlegar efnahagslegar afleiðingar Peak Oil gangi eftir. Ekki útilokað - en ólíklegt.

 


Undir rauðri kápu Kína

wang_zifei_1.jpg

Það ætlaði hreinlega allt um koll a keyra í Netheimum Kína um daginn. Þegar ungi viðskiptafræði-neminn hún Wang Zifei smeygði sér úr rauðu kápunni sinni. Og sat svo fíngerð og yfirveguð í stutta svarta kjólnum og hlustaði með athygli á Obama Bandaríkjaforseta, sem þarna ávarpaði kínverska námsmenn á ferð sinni um Shanghai í nóvember sem leið.

Kína er heillandi og furðulegt ríki. Öll vitum við að undir rauðri kápu Kína má nú líka finna kolsvartan heim kapítalismans. Þetta er samsetning sem margir töldu ómögulega, en virðist barrrasta virka nokkuð vel þarna í Austrinu.

Með því að innleiða takmarkaðan kapítalisma og opna fyrir erlenda fjárfestingu í hinu ríkisvædda alræði, tókst kínverskum stjórnvöldum að koma á blússandi hagvexti. Fyrir vikið hefur kínverska efnahagskerfið vaxið ótrúlega hratt. Vandamálið er bara að enginn veit hvort þessi öri vöxtur stenst til lengdar. Þó svo hún Wang Zifei hafi náð að höndla vel bæði rauða og svarta litinn, þarna í hátíðarsal Shanghai Jiao Tong háskólans, þá gæti Kína lent í miklum vandræðum ef grunnurinn reynist ótraustur.

wang_zifei_10.png

Kína er að sumu leyti eins og kleyfhugi. Tökum kínverska orkugeirann sem dæmi. Kína er með hröðustu uppbyggingu nýrra kolaorkuvera OG líka það ríki þar sem endurnýjanleg orka vex hvað hraðast. Nú síðast var kínverska þingið að samþykkja nýja löggjöf, sem skyldar allar rafveitur til að kaupa ALLT rafmagn sem framleitt er með endurnýjanlegum hætti.

Einfalt og gott. Stjórnvöld eiga svo að móta nánar hvernig að þessu verður staðið, en með lögunum á að tryggja að Kína verði til framtíðar í fararbroddi ríkja við að auka hlutfall endurnýjanlegrar orku. Á sama tíma eru kínversku kolaorkuverin einhver þau subbulegustu í heimi, enda kínversku brúnkolin svo sannarlega engin hágæðavara.

Ekki eru menn sammála um hvað sé framundan í kínversku efnahagslífi. Langt frá því. Þegar maður horfir á bandarísku fréttastöðvarnar virðast bjartsýnu Nautin allsráðandi. Það er reyndar svolítið áberandi, að bandarísku fjölmiðlanautin, sem nú þykjast sjá kreppuna æða skrækjandi burt, voru á sínum tíma flest dugleg að hæðast að þeim sem vöruðu við yfirvofandi ofhitnun efnahagslífsins. Það má svo sem vel vera að allt sé að fara aftur á skrið og að hikstinn í Kína sé þegar yfirstaðinn. Kannski er allt í besta lagi - bæði í hinu ríkisstyrkta bandaríska efnahagslífi og undir hinni rauðu kápu Kína. Stærð kínversku þjóðarinnar, miklar náttúruauðlindir landsins, sterkt miðstjórnarvald og agaður hugsunarháttur Kínverja mun kannski forða Kína frá slæmri dýfu.

wang_zifei_6.jpg

Það er a.m.k. erfitt að halda öðru fram, en að í framtíðinni hljóti Kína að verða langöflugasta hagkerfi heimsins. Í þessum töluðu orðum er Kína að koma sér þar þægilega fyrir í öðru sætinu. Fór á yfirstandandi ári (2009) fram úr Japan, sem svo lengi hefur verið næst stærsta efnahagskerfi heimsins. Áætlaðar tölur segja stærð kínverska hagkerfisins nú jafngilda 4.750 milljörðum dollara, en að Japan sé 4.600 milljarðar dollara. Aðeins Bandaríkin eru stærri.

Já - Kína er orðið næst stærsta efnahagskerfi veraldar. Að margra mati er bara tímaspursmál hvenær kínverska efnahagskerfið siglir líka framúr Bandaríkjunum! Bandaríska hagkerfið reiknast nú um 14 þúsund milljarðar dollara. Þó svo sú tala sé ansið mikið hærri en kínversku 4.750 milljarðarnir, þá þarf ekki að líða langur tími uns Kína kann að ná Bandaríkjunum. Ef t.d. kínverska hagkerfið heldur áfram að vaxa 10% árlega meðan vöxturinn í Bandaríkjunum verður kannski ekki nema að meðaltali 2-3% á næstu árum, mun kínverska efnahagskerfið verða orðið hið stærsta eftir ótrúlega stuttan tíma.

Þeir eru margir sem spá því að þetta muni einmitt gerast innan tíðar. Að kínverska hagkerfið verið brátt stærra en það bandaríska. Í huga Orkubloggarans bergmála samt spásagnirnar frá níunda áratugnum. Sem voru þess efnis að Japan myndi ekki dvelja lengi í öðru sætinu og brátt fara fram úr Bandaríkjunum.

japan_two_lost_decades.png

Fer eins fyrir Kína eins og fór fyrir Japan? Flestir lesenda Orkubloggsins hljóta að muna þá tíma þegar uppgangurinn í japanska efnahagslífinu var sem mestur. Var það ekki örugglega á hinum dásamlegu eighties? Japan virtist hreinlega óstöðvandi og var talið geta vaxið áfram nánast óendanlega mikið, eftir því sem kaupmáttur myndi aukast í Asíu. Á þeim tíma fullyrtu margir sérfræðingar, að Japan myndi brátt ná Bandaríkjunum og í framhaldinu verða stærsta efnahagskerfi heimsins. Varla höfðu menn sleppt orðinu þegar japanska efnahagsundrið hljóp á vegg. Og hefur legið þar síðan steinrotað. Í heila tvo áratugi hefur japanski draumurinn verið í dásvefni - og enn er  ekki útséð með hvenær úr því fer að rætast.

sse_composite_index_2009.png

Þegar litið er aftur til sögunnar er eflaust bæði hægt að færa rök með og móti því að uppgangurinn í Kína hljóti að vera bóla. Þróun hlutabréfaverðsins í kauphöllinni í Shanghai bendir kannski ekki augljóslega til óeðlilegra hækkana. En annað og ennþá skemmtilegra viðmið er það, að þegar byggingakranarnir eru orðnir að skógi þá sé fallið yfirvofandi. Hafa ekki eignabólur alltaf sprungið? Af hverju ætti það ekki líka að gilda um Kína?

Ég veit; það stendur eflaust ekki á svörum eða útskýringum um það frá vísum mönnum af hverju Kína sé öðruvísi. Og að þar gildi ekki gömlu lögmálin um vöxt og ofvöxt kapítalískra hagkerfa. Og að Kína eigi mikið inni enn, áður en ástæða sé til að óttast alvarlegt hökt.

wang_zifei_7.jpg

Það að segja að Kína hljóti að stoppa af því Japan stoppaði er líklega frekar slöpp röksemd. Kína á enn gríðarmikið af ódýru vinnuafli, sem ekki hefur ennþá verið nýtt í efnahagsuppganginum. Og þar eru líka miklu meiri ónýttar náttúruauðlindir en voru í Japan. Svo virðist efnahagsleg staða Kína reyndar bara bærileg. Þar hafa t.d. vextir ekki verið keyrðir jafn svakalega niður, eins og í Bandaríkjunum og víðar. Þess vegna er ennþá fyrir hendi dágott svigrúm til vaxtalækkana ef á þarf að halda (útlánsvextir í Kína hafa haldist nálægt 5% allt árið 2009). 

Þrátt fyrir slímuga slóð sprunginna fasteigna- og verðbréfabóla um allan heim, er alls ekki víst að svo þurfi líka að fara í Kína. Munum eftir orðum hins bráðsnjalla sálfræðings, Amos Tversky, sem er einmitt líklega merkasti vísindamaðurinn sem kvaddi okkur á árinu sem var að líða i aldanna skaut (hann lést 2. júní s.l.). Tversky taldi afar hæpið að spá í framtíðina með því að vísa í fortíðina. Heimurinn er flóknari en svo að beita megi fortíðarlínuritum til að reyna að átta sig á framtíðinni. Menn verða að vera opnir fyrir öðrum möguleikum.

Kínverjar eiga líka alveg ókjör af dollurum og geta t.d. notað þá til að kaupa upp náttúruauðlindir, námur og hráefni um allan heim. Færu létt með að kaupa allan nýtingarétt á Drekasvæðinu og staðgreiða þannig Icesave fyrir Íslendinga. Ef þeir bara kæra sig um. Kínverjar eiga sem sagt góða möguleika á ýmsum aðgerðum til að örva eigið atvinnulíf - ef á þarf að halda.

wang_zifei_8.jpg

Á hinn bóginn eru líka margar kenningar uppi um að Kína verði senn fyrir þungu höggi. Sumir benda á að uppgangur Kína sé háður mikilli eftirspurn erlendis frá. Sérstaklega frá bandarískum neytendum - en þar horfir jú ekkert sérsteklega vel þessa dagana.

Og þrátt fyrir trú margra á styrkar stoðir kínverska efnahagslífsins, eru þeir til sem segja að kínverska efnahagsundrið sé blaðra sem hljóti að gefa eftir. Það er t.d. rökstutt með því að peningaflóðið í Kína sé að miklu leyti komið frá hinu opinbera; ríkinu, sveitarfélögum og ríkisfyrirtækjum. Fyrir tilstilli lána og peningaprentunar  Efnahagsuppgangurinn byggi á einhverri óhugnalegustu skuldasúpu sem hafi nokkru sinni verið hituð upp. Góður gangur hjá kínverskum stórfyrirtækjum sé til kominn vegna dæmigerðrar eignabólu, þar sem saman fari síhækkandi fasteignaverð og hringekja hlutabréfahækkana. Og að því muni koma að eignabólan springi og eitraðar skuldirnar hrynji yfir kínversku þjóðina.

Það yrði óneitanlega dramatískt ef satt reynist. Að kínverski verðbréfamarkaðurinn sé lítt skárri en hið svakalega ástarbréfakerfi íslenska bankageirans. Hvellurinn yrði væntanlega ærandi ef slík megablaðra myndi springa. Vonandi er ekkert að marka slíka svartsýni. En óneitanlega bíður Orkubloggarinn spenntur eftir því að sjá hvað leynist undir hinni rauðu kápu Kína. Reynist þar allt vera slétt og fellt... eða kannski rotið? Látum það verða lokaorðin í dag. Orkubloggarinn óskar lesendum sínum farsældar á nýju ár. 

 

 

 


Vor í Sydney

Um þetta leyti árs fær Orkubloggarinn alltaf smá "heimþrá". Til Sydney. Það varð honum í dag tilefni til að rifja upp Morgunblaðsgrein frá timum Ástralíudvalarinnar. Sjá hér.

 


Hefur olíunotkun OECD toppað?

Þetta eru um margt merkilegir tímar.

Í áratugi hafa Bölmóðarnir varað við að skelfileg olíukreppa sé um það bil að skella á veröldinni, vegna sívaxandi olíufíknar og æ erfiðari framleiðslu. En nú er því aftur á móti haldið fram að olíunotkun Vesturlanda hafi náð hámarki - og að það séu jafnvel nokkur ár síðan hápunktinum var náð. Það séu því þróunarlöndin sem fá það hlutverk að halda eftirspurninni uppi.

oecd_members_1.png

Orkubloggarinn á satt að segja svolítið erfitt með að kyngja því, að olíueftirspurn Vesturlanda hafi náð hámarki. Jafnvel þó svo vitað sé um einstök lönd sem þetta á við um, eins og t.d. Danmörk, þá er pínu erfitt að trúa því t.d. að þetta gildi um stærsta olíusvolgrara heimsins; Bandaríkin. Þar er ennþá talsverð fólksfjölgun. Er samt farið að draga úr olíunotkun þar vestra? Til langframa!

Því er nú haldið fram að þessi mögnuðu þáttaskil hafi orðið í orkusögu Vesturlanda árið 2005. Þá hafi olíuneysla heimshlutans, sem kennir sig við OECD, náð hámarki. Olíunotkun OECD-ríkjanna árið 2005 hafi meira að segja verið meiri en uppgangsárin miklu 2006 og 2007.

cera-logoNánast með ólíkindum ef satt er. Snillingarnir hjá CERA vestur í Bandaríkjunum fullyrða að hvort sem litið sé til Bandaríkjanna, ESB eða Japan sé þetta staðreynd. Fyrir vikið hafi olíueftirspurn OECD minnkað um heilar 3,7 milljón tunnur pr. dag milli 2005 og 2009.

CERA stendur fyrir bandaríska ráðgjafarfyrirtækið Cambridge Energy Research Associates og þykir nokkuð fínn pappír. Menn leggja því við jafnan við hlustir þegar CERA ropar - þrátt fyrir að spár þeirra hafi auðvitað alls ekki alltaf gengið eftir.

OECD_Oil_consuption_1987-2008_OilDrum

Það er athyglisvert að þó svo CERA spái því, eins og flestir aðrir, að olíunotkunin á Vesturlöndum muni vaxa talsvert eftir að kreppan líður hjá - og muni reyndar aukast strax á næsta ári (2010) - telja þeir að notkunin þá verði samt talsvert vel undir því sem var 2005. Það merka ár (2005) hafi einfaldlega verið toppárið innan OECD, sem aldrei verði slegið!

Ástæðan er sögð vera mikil breyting í neyslumynstri fólks. Fráhvarf yfir til sparneytnari bíla er þarna stærsti þátturinn. Aðrar röksemdir CERA fyrir þessari nýjustu spá sinni, eru að afar ólíklegt sé að fjöldi bíla pr. íbúa innan OECD eigi eftir að vaxa. Þar að auki muni framleiðsla og notkun á lífmassaeldsneyti aukast. Allt muni þetta verða til þess að olíunotkun næstu árin og áratugina muni verða nokkuð stöðug og aldrei ná toppnum frá 2005. Þegar OECD notaði u.þ.b. 49,5 milljón tunnur á dag.

Þetta telur CERA þó ekki verða til þess að olíuneysla heimsins hafi náð hámarki. Þar á bæ búast menn almennt við því að eftirspurnin frá Kína, Indlandi og fleiri ríkjum utan OECD muni aukast mun meira en sem nemur samdrættinum innan OECD. Nefna þeir töluna 89 milljón tunnur í þessu sambandi fyrir árið 2014. Til samanburðar þá var heimsneyslan árið 2008 um 85 milljón tunnur á dag og búist er við að hún verði u.þ.b. 84 milljón tunnur daglega á yfirstandandi ári (2009).

World_oil_consumption_growth_2002-2010_EIA-2009

Ekki eru allir sammála þessum spám CERA um svo hóflega aukningu á heimsvísu til framtíðar. Upplýsingaskrifstofa bandaríska orkumálaráðuneytisins (EIA) er á því að olíuneysla í heiminum eigi eftir að aukast mun meira og hraðar. EIA  er með nokkurn veginn sömu framleiðslutölur vegna síðustu ára eins og CERA setur fram, en EIA gerir ráð fyrir að olíueftirspurn muni nema um 97-98 milljónum tunna á dag árið 2014. Þarna munar hvorki meira né minna en u.þ.b. 9 milljón tunnum - sem er svipað og öll olíuframleiðsla Saudi Arabíu!

Ljúflingarnir hjá EIA eru heldur ekki á því að olíueftirspurn OECD-ríkjanna hafi náð hámarki og spá áframhaldandi aukningu þar a.m.k. fram til 2030. Já - þetta er yndislega grá og óviss veröld. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. En menn eru a.m.k. flestir sammála um það að heimurinn þurfi að auka olíuframleiðslu sína umtalsvert, til að geta mætt aukinni eftirspurn frá löndum eins og Kína og öðrum efnahagskerfum sem enn eigi eftir að styrkjast mjög mikið. Og þar með þurfi veröldin talsvert meira af olíu en nú er; spurningin er bara hvort innan 2014 þurfi að bæta við einni eða tveimur Saudi Arabíum!

Herge_Philippulus_the_Prophet-1

Þegar allt kemur til alls, þá er STÓRA spurningin kannski alls ekki sú hvort olíuneysla OECD hafi náð toppi. Heldur hvenær olíuframleiðsla heimsins nær toppi - eða öllu heldur hvort framleiðslan geti áfram náð að mæta allri eftirspurninni. Þar erum við komin að hinu eldfima Peak Oil, sem er auðvitað allt annar handleggur.

En eins og Orkubloggarinn og aðrir sjálfumglaðir snillingar vita, mun Peak Oil líklega aldrei skella á í þeirri mynd að það valdi alvarlegri olíukreppu. Af því efahagslífið mun halla sér að nýjum orkugjöfum nægjanlega snemma. Bölmóðarnir eru aftur á móti óþreytandi við að boða "the end of the world as we know it" og að heimurinn sé á heljarþröm ægilegrar orkukreppu.

 


Verðbólguótti og álbros

oleg-deripaska_money.jpg

Oleg Deripaska heitir gjörvilegur piltur, sem ýmist er kallaður milljarðamæringurinn með barnsandlitið eða sagður minna mest á dyravörð á vafasömum skemmtistað.

Í reynd er Deripaska bráðgreindur ungur Rússi, sem náði að vinna sig upp í rússneska áliðnaðinum og nýta tækifærin í einkavæðingarstefnu Jeltsin-tímabilsins. Hann er þar að auki tengdasonur rússneska stjórnmálamannsins Valentin Yumashev og konu hans, Tatyana Dyachenko, en hún er einmitt dóttir Borisar Jeltsin.

Svo fór að Deripaska náði að koma stórum hluta rússneska áliðnaðarins undir sig og varð stærsti hluthafinn í stærsta álfyrirtæki heimsins. Sem er auðvitað Rusal, eins og lesendur Orkubloggsins eru sjálfsagt flestir meðvitaðir um. Í þessu sambandi má minna á eldri færslu  Orkubloggsins um Deripaska og Rússajeppana hans, frá því fyrir rúmu ári síðan. Frá þeim dögum þegar Íslendingar biðu spenntir eftir Rússaláninu alræmda. En það er allt önnur saga.

oleg-deripaska-face.jpg

Það er varla ofsagt að þessi rétt liðlega fertugi Rússi og aðaleigandi Rusal, sé valdamesti maðurinn í áliðnaði veraldarinnar. Og ekki amalegt fyrir áliðnaðinn að vera uppá svona snillinga kominn.

En jafnvel hjá auðmönnum Rússlandi skiptast á skin og skúrir. Fyrir rétt um ári síðan var Deripaska álitinn auðugasti maður Rússlands - jafnvel ríkari en Íslandsvinurinn Roman Abramovich. En kreppan hefur því miður lagst illilega á Rusal og fjárfestingafyrirtæki Deripaska, Basic Element. Nú er svo komið að líklega má Oleg Deripaska þakka fyrir ef hann sleppur við gjaldþrot.

Fyrir um ári síðan voru eignir Deripaska álitnar litlir 28 milljarðar dollara, að mati viðskiptatímaritsins Forbes (þar er reyndar væntanlega átt við eigið fé). En nú einu ári síðar eru eignir hans sagðar hafa rýrnað um allt að 90%! Þannig að í dag standa kannski ekki eftir nema skitnir 3 milljarðar dollara. Í reynd er allsendis óvíst hvort nokkuð eigið fé sé lengur að finna í hlutafélagavafningum Deripaska - kannski er þarna allt kafnað í gígantískum skuldum.

Það væri auðvitað hið versta mál. En svo skemmtilega vill til að líkurnar á því að vel fari fyrir Deripaska eru reyndar nokkuð góðar. Af því svo virðist sem hann njóti ríkulegs stuðnings austur í Kreml þessa dagana. Oleg Deripaska er sem sagt einn af fáum olígörkum Jeltsin-tímabilsins, sem ennþá er í fullri náð stjórnvalda í Kreml.

deripaska_putin.jpg

En hvað svo sem líður velvilja Pútíns og klíku hans gagnvart Oleg Deripaska, verður ekki framhjá því litið að hugsanlega er álið frá Rusal og öðrum álrisum heimsins nýjasti leiksoppur fjármálaspekúlanta. Og ekki útséð með hvernig sá ljúfi leikur endar.

Á liðnum mánuðum hafa margir glaðst yfir hækkandi álverði. Vandamálið er bara að þessar hækkanir eru vart komnar til með að vera. Eftirspurn framleiðslu-iðnaðarins eftir áli hefur ekki verið að aukast nú í kreppunni - og þó svo sumir bæði vestan hafs og austan telji merki komin fram um efnahagsbata, er það ennþá hrein óskhyggja. M.ö.o.; ef ekki koma bráðlega fram skýrar og óvefengjanlegar vísbendingar um að efnahagslífið sé að komast á almennilegan skrið, er langlíklegast að álið - og reyndar ýmsar aðrar hrávörur - taki brátt hressilega dýfu.

aluminum_lme_prices_2009_945695.jpg

Sumir vilja jafnvel meina að álið muni hreinlega steinfalla í verði og að það sama hljóti líka að gerast með olíuna. Í huga Orkubloggarans má vissulega finna stæka lykt spákaupmennskunnar af álinu. Vissara að snerta ekki við þessum annars ljúfa málmi að svo stöddu. Því blaðran gæti sprungið - eða a.m.k. farið að leka.

Þetta er auðvitað allt háð mikilli óvissu. Óttinn við verðbólguna gæti náð að halda fjárfestum í hrávörugeiranum - og jafnvel beina þangað enn meira fjármagni. Hvað það verður veit nú enginn... en þetta er samt tæplega rétti tíminn að ráðast í nýjar álverksmiðjur. Allra síst á Íslandi.

Þeir álfar sem láta sér koma til hugar að Landsvirkjun eða Orkuveita Reykjavíkur eigi nú að hlaupa í að virkja fyrir nýtt álver, eru annað hvort áhættufíklar eða draumóramenn. Það er auðvitað voða gaman að gambla fyrir hönd íslenskra skattgreiðenda. En vegna alvöru málsins og æpandi áhættu, ætti að harðbanna alþingismönnum eða sveitarstjórnarfólki að liðka fyrir álvirkjun nú um stundir. Nema þá að viðkomandi gerist persónulega ábyrgur fyrir öllum lánum sem til slíkra verkefna yrðu tekin. Það myndi kannski hægja aðeins á skuldagleði þeirra, sem höndla með eigur almennings.

qatalum_aluminum_qatar.jpg

Þegar augunum er rennt yfir þróun áliðnaðar veraldarinnar síðustu misseri og ár, er ýmislegt sem bendir til þess að offramboð verði á áli næstu árin. Hvað mest áberandi er geggjuð uppbygging Kínverja a nýjum álverksmiðjum. Sagt er að álframleiðsla í Kína muni aukast um 20% bara á næsta ári (2010). Það er einfaldlega ekki heil brú í álversstefnu kínverskra stjórnvalda og sennilega allt of hratt þar gengið um álgleðinnar dyr.

Og það er víðar um heiminn sem menn leggja í púkkið til að tryggja offramboð af áli. Í Abu Dhabi verður á komandi ári (2010) einmitt gangsett ein nett álverksmiðja - sem verður reyndar stærsta álbræðsla í heimi og mun í framtíðinni framleiða 1,4 milljón tonn árlega! Að auki má t.d. nefna að einmitt núna á sunnudaginn fyrir viku, fór nýja Qatalum-verksmiðjan í gang austur í Katar. Þar verður ársframleiðslan nærri 600 þúsund tonn - bara fyrsti áfanginn. Þeir kunna svo sannarlega að smíða stórt þarna á blessuðum Arabíuskaganum.

deripaska_praying.jpg

Staðan er sem sagt sú að margt bendir til hressilegrar offramleiðslu á áli á næstu misserum og árum. Ekki nema von að Deripaska leggist á bæn. Hér skiptir líka máli að birgðageymslur um allan heim eru hreinlega stútfullar af áli þessa dagana. Einn álspekúlantinn orðaði það skemmtilega nýverið - þegar hann benti á að bara álið sem bíður í geymslunum dugi í 70 þúsund Boeing 747 júmbóþotur. Ekki ætlar Orkubloggið að ábyrgjast þá fullyrðingu, enda segir þessi samanburður manni lítið sem ekkert. En  you get the meaning.

Það er sem sagt til mikið af ónotuðu áli og vandséð að markaðurinn nái að halda álverði svo háu sem nú er. Verðhækkanirnar undanfarið virðast til komnar vegna hreinnar spákaupmennsku og ef braskararnir verða hræddir er hætt við að álverð taki senn umtalsverða dýfu. Þeir sem hafa gaman af að dramatísera hlutina, leyfa sér sumir að segja, að hækkandi álverð undanfarið geti varla verið ávísun á neitt annað en að álbólan springi með enn meiri hvelli en ella.

Hvort það gengur eftir verður barrrasta að koma í jós. Það eru a.m.k. ýmsar vísbendingar um að umtalsvert offramboð verði á áli á næstunni. Það eina sem gæti viðhaldið álbólunni er líklega ennþá meiri ótti spákaupmannanna en sá að álblaðran fari að leka. Sem er hræðslan við verðbólguna.

Spákaupmennskan með álið síðustu mánuði og misseri kann að gleðja bæði Rannveigu Rist og Oleg Deripaska. En Rússneskir skattgreiðendur munu ekki brosa, ef og þegar lækkandi álverð lendir af alefli á Rusal. Á liðnu ári bjargaði nefnilega rússneski ríkisbankinn VEB (Внешэкономбанк eða Vnesh Econom Bank) Rusal með ofurnettu láni upp á 4,5 milljarða dollara. Það jafngildir næstum 580 milljörðum íslenskra krónuræfla á gengi dagsins. Yrði súrt að sjá þá milljarða fara niður um niðurfallið hjá Rusal.

Já - bankastjórum ríkisbanka um allan heim finnst gaman að leika sér í Matador. Þar þekkist nefnilega ekkert sem heitir ábyrgð og leikur einn að taka svona stórfínar ákvarðanir um ráðstöfun fjármuna frá skattgreiðendum. Hvort sem er til að bjarga Rusalinu hans Deripaska eða gömlu Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.

_polina_yumasheva_deripaska.jpg

Svona upphæðir eru reyndar kannski barrrasta smotterí - a.m.k. núna þegar Íslendingar nenna varla að velta vöngum yfir skuldum sem eru minni en a.m.k. nokkur þúsund milljarðar króna. Þetta er samt áhyggjuefni fyrir blanka útlendinga. Eins og Oleg Deripaska og skvísuna hans; hana Pálínu Jumasjevu. Sem þó ávallt er tilbúin að senda lesendum Orkubloggsins ómótstæðilegt bros. Og hver getur sossem staðist svona indælt álbros?

Vonandi reynast aðvörunarorð Orkubloggarans um álið vera vindhögg. Bloggarinn vonar heitt og innilega að það hýrni yfir álinu, svo þetta fari nú örugglega allt vel hjá þeim skötuhjúunum geðþekku; Pálínu og Oleg. Þá geta íslenskir stjórnmálamenn líka haldið áfram að álíta álið vera málið. Að eilífu. Og geta nú meira að segja keppt við Abu Dhabi og Katar um undirboð á raforkuverði til álbræðslna.

Það verður sko aldeilis fjör að láta íslenska náttúru etja kappi við ódýrustu gaslindir veraldar í sandauðnum Arabíuskagans. Ísland á svo sannarlega bjarta framtíð fyrir höndum, núna þegar bankar í eigu ríkisins og bandarískra debt-distressed-vogunarbraskara geta farið á fullt í að fjármagna nýjar álvirkjanir. Geisp.

 


Villihænsnaveiðar og bandaríska gasbyltingin

Á örfáum árum hefur orðið hljóðleg en afar þýðingarmikil tækniþróun í bandaríska orkugeiranum. Sumir myndu kalla þetta byltingu - gasbyltingu sem kann að breiðast hratt út um heiminn og hafa afgerandi áhrif á þróun orkumála.

gas_us_shale_gas_low48_2009_945883.jpg

Upphaf 21. aldarinnar kann í hugum flestra að markast af sprunginni Netbólu og hryðjuverkaárásunum á Tvíburaturnana í New York. Fyrir dramatíska orkubolta er stóri atburðurinn í aldarbyrjun þó allt annar: Nefnilega sá að þá tók bandaríska þunnildisgasið að streyma útá markaðinn. Það gæti jafnvel farið svo að rétt eins og 20. öldin hefur verið nefnd olíuöldin, verði sú 21. kölluð gasöldin.

Af einhverjum ástæðum er bara afskaplega lítið talað um þessa gasbyltingu. Kannski af því sumir óttast að sannleikurinn muni samstundis ganga frá vindorku og sólarorku dauðri, rétt eins og gerðist þegar olíuverð hrundi í upphafi 9. áratugarins. Eða af því fjölmiðlar hafa engan áhuga á einhverju leiðindagasi, heldur vilja frekar segja frá safaríkum framtíðarspádómum Bölmóða um yfirvofandi hörmungar vegna hlýnunar jarðar eða olíukreppu sem brátt muni skella á okkur Jarðlingum.

Orkuskorturinn í Kaliforníu upp úr aldamótunum var að minnstu leyti lævísi Enron  að kenna. Þrátt fyrir ýmis bellibrögð Enron-manna, er staðreyndin sú að gasframleiðsla í Bandaríkjunum náði einfaldlega ekki að halda í við vaxandi eftirspurn góðærisins. Meira að segja þrátt fyrir stóraukinn innflutning á gasi til Bandaríkjanna frá jafn ólíkum löndum eins og Kanada og Katar var hreinlega farið að stefna í gasskort í Bandaríkjunum.

En þegar þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Einmitt þegar bandaríski gasorkugeirinn virtist vera á hraðleið í meiriháttar vandræði með að anna eftirspurninni, opnaðist óvæntur krani og nýtt bandarískt gas tók að streyma á markaðinn. Það skemmtilega er, að þar var ekki aldeilis um að ræða gas frá nýjum gassvæðum. Þvert á móti kom nýja gasið frá gamalreyndum gasvinnslusvæðum, sem höfðu virst á góðri leið með að vera fullnýtt.

barnett_shale_geology_east-west_945890.jpg

Þannig hagar til á gasvinnslusvæðunum í Texas og víðar um Bandaríkin að gasið hefur verið sótt úr stórum gaslindum, sem eru aðgengilegar með því einfaldlega að bora beint niður í sandsteinshvelfingarnar og láta gasið streyma upp. En í nágrenni við stóru gaslindirnar eru ókjör af gasi, sem er samanþjappað milli þröngra og grjótharðra laga af sandsteini. Með því að bora beint niður í slík þunnildi næst kannski upp smáræði af gasi. En svo þarf að flytja borinn til að berjast á ný við sandsteininn. Þetta borgar sig alls ekki og fyrir vikið er ógrynni af þessu þunnildisgasi í jörðu, sem hefur enn ekki verið sótt. Og þar til fyrir skömmu töldu flestir að þetta óaðgengilega gas myndi aldrei verða sótt vegna tækniörðugleika og kostnaðar.

Bandaríska gasbyltingin fólst í því að snjöllum mönnum tókst að þróa nýja og tiltölulega ódýra tækni til að nálgast þessi þunnu lög af gasi, sem liggja klemmd milli sandsteinslaganna. Með láréttri bortækni og háþrýstivatni tókst framtakssömum frumkvöðlum það sem öll stærstu olíu- og gasvinnslufyrirtæki Bandaríkjanna höfðu löngu afskrifað: Að bora þvert inn í gasþunnildin og nota háþrýstivatn til að þvinga gasið þaðan út og upp á yfirborðið. Með vel viðráðanlegum tilkostnaði.

gas_shale_us_future-impact.jpg

Í daglegu tali nefna menn þetta gas oftast shale gas. Orkubloggarinn hefur vel að merkja áður sagt frá upphafi þessarar nýju gasvinnslutækni, sem sumir segja að þýði ekkert minna en byltingu í bandaríska orkugeiranum. Afleiðingin er sú að gasþunnildin sem liggja klemmd í sandsteininum í Texas og víðar um Bandaríkin urðu skyndilega uppspretta ofsagróða. Þessi nýja tækni virkar nánast eins og gullgerðarvél og nýja gasæðið breiddist auðvitað út með leifturhraða. Sem eldur í sinu bárust tíðindin frá Texas og Louisiana til flest allra fylkjanna frá Arkansas til Pennsylvaníu og reyndar alla leið til bæði New York fylkis og Bresku Kólumbíu í Kanada. Á öllum þessum svæðum eru horfur á að nýja vinnslutæknin komi til með að stórauka gasframleiðsluna og veitir ekki af. 

Um leið jukust mjög birgðir Bandaríkjanna af þekktu vinnanlegu gasi. Til marks um mikilvægi nýju vinnslutækninnar, þá voru sannreyndar birgðir af vinnanlegu gasi í Bandaríkjunum árið 2000 sagðar vera 177 þúsund milljarðar teningsfeta (177 Tcf sem jafngilda um 5 þúsund milljörðum teningsmetra), en 2008 var talan komin í 245 þúsund milljarða teningsfeta (7 þúsund milljarðar teningsmetra). Og það þrátt fyrir að á þessu átta ára tímabili hafði 165 þúsund milljörðum teningsfeta (4,7 þúsund milljörðum teningsmetra) af gasi verið dælt upp í Bandaríkjunum!

arctic_princess_lng_darkness.jpg

Árið 2008 jukust sannreyndar gasbirgðir Bandaríkjanna sem sagt um 68 þúsund milljarða teningsfeta (tæplega 2 þúsund milljarða teningsmetra). Sem jafngildir t.d. öllum sannreyndum gasbirgðum Kína. Eða Noregs.

Það vill einmitt svo skemmtilega til að undanfarið hefur norskt flotgas (LNG) streymt með tankskipum vestur yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna. Norsararnir eru að gera það gott í heimskautagasinu og þaðan sigla gasflutningaskipin non-stop vestur um haf, hlaðin fljótandi gasi. Rétt eins og Arctic Princess, sem var einmitt á ferðinni um efnahagslögsögu Íslands fyrr í dag, sbr. þessi frétt Moggans..

gas_world_lng_trade_945884.jpg

Slíkir flutningar á fljótandi gasi hafa vaxið mikið undanfarin ár, vegna nýrra gasvinnslusvæða langt frá mestu gasnotendunum. Fljótandi gas er t.d. líka flutt með skipum frá Ástralíu og Katar og fleiri Persaflóaríkjum til landa eins og Bandaríkjanna og Japan. En nú er skyndilega útlit fyrir að Bandaríkjamenn þurfi ekki að vera jafn háðir fjarlægu gasi eins og þeir voru farnir að óttast. Miðað við núverandi þekktar vinnanlegar gaslindir, eiga Bandaríkin kannski allt að hundrað ára birgðir af gasi í jörðu! Og þar sem þunnildisævintýrið er bara rétt að byrja, eru góðar líkur á að gasbirgðir Bandaríkjanna eigi enn eftir að aukast umtalsvert.

Hugsanlega er einhver mesta umbreyting orkugeirans til þessa, allt frá því olíuöldin hófst vestur í Pensylvaníu, núna að hefjast vestur í Bandaríkjunum. Bylting sem felst í því að gasið verði í síauknum mæli nýtt sem eldsneyti í bæði samgöngum og raforkuframleiðslu. Ný vind- og sólarorkuver munu halda áfram að rísa. En hinir raunverulegu risapeningar munu streyma í gasiðnaðinn. Gasbrennsla losar miklu minna koldíoxíð en kolabrennsla og gas er einfaldlegasta ódýrasta og hagkvæmasta leið Bandaríkjanna til þess bæði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda OG minnka þörf sína á innfluttri orku frá vafasömum ríkjum.

bob_simpson_xto_945894.jpg

Til marks um þessa þróun má nefna nýlegar fréttir um að ExxonMobil sé að kaupa XTO Energy. XTO er einmitt í fararbroddi þeirra sem hvað best virðast ráða við þunnildisgasið. Með þessum viðskiptum er Exxon einfaldlega að horfa til framtíðar og tryggja sér sterka aðkomu að þunnildisgasiðnaðinum.

Og eins og gildir um öll skemmtileg viðskipti, munu þessi hafa komist á undir notalegum kringumstæðum. Þannig var að Rex Tillerson, forstjóri ExxonMobil, bauð Bob Simpson, stofnanda og stjórnarformanni XTO, nýverið á villihænsnaveiðar á búgarð fyrirtækisins suður í Texas. Og þar sem þeir röltu um sléttuna og svipuðust um eftir kjánalegum Texas-rjúpunum, bar auðvitað ýmislegt á góma. Þessi ljúfa skemmtiferð endaði svo á því, að þeir Rex og Bob handsöluðu nettan 40 milljarða dollara díl um kvöldið - eflaust með koníaki framan við arininn.

qail_hunting_texas.jpg

Þannig gerast "kaupin á eyrinni" vestur í Texas. Og þannig mótast orkuframtíð veraldarinnar á fuglaveiðum og í þægilegum leðurstólum langt útí sveit. Í vinsamlegu spjalli einstaklinga, svo órafjarri þingsölum, ráðuneytum eða Loftslagsráðstefnum.

 


Tíu dropar

Out-of-Africa_cd

Fyrir margt löngu hélt hin danska Karen Blixen til Afríku og stofnaði þar til kaffiræktar ásamt þáverandi eiginmanni sínum. Eins og lesendur Mit Afrika þekkja svo vel - og þó líklega enn fleiri af hinni upprunalegu ensku útgáfu; Out of Africa, að ég tali nú ekki um allan þann fjölda sem séð hefur samnefnda kvikmynd með þeim Meryl Streep og yfirsjarmörnum Robert Redford.

En nú er öldin önnur. Og líklega fáir danskir eða aðrir evrópskir ævintýramenn sem halda til þriðja heimsins í því skyni að hefja kaffirækt. Eða hvað? Eru kannski dúndrandi tækifæri í kaffinu? Er ekki sí og æ verið að minna okkur á það, að kaffi sé sú hrávara heimsins sem mest viðskipti eru með! Fyrir utan olíuna.

Já - sagt er að kaffi sé einhver heitasta hrávaran í veröldinni. Í frétt á viðskiptavefnum cnbc.com var nýlega viðtal við einn af þeim fjölmörgu sérfræðingum sem þar eru ósparir á að gefa okkur einföldum almúganum ljúf fjárfestingaráð. Í þetta sinn var það maður að nafni Kevin Ferry, stofnandi og einn eigandi fjárfestingafyrirtækis sem kallast Cronus Futures Management.

Ferry-kevin-CFMÍ fyrirsögninni þarna á cnbc.com fékk hann Kevin óneitanlega töff titil: Commodities Pro! Það verður ekki mikið svalara.

Snillingurinn sá sagði að flótti væri u.þ.b. að bresta á úr bæði olíu og gulli. Það kæmi Orkubloggaranum svo sem ekkert voðalega á óvart. Að sögn Ferry's þýðir þetta samt alls ekki neitt allsherjar verðfall á hrávörumörkuðunum. Miklu fremur að menn muni leita og finna ný tækifæri í hrávörunni. Og sjálfur taldi þessi ljúflingur að þar ættu fjárfestar að horfa til kaffisins.

Orkubloggarinn er alveg sammála því að stundum getur verið áhugavert að veðja á kaffið. Og hefur ekkert á móti því að menn taki stöðu með þeirri indælis hrávöru sem kaffibaunir eru. Öllu verra er þó þegar "sérfræðingar" telja það einhver sterkustu rökin með kaffinu, að kaffi sé sú hrávara sem mest viðskipti séu með á eftir olíu. En umræddur Kevin Ferry fell einmitt í þá gildru í umræddri ráðgjöf sinni á CNBC.

coffee_handsÁ ensku hljóðar þetta furðu algenga en alranga ævintýri um kaffið svo: "Coffee is the second largest commodity traded in the world".

Vandamálið er bara að þetta er hreint rugl. Að vísu eitthvert algengasta og lífseigasta bullið í hrávörugeiranum, en engu að síður tómt rugl. Jafnvel þrautreyndir miðlarar með hrávörusamninga halda þessu fram í virðulegum fjölmiðlum og fá ekki bágt fyrir. Það má jafnvel finna þessa fullyrðingu í vel metnum bókum eftir sprenglærða prófessora - og fyrir vikið er bullið orðið "almennur sannleikur".

Staðreyndin er aftur á móti sú að það liggja engar upplýsingar fyrir sem sýna fram á að kaffi hafi þessa merku stöðu á hrávörumörkuðunum. Þetta er m.ö.o. bara mýta. Að vísu svo svakalega algeng að Orkubloggarinn er eiginlega farinn að trúa þessu. En nenni menn að kynna sér málið, komast þeir fljótt að því að kaffi er ekki alveg jafn mikill megabissness og margir vilja láta. Viðskipti með kol eru t.d. langtum meiri en með kaffi og sama má segja um álið og fleiri málma. Og sé litið til manneldisafurða virðist sem veltan með bæði hveiti og maís sé líka umtalsvert meiri en með kaffi.

Vissulega er kaffi afar mikilvæg verslunarvara. Og auðvitað oft líka dásamlega gott. Kaffi er líka einhver mikilvægasta útflutningsvara fjölda þróunarríkja og alls ekki nein ástæða að gera lítið úr kaffisviðskiptum.

Ferry_KevinEn þegar jafnvel sérfræðingar í hrávöruviðskiptum halda því fram að kaffi sé með næst mestu veltuna af öllum hrávörum heimsins, er rétt að minnast þeirra sanninda sem eru hvað mikilvægastar í öllum bissness: Aldrei að trúa "sérfræðingum", alltaf að efast og muna að gagnrýnin hugsun er mikilvægari en allt heimsins gull.

Engin þjóð ætti að vera betur meðvituð um þessi sannindi en einmitt Íslendingar. Sem svo lengi trúðu á meinta velgengni íslenskra fjárfesta - velgengni sem átti að byggjast á einhverri séríslenskri viðskiptasnilld.

Ein af skemmtilegum - eða kannski öllu heldur kátbroslegum eða jafnvel sorglegum - heimildum um þessa ofurtrú á íslenskt viðskiptavit er áramótablað viðskiptakálfs Fréttablaðsins (Markaðurinn) í árslok 2006. Þar má lesa hvernig leiðtogar í íslensku viðskiptalífi og samfélagi átu klisjurnar og frasana hver upp eftir öðrum og nánast enginn virtist efast hið minnsta um styrkar stoðir íslensks efnahagslífs. Eina undantekningin var Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri Marel sem virtist greina einhver hættumerki. Blað þetta má nálgast á Netinu og er dapurleg minning um sauðsháttinn sem hér var svo útbreiddur.

Kaupthing_forstjorarÞó svo til væru þeir sem ekki trúðu á séríslenska bankasnilli þurfti allsherjar gjaldþrot íslenska bankakerfisins (og Seðlabankans líka) til að stjórnmálamennirnir, Samtök atvinnulífsins, launþegasamtökin, Háskólasamfélagið og almenningur léti sannfærast. Um að sannleikurinn var sá að "snillin" fólst einfaldlega í óeðlilega greiðum aðgangi að lánsfé, handstýrðri einkavæðingu, uppblásinni viðskiptavild, gölluðu eftirlitskerfi, fákeppni, siðleysi og jafnvel ólögmætri misnotkun á ungum og óþroskuðum hlutabréfamarkaði.

Kannski var stjórnmálamönnunum, eftirlitsstofnunum, lífeyrissjóðunum og hagsmunaöflunum hingað og þangað um þjóðfélagið vorkunn. Það er jú einfaldlega rosa gaman að dansa í kringum gullkálfinn. Og dást að fínu fötum keisarans í von um að nokkrir gullpeningar falli úr ímynduðum troðfullum vösum hans.

coffee-cup_laptopRugl virðist auðveldlega geta orðið að "sannleika". Bara ef nógu margir éta ruglið hver upp eftir öðrum. Til að vinna á mýtu þarf oft eitthvað mjög dramatískt að gerast. Eitthvað afgerandi sem sýnir svo ekki verður um villst að trúin (mýtan) var byggð á sandi, bulli, afneitun eða vanþekkingu. Vonandi höfum við öll lært, að við eigum aldrei að trúa sérfræðingum í blindni. Annars verður stutt í það að aftur þurfi að biðja Guð að blessa Ísland. Reynum a.m.k. að slaka á yfir jólin - með rjúkandi heitum kaffibolla. Gleðileg jól.

 


Af heimabruggi og Nóbelsverðlaunum

rex_tillerson_exxonmobil.jpg

Hvað  eiga Rex, Craig og Kári sameiginlegt?

Rex Tillerson, forstjóri ExxonMobil, var einhverju sinni spurður útí það hvort olíurisinn  hygðist ekki brátt fara að hasla sér völl í etanóliðnaðinum. Rex er sagður hafa  fussað. Og svarað því til að hjá Exxon væru menn með betri smekk en svo að þeir færu að sulla með eitthvert heimabrugg!

Blessað  etanólið var lengi vel ekki hátt skrifað hjá alvöru olíugæjum. Sannir karlmenn dæla auðvitað bara óblönduðu bensíni á jeppann og hananú. En heimur versnandi fer. Nú hefur frést af því, að meira að segja Rex og félagar hans séu dottnir í etanólið. Í sumar sem leið setti ExxonMobil nefnilega litlar 600 milljónir dollara í Synthetic Genomics. Sem ætlar að framleiða etanól með algerlega nýrri tækni.

brutus_caesar_et_tu_brute_2.jpg

Et  tu Brute!  Það að ExxonMobil væri dottið í etanólið þóttu óneitanlega  talsverðar fréttir í bransanum. Það hefur gengið á ýmsu í etanóliðnaðinum  síðustu misserin og árin - og menn dreymt um þegar sjálfir olíurisarnir myndu af alvöru byrja að fjárfesta í etanólinu. Aðkoma slíkra megakvikinda er í reynd nánast lykilatriði til að koma etanólinu úr korninu og yfir í annarrar, þriðju að ég tali nú ekki um fjórðu kynslóðar lífmassaeldsneyti. 

Mikið hefur áunnist í þeirri tækni að búa til etanól úr sellulósa (annarrar kynslóðar etanól) og nú eru menn farnir að sjá það sem raunverulegan möguleika að fara alla leið yfir í þörungasullið (þriðja kynslóðin). Að geta dælt fljótandi þörungum á Boeingþoturnar gæti valdið hreinni byltingu í eldsneytisiðnaðinum.

synthetic_bacteria_purple.jpg

Það virðist hreinlega enginn endir á hugkvæmni manna í að þróa eldsneyti. Og nú eru vísindamenn farnir að hugsa enn lengra en að nota þörunga sem uppistöðu fyrir fljótandi eldsneyti.

Það er sú tækni að nota bakteríur eða aðrar örverur til eldsneytisframleiðslu og er þá talað um fjórðu kynslóðar lífefnaeldsneyti (til að greina þetta frá þeim sem eingöngu horfa til þörunga). Þá væri eldsneytisvandi heimsins líklega leystur í eitt skipti fyrir öll og sá sem kemur því í framkvæmd gæti átt góðan séns á Nóbelsverðlaunum. Jafnvel þreföldum verðlaunum; í efnafræði, læknisfræði og friðarverðlaunin í bónus!

venter_craig.jpg

Þarna gæti verið frábært tækifæri fyrir okkar greindasta vísindamann. Nú þegar Decode er búið að fara eina leiðinda veltu,væri lógískt að Kári Stefánsson  snéri sér frá tærum erfðavísindum og og smellti sér þess í stað yfir í lífmassaeldsneytið. Munum að heilinn á bak við líftæknisullið hjá Synthetic Genomics er sjálfur Kjarnsýrukonungurinn Craig Venter; meistarinn á bak við Celera-verkefnið alræmda. Sem þurfti, eins og kunnugt er, að láta í minni pokann fyrir Human Genome Project (HGP).

Celera fór eins og það fór. En Venter veit að þekking hans á líftækni getur orðið til þess að finna nýjar leiðir til að framleiða ódýrt, hagkvæmt, fljótandi eldsneyti. Nú ætti Kári Stefánsson tvímælalaust að taka Venter sér til fyrirmyndar og láta gott af sér leiða í töfrandi heimi lífefnaeldsneytisins.

Þar er sko ekki um að ræða eitthvert apótekarasmotterí eins og þetta Decode-dæmi. Nei - nú er tækifæri fyrir Kára Stefánsson að fara alla leið og gera Ísland orkusjálfstætt. Og um leið finna nýja lausn fyrir alþjóðlega eldsneytisgeirann eins og hann leggur sig. Hvort það verður íslenskur þörungalífmassi, lífhráolía eða fjórðu kynslóðar lífefnaeldsneyti verður svo barrrasta að koma í ljós.

time_top100-2007_cover.jpg

Nú halda örugglega einhverjir fýlupokar að Orkubloggarinn sé bara að gera gys. Ekki aldeilis. Minnumst þess að frumkvöðlarnir Craig Venter og Kári Stefánsson voru báðir á lista Time 2007. Yfir 100 mikilvægustu eða áhrifamestu einstaklingana í heiminum (most influential people in the world). Svo skemmtilega vill til að þar voru þeir báðir á nítján manna listanum yfir mestu vísindamenn og hugsuði veraldarinnar (scientists & thinkers) og báðir með mikla þekkingu á líftækni.

Það er m.ö.o. ekki langt milli erfðavísindanna, líftækninnar og eldsneytisiðnaðar framtíðarinnar Orkubloggarinn hefur fulla trú á Kára Stefánssyni, þrátt fyrir að Decode hafi reynst þyngra að ná markmiðum sínum en upphaflega var ráðgert. Hugmyndin þar að baki var snjöll. En nú ætti Kári að fara í alvöru bissness; eldsneytisiðnaðinn. Þá gæti verið að við Íslendingar eignuðumst brátt annan Nóbelsverðlaunahafann okkar.

Þar að auk er Kári örugglega einn örfárra Íslendinga sem mögulega gæti fangað athygli manna eins og Rex Tillerson hjá ExxonMobil eða t.d. Tony Hayward hjá BP. Og það dásamlega við lífefnaeldsneytið er að það smellpassar inní strúktúrinn hjá olíurisunum. Miklu betur en að fara útí fjarskylda orkutækni, eins og eitthvert rafmagnsbílarugl eða vindorkuver.

kari_stefansson_decode.jpg

Olíurisarnir vinna ekki með hverjum sem er og eru afar picky á samstarfsaðila. Að mati Orkubloggsins gæti slíkt samstarf milli Kára Stefánssonar og einhvers olíurisa með grænar væntingar, orðið afar farsælt. Að því gefnu auðvitað, að fyrir hendi væri stuðpúði sem þeir gætu hvor um sig barið á þegar upp úr syði. Orkubloggarinn býður sig auðvitað fram í það - þó svo bloggarinn muni líklega seint teljast þykkur eða mjúkur!

 


Skilaboð frá COP15 í Köben

Þá er loftslagsráðstefnunni í Köben lokið.

cop15_logo_943859.png

Og flestir virðast sammála um að árangurinn hafi orðið heldur snautlegur. Vissulega var þarna í blálokin reyndar samþykkt yfirlýsing, sem fengið hefur heitið Kaupmannahafnar-yfirlýsingin (Copenhagen Accord). En hún hefur nákvæmlega enga lagalega þýðingu og því algerlega óljóst hvað mun taka við eftir að Kyoto-bókunin rennur út 2012.

Væntanlega verður boðað til nýrrar ráðstefnu til að móta bindandi markmið og skuldbindingar. Kannski best að þetta gerist utan sviðsljóssins og þá einfaldlega innan Sameinuðu þjóðanna. Þessar megaráðstefnur virðast hreinlega ekki vera að ná tilgangi sínum lengur.

Kaupmannahafnar-yfirlýsinguna má sjá hér  á vef Loftslagssamningsins (pdf-skjal). Og lesa má íslenskan úrdrátt eða endursögn hér á vefnum www.loftslag.is.

Að auki fengum  við sem eigum sæti í CEL (IUCN's Commission on Environmental Law) send sérstök skilaboð fyrr í dag, um innihald  Kaupmannahafnar-yfirlýsingarinnar og þýðingu hennar. Orkubloggarinn lætur þessa sendingu fljóta með hér að neðan og hverjum og einum frjálst að móta sér sína eigin skoðun á því hvort þessi ráðstefna í Kaupmannahöfn eigi eftir að hafa einhverja þýðingu í framtíðinni. En skilaboðin til CEL hljóðuðu þannig:

------------------------------------------------------

While much work remains, the Copenhagen Summit process has led to important steps forward by the United States and many counties around the world.  Here are a few highlights of noteworthy developments.  These developments are a meaningful start down the pathway to binding global agreement. 

At 10:33, Copenhagen time, December 19, 2009,the nations approved the Copenhagen Accord.  The new deal engages the United States with other developed and developing countries in an agreement that includes emission reductions, investments in clean technology and adaptation. Over the next years countries will submit their pollution targets, finalize the operational arrangements for short and long term finance that ramps up to at least $100 Billion and work out accountability arrangements and move toward a legally binding agreement. While the deal is not as fair as it should be, not as ambitious as science recommends and not yet binding, it is much needed progress toward global cooperation on the most dangerous issue facing our world today.

Countries have until January 30th to submit their emissions reductions commitments. They are not done yet - there is much more work to do to protect us from dangerous climate change.

Unprecedented Public Support for Strong Climate Action:

 "Never has the world united on such a scale" - Ban Ki Moon,Dec. 18.

  • 125 Heads of state.
  • 45,000 summit attendees.
  • 100,000 marched in Copenhagen calling for strong action.
  • 13million petition signers on the "tck, tck, tck" petition (www.tcktcktck.org, which calls for a fair,ambitious and binding agreement).

For the first time, the majority of the world's countries have offered to reduce their emissions, including but not limited to[1]:

US - 17% by 2020(below 2005 levels).

EU-20% by 2020 (below 1990).

China - 40-45% by 2020 (below 2005 levels, energy intensity).

India - 20-25% by 2020 (below 2005 levels, energy intensity).

Brazil - 21-25% by 2020 (below 2005 levels).

Indonesia - 26% by 2020 (below BAU).

Mexico - 50% by2050 (below 2000).

South Africa -34% by 2020 (below BAU).

South Korea - 4% by 2020 (below 2005).

Japan - 25% by 2020 (below 1990).

Architecture for a Program to Protect Forests: Agreement on the basic architecture and financing for international forest protection (Reductions in Emissions in Deforestation and Degradation; REDD).

cop15_un_climate_change_conference.jpg

Transparency in Meeting Emissions Reductions: US and China have agreed to a method for international emission reduction reporting for all counties.  This consists of a domestic legally binding system to report and verify carbon emissions reduction activities.  Should the US or other countries have questions, they've agreed to an international process for validating the data.

Clean Technology for the DevelopingWorld: Agreement on a technology deployment mechanism with two elements: 1) a technology executive committee and 2) a climate technology center/network.  They have also agreed on a short list of functions for the above two bodies.

China's Commitments:

  • 40-45% below 2005 levels by 2020, Intensity target.
  • Increase non-fossil primary energy by 15%.
  • Increase level of forest cover and forest density.
  • 20% Energy Intensity Reduction Target over 5 years.

Financial Commitments from US and other Countries:

Fast-start Financing: This process has resulted in general commitments being replaced by real dollar figures, providing money over the next 3 years:

  • The US has committed to our share of $30 billion.
  • Japanhas committed $15 billion.
  • Others?

Financing for Forest Protection:

The US pledged $1 billion over the next 3-years for REDD.

Australia, France, Japan, Norway, UK and US combined pledged $3.5 billion from 2010 to 2012.

Clean Technology Deployment:

US Department of Energy's Climate Renewables and Efficiency Deployment Initiative (REDI) - $350 million multi-lateral commitment over 5-years, of which $85 million is from the US for the scaling up renewable energy via the following programs:

  • SolarLED Energy Access Program.
  • Superefficient equipment and appliance deployment program.
  • Clean Energy information platform.
cop15_llr.jpg

Black Carbon (soot that harms public health and exacerbates climate change):

US EPA committedto $5 million to reduce black carbon emissions. 

Long-term Financing:

Secretary of State Hillary Clinton committed to contributing our share of a $100 billion fund for adaption, forest protection, and mitigation.

Phase out of Fossil Fuels:

Secretary Locke reaffirmed commitment made at G20to phase out of fossil fuels.

[1]World Resources Institute, 2009, Summary of GHG Reduction Pledges by Developing Countries.

-------------------------------------------------

Svo mörg voru þau orð. Orkubloggaranum verður hugsað til Matador-spilsins skemmtilega hér í Den: "Farðu aftur á byrjunarreit...". Það var a.m.k. skárra heldur en "Farðu beinustu leið í Steininn..."!

 


Rúlletta vindorkunnar

Út um allan heim er fjöldi fólks, sem leikur sér að því að setja fé sitt í orkugeirann. Með svo ljómandi glöðu geði og von um góðan ávinning. Sumir kaupa olíu, aðrir fjárfesta í jarðvarmavirkjunum og enn aðrir byggja vindrafstöðvar.

En þetta er sannkallað fjárhættuspil. Í reynd er frjáls samkeppni eiginlega bara aukaatriði í orkugeiranum. Hann er háður flóknu og síbreytilegu reglugerðarverki stjórnvalda og ómögulegt að segja hverju þau taka upp á næst. Við þetta bætist svo að menn hafa gjörólíkar skoðanir á því hvort orkugeirinn er það sem hann sýnist. Í þessu sambandi er t.d. forvitnilegt að skoða dönsku vindorkuna.

Denmark_wind_turbinesLesendur Orkubloggsins eru sjálfsagt flestir með það á hreinu að Danmörk er það land sem telja má forysturíki vindorkunnar. Í dag kemur um 1/5 af allri rafmagnsnotkun Dana frá dönskum vindrafstöðvum, sem er hæsta vindorkuhlutfall í heimi. Og danska fyrirtækið Vestas er með mestu markaðshlutdeildina í sölu stórra vindrafstöðva. Allt byggist þetta á því að dönsk stjórnvöld tóku snemma þá ákvörðun að niðurgreiða rafmagn frá vindrafstöðvum. Eftir því sem tækninni fleygði fram varð danski vindorkuiðnaðurinn sífellt sterkari og náði meira að segja forystu á alþjóðavettvangi.

Þetta vakti áhuga annarra og rótgróin stórfyrirtæki eins og þýska Siemens og bandaríska General Electric  helltu sér líka útí vindrafstöðvabransann. Vestas hefur á síðustu árum þurft að standa í harðri samkeppni og markaðshlutdeild þess reyndar dalað talsvert. Vestas er þó ennþá stærst á sínu sviði og virðist njóta gríðarlegrar virðingar í bæði dönsku og alþjóðlegu viðskiptalífi.

Danir eru eðlilega margir afskaplega stoltir af þessum árangri. Og dönsk stjórnvöld hafa notað árangurinn til að skapa sér græna og vistvæna ímynd. Mun grænni en Danir kannski eiga skilið, þegar litið er til þess að þeir fá ennþá langmest af raforku sinni frá kolaorkuverum og eru þar að auki stór olíuframleiðandi vegna auðlindanna undir Norðursjónum. Það að umheimurinn virðist líta á Danmörku sem fyrirmyndarríki í orkumálum, er kannski fyrst og fremst dæmi um snilldarmarkaðssetningu.

Nú síðast var það Obama Bandaríkjaforseti sem horfði til Dana sem fyrirmyndar, þegar hann kynnti  framtíðarstefnu Bandaríkjanna í orkumálum. Í ræðu sinni í apríl s.l. (2009) komst Obama t.a.m. svo að orði : "Today, America produces less than 3 percent of our electricity through renewable sources like wind and solar - less than 3percent. Now, in comparison, Denmark produces almost 20 percent of their electricity through wind power." Þetta vill Obama taka til eftirbreytni og að Bandaríkin eigi að ná þessu sama hlutfalli (20%) ekki síðar en árið 2030. Obama segir að það muni bæði styrkja bandarískan orkubúskap og um leið skapa 250 þúsund ný störf innan Bandaríkjanna.

cepos_logoÞað sem menn velta nú vöngum yfir er hvort þessi stefna Obama sé eins skynsamleg eins og kannski lítur út fyrir í fyrstu. Vissulega myndi þetta bæði minnka þörf á innfluttu gasi og minnka losun gróðurhúsalofttegunda. En það sem sumir óttast er að þetta muni verða mjög dýrt og alls ekki skapa jafn mörg störf eins og áætlunin gerir ráð fyrir. Fyrr á þessu ári kom t.a.m. út skýrsla frá dönsku CEPOS, sem dregur hreinlega upp kolsvarta mynd af vindorkunni. Þar segir að nýting vindrafstöðvanna sé einfaldlega ömurleg - og að fjárstuðningurinn sem danski vindorkuiðnaðurinn hafi fengið sé svo yfirgengilegur að það sé ekki nokkurt vit í því fyrir Bandaríkjamenn að ætla að stefna að sambærilegum "árangri". Synd ef satt er (sjá má þessa skýrslu hér; 3 MB pdf skjal).

Þetta er enn einn anginn af eilífum deilum um kostnað og skynsemi í orkugeiranum. Það eina sem er víst, er að ef heimurinn ætlar að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti mun það kosta fullt af pening. Að byggja nýtt vind- eða sólarorkuver og láta það leysa af hólmi uppgreitt kolaorkuver, sem gæti auðveldlega mallað áfram í marga áratugi, er reikningsdæmi sem erfitt er að kyngja fyrir sérhvern skattgreiðanda. Að auki kallar umbreyting yfir í að framleiða mikið af endurnýjanlegri orku, víðast hvar á stórfellda uppbyggingu á nýju dreifikerfi og það er líka dýrt.

Las_vegas_LuxorEn þó svo þróunin frá kolvetnisorku yfir í endurnýjanlega orku kunni að kosta háar fjárhæðir, virðist vera mjög breiður pólitískur stuðningur við slíka þróun. Enda eru Bölmóðarnir kannski að fókusera um of á skammtímahagsmuni og virða langtímahagsmunina að vettugi.

Orkubloggarinn leyfir sér a.m.k. að veðja á endurnýjanlega orku. En er líka vel meðvitaður um það, að slíkt veðmál er ekkert mjög frábrugðið því að leggja undir á rúllettunni skemmtilegu vestur í Vegas. Það væri líka barrrasta hálf döll ef það væri ekki smá spenna í þessum lauflétta orkuleik. Þar sem óvissan er hreint æpandi mikil og allt er auðvitað sett að veði með svo ljómandi glöðu geði.

 


Söguleg ræða... eða froða?

Ræða Obama á Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í morgun:


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband